Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.2005, Qupperneq 3

Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.2005, Qupperneq 3
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 19. febrúar 2005 | 3 Þ að er eðli borga að breytast með tímanum. Ný hús bætast við eldri byggð, ný hverfi eru skipulögð, nýjar götur lagðar, ný samgöngu- tæki koma til sögunnar og svo framvegis. Allt er þetta hluti af eðlilegri þróun borgar. Við- byggingar við eldri hús eru einnig eðlilegur þáttur í þróun borgar. Það er beinlínis gert ráð fyrir að byggt sé við sum hús. Hver kann- ast ekki við alla gluggalausu gaflana í Reykjavík sem gera ráð fyrir að ný bygging leggist upp að hlið sér. Og hver kannast ekki við breytingar á eldri húsum í borginni sem oftast hafa verið gerðar til þess að húsin nýttust áfram sem best, þjónuðu hlut- verki sínu betur og í samræmi við kröfur nýrra tíma. Það verður ekki hjá því komist að halda áfram að byggja og breyta í lifandi borg. En spurningin er hvernig það er gert. Tala má um tvö grundvallarsjónarmið þegar byggt er við göm- ul hús: Annaðhvort er leitast við að fella nýbygginguna að stíl eldri byggingarinnar með sem nákvæmustum hætti eða þvert á móti, hið nýja innlegg er látið skera sig frá því sem fyrir var með afgerandi hætti. Báðar aðferðirnar eru í sjálfu sér góðar og gild- ar. Dæmi um þær eru til í miðbæ Reykjavíkur þó að fyrrnefnda aðferðin sé öllu sjaldgæfari. Viðbyggingin við Eimskipafélags- húsið Hafnarstrætismegin virðist gerð með það að augnamiði að láta sem minnst á henni bera. Ef frá er talið skyggni yfir inn- ganginum í húsið, sem er gríðarmikill steyptur fleki, þá er efnis- notkun sú sama auk þess sem hlutföllum og flestum öðrum útlits- einkennum upprunalegu byggingarinnar er haldið. Viðbygging- arnar við Landsbankahúsið hinum megin Hafnarstrætisins og við Austurstræti eru hins vegar af allt öðrum toga, notuð eru önnur efni og form, og raunar var húsunum sem sneru að Hafn- arstrætinu breytt þannig að hvorki sést tangur né tetur af upp- runalegri gerð þeirra. (Nánar er fjallað um Landsbankahúsið annars staðar í opnunni.) Í göngutúr um miðbæinn í ískaldri Reykjavíkurrigningu skoð- um við Pétur H. Ármannsson, arkitekt og forstöðumaður bygg- ingalistadeildar Listasafns Reykjavíkur, nokkrar viðbyggingar sem hæglega má setja í þessa tvo flokka en það eru auðvitað mörg önnur sjónarmið sem liggja slíkum byggingum til grund- vallar. Oddfellowhúsið – breyttar forsendur Margir þekkja sjálfsagt viðbygginguna við Oddfellowhúsið í Von- arstræti. Húsið var stækkað með því að bæta við bakhluta þess sem var gluggalaus og vísaði út í port. Þessi hluti byggingarinnar átti aldrei að vera sýnilegur í borgarmyndinni, að sögn Péturs. „Húsið teiknaði Þorleifur Eyjólfsson inn í aðalskipulagið frá 1927 sem gerði ráð fyrir að Thorvaldsensstræti, sem liggur aust- ur með símahúsinu, ætti að ná yfir Kirkjustræti og að Von- arstræti en fyrir endann Tjarnarmeginn átti að rísa Ráðhús með turninngangi sem blasti við fólki alla leið úr Austurstræti en göng áttu að vera í gegnum húsin sunnan megin þess þar sem ný skrifstofubygging Alþingis stendur nú. Ekki var gert ráð fyrir að gömlu timburhúsin við Kirkjustræti stæðu áfram heldur átti að reisa aðra jafnháa samfasta byggingu við hlið Oddfellowhússins í Thorvaldsensstræti. Einnig átti að reisa aðra byggingu við vest- urhlið hússins Vonarstrætismegin. Báðir þessir gaflar voru því einnig gluggalausir.“ Pétri þykir viðbyggingarnar aftan við húsið vera skiljanlegar í því samhengi að portið átti aldrei að vera sýnilegt. Forsendur skipulagsins frá 1927 hafa síðan breyst þannig að timburhúsin í Kirkjustræti hafa verið vernduð og þar með verður bakhlið Odd- fellowhússins sýnileg í borgarmyndinni. Í því ljósi er viðbygg- ingin ef til vill ekki vel heppnuð enda frekar fyrirferðarmikil og klasturskennd. Þessi saga sýnir hins vegar vel við hvað er að glíma í mótun á útliti borgarinnar. Forsendur geta breyst mikið með litlum fyrirvara. Breyttar forsendur í borgarskipulaginu höfðu ekkert með eldri viðbyggingu við Oddfellowhúsið að gera en það er risið sem sett var ofan á flatt þakið. Líklega vita færri að þetta er seinni- tíma viðbót við húsið enda ekki jafnáberandi og viðbyggingin að aftanverðu þótt undarlegt megi virðast. Þegar risið er skoðað sérstaklega er þó augljóst að þar er um viðbyggingu að ræða enda hefur ekki verið hugað að því að hafa það í stíl við aðalbygg- inguna; risið brýtur upp sterkar láréttar línur í steypubrúnum byggingarinnar en það eru sérstaklega litlu gluggarnir sem standa upp úr þakinu eins og horn í kolli skrattans sem setja ann- arlegan svip á bygginguna. Pétur H. Ármannsson segir að flata þakið hafi verið hugsað sem útsýnissvalir. „Þessi bygging var reist sem samkomuhús og áttu gestir að geta gengið út á þakið og horft yfir borgina og út á sundin. Þetta var afar falleg hugsun og í samræmi við fúnksjónalismann en í honum var talað um að nýta þakið sem dvalarstað.“ Frek tengibygging milli timburhúsa Þær tvær meginstefnur í gerð viðbygginga sem nefndar voru hér að framan eru litaðar viðhorfum tveggja ólíkra tímabila í bygg- ingarlist. Á nítjándu öld segir Pétur að menn hafi ekki haft nein- ar áhyggjur af því hvort bygging væri trúverðugur fulltrúi síns tíma, áherslan var öll á skrautlegt útlit. Hin móralska krafa um að byggingar skírskoti til tímans kom fram með módernism- anum. Á tuttugustu öld var því beinlínis lögð sérstök áhersla á að Landsbankinn Viðbygging Gunnlaugs Halldórs- sonar við Landsbankann í Austurstræti var um- deild en henni var lokið 1940. Í Tímanum sagði Jónas frá Hriflu að „arkitektinn hafi leyst bygg- ingamál bankans þannig að stappaði nærri þjóðarsorg“. Jónas taldi mikilvægt að koma slík- um „nýhyggjumönnum í húsagerðarlist“ fyrir kattarnef eins og fram kemur í fyrirlestri sem Gunnlaugur hélt á kvöldfundi í arkitektafélag- inu árið 1978. Þar lýsti Gunnlaugur ástandinu í íslenskri byggingarlist þegar hann kom heim menntaður í faginu og hlaut það verkefni að teikna viðbyggingu við Landsbankahúsið. Höf- undur þess var Guðjón Samúelsson húsameist- ari ríkisins en af fyrirlestri Gunnlaugs má skilja að vald Guðjóns hafi verið nánast algert í húsa- gerðarlist á landinu. Að mati Gunnlaugs og annarra ungra arkitekta sem komu heim frá námi á árunum 1933 til 1938 var Guðjón mjög afturhaldssamur og gamaldags í viðhorfum sín- um til byggingarlistar. Það hafi mátt sjá í bygg- ingum hans svo sem Landsbankahúsinu í Reykjavík og á Selfossi sem hafi verið í anda 400 ára gamallar stíltegundar, það er í endurreisn- arstíl. Af fyrirlestri Gunnlaugs má skilja að með viðbyggingu Landsbankans hafi hann verið að mótmæla þessu ástandi. Að mati Péturs H. Ár- mannssonar er þessi viðbygging Gunnlaugs orð- in hluti af menningarsögu þjóðarinnar þótt það sé umdeilanlegt hvernig hún eigi við aðalbygg- inguna. „Séð frá Hafnarstræti er þetta raunar afar fallegur arkitektúr,“ bætir Pétur við. „Efn- isval er fallegt og frágangsatriði eru vönduð. Þetta er fáguð byggingarlist þótt umdeild sé.“ Morgunblaðið/Golli Oddfellowhúsið „Risið brýtur upp sterkar láréttar línur í steypubrúnum byggingarinnar en það eru sérstaklega litlu glugg- arnir sem standa upp úr þakinu eins og horn í kolli skrattans sem setja annarlegan svip á bygginguna.“ Eimskipafélagshúsið „Ef frá er talið skyggni yfir innganginum í húsið, sem er gríð- armikill steyptur fleki, þá er efnisnotkun sú sama auk þess sem hlutföllum og flest- um öðrum útlitseinkennum upprunalegu byggingarinnar er haldið.“ Húsin í bænum Tala ofan í hvert annað

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.