Lesbók Morgunblaðsins - 05.02.2005, Page 7

Lesbók Morgunblaðsins - 05.02.2005, Page 7
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 5. febrúar 2005 | 7 maður í þeim skilningi sem lýðveldissinnar hafa löngum lagt í hugtakið frelsi. Sé almanna- viljinn túlkaður sem sameiginleg betri vitund eða siðferðileg skynsemi má líka líta svo á að sá sem hlýðir lögunum láti vitið ráða og sé laus undan oki eðlishvatanna. Í ljósi þessa er hægt að skilja þá undarlegu kenningu Rousseau í Samfélagssáttmálanum að hægt sé að þvinga menn til að vera frjálsir. Í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að samfélags- samningurinn verði lítið annað en hégómlegt papp- írssnifsi felur hann í sér þá þöglu skuldbindingu, sem er eina leiðin til að láta öðrum mátt í té, að hver sá sem neitar að gegna almannaviljanum verði neyddur til þessa af heildinni allri. Þetta þýðir það eitt að mönnum verður þröngvað til að vera frjálsir. Það skilyrði veitir föðurlandinu umráð yfir sér- hverjum borgara sínum og felur jafnframt í sér tryggingu þess að hann verði ekki háður öðrum. (Bls. 80.) Þessar kenningar er rétt að skoða í ljósi þess að Rousseau áleit rétt að ríkisheildin hafi al- gerlega ótakmarkað vald yfir meðlimum sínum (bls. 94) og hún sé ekki sett undir nein lög sem eru æðri almannaviljanum. Hann orðar þetta svo að „ekki [komi] til greina að til séu grund- vallarlög sem þjóðarheildinni er skylt að hlýða“ (bls. 78) og segir skömmu síðar (bls. 79): „Fullveldið er ekki gert úr öðru en einstakling- unum sem mynda það og fyrir vikið getur það ekki haft hagsmuni sem eru andstæðir hags- munum þeirra.“ Héðan er stutt í þá firru að ekkert sem almannavaldið geri geti verið and- stætt hagsmunum einstakra manna og því meira vald sem ríkið hefur yfir lífi borgaranna því frjálsari séu þeir. Ef ríkið er holdtekja al- mannaviljans og menn eru frjálsir ef þeir hlýða almannaviljanum (þ.e. sinni betri vitund) frem- ur en eðlishvötum er þá ekki eðlilegt að segja sem svo að sá sem hlýðir ríkisvaldinu sé frjáls- ari en sá sem fer sínu fram og lætur jafnvel duttlunga ráð för? Það sem Rousseau kallar frelsi á ósköp lítið skylt við það frelsi sem frjálshyggjan dregur nafn sitt af og felur í sér að einstaklingar fái óhindrað að gera hvað sem þá langar til svo fremi þeir beiti aðra menn ekki nauðung, ofbeldi eða ræni þá eigum sín- um. Þeir samtímamenn Rousseau sem boðuðu frelsi og jafnrétti og andæfðu valdi kónga og kirkju eru oft settir allir saman undir einn hatt vegna þess að þeir áttu sameiginlega óvini. En þegar óvinirnir hurfu af sjónarsviðinu kom á daginn að þeir sem áður töldust samherjar áttu stundum litla samleið. Meðal þeirra sem helst mæltu fyrir auknu frelsi og jafnrétti á 18. öld voru annars vegar upphafsmenn frjáls- hyggjunnar og upplýsingamenn eins og Voltaire sem sóttu hugmyndir einkum í smiðju Englendingsins John Locke (1632–1704) og hins vegar þeir sem sóttu fyrirmyndir til lýð- veldistímans í Róm til forna. Æ síðan hafa lýð- veldishugsjónir og frjálshyggja mótað stjórn- málahugsun í Vestur-Evrópu og Norður- Ameríku. Stundum hafa þessar stefnur átt samleið en oft hefur líka skorist í odda og lík- lega hefur málflutningur lýðveldissinna óvíða orðið öllu andsnúnari frjálshyggjunni en í Samfélagssáttmála Rousseau. Eins og nefnt hefur verið styðst skilgreining Rousseau á frelsishugtakinu við hefð sem ann- ars vegar má rekja til rómverska lýðveldisins og hins vegar til heimspeki Spinoza. Á 17. öld var hugmyndum lýðveldissinna andmælt kröftuglega af enska heimspekingnum Thom- asi Hobbes (1588–1679). Þótt Hobbes hafi ekki verið neinn frjálshyggjumaður orðaði hann hugmyndir um frelsið sem frjálshyggjan tók upp á sína arma þegar hún varð til. Samkvæmt kenningum Hobbes veltur frelsi manna ekki á því hver setur þeim lög heldur á innihaldi lag- anna. Menn eru frjálsir ef þeim er fátt bannað og þeir mæta litlum hindrunum. Í þessum skilningi geta þegnar einvaldskonungs verið frjálsir ef konungurinn setur lög sem banna þeim fátt og tryggja þeim rétt til að fara sínu fram. Frelsi af því tagi sem Hobbes og frjáls- hyggjumenn láta sér annt um er stundum kall- að neikvætt frelsi og það frelsi sem Rousseau og lýðveldissinnar hafa í mestum hávegum er stundum kallað jákvætt frelsi. Þetta orðalag er þekktast af ritgerð eftir Isaiah Berlin (1909– 1997) sem birtist árið 1958 og kallast Tvö hug- tök um frelsi (Two Concepts of Liberty). Orða- lagið „neikvætt frelsi“ tók Berlin upp eftir Jer- emy Bentham (1748–1832) sem sagði að frelsi sé neikvætt hugtak því það feli ætíð í sér að eitthvað sé ekki fremur en að eitthvað sé, nán- ar tiltekið að hindrun eða tálmi sé ekki til stað- ar. Fleiri hafa reynt að henda reiður á mis- muninum á frelsishugsjónum lýðveldissinna og frjálshyggjumanna. Einn sá skarpasti er Frakkinn Benjamin Constant (1767–1830). Frelsi lýðveldissinna, sem felst í því að vera fullgildur þátttakandi í æðstu stjórn ríkisins, kallaði hann „frelsi fornmanna“ og gerði grein- armun á þessu forna frelsi og frelsi í skilningi frjálshyggjunnar sem hann kallaði „frelsi nú- tímamanna“ og segir að feli í sér að allir megi tjá skoðanir sínar, velja sér starf, verja eignum sínum að vild, fara hvert sem er án þess að biðja nokkurn mann leyfis og að enginn sé hnepptur í varðhald eða tekinn af lífi án dóms og laga. Ekki veit ég hvort Constant hafði Rousseau sérstaklega í huga þegar hann kenndi hug- sjónir lýðveldissinna við fornöldina en eignaði frjálshyggjunni nútímann. Hvað sem því líður er ímugustur á stórum, flóknum samfélögum, verkaskiptingu, kapítalisma og því marglita mannlífi sem fylgir „frelsi nútímamanna“ sam- ofin allri hugsun Rousseau. Fyrirmyndarríki hans er samfélag vina og jafningja sem standa saman, bræðralag fremur en flókið net óper- sónulegra viðskipta. Nútíminn með alls konar ólíkar hugmyndir sem takast á, samkeppni ólíkra lífshátta og endalausa gagnrýni á hvað- eina sem menn trúa á var Rousseau ekki að skapi. Þetta birtist víða í Samfélagssáttmál- unum. Hér eru tvö dæmi: En þegar slaknar á félagslegum hnútum og ríkið tekur að veikjast, þegar einkahagsmunir fara að láta að sér kveða …, breytast sameiginlegir hags- munir og eignast andstæðinga. Algjört samkomulag ríkir ekki lengur í atkvæðagreiðslum, almannaviljinn er ekki lengur vilji allra, andstæður birtast, deilur magnast og hinar bestu skoðanir fást ekki sam- þykktar ágreiningslaust. (Bls. 198.) Eftir því sem samkenndin er meiri á þingum, það er að segja þegar sem flestir eru á sama máli, þeim mun öruggari eru undirtök almannaviljans, en lang- vinnar umræður, ágreiningur og róstur boða upp- gang sérhagsmuna og hnignun ríkisins. (Bls. 200.) Undir lok Samfélagssáttmálans (bls. 241) þar sem Rousseau ræðir um trúarbrögð hamr- ar hann enn á þessari áherslu á einingu og bræðralag og segir: „Allt sem rýfur félagslega einingu er einskis nýtt.“ Svo dásamar hann ríkistrú sem er bundin við eitt land og segir að hún sé „góð að því leyti sem hún sameinar guðsdýrkun og ást á lögunum, og með því að gera föðurlandið að viðfangi dýrkunar meðal borgara kennir hún þeim að þjónusta við ríkið jafngildir því að þjóna þeim guði sem verndar það“. * Rousseau dreymdi um lítið samfélag þar sem menn eru sjálfum sér nægir og lifa einföldu lífi og þegar sá gállinn var á honum þótti honum að ýmislegt sem við kennum við æðri menn- ingu væri ómerkilegt menntaglys og mætti vel missa sín. Jón Espólín (1769–1836) sem ritaði á sinni tíð margt um hugmyndir og mannlíf 18. aldar lýsti þessari löngun Rousseau í frum- stæðari lífshætti og sagði: Hefir hann sett saman bók um það, að vísindi og lærdómur og öll kunnusta hafði gjört mannkyninu eina saman ólukku, og vildi láta náttúrustand, því- líkt sem það enn er, og án skynsemdarbrúkunar, vera sælast, … En þótt Rousseau hafi setið öfugur á truntu tímans og horft dreymnum augum aftur til for- tíðarinnar vísar margt í ritum hans til þess sem framundan var og er eins og forsmekkur að þeirri stjórnmálavæðingu mannlífsins sem gekk yfir Vesturlönd og síðan allan heiminn á 19. og 20. öld. Ríkið hefur látið til sín taka á sí- fellt fleiri sviðum. Einstaklingar hafa orðið æ háðari ríkinu og um leið þurft minna og minna að reiða sig á ættar- og vináttutengsl. Rouss- eau sagði (bls. 80) að umráð ríkisins yfir sér- hverjum borgara tryggi að hann verði ekki háður öðrum og (bls. 128) að sérhver borgari eigi að vera „fullkomlega óháður öllum hinum en óhóflega háður borgríkinu“. Þessi orð geta hvort heldur sem er verið eftirmáli eða inn- gangur að stjórnmálasögu undanfarinna ár- hundraða. sáttmálinn Morgunblaðið/Þorkell Sameiginlegur vilji „Kenning Rousseau um að lögin eigi að vera skráning á sameiginlegum vilja þjóðarinnar er tilbrigði við hugsjón lýðveldissinna um sameiginlega sjálfsstjórn borgaranna.“ Höfundur er heimspekingur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.