Mánudagsblaðið - 02.05.1949, Síða 1
2. árgangur.
Mánudagur 2. naaí 1949.
16. tölublað.
¥ið að secýa ®
Miklar umræður hafa ver-
ið útaf grein þeirri, sem
hér birtist í sambandi við
ólifnaðinn á Keflavikurvell-
inum. Margir eru þeir, sem
enn ekki trúa að slíkt skuli
geta átt sér stað þar sem hið
opinbera hefur verði til þess
að gæta þess að erindislausir
menn og konur ferðist ekki
um þar. Fleiri eru þó þeir
foreldrar, sem lostnir eru
skelfingu yfir því að börn
þeirra kunni að vera meðal
þessara afvegaleiddu ung-
linga, sem í ævintýraskyni
heimsækja flugstöðina og
menn þá er þar starfa.
En allt það, sem blaðið
hefur birt um þessi mál er
satt. Því miður er nú svo
komið að hér á íslandi hefur j
myndast sú stétt kvenna,;
sem selur ástir sínar mönn-|
um þessum fyrir peninga,
fyggigúmmí og nylonsokka
og aðrar þær vörur, sem lítt
eða ekki eru fáanlegar hér
heima. Og samfara þessari
stétt forhertra vændis-
kvenna hefur sú önnur stétt
myndast, sem samanstendur
af stúlkum, sumum frá ágæt-
um 'heimilum, sem vilja
vera með jafnvel þótt ekki
sé um endurgjald að raeða.
Þær hrífast af enskunni, sem
yfirleitt er þó 3ja flokks,
þær hrífast af klaufalegu
borðsmannasiðunum, sem
yfirborðssiðunum, sem
cocktailunum, sem eru vel
blandaoir og umfram allt
hrífast þær af sögunum, sem
þessir menn segja um fyrir-
heitnu heimilin í Bandaríkj-
unum, partýin og nætur-
klúbbana í allri þeirra dýrð.
Allt þetta minnir þessa ung-i
linga á bíólúxusinn og þeim
finnst eins og þær séu nú
komnar að dyrum drauma-
lands síns. Samtölin eru fjör-
leg og jafnvel þær, sem ekki
skilja mikið 1 ensku, geta
fylgzt með sumum bröndur-
unum og sagt einstaka .,yes“
og ,no“, mestmegnis „yes“,
þegar á þær er yrt. Enskan
býr yfir óþrjótandi orða-
fjölda og á engu máli er
hægt að bjóða dömu upp á
vín á eins heillandi hátt og
þeirri tungu. Samtölin krefj-
ast ekki mikilla heilabrota,
því aðallega er talað um
leikara, bíómyndir og síðustu
partý.
En vínið hrífur og eftir
Við borðið sStur Dcan Aclieson, utamríkisráðherra Bandaríkjanna, og er að undirrita
Atlanzhafsbandalagið. Við hlið hans stendur Truman forseti og ræðir við einn ráðherrann.
frv * T’ "
stutta stund eru skítugu
braggarnir orðnir að dýrleg-
um höllum og kunningjarnir
að prinsum, sem ætla sér
ekkert annað hlutverk í fram
tíðinni en að verja og gæta
þessara ungu fórnarlamba
sinna. Orðum er hvíslað í
eyru — fallegum orðum —
og loforð gefin. Mótstöðuafl-
ið minnkar og vitundinj
sljóvgast, en yfir þessumj
hálfsljóvu unglingum klingjaj
glösin og hlátrasköllin auk-j
ast. „Mannasiðirnir“ hverfa,!
en í stað þeirra koma klúrir
brandarar um stúlkurnar
sjálfar og okkur íslendinga.
Þegar líður á nóttina gerast
þessir „gentlemen“ fjöl-
þreifnir og er þá ekki að
sökum að spyrja. — Mynda-
vélar koma í ljós og
myndir eru teknar í ýms-
um stellingum. Um fleiri at-1
burði verður ekki skrifað hér
en þó má benda á að oftast
eru stúlkurnar færri en karl-
mennirnir og „allir verða
þeir að komast í geimið“.
Eins og mæður þessara
stúlkna böðuðu þær og lögðu
þær í vöggu fyrir 16 til 20
árum baða þessir menn þær
nú að innan með víni, en
leggja þær síðan í sínar eig-
in „vöggur“. Efalaust eru
þær margar stúlkurnar, sem
þar hafa týnt sóma sínum.
Þér kann að finnast les-
andi góður, hvort sem þú ert
foreldri eða ekki, að þetta
sé óhrjáleg lýsing og ef til
vill finnst þér þetta sorp-
blaðamennska. Okkur finnst
það : aftur á móti ekki. Hitt
segjum við fullum fetum, að
það er ótækt hjá opinberuim
ótækt gagnvart þjóðinni í
heild — það er ótækt
gagnvart foreldrunum og
það er glæpur gagnvart
þeim óhamingjusömu ung-
lingum, sem þarna eyði-
leggja framtið sína. Spill-
ing sú og ólifnaður, sem
þarna hefur skapast á flug-
vellinum er stór blettur á
þjóð vorri. Eins og skemmt
epli, sem eitrar hin eplin,
sem eru í skálinni, breiðist
þessi siðspilling til Reykj a-
víkur og annarra þorpa og
bæja hér í nágrenninu. Hún
étur um sig þar til hún er
orðin hér landföst og þá er
orðið um seinan að ætla sér
að breyta um stefnu.
Ef íslenzk blaðamennska
á að byggjast á því einu, sem
fólkið vill heyra, þá á hún
sér ekki langt líf fyrir hönd-
um sem blaðamennska. Ef
einhver blöð eru of fín til
þess að skrifa um þessar
staðreyndir, þá hafa þau
brugðizt hiutverki blaða-
mannsins og sett blett á stétt
hans.
Okkur finnst eins leitt að
birta þetta eins og hugsandi
fólki finnst að lesa það, en
bót fæst ekki á þessum mál-
um fyrr en hætt er að taka
á þeim með silkihönzkum eða
leiða þau hjá sér, Að stinga
höfðinu 1 sandinn og halda
að maður sé falinn, hefur
aldrei verið haldgóð regla.
íslendingar hafa að nafn-
inu til eftirlit með Keflavík-
Framhald á 2. síðu..
—---- -------- --
Afíiir í kjöri ,
’í*
Svehm Björnsson, forseti ís-
lands, hefur fallizt á að geí'a
kost á sér til forsetakosninga,
seni fram fara 26. júní í surnar.
Káðgaðist forsetinn um þetta
við lækna sína eftir að leiðtog-
ar Alþýðuflokksins, Framsókn-
arflokksins og SjálfstæCisflckks
ir.s fóru þess á leit við haiui a3
hann yrði í framboði. Víst
teija að hann verði endurkjör-
inn.