Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.2005, Qupperneq 9
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 19. febrúar 2005 | 9
asta útgáfa óperunnar er samt tónlistar-
myndbandið, en það er svo sannarlega sungið
leikrit, þó stutt sé. Hugmyndin með óperunni
er því síður en svo orðin úrelt; í ákveðnum
skilningi má segja að óperan sé vinsælli en
nokkru sinni fyrr
Með þessu er ég ekki að gera lítið úr aka-
demískri nútímatónlist, hvorki íslenskri né er-
lendri. Þó tónlist njóti ekki hylli meirihlutans
er ekki þar með sagt að hún sé verri en dæg-
urtónlist.
Ekkert í sögunni segir að meirihlutinn hafi
oftar haft rétt fyrir sér en minnihlutinn. En
því miður kosta óperuuppfærslur gríðarlega
peninga, og því skipta vinsældir og aðsókn
meira máli fyrir nýja óperu en t.d. nýjan
strengjakvartett.
Íslenska óperan gagnrýnd
Þrátt fyrir þessa staðreynd hefur Íslenska
óperan stundum verið gagnrýnd fyrir það hve
litla áherslu hún leggur á ný verk. Í Reykja-
víkurbréfi Morgunblaðsins, hinn 10. febrúar
2002, var stungið upp á að Íslenska óperan
fetaði í fótspor Íslenska dansflokksins og
skapaði sér sérstöðu með því að einbeita sér
að nýbreytni í óperuuppfærslum, sérstaklega
með því að setja upp innlendar óperur. Þessu
svaraði Bjarni Daníelsson, framkvæmdastjóri
Íslensku óperunnar, fullum hálsi í grein í
Morgunblaðinu ellefu dögum síðar: „Það er
ekki mikil gróska í ritun ópera sem ná hylli
óperugesta. Hins vegar njóta klassísku óper-
urnar stöðugra vinsælda og höfða til fólks í
stórum stíl. Ekkert óperuhús sem ég þekki
velur alfarið ný óperuverk til sýningar. Þau
leggja flest höfuðáherslu á klassískar óperur.
Það eru fyrst og fremst ríku húsin sem hafa
bolmagn til að sinna nýjungum og einstaka
óperuhús í Þýskalandi einbeitir sér líka að ný-
stárlegum uppfærslum, en þar eru jú yfir 100
óperuhús. Mjög líklegt er að hliðstæð áherslu-
breyting og sú sem gerð var hjá Íslenska
dansflokknum myndi virka þveröfugt fyrir Ís-
lensku óperuna. Tengslin við hinn stærri
óperuheim yrðu rofin, markaðsforsendur eru
afar hæpnar og þar með yrði brostinn sá at-
vinnugrundvöllur sem verið er að byggja upp.
Langlíklegast er að þetta yrði skjótvirkur
dauðadómur yfir Íslensku óperunni.“
Útdauð menningarrisaeðla
Eins og ég hef bent á þá eru til allmargar 20.
aldar óperur sem einmitt hafa náð hylli al-
mennings. En Bjarni lítur ekki hýru auga til
nýrra ópera yfirleitt og vill einbeita sér að
flutningi gamalla, ítalskra óperutrylla sem
trekkja.
Fyrst nýjar óperur eru svona eitraðar í
huga Bjarna, má þá ekki draga þá ályktun að
óperan hér á Íslandi sé úrelt sem vettvangur
nýsköpunar? Í framhaldinu liggur beinast við
að spyrja: Ef óperan er einhvers konar risa-
eðla sem étur ríkisstyrki er annars gætu farið
í félagslega aðstoð, menntakerfið og annað
þvíumlíkt; af hverju þá ekki bara að koma
henni fyrir kattarnef? Eins og Beaumol og
Bowen bentu á í greininni „On the Performing
Arts: The Anatomy of their Economic
Problems“ þá eykst rekstrarkostnaður sviðs-
listastofnana jafnt og þétt, og þar sem tak-
mörk eru fyrir því hvað hægt er að hækka
miðaverð þarf að leita í æ ríkari mæli til hins
opinbera. Miðaverð í Íslensku óperunni er nú
þegar of hátt.
Er tilvist Íslensku óperunnar, í þeirri mynd
sem hún er núna, réttlætanleg? Ýmsir bauna-
teljarar sem ég ætla ekki að nefna hér sjá
bara fjárhagshliðina og halda því fram að ekki
eigi að þröngva skattborgara til að greiða fyr-
ir rekstur sinfóníuhljómsveitar. Því eigi að
hætta starfsemi Sinfóníuhljómsveitar Íslands
og sambærilegra menningarstofnana.
Þýski heimspekingurinn Theodor Adorno
virðist að einhverju leyti hafa verið sammála
þessu, en á öðrum forsendum. Í greininni
„Opera and the Long Playing Record“ sagði
hann að uppfærslur á gömlum óperum eins og
tónskáldin hugsuðu sér þær eigi ekki erindi
við nútímamanninn því við lifum í allt öðruvísi
þjóðfélagi. Tilraunir til þess að setja upp nú-
tímaútgáfur gamalla ópera gangi ekki heldur
upp; þá sé verið að afskræma vilja tónskálds-
ins. Gott dæmi er þegar Íslenska óperan sýndi
Leðurblöku Jóhanns Strauss, sem minnst var
á í upphafi þessarar greinar. Þá voru Vín-
arvalsar spilaðir í reifpartíi þar sem leð-
urklæddur lýður var í annarlegu ástandi.
Sennilega er það einhver hallærislegasta sena
sem sést hefur á óperusviði í háa herrans tíð.
Þetta vildi Adorno losna við; hann mælti því
með að hlusta einfaldlega á upptökurnar í há-
tölurunum heima. Þannig myndi ekkert
trufla; þannig væri hægt að ná beinu sam-
bandi við kjarna tónlistarinnar.
Lifandi tónlist nauðsynleg
Ég er ekki sammála Adorno; eins og ég hef
þegar bent á þá er óperan upphaflega hugsuð
sem tónleikhús, sungið leikrit. Að hlusta bara
á óperuna heima í stofu slítur tónlistina úr
samhengi. Óperutónlist er ætluð sem hluti af
miklu stærri heild; leikmynd, búningum, lýs-
ingu, leik, kóreógrafíu o.s.frv.
Auk þess er ekki það sama að hlýða á lif-
andi tónlist og tónlist úr hátölurum. Það get
ég fullyrt sem tónlistargagnrýnandi. Upptaka
af tónlistarflutningi á geisladiski, klippt og
skorin til að útkoman sé sem fullkomnust,
kemst ekki nálægt góðum tónlistarflutningi á
tónleikum, jafnvel þó maður eigi frábærar
græjur. Nákvæm, lifandi, spennuþrungin og
einlæg spilamennska eða söngur á tónleikum
skilar sér í stemningu sem aðeins er hægt að
upplifa í sal fullum af fólki.
Vanhugsuð listræn stefna
Fleira má telja til. Ágúst Einarsson hagfræð-
ingur bendir t.d. á í bókinni Hagræn áhrif tón-
listar að tónlistariðnaðurinn sé „ekki þiggj-
andi í samfélagi okkar heldur gefandi og
skilar umfangsmiklu framlagi til lands-
framleiðslunnar“. Hann segir jafnframt að öfl-
ug ópera hérlendis sé „forsenda fyrir miklu og
fjölbreyttu tónlistarlífi. Kennsla í óperu söng
hefur alltaf verið mikil hérlendis og það er
sterk hefð fyrir óperusöng, sem sést m.a. á
góðum árangri íslenskra óperusöngvara er-
lendis. Forsenda fyrir sterkri stöðu í framtíð-
inni er öflug, íslensk ópera. Þessu má líkja við
nauðsynlega stuðningsatvinnugrein.“
En hvað er öflug, íslensk ópera? Er það
óperuhús sem einbeitir sér að gömlum, er-
lendum óperum en hefur þó enga burði til að
setja þær upp á almennilegan hátt? Vissulega
hefur margt ágætt sést á fjölum Íslensku
óperunnar í gegnum tíðina; aukið fjármagn
hefur gert sýningarnar íburðarmeiri og fast-
ráðning söngvara var frábært framtak, þó hún
hafi ekki gengið upp fjárhagslega. Ég gæti
talið upp fjöldann allan af góðum dómum um
íslenskar óperusýningar, þar á meðal nokkra
sem ég hef sjálfur skrifað. Ég held samt að ís-
lenskum tónlistargagnrýnendum hætti til að
gleyma samanburðinum við erlend óperuhús,
við hinn margfræga heimsmælikvarða. Þetta
á við um mig líka. Maður dásamar frammi-
stöðu hljómsveitarinnar og dáist að sviðs-
myndinni, þó gryfjan í Gamla bíói geri að
verkum að hljómsveitin hljómi eins og ferða-
útvarp og sviðið sé svo lítið að söngvurum
hætti til að detta ofan í gryfjuna ef þeir færa
sig aðeins til. Auðvitað eru þetta ýkjur, en
þær eru ekki langt frá sannleikanum. Stór-
fenglegar óperur á borð við Toscu krefjast
mikils sviðsrýmis og voldugrar hljómsveitar.
Ef þær aðstæður eru ekki fyrir hendi þá er til-
gangslaust að auka opinbera styrki til að
stuðla að „uppbyggingu samfelldrar, fjöl-
breyttrar og metnaðarfullrar óperustarfsemi
á vegum Íslensku óperunnar“ eins og það var
orðað á heimasíðu menntamálaráðuneytisins
haustið 2001. Það er einfaldlega verið að eyða
peningunum í vitleysu; þá er risaeðlunni svo
sannarlega betur komið fyrir kattarnef.
Ég er því á þeirri skoðun að núverandi list-
ræn stefna Íslensku óperunnar, miðað við þær
aðstæður sem eru fyrir hendi, gangi ekki upp.
Stefna Gerrits Schuil, sem var ráðinn listrænn
stjórnandi Íslensku óperunnar um tíma, var
miklu áhugaverðari; hann einbeitti sér að
verkum sem geta notið sín í Gamla bíói. Þetta
voru Lucretia svívirt eftir Britten þar sem
hljómsveitin er aðeins kammerhópur og
Mannsröddin eftir Poulenc með píanómeðleik
eingöngu. Það voru glæsilegar sýningar, sem
stóðust fyllilega listrænar væntingar. Mér er
ennþá með öllu fyrirmunað að skilja af hverju
Gerrit var látinn hætta.
Safn eða endurnýjun?
Vissulega á óperustarfsemi fullan rétt á sér,
hér á landi sem annars staðar. Ópera sem safn
er meira að segja í fínu lagi; þá á ég við óperu-
hús þar sem gamlar óperur eru settar upp
eins og tónskáldin vildu. En það verður að
vera aðstaða til þess, sem er ekki fyrir hendi
hér, nema að takmörkuðu leyti.
Íslenska óperan gæti hins vegar verið fram-
sæknari, og að því leyti er ég fullkomlega
ósammála Bjarna Daníelssyni. Eins og ég
benti á í grein um Sinfóníuhljómsveit Íslands,
sem birtist í Lesbókinni í haust, hefur íslenskt
tónlistarlíf einkennst af æ óljósari mörkum á
milli þess sem stundum er kallað hámenning
og lágmenning. Ólíkar tónlistarstefnur renna
stöðugt meira saman, og oft er útkoman und-
ursamleg. Getur Íslenska óperan ekki aukið
samstarf við tónskáldin okkar? Ef flókið tón-
mál fælir áheyrendur frá er þá ekki hægt að
biðja um verk á tungumáli sem flestir skilja
og er jafnframt um eitthvað sem á erindi við
samfélagið í dag? Hvernig væri að biðja
Björk, Ernu Ómarsdóttur dansara og Gabr-
íelu Friðriksdóttur myndlistarkonu, sem verð-
ur fulltrúi Íslands á næsta Feneyjatvíæringi,
um að semja saman óperu, sérhannaða fyrir
Gamla bíó? Ég nefni það bara sem dæmi um
hvað hægt væri að gera. Vinsælar óperur 20.
aldarinnar, sem ég minntist á hér að ofan,
hafa flestar verið í aðgengilegum mínimal-
istastíl. Þó ég sé ekki að segja að íslensk tón-
skáld eigi að semja þannig tónlist, þá er það
vísbending um hvað áheyrendur vilja.
Þjóðleikhúsið?
Ef menn hins vegar halda dauðahaldi í Verdi
og Rossini og hjakka í sama farinu ár eftir ár,
af hverju er þá verið að sýna óperur í Gamla
bíói yfirleitt? Eins og ég benti á hér að ofan þá
er húsið ómögulegt. Í rauninni ætti Þjóðleik-
húsið að taka yfir starfsemi Íslensku óper-
unnar; það væri þá að fylgja landslögum, sbr.
fimmtu grein leiklistarlaga nr. 138/1998: „Að-
alverkefni Þjóðleikhússins er flutningur ís-
lenskra og erlendra sjónleikja. Jafnframt skal
það standa að flutningi á óperum og söng-
leikjum og listdanssýningum.“ Rekstur óperu
í Þjóðleikhúsinu yrði örugglega mun hag-
kvæmari með sameiginlegri miðasölu, kynn-
ingarstarfsemi og þess háttar, auk þess sem
sviðið er stærra og gryfjan sömuleiðis. Auðvit-
að eru salarkynni Þjóðleikhússins ekki full-
komin en þau eru skárri en þau sem Íslenska
óperan býður upp á. Hvað er líka betra á boð-
stólum?
Þess má geta að einhver aðstaða fyrir
óperusýningar er hugsuð inn í tónlistarhúsið
fyrirhugaða, en samkvæmt upplýsingum sem
nálgast má á vef Austurhafnar-TR ehf. verður
um að ræða svokallaðar semi-staged sýningar,
þ.e. konsertuppfærslur, sem geta vissulega
verið skemmtilegar en eru ekki raunverulegar
óperusýningar eins og þær gerast bestar er-
lendis.
Fleiri söngvara, takk
Burtséð frá húsnæðisvandamáli Íslensku
óperunnar þá er líka ýmislegt athugavert við
val á söngvurum, sem er á margan hátt ein-
kennilegt. Auðvitað verða Ólafur Kjartan Sig-
urðarson og Elín Ósk Óskarsdóttir að hafa at-
vinnu hér á landi en þau eru ekki einu
óperusöngvarar landsins. Ég man ekki til
þess að hin margrómaða Alina Dubik hafi
fengið að spreyta sig í aðalhlutverki í Íslensku
óperunni. Og hvar er Diddú? Hvar er Kol-
beinn Ketilsson? Það er orðið langt síðan þau
hafa sést þarna. Ég myndi líka gjarnan vilja
sjá suma söngvara af yngri kynslóðinni, t.d.
Arndísi Höllu Ásgeirsdóttur eða Jóhann
Smára Sævarsson, svo einhverjir séu nefndir.
Niðurstaða
Hér hef ég leitast við að svara þeim spurn-
ingum sem settar voru fram í upphafi þess-
arar greinar. Ég hef reynt að færa rök fyrir
því að óperustarfsemi á Íslandi eigi fullan rétt
á sér, en jafnframt að Íslenska óperan geti
ekki gert stórum óperum á borð við Toscu og
Macbeth viðunandi skil. Til þess sé Gamla bíó
einfaldlega of lítið.
Íslenska óperan verður því að móta fram-
sæknari listræna stefnu með því að taka upp
virkara samstarf við tónskáldin okkar. Þá er
ég ekki endilega að meina Atla Heimi Sveins-
son, Þorkel Sigurbjörnsson eða Karólínu Ei-
ríksdóttur, þó þau séu allra góðra gjalda verð.
Síðustu Myrkir músíkdagar sýndu það að við
eigum mörg efnileg tónskáld af yngri kynslóð-
inni, t.d. Þuríði Jónsdóttur, Huga Guðmunds-
son og Daníel Bjarnason, sem er sonur Bjarna
óperustjóra. Ég er líka viss um að Björk gæti
samið óperu. Það yrði örugglega áhugaverð-
ara verk en Tosca úr ferðaútvarpi og á sviði
sem er varla stærra en skókassi.
Heimildir
Adorno, T. W. (2002 [1969]) „Opera and the Long-Playing
Record.“; www.althingi.is/vefur/lagasafn.html; www.aust-
urhofn.is; Ágúst Einarsson (2004): Hagræn áhrif tónlistar;
Besharov, Gregory (2003): „The Outbreak of the Cost
Disease: Baumol and Bowen’s Case for Public Support of the
Arts.“; Dahl, Robert A. (1998): On Democracy; Fromm,
Erich (1977): The Anatony of Human Destructiveness;
www.grovemusic.com; Headington, Christopher (1987):
Saga vestrænnar tónlistar; www.mbl.is; Njörður Sig-
urjónsson (2005): Leslisti fyrir málstofur í mennta- og
menningarstjórnun, www.bifrost.is; Pleasants, Henry
(1989): Opera in Crisis; Shostakovich, Dmitri (1987):
Testimony: The Memoirs of Dmitri Shostakovich As Related
to and Edited By Solomon Volkov; Southwell-Sander, Peter
(1986): Verdi; Wagner, Gottfried (1997): Twilight of the
Wagners: The Unveiling of a Family’s Legacy.
Ég vil auk þess þakka tveimur kennurum mínum í mennta-
og menningarstjórnun við Viðskiptaháskólann á Bifröst, dr.
Jóni Ólafssyni og Nirði Sigurjónssyni, fyrir gagnlegar ábend-
ingar.
dauðadæmd?
kassi.“
Höfundur er tónlistargagnrýnandi Morgunblaðsins.