Vikublaðið


Vikublaðið - 30.09.1994, Blaðsíða 8

Vikublaðið - 30.09.1994, Blaðsíða 8
8 Viðhorf VIKUBLAÐIÐ 30. SEPTEMBER 1994 Fundaö um siöferði sQópnmálamanna - að þeim fjarstöddum Vilhjálmur Árnason: Stjórnmál eru ekki fag, heldur er stjórnmálamönnum ætlað að þjóna umbjóðendum sínum, almenningi, af heilindum og koma heiðarlega fram við samstarfsfólk. Það er skylda stjórnmálamanna að stjórnast af almannaheill ótt fundur Félags firjáls- lyndra jafhaðarmanna í síð- ustu viku um siðferði í stjómmálum hafi verið vel sóttur var himinhrópandi skortur á einni þjóðfélagsstétt. Þama var ekki einn einasti kjörinn stjómmálamaður. Engiim ráðherra eða þingmaður lét sjá sig. Að vísu var á það bent að sama kvöld væri von á viðtali Stöðvar tvö við Guðmund Ama Stefánsson um röð ávirðinga á hann. En það er engin afsökun. Sjónvarpsviðtöl má taka upp. Málið virðist einfalt. Fundur um siðferði í stjómmálum höfðaði ekki til þeirra stjómmálamanna sem á annað borð áttu heimangengt. Sá sem á fundinum komst næst því að teljast til þessa hóps var Jón Sx- mundur Sigurjónsson fyrrverandi þingmaður, Hafnfirðingur og núver- andi hagffæðingur í heilbrigðisráðu- neyti þeirra Guðmundar Arna og Sig- hvats. Einnig heiðraði prófessor Gylfi Þ. Gíslason fundinn með nærveru sinni, en hann var um langt árabil þingmað- ur og ráðherra. Meðal fundarmanna voru Kristinn Haraldsson fyrrum ráð- herrabílstjóri, Styrmir Gunnarsson ritstjóri, Glúmur Baldvinsson blaða- maður og ráðherrasonur, Elsa Þor- kelsdóttir hjá Jafnréttisráði, Már Guðmundsson hagffæðingur, Sigurð- ur A. Magnússon rithöfundur, Hall- grímur Guðmundsson fyrrum bæjar- stjóri, ýmsir frjálslyndir jafnaðarmenn og háskólastúdentar. Stjórnmál eru ekki fag og stjórnmálamenn ekki færir Frummælendur voru þrír, Vil- hjálmur Arnason heimspekingur, Svanur Kristjánsson stjórnmálafræð- ingur og Agnes Bragadóttir blaða- maður. Oll erindin þrjú voru fróðleg þótt ólík væru að eðli og innihaldi. Vilhjálmur var með mikið innihald í fábrotnum umbúðum. Svanur var með mikið innihald í litríkum umbúð- um. Agnes var með lítið innihald í skraudegum umbúðum. Vilhjálmur spurði fundarmenn hvernig meta mætti hvað það er sem skiprir meginmáli við siðferðismat. Siðareglur í stjórnmálum hlytu að lúta sömu lögmálum og mannlífið sjálft. Ýmsar almennar siðareglur væru djúpt greiptar, en í stjómmálum virt- ist eins og að baráttan um völd leiddi af sér að allt væri leyfilegt, að minnsta kosti innan ramma laga. Til að mynda teldist það vart óeðlilegt að „hagræða sannleikanum". Vilhjálmur spurði hvort stjórn- málastarfið hefði einhver sérkenni. Ýmsar stéttir væm í þeirri stöðu að vera fagstéttir með tiltekna færni gagnvart „skjólstæðingum". Stjórn- málamenn væru hins vegar ekki með sérstaka „færni“ eða ákveðna „skjól- stæðinga“..Þeir séu fulltrúar fólksins, ekki öfugt og séu ekkert sérstaklega „færir“ umfram aðra. Stjórnmál em ekki fag, sagði Vilhjálmur, heldur er stjórnmálamönnum ætlað að þjóna umbjóðendum sínurn, almenningi, af heilindum og koma heiðarlega fram við samstarfsfólk. Það er skylda stjórnmálamanna að stjórnast af al- mannaheill, sagði Vilhjálmur og bætti því við að gott samstarf stjórnmála- inanna fæli meðal annars í sér að hver veitti öðmm gagnrýnið aðhald. Þannig mætti flokksþægð aldrei verða svo sterk að hún beri almannaheill of- urliði. Menn eiga að axla ábyrgð og öðlast fyrirgefningu Svanur Kristjánsson vildi flokka niður spillingu og nefndi í fyrsta lagi „smáspillingu", þegar reglur eru sveigðar og beygðar í greiðaskyni við vini og vandamenn. Slík spilling væri sums staðar „sjálfsagður hlutur“. I öðra lagi nefndi hann spillt vinnu- brögð. T.d. þegar flokkar eða flokks- menn þiggja gjafir sem ætlaðar eru til að stuðla að góðvild. A Islandi væri lítið vitað um fjármál flokka, þar væri um neðanjarðarhagkerfi að ræða. Svanur sagði flokkana fá stórar upp- hæðir af almannafé. Þeir hefðu 1993 fengið 116 milljónir króna á fjárlög- um, en í desember sama ár hefðu þeir með aukafjárveitingu hækkað þessa tölu í 150 milljónir. Og ekki þyrfri að gera grein fyrir einni einustu krónu. ísland er næstum eina landið á Vest- urlöndum þar sem málum er svona komið fyrir, sagði Svanur. Annað dæmi af spilltum vinnu- brögðum sagði Svanur vera klíkuskap við mannaráðningar, verksamninga og opinberar framkvæmdir. Eða þá þegar skjólstæðingar fá fyrirmæli um hvernig þeir eigi að verja atkvæðisrétri sínum. Þá sagði Svanur fyrir- greiðslupólitík og spillt vinnubrögð nátengd fyrirbæri. I þriðja lagi nefhdi Svanur spillingu á háu stigi. Hann nefndi sem dæmi þegar stjómmálamenn fá sérstaka „aðstoð“ til að fá sérstaka meðferð í kerfinu á móti, gjafir eða þegar opin- berir embættismenn létu skipulagða glæpastarfsemi viðgangast. Svanur sagði að miðað við Italíu gætu íslendingar e.t.v. sagt að ástand- ið væri bara harla gott. Hann nefndi og að spilling hcfði á síðustu 30 til 40 árum farið minnkandi og að ákveðin tegund af pólitískri ábyrgð hcfði farið vaxandi, sem sé að stjórnmálamenn væru ábyrgir fyrir fylgi flokka sinna (hér fjallaði Svanur á skondinn hátt um ábyrgð Kjartans Jóhannssonar og Þorsteins Pálssonar). Svanur varaði þó við bjartsýni á að ábyrgð færi mjög vaxandi. Hann sagði það hins vegar sína skoðun að samfara auknuin kröf- um um siðferði og ábyrgð ætti að koma aukið uinburðarlyndi. Nú væri mönnum sem axla ábyrgð útskúfað þannig að þeim gæfist ekki tækifæri til að vinna sig upp aftur. Það þyrftí að ýta undir getuna til að fyrirgefa fólki í opinbem lífi. Svanur fjallaði nánar um fyrir- greiðslupólitík og sagði að ekki væri sami rassinn undir öllum flokkunum. Taldi hann einhlítt að Alþýðubanda- lag og Kvennalisti væm ekki undir sömu sök seldir og aðrir flokkar. Agnes finnur engan annan Guðmund Árna Hér verður ekki náið farið út í er- indi Agnesar Bragadóttur blaða- manns. Hún mótmæli sérstaklega þeim orðum Svans að við væmm ekki nógu fyrirgefandi og undraðist að slík orð kæmu frá stjórnmálaffæðingi. „Lestu betur fræðin þín, Svanur“, sagði Agnes. Annars kom fram það álit Agnesar að sem betur fer færi á- byrgð vaxandi á ýmsum sviðum. Sú krafa verði æ háværari að þeir sem sólunda almannafé verði látnir víkja og sagði Agnes að þeir sem sýna að þeir séu gjörsamlega óhæfir stjórn- málainenn ættu að fá sér aðra vinnu. Hún sagði aðspurð að Guðmundur Arni Stefánsson ætti tvímælalaust að segja af sér. Þegar hún var síðan spurð hvort hún gæti nefnt tilvik ffá síðustu árum af mönnuin sem áttu að segja af sér en gerðu það ekki sagðist Agnes ekki vita uin neinn mann með sam- bærilega affekaskrá og Guðmundur Arni. Agnes mátti svara nokkuð fyrir Morgunblaðið, því sumir fundar- manna vom ekki hrifnir af frammi- stöðu þess blaðs gagnvart spillingar- málum og hefði það lítt haff sig frammi í Guðmundarmálinu, eins og í öðmm málum. Sigurður A. Magnús- son rithöfundur tók sem dæmi þegar fjallað var uin spillinguna vegna Hrafns Gunnlaugssonar, Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, Guð- mundar Magnússonar og Heimis Steinssonar, þá hefði Morgunblaðið þagað. Hann benti á að ritstjórar DV og Morgunblaðsins og yfirmenn RUV og Islenska útvarpsfélagsins væm upp til hópa sjálfstæðismenn. Agnes varði blaðið með nokkmm orð- um, en boðaði síðan að fólk ætti að lesa það daginn effir, þar sem væri að finna „rosalega spennandi grein“. Sem reyndist ekki vera. Friðrik Þór Guðmundsson Hjartagátan Setjið rétta stafi í reitina neðan við krossgátuna. Þeir mynda þá örnefni. Lausnarorð krossgátunnar í síðasta blaði er Grjótnes. *7“ 2 r- ¥ 5 2 l ? 3 ¥ 5 2 9 )0 ¥ ) i iZ v Vi H é? )S V H, 17 * ¥ lð J6> V ¥ N 15 T~ ¥ ? 19 n ¥ 1$ 20 w— ZJ ¥ 22 23 15 20 Z¥ ¥ 10 !5 2 25' 15 Z& 12 ¥ 7 2JT~ 2? 2¥ 20 ~ W JT~ ¥ JT~ n— 8 ¥ 17 tS 28 M ¥ /3 2 15 ¥ qb % W 29 /4 19 ¥ ll1 TT~ ¥ 20 Z ¥ Zj w~ + 1 “ 11 2 ¥ s? rl W~ ÍO 15 ¥ 15 5 20 2 19 W~ iT~ w~ ¥ 2o Í2 ¥ 29 5 )Z 2 ¥ vr 30 30 18 w ¥ n— 15 ¥ 9 10 ¥ ¥ II lí ¥ 10 7 W~ 15 ¥ 29 ZL H T~ Í2 T~ ? w w~ 27 ir - 12 T 31 7Ö- ¥ ¥ íf L> 7 ¥ lö T~ 1? 7 1$ >5 5 2 1 i I S l< 9 j/. 3 K 7 > l l 2 A = Á = B = D = Ð = E = É = F = G = H = 1 = í = J = K = L = M = N = o = Ó = P = R = S = T = U = ú = v = x = Y = Ý = Þ = Æ = Ö = 1 = 2 = 3 = 4 = 5 = 6 = 7 = 8 = 9 = 10 = 11 = 12 = 13 = 14 = 15 = 16 = 17 = 18 = 19 = 20 = 21 = 22 = 23 = 24 = 25 = 26 = 27 = 28 = 29 = 30 = 31 = 32 =

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.