Lesbók Morgunblaðsins - 24.09.2005, Síða 10
10 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 24. september 2005
Í
tæpa þrjá áratugi hefur rithöfund-
urinn Diana Wynne Jones sent frá
sér eina bók á ári, hugmyndarík og
ærslafull ævintýri fyrir börn og full-
orðna. Hún var lengi ókrýnd drottn-
ing breskra barnabókmennta og
þurfti aðeins nýlega að víkja fyrir J.K. Rowling,
en þó ekki fyrr en í fulla hnefana. Árið 1986 gaf
hún út Howl’s Moving Castle sem fjallar um
Sophie, verndaða og hlédræga
unglingsstúlku sem eldist um
rúma sjö áratugi í einu vetfangi.
Til að aflétta álögunum verður hún
að hafa uppi á töframanninum Howl sem einn
getur komið í veg fyrir að Sophie verði ellidauð
áður en hún kemst af gelgjuskeiði.
Fimmtán árum eftir útkomu bókar Jones
ákváðu forsvarsmenn Studio Ghibli, eins virt-
asta teiknimyndastúdíós Japans, að gera mynd
eftir henni. Stúdíóið hefur ekki ómerkari menn
innanborðs en Isao Takahata og Hayao Miya-
zaki en þó var ákveðið að fá utanaðkomandi
leikstjóra til verksins í fyrsta skipti í sögu þess.
Mamoru Hosoda varð fyrir valinu en hann stóð
ekki undir gífurlegum væntingum stúdíósins og
hrökklaðist frá verkinu. Hayao Miyazaki tók þá
sjálfur að sér handrit og leikstjórn mynd-
arinnar og það þrátt fyrir yfirlýsingar sínar um
að Andans ævintýri (Sen to Chihiro no Kamika-
kushi) yrði hans síðasta mynd.
Fullkomnunarárátta Miyazakis
Hayao Miyazaki fæddist í Tókýó árið 1941 og
fagnar nú 42 ára starfsafmæli við teiknimynda-
gerð. Hann hóf feril sinn sem teiknari og vakti
strax athygli fyrir einstaka hæfileika og óþrjót-
andi ímyndunarafl. Árið 1982 hóf hann gerð
teiknimyndasögunnar Nausicaa of the Valley of
the Wind (Kaze no Tani no Naushika) og tveim-
ur árum síðar var honum boðið að gera teikni-
mynd um Nausicu. Hann setti það skilyrði að fá
Isao Takahata, annan meistara japanskra
teiknimynda, sem samstarfsmann og var sam-
vinnan kveikjan að stofnun Studio Ghibli.
Frá og með miðjum níunda áratugnum gerði
Miyazaki hverja gersemina á fætur annarri á
milli þess sem hann tók að sér smærri verkefni
við framleiðslu enn fleiri teiknimynda. Meðal
annars leikstýrði hann og skrifaði handritið að
My Neighbour Totoro (Tonari no Totoro) árið
1988 og Porco Rosso (Kurenai no Buta) árið
1992, sem hefur flugmann í svínslíki fyrir aðal-
persónu. Myndin um úlfadótturina Princess
Mononoke (Mononoke Hime) vakti heims-
athygli 1997 og er sú eina eftir Miyazaki sem
sýnd hefur verið hingað til í bíó á Íslandi. Sum-
arið 2002 var Andans ævintýri (Sen to Chihiro
no Kamikakushi) frumsýnd í Japan og hlaut
hún fádæma viðtökur. Myndin sló aðsóknarmet
Titanic í Japan og sópaði til sín verðlaunum,
hlaut m.a. Óskarsverðlaun og Gullna björninn á
kvikmyndahátíðinni í Berlín. Ekki fengum við
að sjá Andans ævintýri í íslenskum kvikmynda-
húsum en hún var valin besta myndband ársins
2003 af Morgunblaðinu.
Miyazaki leggur gríðarlega vinnu í myndir
sínar og er með puttana í öllu svo jaðrar við full-
komnunaráráttu. Hann átti það til að angra
teiknarana með endalausum lagfæringum og
breytingum uns hann náði tilætluðum árangri,
t.d. hafði hann persónulega umsjón með 80.000
römmum Princess Mononoke, allt til að ganga
úr skugga um að persónurnar „hagi sér rétt“.
Vegna vinnuálagsins fór Miyazaki þó að veita
undirmönnum sínum aðeins meira sjálfstæði en
samt hefur hann endurtekið staðhæft að hann
ætli á eftirlaun, t.d. eftir að Andans ævintýri
kom út 2002. Enda var Miyazaki ekki fenginn til
að skrifa og leikstýra Howl’s Moving Castle
(Hauru no Ugoku Shiro) frá upphafi. Þó mætti
halda að Jones hafi skrifað söguna fyrir hann
einan. Þetta er þroskasaga hlédrægrar ungrar
konu; sagan er uppfull af kynlegum skepnum,
fólki í furðulegustu álögum, spennandi ferðalög-
um og svölum kvenpersónum. Allt þetta hefur
einkennt síðustu myndir Miyazakis. Hann
skortir einungis tækifæri til að koma dálæti
sínu á flugi og trjám að.
Ellin og ævintýrin
Howl’s Moving Castle sannar að Miyazaki er
enn í essinu sínu. Teiknistíllinn einn myndi
nægja til að laða fólk í bíó. Hann er ljóðrænn á
köflum og ímyndunarafl Miyazakis er engu líkt.
Miyazaki er hrifinn af mikilfenglegu landslagi og
náttúru sem hann undirstrikar með björtum og
tærum litum. Hann er næmur á smáatriði sem
koma fram í hönnun hans á stórkostlegum tækj-
um, tólum og byggingum sem heilla unga sem
aldna. Persónur eru listilega útfærðar og lát-
bragð þeirra eykur á glensið, sérstaklega þegar
fuglahræður, kastalar og arineldar taka sporið.
Joe Hiaishi styður sem fyrr dyggilega við bakið
á Miyazaki með tónlist sinni. Miyazaki leggur sig
í líma við að koma sýn sinni óskiptri til skila á
hvíta tjaldið sem útheimtir þvílíka ósérhlífni að
hann sér eftirlaun í hillingum. Miyazaki gerði
róttækar breytingar á sögu bókarinnar Howl’s
Moving Castle og lagði þær fyrir Jones sem var
hæstánægð með útkomuna. Þótt undarlegt megi
virðast hefst allsherjar þeysireið þegar gamling-
inn Sophie haltrar af stað í leit að hinum dul-
arfulla töframanni. Howl til mikillar armæðu
þröngvar Sophie sér upp á heimilisfólkið sem
ráðskona í stórkostlegu kastalahrúgaldi sem
ferðast um á tveimur jafnfljótum fyrir tilstilli
bitra „arineldsins“ Calcifer og hefur aðaldyr sem
liggja að fjórum mismunandi stöðum, þar á með-
al tveimur ólíkum borgum. Töframaðurinn mikli
reynist dramatísk gelgja sem hefur meiri
áhyggjur af hári sínu en að leysa unga konu úr
álögum. Sophie verður því að hjálpa sér sjálf,
m.a. með því að grafast fyrir um dularfulla fortíð
Howl. Kímnigáfa Miyazakis fær að njóta sín í
glettnum aukapersónum, aðstoðarmanninum
Marco, „lifandi“ fuglahræðu, astmaveikum
hundi og ævafornri norn sem gengur í barndóm.
Í bakgrunni myndarinnar geisar ógnvænlegt
stríð sem Sophie, Howl og allir hinir dragast inn
í en útkoman er samt sem áður ein hin skemmti-
legasta þroskasaga ungrar konu.
Afstæði aldurs er rauði þráðurinn í Howl’s
Moving Castle. Miyazaki segir sjálfur að hann
hafi ætlað að gera barnamynd en heimspeki-
legar vangaveltur um æviskeið höfði ef til vill
frekar til fullorðinna. Hvernig mótumst við af
aldri okkar? Ákvarðar hann líf okkar eða þurfum
við nokkuð að haga okkur í samræmi við ára-
fjölda? Hvað á unglingsstúlka að gera þegar hún
sökum elli gæti hrokkið upp af á hverri stundu?
Hin hlédræga Sophie hefur sóað lífi sínu við
þrotlausa vinnu en fyrst þegar hún hrekkur af
léttasta skeiði öðlast hún þor til að halda á vit
ævintýranna.
Gersemar Miyazakis
Hayao Miyazaki Frá og með miðjum níunda áratugnum gerði Miyazaki hverja gersemina á fætur ann-
arri á milli þess sem hann tók að sér smærri verkefni við framleiðslu enn fleiri teiknimynda.
Á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík
sem hefst 29. september nk. verður sýnd nýj-
asta teiknimynd japanska leikstjórans Hayao
Miyazaki, Howl’s Moving Castle. Af því til-
efni er hér fjallað um meistara Miyazaki og
verk hans.
Eftir Írisi
Ellenberger
irisel@hi.is
Höfundur er meistaranemi í sagnfræði við
Háskóla Íslands.