Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 24.09.2005, Qupperneq 1

Lesbók Morgunblaðsins - 24.09.2005, Qupperneq 1
Laugardagur 24.9. | 2005 [ ]Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík | Meira en 50 myndir frá 26 þjóðlöndum | 7–10Félag húsgagnaarkitekta 50 ára | Nokkrir frumherjar úr röðum húsgagnasmiða | 6Eros og galdur ímyndunaraflsins | Með vísindahyggjunni var máttur Erosar talinn til syndar | 4 LesbókMorgunblaðsins 80ára19252005 „Escribo desde un naufragio desde un signo o una sombra discontinuo vacío que de pronto se llena de amenazante luz – José Ángel Valente EITT Við vitum það vel, það vita það allir: Dóms- dagsspár hafa verið á kreiki frá örófi alda. En á svipaðan hátt og … tja, segum salt hefur lengi verið notað í mat án þess að sérstök ástæða sé til að hætta því er vafasamt að ætla að dómsdagsspár séu ekki menningunni bráð- nauðsynlegar. Og það sem meira er: Það er ekkert sem segir að dómsdagsspár dagsins í dag séu rangar þótt fyrri spár hafi ekki endi- lega ræst. Sá sem lítur í kringum sig í heimi dagsins í dag sér blikur á lofti. Um daginn las ég grein eftir sannfærðan en vonsvikinn hægrimann, kaþólskan, í útlendu blaði. Hann leit svo á að Bandaríkin, sem áður hefðu kennt okkur svo ótal margt um frelsi og um einstaklinginn, væru orðin fasistaríki. Nú væri jafn mikil nauðsyn að átta sig á því og hefði verið að koma auga á að Þýskaland Hitlers hefði verið á villigötum, sem var enginn hægðarleikur þótt auðvelt sé að tala um nú. Þetta var merkilegur lestur, ekki vinstrimaður að bölva öllu amerísku í sand og ösku af gömlum vana heldur hægrimaður að tala af einlægni um það sem hann áleit vera sára uppgötvun, tek- inn að leggja eyrun við alsvæsnustu dóms- dagsspám, þetta getur ekki endað vel, hugs- aði hann, maður á miðjum aldri, fluttur inn í svart herbergi. TVÖ Sem unglingur átti ég vin sem átti svart her- bergi. Raunar hljómaði þar ekki tómur djöf- ulgangur í tækjum, dauðarokk, þungarokk, mig minnir að þar hafi jafnoft verið spiluð klassík, íbúi svarta herbergisins var klass- ískur gítarleikari þótt hann hefði líka verið í pönkhljómsveit. Svarta herbergið kom í hug- ann við lestur pistils Kristjáns B. Jónassonar í síðustu Lesbók undir upphrópunarmerki sem er „einskonar loka NEI!“ áður en allt hverfur endanlega. Pistillinn er svar við greinum eftir mig, Eirík Guðmundsson og Stefán Mána í Lesbók þar á undan, en „þeir sem skrifa í Lesbók hafa á dularfullan hátt lag á því að leiða lesendur sína niður í þröng neðanjarðarbyrgi þar sem þeir tala til heims- ins sveittir og titrandi á meðan veggirnir hristast af sprengjugný […] Allt er búið. Eins og unglingur í hevírokkskreyttu ólund- arherbergi stilla þeir í botn og blasta and- úðinni á þá sem ekki eru á sömu tótalítarísku línunni […] Í þessum skrifum er glað- hlakkalegur dómsdagslosti […]“. En svarta herbergið. Stundum hugsaði ég með mér að væri ég í sporum vinar míns, byggi í svörtu herbergi, yrði ég þunglyndur á viku, tauga- veiklaður á hálfum mánuði, geðveikur á þremur vikum og skyti mig svo í lok mán- aðarins. En ég sá aldrei minnstu depurð á vini mínum, hann gekk jafnan í svörtum föt- um, ók um á svörtum bíl, átti svartan tann- bursta og var hvers manns hugljúfi. Við stofnuðum hljómsveit og sömdum saman hreinræktað kátínupopp. ÞRJÚ Eins og allir Íslendingar er ég poppari í frí- stundum. Mig hefur lengi langað til að semja dægurlag um dómsdag. Popplag þar sem textinn tjáði með orðum allan drungann og ugginn í tónlist Sjostakovitsj en lagið væri nauðaeinföld og grípandi melódía, kannski ekkert ósvipuð Stuðmannalagi. Gleðipopplag um heimsendi. Svo ólíkleg samsetning af texta og lagi er fremur ófús að koma minn veg, annað dregur jafnan keim af hinu, söng- lagið of drungalegt eða textinn of húm- orískur, þessi fallega skörun á milli lags og texta er erfið en mikið væri skemmtilegt að geta búið til þess háttar smell, ég sé fyrir mér unglinga sem aldraða í útilegu með kassagítar að syngja: „Dómsdagur er í nánd! Hæ hó jibbíjei það eru komnir efstu dagar!“ Ég geri ráð fyrir að spámenn og rugludall- ar sem til forna dreymdi dómsdagsdrauma hafi viljað miðla þeim. Hvaða kikk skyldu þeir hafa fengið út úr skrifum sínum? Kannski var það „dómsdagslosti“, kannski var nautnin sem Nostradamus fékk úr öllu sínu rugli ekki annað en löngun til að geta sagt „ég sagði ykkur þetta!“ að mörgum öldum liðnum. „Ég vissi það! löngu dauður …“ En þeir hafa náð talsverðum vinsældum og svei mér ef ekki við sjálft liggur að fólk söngli spádóma Nostrada- musar í útilegum, líttu á sölutölurnar, maður, Svarta herbergið Rætt hefur verið um íslenskt bókmennta- ástand í Lesbók frá því að Bókmenntahátíð hófst. Í síðustu Lesbók var sagt að bók- menntaskrif blaðsins kæmu eins og út úr „hevírokkskreyttu ólundarherbergi“. Hér er stássstofupistli svarað úr svarta herberginu. Eftir Hermann Stefánsson | hermannstefansson@yahoo.com  3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.