Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.2005, Page 11

Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.2005, Page 11
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 19. febrúar 2005 | 11 Bækurnar Histories of the Hang-ed eða Sögur hengdra, eftir David Anderson og Britain’s Gulag eða Breska gúlagið, eftir Caroline Elkins eiga það sameiginlegt að í þeim er sjónum beint að stríðsrekstri Breta Kenýu á sjötta áratug síðustu aldar þar sem Bretar beittu mikilli hörku til að berja niður uppreisn Mau-Mau hreyfingarinnar. Hreyfing sú varð til um 1950 og beindist gegn bresku nýlendustjórninni og jarðeig- endaskiptingunni sem var Evrópumönnum í vil. Uppreisn hreyf- ingarinnar var kveðin niður 1956. Að mati gagnrýnanda The Guardian eru hér stórmerkilegar bækur á ferð sem varpa ljósi á ótrú- lega grimmd Breta, en í viðleitni sinni til að halda nýlendunni beittu þeir að- ferðum sem svipar til aðferða nasista í síðari heimstyrjöldinni þar sem öll siðferðisgildi voru látin lönd og leið er hersveitir myrtu og pyntuðu sak- lausa borgara. Gagnrýnandinn telur bækurnar þarfar þar sem þær varpi ljósi á tímabil í sögu Bretlands sem hingað til hefur verið reynt að þagga niður og bendir hann á að enn hafi breskir hermenn hvorki verið yfir- heyrðir né saksóttir fyrir framferði sitt í Kenýu.    Nýjasta smásagnasafn AliceMunro, Runaway eða Stroku- maður eins og nefna mætti það á ís- lensku, hlýtur afbragðsviðtökur gagnrýnenda. Þannig heldur gagnrýnandi New York Times því fram að Munro sé besta núlifandi skáld Norður- Ameríku, en rit- höfundar á borð við John Updike og A.S. Byatt hafa líkt skrifum hennar við texta Tsjekhovs og Flau- berts. Runaway er tíunda smásagna- safn þessarar 73 ára gömlu skáld- konu og vill gagnrýnandi Telegraph meina að sögurnar séu á ýmsan hátt beint framhald af skáldsögu hennar Lives of Girls and Women eða Líf stúlkna og kvenna sem út kom árið 1971. Allar eiga sögurnar það sam- eiginlegt að vera sviðsettar í smábæj- um í Austur- og Vestur-Kanada, en tímarammi þeirra spanna allt frá öðr- um áratug síðustu aldar til dagsins í dag. Allt eru þetta sögur um verka- konur og frásagnir af því hvaða breytingum líf þeirra hefur tekið eða jafnvel ekki tekið í áranna rás.    Hvað felur frægðin raunverulega ísér? Er hún til góðs eða ills? Hvaða áhrif hefur frægðin á fólk? Þetta er meðal þeirra spurninga sem Bruce Wagner veltir upp í skáldsögu sinni The Chrys- anthemum Pal- ace eða Tryggða- blómshöllin. Sagan hverfist um þrjár mann- eskjur sem allar eiga það sameig- inlegt að eiga heimsfræga for- eldra sem þær lifa í skugganum af. Að mati gagnrýnenda The Wash- ington Post er bókin mun viðkvæmn- islegri en fyrri bækur höfundar þar sem hann hafi oft sýnt af sér meiri töffaraskap og hörku í skrifum sín- um. Hér eigi flestar persónurnar það hins vegar sameiginlegt að búa yfir mikilli manngæsku og hlýju. Að mati gagnrýnanda leynir bókin á sér og reyndist miklu fyndnari en hann seg- ist hafa þorað að vona.    Nýjasta smásagnasafn Trine And-ersen er nefnist Anden kønslig omgang eða Allt annað en samfarir, vekur mikla hrifningu gagnrýnanda danskra dagblaðsins Politiken. Segir hann Andersen vera einn þeirra ungu höfunda sem séu að koma sterkt inn í danska bókmenntaheiminum og veki verðskuldaða athygli. Lýsir hann smásögunum hennar sem súrsætum, ofsafengnum og aumum, á sama tíma og þær séu uppfullar bæði af angist og háði. Erlendar bækur Alice Munro Bruce Wagner ÞAÐ er heilmikil list að lýsa bókum fyrir vinum og kunningjum. Ef um velviljaða lýsingu er að ræða, þ.e. ef ætlunin er að vekja áhuga á viðkom- andi verki, vita flestir sem reynt hafa að ákveðin lögmál ráða úrslitum um velgengni. Lýsingin má ekki vera of margorð, hætt er við að velvilji við- mælanda tapist á miðri leið, og hún verður að vera dálítið krassandi. Í raun eru þetta sömu lög- mál og gilda í Hollywood þegar handrits- hugmyndir eru viðraðar frammi fyrir forstjórum. Þess vegna hugsa ég stundum, að loknum lestri bókar sem féll mér í geð, hvers konar lýsingu ég þyrfti sjálfur að heyra svo viðkomandi skáldverk lenti á hinum sívaxandi óskapnaði sem ég stund- um kalla „leslistann minn“, listann yfir bækur sem stendur til að lesa þegar tími gefst til. Og ég held að ef einhver lýsti fyrir mér smá- sagnasafni á eftirfarandi hátt fyndist mér það lofa góðu: „sjáðu nú til, þetta er bók sem þú þarft að lesa, hún gerir stólpagrín að tilteknum streng ís- lenskra nútímabókmennta, höfundurinn sjálfur dæmir höfundarhugtakið til dauða samhliða því sem hann vísar til almennra þrota hefðbundinnar sagnagerðar“. Þegar hér væri komið sögu sé ég sjálfan mig fyrir mér skyndilega áhugasaman, vakna til lífsins. Sennilega myndi ég líka grípa fram í fyrir lýsanda og spyrja, „Er þetta þá ein- hvers konar Calvínóismi eða Barthismi? Er þetta bók sem fleytir fram, eins og Freud myndi kannski segja, undir oki sjálfsvitundarinnar?“ Svarið, eftir smá umhugsun, myndi vera einhvern veginn svona: „Að sumu leyti, kannski, en samt, þessi bók gengur ansi langt. Undir lokin viðrar höfundur allsherjarsamsæriskenningu um siðlaus og yfirnáttúrleg textatengsl í hálfgerðu æðiskasti, og svo er hún á sinn hátt rammíslensk, líkt og kæstur hákarl: bókin skartar Davíð Oddssyni, rit- höfundi og embættismanni, í aukahlutverki og gerir Ólaf Jóhann Ólafsson rithöfund að hálf- gerðu blæti“. En það er einmitt á þennan máta sem ég myndi lýsa smásagnasafni Hermanns Stefánssonar, Níu þjófalyklum, í þeirri von að áheyrendum þætti lýsingin lofa góðu. Reyndar kæmi það mér ekkert á óvart ef því væri haldið fram að íslensk smásagnagerð væri í lægð þessa stundina. Það er þó ekki einfalt að kveða upp slíkan dóm, smásagan á sér ötula tals- menn og iðkendur líkt og Ágúst Borgþór Sverr- isson, Gyrði Elíasson og Rúnar Helga Vignisson, en ef litið er á útgáfusögu síðustu ára virðist skáldsagan hafa mun meira aðdráttarafl fyrir unga rithöfunda en form smásögunnar. Ef rétt er, ef íslenskar nútímabókmenntir hafa að umtals- verðu leyti gefist upp á smásögunni, þarfnast for- sendur þessa ástands skýringar samhliða því sem þeim sem harma ástandið væri auðveldlega fyr- irgefið. Smásagan er krefjandi form, möguleik- arnir eru aðrir en í skáldsögunni og rithátturinn kallar á aga samhliða hugmyndauðgi og ákveðna stílsnerpu. Og smásagan er ekki heldur einhvers konar „grunnskóli“ fyrir upprennandi skáld- sagnahöfunda – andstætt útbreiddum hug- myndum um stigveldi í skáldskap – heldur vett- vangur fyrir ákveðna tegund sagnalistar sem jafnvel væri óskandi að kraftmeiri atlaga væri gerð að þessa stundina. Í þessu samhengi er framlag Hermanns já- kvætt, útgáfu smásagnasafns sem er eftirtekt- arvert ber að fagna, en á sama tíma varpar það upp spurningum sem erfitt kann að reynast að svara. Níu þjófalyklar framsetur í hálfgerðu gjörningsformi möguleika formsins samhliða því sem verkið vísar til takmarkana þess og hugs- anlegra þrota. Smásagnasafnið hefur að geyma ólíkar sögur af ólíku fólki og viðfangsefnin eru að mörgu leyti fjölbreytileg. En það er ýmislegt sem tengir sög- urnar og gefur bókinni svip samhangandi verks og skilur hana þannig frá hefðbundnum hug- myndum um smásagnasöfn. Er þar fyrst að nefna nærveru yfirlýsts höfundar smásagnasafnsins, Guðjóns Ólafsson, sem reglulega skýtur sér inn í framvinduna. Sú staðreynd að hann gerir það gjarnan sökum gagnrýni yfirlesara er eitt af því skondnasta í bókinni, og sömuleiðis eitt af því sem gerir textann flókinn þar sem samband þess sem eðlis síns vegna ætti að liggja utan hans, þ.e. um- sögn um inntakið, og þess sem tilheyrir innri rök- vísi verksins verður fljótandi og vafasamt. Önnur aðferð sem Hermann beitir til að binda hinar ólíku smásögur saman er nærvera Ólafs Jó- hanns. Að vísu er umdeilanlegt hvort þar er um að ræða Ólaf Jóhann rithöfund og forstjóra eða persónur sem einfaldlega bera nafnið en eiga fátt annað sameiginlegt með hinum þjóðþekkta ein- staklingi. Segja má að um hvort tveggja sé að ræða, en þetta er einmitt spurning sem yfirlesari bókarinnar varpar fram og innbyggður höfundur hennar, áðurnefndur Guðjón, neyðist til að svara og gerir Hermann þannig textatengsl – og líka bókmenntalegt slúður – að einu af umfjöllunar- efnum verksins. Og þessi tengsl við Ólaf Jóhann fara að sjálfsögðu ekki leynt. Sjálfur titillinn vísar til fyrstu bókar Ólafs, smásagnasafnsins Níu lykl- ar og er nafnið því dæmigert fyrir meðvitaða samræðu Hermanns við íslenskar samtímabók- menntir og þær hugmyndir sem ganga í gegnum bókina um textatengsl, hlut þeirra og eðli, og mik- ilvægi. Titill bókar Ólafs heyrist líkt og bergmál í nafni smásagnasafnsins og má því segja að ákveðin samræða hefjist um leið og eftir bókinni er tekið, jafnvel áður en lestur hefst, nóg er að reka augun í titilinn til að tilvísanavélin hóstist í gang, keðja samhangandi texta komi í ljós. Jafnvel mætti halda því fram, á þeim grunni sem nafn bók- arinnar reisir, að sjálf tilvist smásagnasafnsins sé annar texti, önnur bók. Ein leið til að skýra þessi tengsl, eða bók sem sprettur úr jarðvegi sem svo ljóslega er plægður af öðrum, er hugtakið „ófrumleiki,“ og jafnvel áframhaldandi vísun þess og rökleg endastöð, ritstuldur – þjófnaður. En samkvæmt rökvísi sem þessari var smásagnasafn Ólafs Jóhanns, Níu lyklar, frumleg bók, en Níu þjófalyklar er það ekki. Bókin sem sníkjudýr á líkama hefðarinnar. Skortir sjálfstæðan til- verugrundvöll. Þetta er rétt, svo langt sem það nær. Vandamálið, hins vegar, er skammsýni slíkr- ar nálgunar og misskilningurinn sem í henni felst á verkefni og boðskap textaþjófsins, ræningjans sem svo berlega auglýsir athæfi sitt. Það sem bók Hermanns einmitt dregur í efa er sjálft frum- leikahugtakið. Því er óbeint haldið fram að engin bók verði til í tómarúmi, án forvera og áhrifa ann- arra texta. Þetta er kenning sem heldur því fram að bókmenntaleg sifjaspell séu lífæð skáldskap- arins. Í því samhengi má einmitt geta þess að titillinn er settur á svið á skemmtilegan hátt í einu höf- undarinnskotinu þar sem meintur höfundur smá- sagnanna, staðgengill Hermanns og handbendi, Guðjón Ólafsson, er staddur í bókaverslun og sér út undan sér mann innar í búðinni handleika bæk- ur, telur sig þekkja kauða og, jú, jú, mikil ósköp, þarna er Ólafur Jóhann, rithöfundur og kaup- sýslumaður, kominn í lifanda líki. Sem er skemmtileg tilviljun þar sem eiginkona Guðjóns hafði skömmu áður ásakað hann um að vera hald- inn þráhyggju um Ólaf. En höfundi og sögumanni bregður þegar hann sér Ólaf stinga einni af bók- unum sem hann var að skoða inn á sig og ganga að því búnu út úr versluninni. Hann sér með öðr- um orðum Ólaf Jóhann stela bók. Og þýfið er vit- anlega – samkvæmt rökvísi Níu þjófalykla – hans eigið smásagnasafn, Níu lyklar. Þarna stendur einn höfundur annan að þjófnaði, furðulegum gjörningi, og veltir í framhaldinu fyrir sér hvort Ólafur eigi ekki eftir að stela átta eintökum af bókinni sinni. Það væri einhvern veginn rökrétt. Titillinn sjálfur, Níu þjófalyklar, er þannig afar miðlægur sjálfssýn verksins, e.t.v. umfram það sem vant er. Nærvera Ólafs og Davíðs, hvort- tveggja fyrirferðarmikilla persónuleika í íslensku menningarlandslagi, svo ekki sé minnst á þá stað- reynd að báðir hafa sent frá sér söfn smásagna, gefur ekki einvörðungu í skyn að ný bók hlýtur að standa í einhvers konar sambandi við forvera sína, heldur sviðsetur þessi sjálfsvitund bók- arinnar erfiðleika ungs höfundar við að staðsetja sig í bókmenntalandslaginu. Í brennidepli, ef svo má að orði komast, er samhengið milli þeirra höf- unda sem móta bókmenntalandslagið og nýbú- anna sem byggja það. Einhvers konar áhrifaótti gæti vel falist í svo markvissri og meðvitaðri umsköpun og end- ursköpun ritvallarins. Hér væri þó ágætt að hafa í huga orð þekkts ljóðskálds og bókmenntafræð- ings sem hélt því fram fyrir nokkrum áratugum að ekki væri hægt að meta rithöfunda eina og sér. Taka yrði tillit til þess hvernig þeir raðast, og raða sér sjálfir, í ákveðið bókmenntalegt sam- hengi. Miðjan hverfist því ekki einvörðungu um þá sögulegu formgerð hefðarinnar sem tekur á móti rithöfundum, heldur líka hvernig þeir byggja bókmenntalandslagið, hvernig þeir nálg- ast, móta og jafnvel hreyfa við miðjunni, hvers konar híbýli þeir reisa í þéttbýli annarra höfund- arverka. En í þessum hugleiðingum kemur í raun fram tvíþætt krafa: annars vegar er mælst til þess að ummælendur og gagnrýnendur séu vak- andi fyrir síbreytilegu samhengi bókmenntanna, en einnig er ákveðin krafa gerð til rithöfunda um að þeir séu meðvitaðar um forvera sína, að þeir viti sitthvað um þann vettvang þar sem þeir hyggjast hasla sér völl innan. Sum rými eru upp- tekin, önnur eru fyllt ljótum og úreltum hús- gögnum, nýr meðbúandi þarf að gera sér grein fyrir muninum og staðsetja sjálfan sig með slíka hluti í huga. Í raun eru hugleiðingar um íverustaði, veru- staði, ekki langsóttar þegar viðfangsefni smá- sagnanna í Níu þjófalyklum eru skoðuð nánar. Við kynnumst náttúrufræðingi sem trúir því statt og stöðugt að eins konar staðleysuleg útópía leynist bak við bláma fjallanna, við kynnumst miðaldra Lótharió sem fundið hefur sínar kjör- lendur inni í íbúð ungrar og tilkippilegrar djamm- meyjar, við fylgjumst með hugleiðingum höf- undar um sitt eigið örugga höfundarrými. Á sama tími hefur lesandinn, líkt og vanalega, lítið annað fyrir sér en orð, tungumál sem á stundum er þan- ið að myndhverfðri útopnu sinni; runu og dembu og flaum orða sem samanlögð fremja hinn dul- arfulla galdur, þau skapa sinn eigin veruleika. Líkt og þjófalyklar gefa til kynna hæfileika til að fara ránshöndum um híbýli fólks, gefur form bók- arinnar til kynna, svo vitnað sé til orða nýliðins heimspekings, að tungumálið sé hið raunsanna hí- býli tilverunnar, veruleiki svonefnds höfundar bókarinnar leiðist saman við veruleika skáld- sagnapersónanna svo, að lokum, fátt virðist skilja þau að. Þjófalyklar gefa vitaskuld í skyn ritstuld, en þegar öllu er á botninn hvolft, erum við ekki öll þjófar í híbýlum tungumálsins? Eina af sögunum í safninu má reyndar sjá sem smækkaða útgáfu af heildarrökvísi verksins. Þeg- ar elskhugi nokkur bregður sér í könnunarleið- angur um íbúð ungrar konu sem hann hyggst fara á fjörurnar við týnist hann fljótt í undarlegu völ- undarhúsi. Húsnæði stúlkunnar reynist að um- fangi mun meira en ytra útlit gaf til kynna. Þetta lýsir lestrarreynslu bókarinnar ágætlega. Um- fangsmikil er hún ekki að ytra bragði, lítið fer fyr- ir henni í hillu eða bókabúð, en þegar stigið er inn fyrir gættina og blaðsíðunum flett er víst að heil- mikið völundarhús blasir við. Á útopnu, eða textatengsl og þrotabókmenntir Bókmenntir Níu þjófalyklar Eftir Hermann Stefánsson. Bjartur, Reykjavík, 2004. 121 bls. Smásögur Morgunblaðið/Golli Hermann Stefánsson „Þjófalyklar gefa vitaskuld í skyn ritstuld, en þegar öllu er á botninn hvolft, erum við ekki öll þjófar í hýbýlum tungumálsins?“ Björn Þór Vilhjálmsson

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.