Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.2005, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.2005, Blaðsíða 4
4 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 24. desember 2005 J ólaljóð Jóhannesar eru mjög fjöl- breytt allt frá hinu stórkarlalega barnakvæði Grýla hét tröllkerling leið og ljót til lágstemmdra erinda sem hann orti út af þjóðvísunni Hátíð fer að höndum ein. Grýlukvæði og leiðsluljóð Framan af einkenndu barna- og það sem kalla mætti leiðslu- eða íhugunarljóð kveðskap Jó- hannesar um jólin. Með leiðslubókmenntum er átt við frásagnir eða annars konar texta af því sem borið hefur fyrir höfund í draum- sýn.1 Hér er gengið út frá að sá „draumur“ geti hafa borið fyrir mann í vöku. Það sem flestir kannast við af þessum ljóð- um eru ugglaust kvæðin í kverinu Jólin koma sem birst hefur í tuttugu og einni prentun frá 1932. Hafa Grýlukvæði og kvæðin um jóla- sveinana þrettán og jólaköttinn átt hvað drýgstan hlut í að halda minningu þessara furðuvera þjóðsagnanna á lofti og skila henni til nýrra kynslóða allt til upphafs 21. aldar. Kverinu lýkur svo á angurblíðu ljóði, Jólabarn- ið, þar sem jólahald í íslenskri baðstofu færist um set út að fjárhúsjötu þar sem nýfætt Jesú- barnið liggur og foreldrar þess bíða eftir betra skýli „í fátækt og miklum vanda“.2 Þá kemur þú með þín kerti, kveikir við jötuna lágu, og réttir fram, hreina og hlýja, höndina þína smáu. Og bláeyga jólabarnið þú berð inn í vöggu þína. Og allir englarnir syngja, og allar stjörnurnar skína.3 Ljóðið er íhugunarkvæði börnum til hugg- unar sem staðið hefur stuggur af ókindunum sem ort var um í fyrri kvæðunum og er ætlað að gera þau að virkum hluttakendum í jóla- atburðinum. Í því verður fæðing Krists einnig sístæð og nálæg þar sem hún gerist hvert að- fangadagskvöld. Jólanóttin er þar með hafin yfir tíma og rúm en er ekki aðeins aðfaranótt 25. desember. Í fyrstu ljóðabók Jóhannesar, Bí, bí og blaka (1926), birtist áþekkt leiðsluljóð, Nóttin helga. Þar fylgist ljóðmælandinn með kertisstubb sínum brenna upp og í loganum opnast honum heill heimur. Hann verður vitni að atburðum hinnar fyrstu jólanætur og öðlast persónulegt samband við Jesúbarnið og móður þess: Móður milda eg sé, – mig hún nálgast skjótt, blessað barnið sitt ber til mín í nótt. Jesúbarnið blítt brosir ljúft við mér. Ástaralda guðs yfir heiminn fer. Barnið brosir við, – bendir mér til sín. Klökk við móðurkné krýpur sála mín. Grætur móðir glöð: „Guð á drenginn minn. Horfðu í augu hans, – hann er bróðir þinn!“4 Skáldið lýkur ljóði sínu í bæn: Blíða Jesúbarn! Beint í ríki þitt láttu lýsa mér litla kertið mitt!5 Í næstu bók, Álftirnar kvaka (1929), er að finna ljóðið Jólin okkar þar sem enn gætir íhugunar út frá jólaljósi. Þar má þó greina nýj- an tón, samstöðu með þeim sem þjást. Sá tónn átti eftir að harðna og skerpast því harðar sem varð í heimi: Hann markið eilífa minnir á. Og móti öllum, sem ljósið þrá, hann bróðurfaðminn sinn breiðir, og börnin við hönd sér leiðir. Hann blessar alla, sem biðja af ást, – hann blessar alla, sem lifa og þjást, og smælingjans götu greiðir.6 Meðal leiðsluljóða Jóhannesar með vísun til jóla má loks nefna Vökunótt (Eilífðar smáblóm 1940). Þrátt fyrir að þar sé kveðið um sumar- nótt er höfðað til gjafa vitringanna og þar með þrettánda dags jóla í síðasta erindinu: Júníljós sig hjúfra um skóg og hraun, – hér er gull og reykelsi og myrra. Jesúbarnið lék hérna á laun lengi nætur einu sinni í fyrra.7 Kreppu- og stríðsjól Með kreppunni, uppgangi fasisma og nasisma, borgarastyrjöldinni á Spáni og loks heims- styrjöldinni síðari óx róttækni Jóhannesar og tónninn í skáldskap hans varð harðari og óvægnari. Litið hefur verið svo á að þá hafi hann tekið sinnaskiptum frá kristinni bernskutrú til kommúnisma.8 Sjálfur virðist hann ekki hafa litið svo á heldur skynjað trúar- hugsun sína og þjóðfélagsviðhorf sem sam- fellda heild er þróast hafi án stórvægilegra straumhvarfa. Þá leit hann svo á að félagsleg réttlætiskennd sín væri fremur móðurarfur en áhrif stjórmálastefna er hann kynntist síðar á lífsleiðinni.9 Sonur götunnar í Ég læt sem ég sofi (1932) er að sönnu ekki jólaljóð heldur miskunnarlaus lýsing á kjörum ellefu ára götubarns sem elst upp á strætum stórborgar á tímum krepp- unnar og „sýgur hvern fingur til blóðs“.10 Að- stæðum hans er lýst svo: „Hann á engan föður og enga móður/og engan guð eða jól.“11 Við svipaðan tón kveður í Biðjið og yður mun veitast (Hart er í heimi 1939). Þar er sögusvið- ið íslensk sveit en ljóðmælandinn er ungur dregur sem í örvæntingu bíður þess á að- fangadag að það verði heilagt vitandi þó að hans bíður „ekkert kerti, ekkert ljós“: Í örvæntingu blítt ég bað minn bróður, Jesúm Krist, að búa kóngakerti til og koma því sem fyrst.12 Síðan bíður drengurinn uns hulin hönd dreg- ur gaddaða frostrós á döggvaðan gluggann „í grimmmúðlegri ró“: Hið kalda svar við sárri bæn ég sá í þeirri rós: Vor himinn gefur héluvönd, er hjartað þráir ljós. … Og jólin flýðu fátækt barn, – en fannst þér, Jesús minn, þá ekkert ljótt að leika á svo lítinn bróður þinn?13 Hér tekst skáldið á við Jesú í nokkurs konar Jakobsglímu út af óréttlæti heimsins og nálg- ast þannig eitt áleitnasta vandamál kristinnar guðfræði: Hvernig saman fari trú á algóðan, réttlátan Guð og ranglæti heimsins (oft nefnt guðvörn). Í Himnahymnum (Sól tér sortna 1945) er enn vikið að hlutskipti hins fátæka um hátíð- arnar. Ljóðið er annars gamansöm lýsing á há- tíð í höll himnakonungsins sem drekkur jól að fornum sið með tveimur nafntoguðustu guðs- mönnum þjóðarinnar, sr. Hallgrími Péturssyni og meistara Vídalín. Á borðum eru magálar, lambatungur, laufabrauð og Rínarvín. Þegar gleðin stendur sem hæst lætur jólabarnið til sín heyra: Rís þá Jesúbarn sem rós við hjarn: skimar augnablik sem skynji svik, bendir á jarðardyr í bobba – og spyr guðlegt ektapar: Hver grætur þar?14 Kemur þar fram samstaða skáldsins og Krists með öllum sem líða. Trufluninni er þó ekki jafnvel tekið af öllum: Drottinn vill nú frið og dokar við; vitur Máríá sér víkur frá; myrkvast Hallgríms sjón, – en meistari Jón svarar, vanur baksi: O – sofðu lagsi!15 Í þessu hálfkæringslega ljóði leynast þó vís- anir í jólaboðskapinn í þeirri mynd sem var Jó- hannesi töm, sem sé að á hverjum jólum sé heiminum frelsari fæddur: Sæl er Máríá og segir þá: Fætt þann hef ég enn, sem frelsar menn. Svífa kerúbar og serafar; lamb sefur í ró við ljónsins kló.16 Lok erindisins er tilvísun í einn af þeim ritn- ingarstöðum sem lesnir eru á öðrum sunnu- degi í aðventu þ.e. 11. kapítula Spádómsbókar Jesaja þar sem lýst er því allsherjarjafnvægi sem muni ríkja þegar friðarhöfðingi framtíð- arinnar hefur sest að völdum. Á kreppuárunum orti Jóhannes ljóðabálkinn Mannssoninn sem birtist þó fyrst í heild 1966. Almennt er þar dregin upp mjög mennsk mynd af Kristi. Frá fæðingu hans segir í ljóð- inu Í kofanum. Þar gætir þó dýpri skilnings er skáldið ályktar: Því hér var þá fædd þessi framtíðarvon, sem fólk hafði lifað á, meðan það svalt. Og móðirin horfði á sinn himneska son: ó hvað hann var jarðneskur þrátt fyrir allt.17 Jól 1936 (Hart er í heimi) er ljóð sem sýnir hvernig Jóhannes brást við samtíma sínum. Þar lýsir hann því er sprengju var varpað á hóp barna sem dönsuðu kringum jólatré. Sögu- sviðið er Madríd á dögum borgarastyrjald- arinnar. Um afdrif barnanna segir: „Og öll þau hurfu úr lífsins leik:/þau leystust upp – þau urðu að reyk.“18 Í kjölfarið fylgir svo vægð- arlaus spurn skáldsins um samband réttlæt- isins og vilja Guðs: Og enn vér höldum heilög jól, – ég horfi í spurn á barnið mitt: Nær rekst þá vísdómsvilji guðs á veslings glaða brjóstið þitt og tætir sundur ögn fyrir ögn? En enginn svarar: Myrkur. Þögn.19 Skáldið glímir hér enn við Guð sinn og kref- ur hann um réttlæti. Þegar bókin Eilífðar smáblóm kom út (1940) var heimsstyrjöldin skollin á. Í ljóðinu Jólanótt er koma Krists sett á svið í umhverfi íslenskrar sveitar. Hér er um að ræða umhverfisbundna guðfræði í líkingu við þá sem átti eftir að ryðja sér til rúms meðal ýmissa undirokaðra hópa sem felldu Krist og boðskap hans að eigin fé- lagslega veruleika. Jesús kemur að sveitabæ þó ekki í líkingu barns heldur fullvaxinn og ríð- andi kanski á ösnu eða brúnum fola. Stef jólanna og fyrsta sunnudags í aðventu, inn- reiðin í Jerúsalem, renna því saman í eitt. Lausnarinn verður þó að forsmá gestrisnina og brjóta þar með gegn einu af hefðbundnum siðaboðum þjóðarinnar. Það var því ekki að- eins lögmál gyðinga sem Kristur braut í krafti kærleikans þegar neyðin svarf að: –– – Herrann brosir, horfir milt á frúna: hann má ekki vera að slóra núna. Úti í heimi er allt í grænum sjó, – andskotinn þar heilum löndum ræður. Ljóssins fursti finnur aldrei ró, fyrr en allir verða góðir bærður. Júðans ríki jóla sinna bíður, – Jesús Kristur út í myrkrið ríður.20 Hér er Kristi lýst sem friðarhetju sem ann sér engrar hvíldar fyrr en friður hefur komist á í stríðandi heimi. Jólafriður og vopnaskak fara ekki saman. Kveðskapur Jóhannesar markaðist oft af pólitískum aðstæðum staðar og stundar. Gegn varnarsamningi Íslands og Bandaríkjanna orti hann til t.d. hina miklu hvöt sína til þjóðfrelsis, Sóleyjarkvæði (1952). Þar kemur Kristur mjög við sögu bæði í líkingu Jesúbarnsins og ungs, fátæks smiðs sem sté niður af rauðum kvala- krossi til að koma á friði og frelsi.21 Lýsingin á Jesúbarninu er nöturleg enda er það tákngerv- ingur þess frelsis sem þjóðin hafði nýverið hafnað eða „borið út“: Myrkur er yfir útskögum – og hvað er að: vera liggur í snjónum vafin innan í blað – er þetta kannski jesúbarnið eða hvað? – – – útburðurinn skreiðist undan mogganum sínum, vappar um skaflinn næturlangt og gólar í gnýnum: faðir vor, ég heimta að þú skilir handleggnum mínum. Myrk er heiðin á miðju nesi, en kátt er í kanabý: þar er lífið þurrkað út með kurt og pí – ég var lífið, ó móðir mín í kví kví.22 Jesúbarnið er hér ekki aðeins samsamað glötuðu sakleysi nýfrjálsrar þjóðar heldur einnig einni forsmáðustu veru íslenskra þjóð- sagna og öllum börnum sem er hafnað eða þau vanrækt. Að lokinni heimsstyrjöld Spennan í ljóðum Jóhannesar sem tengjast jól- unum slaknar á árunum eftir heimsstyrjöldina. Sýnir það hver loftvog kveðskapur hans var á samfélags- og heimsástandið hverju sinni. Í miklu harmljóði eða elegíu sem skáldið orti eftir móður sína (Halldóru Guðbrandsdóttur d. 1945), Mater dolorosa (Sjödægra 1955), rifjar það upp kirkjuferð á jólum: Manstu á jólunum þegar við fórum til kirkju og þú hvíslaðir við dyrnar: hér er guð. Manstu undrandi kertaljósin sem blöktu á hjálminum: gjafir hinna fátæku hinna þreyttu. Manstu spurula tónana sem flögruðu um hvelfinguna: bænir hinna syndugu hinna auðmjúku. Og manstu þegar maður með kross á baki sneri sér að okkur og söng drottinn sé með yður hvernig ég skimaði titrandi um allt hið mikla hús greip í skúfinn þinn og stundi: hvar er guð?23 Hér einkenna spurn, undrun og leit hughrif skáldsins, kenndir sem yfirgáfu Jóhannes aldr- ei: Hvar er Guð að finna? Sumum kann að finn- ast lýsing Jóhannesar á íslenskri sveitakirkju yfirdrifin þar sem hann ræðir um mikið hús með hvelfingu. Þó kunna hér að vera gildar forsendur fyrir hrifningunni. Sóknarkirkja fjölskyldunnar var í Hjarðarholti en þar stóð fyrsta krosskirkja Rögnvaldar Ólafssonar (1874–1917) húsagerðarmeistara í róm- antískum, nýgotneskum stíl.24 Hefur hún án efa orkað sterkt á fegurðarskyn margra, ekki síst lítils verðandi skálds. Jóhannes var það skáld kynslóðar sinnar sem gekk hvað lengst í formtilraunum. Í Tregaslagi (1964) er að finna órímað jólaljóð í tveimur erindum, Jólasnjó: 1 Sannleikurinn er ótrúlegur – svífandi mjöll kyssti varir mínar í dag – vöktu mér furðu undarlegar þrár andhverfra veralda: leitaði dautt snjókorn að lifandi blóðkorni? 2 Nú er mér allur harmur úr hug því hvíta gyðjan Hátíð fer að höndum Í skáldskap Jóhannesar úr Kötlum (1899– 1972) tvinnuðust saman tveir þættir sem í hugum margra eru andstæðir: Róttæk vinstristefna og kristin trúarhugsun. Hér verður brugðið ljósi á kveðskap Jóhannesar um jólahátíðina og kannað hvernig þessi stef endurspeglast í honum. Eftir Hjalta Hugason hhugason@hi.is Jóhannes úr Kötlum Jólakveðskapur hans er athyglisverður aldarspegill. Um kveðskap Jóhannesar úr Kötlum um jólin

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.