Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.2005, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.2005, Page 1
Laugardagur 19.2. | 2005 [ ]Íslenska óperan | Er hún dauðadæmd? Er óperan útdauð menningarrisaeðla? | 8Galdrar | Menn stunda galdra þegar þeir reyna að virkja kraft sem ekki er af þessum heimi | 6Níu þjófalyklar | „Er þetta þá einhvers konar Calvínóismi eða Barthismi?“ | 11 LesbókMorgunblaðsins 80ára19252005 Morgunblaðið/Golli Húsin í bænum Að reisa borg er verkefni sem byggist á samræðu og þessi samræða þarf að fara fram eftir ströngustu kröfum: Aðeins einn talar í einu og hinir hlusta og svara síðan af fullri virðingu fyrir orðum fyrri mælenda, með kurteisi og íhygli; frammíköll, hvers konar orða- gjálfur og almennt blaður út fyrir efnið ættu ekki að heyrast enda mjög mikilvægt að samræðan sé markviss þó að þátttakendur kunni að greina á um efnisatriði. Án ágreinings væri raunar lítið um að tala auk þess sem krafturinn, dínamíkin myndi hverfa, og markmið samræðunnar gufaði upp en það er hin endalausa leit að fagur- fræðilegri niðurstöðu, samhengi sem í senn gleður augað, lyftir sál- inni og fullnægir þörfum okkar – leit að fallegri borg. Í Reykjavík hafa kröfur hinnar yfirveguðu, íhugulu og kurteisu samræðu ekki alltaf verið hafðar í hávegum, hér hafa menn talað ofan í hver ann- an án þess að hlusta, það má jafnvel efast um að það búi mikil hugs- un á bak við sum frammíköllin, að minnsta kosti hefur orðagjálfrið stundum keyrt um þverbak og farið hefur verið út um víðan völl með sum efnisatriði, upp um holt og móa, eins og tilgangurinn einn væri að dreifa athyglinni, eyðileggja samhengið. Reykjavík er borg blaðursins. Því miður. Í mörgum efnum er hún eins og skopstæling á frönsku nýsögunni eða lélegur dægurlagatexti: Hún meikar ekki sens! En samt, samt er eitthvað við hana því að þótt hugsunin í þess- um texta sem götur hennar og hús hafa myndað sé oft og tíðum slitrótt þá er þar ein og ein setning, eitt og eitt orð sem vekja til- finningu fyrir fallegri hugsun, merkingu. Í næstu Lesbókum verður fjallað um samhengisleysi og merkingu í borgarlandslaginu. Í þess- ari fyrstu grein er skoðað hvernig byggt hefur verið við gamlar byggingar í miðbæ Reykjavíkur, stundum af mikilli virðingu og smekkvísi, stundum af umdeilanlegri smekkvísi, stundum með smekklausum athugasemdum við eldri verk. Með í för er Pétur H. Ármannsson.  3 Tala ofan í hvert annað Eftir Þröst Helgason | throstur@mbl.is

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.