Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.2005, Qupperneq 13

Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.2005, Qupperneq 13
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 19. febrúar 2005 | 13 Furðupoppsveitin Animal Collect-ive og þjóðlagasöngkonan Vashti Bunyan hafa tekið höndum saman og senda frá sér stuttskífu hjá útgáfufyrirtækinu Fat Cat 31. maí næstkomandi. Skífan mun bera heit- ið Prospect Hummer og á henni verða fjögur óraf- mögnuð lög; þrjú sungin og eitt með upp- tökum úr sarpi Geolog- ist, vinar hljómsveitarmeðlima sem heitir réttu nafni Brian Weitz. Lögin á plöt- unni heita: 1. „It’s You“ 2. „Prospect Hummer“ 3. „Baleen Sample“ 4. „I Remember Learning How to Drive“ Þá eru Bunyan og Animal Collect- ive að vinna sitt í hvoru horni, að næstu plötum. Vashti sendir frá sér sína fyrstu plötu í 35 ár og Animal Collective hyggst fylgja eftir velgengni Sung Tongs, sem kom út í fyrra.    Nokkrar plötur til heiðurs hinumgengna meistara Elliott Smith munu vera á leiðinni í geislaspilara tónlistaráhugamanna, að því er fram kemur á SweetAdeline.net, óopin- berri heimasíðu Smiths. Þá verða haldnir minningartónleikar um þenn- an brothætta listamann í Chapel Hill í Norður-Karól- ínufylki í Banda- ríkjunum á föstu- daginn. Yfirskrift tón- leikanna er „Eith- er/Or: A Celebrat- ion of the Music & Life of Elliott Smith“ og þar koma fram listamenn og hljómsveitir á borð við Chris Stamey, Kaia Wil- son, Ivan Rosebud, Erie Choir, Street Green, Billy Sugarfix, Fan Modine, the Feeble Hex, Hotel Lights og Ben Davis. Einnig hefur fyrrum útgáfufyrir- tæki Smiths, Kill Rock Stars, endur- útgefið Speed Trials stuttskífuna á iTunes-þjónustu Apple. Stuttskífan var ófáanleg, en hún inniheldur lög sem hann tók upp á meðan á vinnslu Either/Or stóð árið 1997.    Stúlkurnar í Destiny’s Child munuað sögn koma naktar fram í næsta myndbandi sínu, sem verður hið þriðja af nýjustu plötunni, Dest- iny Fulfilled. Myndbandið er við lag- ið „Cater 2 U“ og MTV.com segir að þær verði sýndar án fata, en á smekklegan hátt þó. Hver þeirra mun koma fram í sínu atriðinu í eyðimörkinni; Beyoncé á sundstökkpalli, Michelle í hægindastól og Kelly á eyðilegum þjóðvegi. Leikstjóri myndbandsins verður Jake Nava, sá hinn sami og stýrði tökum í myndbandi Beyoncé við lög- in „Naughty Girl“ og „Crazy in Love“. Hann hefur einnig gert mynd- bönd við tvö vinsæl lög Lindsay Lohan; „Over“ og „Rumours“. Í sömu viku og tökur fóru fram á myndbandinu við „Cater 2 U“ léku stúlkurnar í öðru myndbandi, við lag- ið „Girl“. Leikstjóri þess er Bryan Barber og mun þemað vera í anda þáttanna Beðmál í borginni. Barber hefur áður leikstýrt myndböndum við Outkast-lögin „Hey Ya“, „Roses“ og „Ghetto Music“. Stúlkurnar hafa nóg á sinni könnu, því þær halda brátt til Evrópu, Ástr- alíu og Asíu á tónleikaferð sinni, „Destiny Fulfilled… and Lovin’ It“. Tónleikaförinni er að sjálfsögðu ætl- að að kynna plötuna Destiny Fulfill- ed, sem hefur selst í þrefaldri plat- ínusölu í Bandaríkjunum. Fyrstu tónleikarnir eru í Hiroshima í Japan 9. apríl og þeir síðustu í Dublin á Ír- landi, 9. júní. Erlend tónlist Animal Collective Elliott Smith Destiny’s Child Þegar orðið iðnaðarrokk er nefnt fær mað-ur hroll og kaldan svita og leiðir viljugurnauðugur hugann aftur til síðari hlutaáttunda áratugar síðustu aldar og önd- verðs níunda þegar ömurlegar en einhverra hluta vegna alveg hræðilega útvarpsvænar mjúkrokk- sveitir á borð við Journey, Loverboy og Foreigner tröllriðu öldum ljósvakans. Þessi auma rokktónlist sem merkilegt nokk var nokkurs konar útþynnt og dauðhreinsuð og fjöldaframleidd útgáfa af smábæj- arrokki Bruce Springsteens, fékk þetta viðurnefni: iðn- aðarrokk, einmitt vegna þess hversu mikill færibandakeim- ur var af því, eins og það hefði verið getið í verksmiðju. En um miðbik 9. áratugarins fór að bera á ger- ólíkri tegund rokktónlistar og öllu meira spennandi sem á ensku var þó gefið sambærilegt nafn; „ind- ustrial“, einkum vegna hinna einhæfu, verk- smiðjulegu óhljóða sem hún grundvallaðist af; eins og stálbitum væri slegið taktfast saman í áfergju, hrópandi í kór við skerandi skammhlaup og neist- andi núning. Til brautryðjenda má telja þýsku til- raunasveitina Einstürzende Neubauten, sem og svissnesku sveitina Young Gods, kanadísku sveit- ina Skinny Puppy, áströlsku sveitina Foetus og Chicago-sveit Al Jourgensens Ministry. Sveitin sem hinsvegar reif þetta eina sanna iðnaðarrokk úr iðrum rokkskrímslisins og þjösnaði því uppí opið geðið á sauðsvörtum skrílnum var Nine Inch Nails, eða öllu heldur einn maður, Trent nokkur Reznor sem gaf út sína fyrstu plötu, Pretty Hate Machine, árið 1989, þá 24 ára gamall. Þessi ungi Cleveland- búi var með afbrigðum hæfileikaríkur, öll hljóðfæri léku í höndunum á honum og ólíkt forverum í iðn- aðarrokkinu lagði hann líka frá upphafi heilmikið uppúr því að semja sterkar melódíur sem hann síð- an dulbjó eða bókstaflega kæfði í ísköldum verk- smiðjuóhljóðum sem löðuðu sífellt fleiri ungmenni að. Sveitin kom lögum á borð við „Head Like a Hole“ og „Down in It“ í spilun á MTV og var boðið með í Lollapolooza-tónleikaferðina 1991. Þar upp- götvaði iðnaðarrokkið haugur af ungmennum sem aldrei áður hafði heyrt slíka tónlist. Heilum fjórum árum síðar; eftir að hafa loksins losnað undan samningi við útgáfufyrirtækið TVT gaf Reznor út nýja NIN plötu á eigin merki sem hann nefndi Nothing. Platan langþráða var tekin upp í hljóðveri sem Reznor setti upp í húsinu þar sem klikkaða gengið hans Charles Manson myrti leikkonuna og kærustu Roman Polanskis, Sharon Tate. The Downward Spiral kom út 8. mars 1994 og reyndist afar metnaðarfullt verk, konsept-plata sem átti sumpartinn meira skylt við framsækið til- raunarokk en ræturnar iðnaðarrokk. Gagnrýn- endur töluðu um Reznor sem Phil Spector iðn- aðarrokksins enda voru útsetningar hans ekkert annað en uppfærður hljóðveggur, útpældar og margflóknar þar sem í forgrunni var mölvandi gít- armottan, hljómur sem Reznor hafði fyrst kynnt til sögunnar á stuttskífunni Broken sem út hafði kom- ið á milli stóru platnanna. Platan fékk rífandi góðar viðtökur, fór beint í annað sæti breiðskífulistans í Bandaríkjunum og gat af sér tvo risavaxna smelli; „Closer“ og „Hurt“ – lag sem Johnny heitinn Cash átti síðar eftir að syngja stórfenglega með sínu nefi. Closer fékk í raun ótrúlega mikla spilun miðað við hversu ögrandi það var, bæði sjálft lagið og svo textinn þar sem Reznor söng angistarfullri röddu í viðlaginu „I wanna f*** you like an animal“. The Downward Spiral er nær örugglega ein allra sölu- hæsta iðnaðarrokkplata sögunnar, með plötum lærisveinsins Marilyn Mansons en Reznor stýrði upptökum og var um margt heilinn að bak við fyrstu tvær plötur þessarar helstu martraðar bandarískra mæðra. Þótt hörðustu NIN unnendur taki ef til vill frum- burðinn framyfir, vegna hins óbeislaða krafts sem hún bjó yfir, þá er The Downward Spiral tvímæla- laust það verka Reznors sem kemst næst því að teljast poppklassík. Verður það deginum ljósara þegar hlustað er á nýútkomna endurútgáfu á plöt- unni í hreint yfirgengilega flottum SA Audio hljóm- gæðum, þar sem hljóðheimar Reznor fá sín loksins notið til fullnustu. Ekki nóg með það heldur inni- heldur útgáfan nýja aukadisk þar sem er að finna þrettán endurhljóðblandanir, b-hliðarlög, prufu- upptökur og önnur lög sem ekki náðu inn á plötuna. Reznor brýnir raustina Poppklassík Eftir Skarphéðin Guðmundsson skarpi@mbl.is S eint verður sagt að áttundi áratug- urinn hafi einkennst af lognmollu hjá David Bowie. Reyndar er með ólík- indum hversu fjölbreytt tónlist- arsköpun hans er á þessu tímabili, sem hófst með hinni frábæru plötu The Man Who Sold the World og lauk með Scary Monsters, sem sumir álíta síðustu góðu plötu Bowies áður en hyldýpi níunda áratugarins gleypti hann. Þeir hinir sömu eru reyndar þeirrar skoð- unar að Bowie hafi heldur betur náð sér á strik aft- ur síðasta áratuginn, með plötum á borð við Heath- en og Reality. Sviptingar áttunda áratugarins voru ekki bara í tónlistinni, heldur einkenndu þær ekki síður einka- líf tónlistarmannsins. Hann var djúpt sokkinn í eit- urlyf á köflum, sér í lagi kókaín. Til að mynda hefur hann síðar sagst muna lítið eftir gerð plöt- unnar Station to Station árið 1975: „Ég man eftir að hafa unnið með Earl [Slick] að gítarhljómunum. Og öskrað á hann „fídbakk“- hljóminn sem ég vildi fá … og það er um það bil það sem ég man. Ég man ekki einu sinni eftir hljóðverinu. Ég veit að þetta var í Los Angeles vegna þess að ég las það í bók.“ Þessi ummæli segja talsvert um ástandið á Bowie á þessum tíma. Plastsál Bowie sendi frá sér tvær tvöfaldar tónleikaplötur á áttunda áratugnum, David Live og Stage, sem eru til umfjöllunar hér og eru endurútgefnar 1. mars næstkomandi. David Live var gerð árið 1974, á fyrri hluta Diamond Dogs tónleikaferðalags hans. Platan er því tekin upp í miðri dramatískri mús- íkalskri beygju á ferli hans, því um þetta leyti var Bowie að vinna efni á Young Americans, sem átti svo eftir að koma út árið eftir. Á Young Americans hellti Bowie sér út í sálar- tónlist, reyndar kallaði hann sjálfur útkomuna „plastic soul“, enda þótti honum, eins og fleirum, sálartónlistarstefnan vera eign hinna blökku. Hann hafði sér til aðstoðar menn á borð við Luther Vandross og svo auðvitað John Lennon, sem eins og allir vita hafði gert Rubber Soul (engilsax- neskur orðaleikur, afbrigði af „plastic soul“ og til- vísun í gúmmísóla, „rubber sole“) með Bítlunum, tíu árum fyrr. Það er ef til vill merkilegt, að þessara nýju tón- listarþreifinga gætir hvergi á David Live. Bowie leyfir nýjum lögum hvergi að heyrast á tónleika- ferðinni. Þess í stað er dagskráin að sjálfsögðu byggð á lögum af fjórum síðustu plötum; Diamond Dogs, plötunni sem ferðinni er ætlað að kynna, The Rise and Fall of Ziggy Stardust and the Spid- ers from Mars, Aladdin Sane og Hunky Dory. Því er gaman að hafa í huga þau tónlistarlegu umbrot sem Bowie er að ganga í gegnum þegar hann syng- ur „Moonage Daydream“, „Aladdin Sane“, „Changes“ og „Rebel Rebel“. Young Americans í smíðum Eina lagið sem segja má að líkist á einhvern hátt efninu á Young Americans er „Aladdin Sane“, en þar fer píanóleikarinn Mike Garson á kostum eins og á samnefndri plötu. Reyndar var það svo að helmingur hljómsveitarinnar brá sér í Sigma Sound-hljóðverið í Philadelphiu, nærri Tower- leikhúsinu þar sem tónleikarnir voru teknir upp, til að taka upp efni á Young Americans. Þegar Stage kom út árið 1978 hafði ótrúlega mikið vatn runnið til sjávar. Andrúmsloftið var gerbreytt, enda höfðu þá komið út heilar fjórar plötur í millitíðinni; Young Americans, Station to Station, Low og Heroes. Tónheimur Bowies var allt annar, enda hafði hann svo sannarlega stundað tónlistarlegar tilraunir á hverri einustu þessara platna. Strax á fyrsta lagi, „Warszawa“ af Low, heyrir maður að það kveður við allt annan tón en á David Live. Bowie tekur samt „gömul“ lög á Stage. Í þann flokk falla þó eiginlega bara fimm lög af Ziggy Stardust, sem hann tekur í röð í byrjun annars disksins. „Five Years“, „Soul Love“, „Star“, „Hang on to Yourself“ og „Ziggy Stardust“ eru að mestu í upphaflegum búningum, ólíkt „gömlu“ lögunum á David Live, sem mörg eru afar frábrugðin hljóð- versútgáfunum. Ekkert lag af Diamond Dogs Að öðru leyti spilar hann að mestu lög af síðustu þremur plötum; að sjálf- sögðu Heroes, en einnig af Low og Station to Station. Ekki eitt ein- asta lag af Diamond Dogs er að finna á Stage, en þau voru sem fyrr segir í forgrunni fjórum árum áður. Lík- lega er það einmitt af þeirri ástæðu, enda til- gangslítið að gefa út lif- andi upptökur með sömu lögunum aftur. Stage var tekin upp í tónleikaferð til að fylgja Heroes eftir, þeirri margfrægu plötu sem margir telja til eins höf- uðverka Bowies. Hljóm- urinn er betri en á Dav- id Live og hljómsveitin þéttari. Bowie er eini maðurinn sem ljær báð- um plötum hljóðfæri sitt, en að öðru leyti er hljómsveitinni skipt út eins og hún leggur sig. Tony Visconti hljóð- blandaði báðar plöt- urnar og á þessum nýju útgáfunum hefur lög- unum verið raðað upp á nýtt; til samræmis við tón- leikana. Þannig byrjar fyrri diskur Stage á „Warszawa“ og nýrri lögum Bowies, en seinni diskurinn er að mestu helgaður Ziggy Stardust og Station to Station. Í fyrri útgáfunni hafði röðin verið að mestu leyti öfug. Tvö lög eru á EMI- útgáfunni sem ekki voru á þeirri fyrri vegna pláss- leysis; „Be My Wife“ og „Stay“. Söngröddin eldist ekki Sá sem farið hefur nýlega á tónleika með Bowie getur ekki annað en tekið eftir því hversu vel hann heldur sér, líkamlega og tónlistarlega. Reyndar fékk hann hjartaáfall síðasta sumar, en fregnir herma að hann sé óðum að ná sér. Fyrrnefndur Tony Visconti, sem m.a. stjórnaði upptökum á Space Oddity og The Man Who Sold the World og sá sem fyrr segir um hljóðblöndun á David Live og Stage, skrifar texta í bæklinga endurútgáfanna. Í lok textans í bæklingi Stage segir hann: „Leyfið mér að bæta við að eftir að hafa endur- hljóðblandað David eins og hann var 1977 og svo hljóðblandað tónleika frá árinu 2004, get ég varla merkt að söngrödd hans hafi elst að neinu leyti. Ef til er Dorian Gray-mynd af raddböndunum í hon- um felur hann hana vel! Hann er einn af stórkost- legustu tónlistarflytjendum okkar tíma, og þessir tónleikar eru að mínu mati sígildir.“ Gjörólíkar hljómleikaplötur EMI sendir frá sér nýjar útgáfur af tvöföldum tónleikaplötum Davids Bowies frá áttunda ára- tugnum, David Live og Stage, hinn 1. mars. Eftir Ívar Pál Jónsson ivarpall@mbl.is Lifandi dauður Á sviðinu í Tower-leikhúsinu í Philadelphiu í byrjun júlí 1974.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.