Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.2005, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.2005, Blaðsíða 7
það er mikil blóðtaka fyrir leikhúsið að missa þá Pálma Gestsson, Randver Þorláksson, Sig- urð Sigurjónsson og Örn Árnason að ógleymd- um Hilmi Snæ Guðnasyni úr leikaraliði húss- ins. Góðir karlleikarar á þeim aldri, sem flestir þeirra eru á, eru ekki margir, og verður fróð- legt að sjá hvernig hún tekur á þeim vanda. Í verkefnavalinu og samstarfinu við Vestur- port blasa við nýjar áherslur hjá þjóðleikhús- stjóra. Þar endurspeglast að hluta það sem verið hefur að gerjast í íslensku leikhúsi nokk- ur undanfarin ár, innrás ungrar kynslóðar með önnur viðmið en kynslóð Stefáns Baldurssonar sem gerði kröfu um skýra listræna heild í stíl og formi og bar mikla virðingu fyrir leikrita- höfundinum, hinu talaða orði jafnt sem líkams- máli, og leiklistarhefðum þó einkum Stan- íslavskís. Unga kynslóðin gerir að sjálfsögðu uppreisn gegn þessu öllu og sækir mörg við- miða sinna til Þýskalands frá mönnum eins og Ostermeyer og Schlingenschief, sem báðir hafa reyndar komið til Íslands, en sá síðar- nefndi setur upp hér í fyrsta sinni í Þjóðleik- húsinu í vor. Leikhúsverk Schlingenschief mætti skilgreina sem myndlistargjörninga eða afbyggingar- og andleikhús þar sem ráðist er gegn stílhreinum þykjustuheimi leikhússins með anarkískum myndum og „óleik“. Í sýn- ingum Benedikts Erlingssonar, Egils Heiðars Pálssonar, Gísla Arnar Garðarssonar og Stef- áns Jónssonar á árinu má kenna þessi áhrif þó mismikil séu og ólíkir séu þeir allir í starfs- aðferðum. Merkilegt er þó að flestir þeirra nema Egill Heiðar hafa valið sér sígilda höf- unda eins og Strindberg, Büchner og Brecht til að afbyggja. En myndræn sýning Auðar Bjarnadóttur á framúrstefnuverki Kristínar Ómars í Borgarleikhúsinu á sér aðra upp- sprettu því ætíð vaxa margvísleg blóm á sama tíma. Vissulega þarf þessi kynslóð að losa sig við ýmsar vondar hefðir fortíðarinnar svosem hræsni, tilfinningasemi og tortryggni gagn- vart vitsmunum en í fortíðinni leynist líka ýmis viska og til eru hér menn eins og Magnús Páls- son, einn af stofnendum Grímu, sem um ára- tuga skeið hefur predikað og gert tilraunir í rituðu máli og í leikhúsi með andleikhús. Því ekkert er nýtt undir sólinni. Það verður fróðlegt að sjá hvernig andleik- húsið þróast næstu ár, hvernig íslenskir áhorf- endur taka því, hvort leikritahöfundar okkar og annað leikhúsfólk vill ekki sjá það og heldur sér við hin klassísku gildi og þróar þau í nýja átt eða hvort það verður vatn á myllu nýfrjáls- hyggjumanna í öllum flokkum til frekari að- fara að leikhúsinu? En á árinu hefur stöðugild- um fastra leikara í landinu stórlega fækkað, sýningum í Borgarleikhúsinu sömuleiðis og álagi á fasta leikara þar, í haust frumsýna færri sjálfstæðir leikhópar verk en í fyrra á sama tíma. Leikarar og flest starfsfólk leik- húsa eru láglaunahópur og býr við mikið starfsóöryggi. Það var vissulega ánægjulegt að Vesturport skyldi á árinu vera boðið að sýna Woyzeck í London og það var einnig afskap- lega ánægjulegt að Björn Thors, Sólveig Arnardóttir og Benedikt Erlingsson ynnu jöfnum höndum erlendis og hér heima, sem og að Brynja Benediktsdóttir, einn af fyrstu al- þjóðlegu fulltrúum íslensk leikhúsfólks, hafi enn verið að sýna Ferðir Guðríðar í Evrópu. En það var ekki eins ánægjulegt að horfa á fólkið hjá borg og ríki, fólkið sem telur sig sjálft svo sannarlega eiga að búa við gott atlæti úr vösum almennings, viðra sig utan í vel- gengni þessa leiklistarfólks á erlendum vett- vangi á sama tíma og það skammtar, einnig úr vösum almennings, nánasarlega til þessa hóps innanlands og vilji sennilega helst í samræmi við lögmál markaðarins gera það að betlurum hjá stórfyrirtækjum eins og Stefán Jónsson minnir svo rækilega á í jólasýningu Þjóðleik- hússins á Túskildingsóperunni. Höfundur er leiklistargagnrýnandi á Morgunblaðinu. Lesbók Morgunblaðsins ˜ 31. desember 2005 | 7 Áramót eru tími uppgjörs á öllumsviðum, menn róta sem óðast íminningakistunni til að draga þaðfram sem best hefur tekist, eða verst, og bregða upp um stund til að gefa streðinu öllu tilgang. Víst er það bráðhollt að velta fyrir sér liðnum tíma, reyna að festa sér í huga það sem maður vill að eftir standi og tína það til sem gott væri að gleyma sem fyrst. Meira gaman er þó að spá í framtíðina, hvað er framundan, hvað var það sem fram kom á árinu sem á eftir að vekja athygli á næsta ári, á næstu árum, og af því var talsvert, innlent sem erlent. Airwaves-lykillinn Airwaves er lykillinn að mörgu því sem skemmtilegast er á hverju ári hérlendis, hefur verið það undanfarin ár og var að þessu sinni. Tilgangur með hátíðinni var og er að gefa íslenskum hljómsveitum færi á að kynna sig fyrir útsendurum plötufyr- irtækja og erlendum blaðamönnum og sú reyndist raunin hjá hafnfirsku rokksveitinni Jakobínurínu sem komst í heimspressunar fyrir frábæra frammistöðu á GrandRokki. Frábæra frammistöðu segi ég, en sá þó ekki sveitina, komst ekki inn, en heyrði í henni þar sem ég beið í biðröðinni og las um hana í Rolling Stone. Jakobínurínu hafði ég þó séð nokkrum sinnum áður og velþóknun Rolling Stone kom því ekki á óvart, hér er komin ein efnilegasta hljómsveit landsins sem hefur alla burði til að koma undir sig fótunum ytra. Önnur hljómsveit sem stóð sig vel á Airwaves og hefur reyndar staðið sig vel allt árið, alltaf betur og betur, var Mammút. Á tónleikum sem ég var á fyrir skemmstu, þar sem erlendir umbar voru mættir til að sjá og heyra Jakobínurínu, var Mammút líka að spila og gaman að heyra það hjá útlendingunum eftir tónleika að þeir voru ekki síður hrifnir af Mammút. Mamm- út er hljómsveit sem er enn að mótast, eins og heyra hefur mátt á mörgum tónleikum yfir árið, hvernig lögin hafa breyst og mót- ast, sum lengst, önnur tekið nýja stefnu. Frábær hljómsveit og þar komin önnur sem telja verður með þeim efnilegustu – áber- andi 2005 og vísast enn meira áberandi á nýju ári. Þriðja Airwaves-undrið var ekki hljóm- sveit heldur stelpa með gítar og fartölvu, Sigurlaug Gísladóttir, Silla, Mr. Silla, nánar tiltekið. Hún vakti mikla athygli á Airwaves og vekur enn athygli, hvort sem hún er að syngja í kjallaranum á Kjörgarði eða í Ís- lensku óperunni. Mr. Silla hefur sterka og hljómmikla rödd, er góður lagasmiður og tekst jafnan vel upp við flutninginn hvort sem hún er að syngja eigin efni, Prince, Beyonce eða En Vogue. Tónleikaárið 2005 Svo voru það tónleikarnir – þvílíkt tónleika- ár! Isis í hellinum, Ghostigital á Gauknum, Hjálmar á Flúðum, Mammút og Jakobín- arína í Grand Rokk, Daníel Ágúst, Mr. Silla og Rass í Óperunni, Úlpa og Þórir í Þjóð- leikhúskjallaranum, Þórir í Iðnó, White Stripes í Höllinni, Fiery Furnaces á Gaukn- um, TMC á Gauknum, Ég á Grand Rokk, Kimono í Klink og Bank, Bryndis í Nasa, Antony í Fríkirkjunni, tvisvar, Cat Power í Nasa, Robert Plant og Strange Sensation í Laugardalshöll, Bubbi í Þjóðleikhúsinu og Mugison í Nasa. Sigur Rós í Laugardals- höll. Tónlistarvísar 2006 Mammút stóð sig vel á Airwaves og raunar allt árið. Ljósmynd / Björg Sveinsdóttir Popptónlist Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is um bókmenntum þótt það megi finna af- sprengi hennar í bókmenntum og fjölmiðlum. Hallgrímur Helgason hefur líka mjög afger- andi rödd sem var ný og spennandi í Þetta er allt að koma og 101 Reykjavík en yfirgnæfir allar aðrar raddir í nýjustu skáldsögu hans, Roklandi. Böddi verður fyrir vikið ósannfær- andi og bókin óáhugaverðari en flest sem Hall- grímur hefur skrifað. Ég reyndar gafst upp á lestrinum. Ég er enn að lesa Yosoy eftir Guð- rúnu Evu Mínervudóttur, Feigðarflan eftir Rúnar Helga Vignisson og Steintré Gyrðis. Ég mun klára þær allar. Upphlaup ársins var þó sennilega Túristi eftir Stefán Mána sem fjöl- miðlar þurftu að ganga með í níu mánuði áður en hann kom út grátandi og kveinandi. Hugs- anlega er það rétt sem einhver sagði að bók sem fjallaði um íslenskt bókmenntasamfélag þyrfti sennilega að ná um það bil tveggja ára aldri áður en hún næði máli. Það var tíðindameira í ljóðabókaútgáfu árs- ins. Fjögur af bestu ljóðskáldum landsins senda öll frá sér frábærar bækur: Gyrðir Elí- asson gaf út Upplitað myrkur í vor, Þorsteinn frá Hamri sendi frá sér Dyr að draumi, Matt- hías Johannessen Kvöldgöngu með fuglum og Þórarinn Eldjárn Hætti og mörk. Þrjú ljóða- söfn komu út eftir Hannes Pétursson, Þóru Jónsdóttur og Kristján Karlsson en tvö þau síðastnefndu eiga skilið meiri athygli en þau hafa fengið hingað til. Tersínubálkur Sölva Björns Sigurðssonar, Gleðileikurinn djöf- ullegi, er síðan með allra skemmtilegustu ljóðabókum sem komið hafa út lengi hér á landi. Geirlaugur Magnússon lést í september og í kjölfarið deildu aðdáendur um skáldið hér í Lesbók, svolítið eins og í sögunni af Jóni í Brauðhúsum. Tvær góðar ljóðabækur komu út eftir Geirlaug að honum látnum, önnur þeirra, Tilmæli, með síðustu ljóðum hans. Margar bestu bækur ársins voru þýðingar eins og stundum áður. Barndómur eftir Nób- elshöfundinn J.M. Coetzee er mögnuð skál- dævisaga í þýðingu Rúnars Helga Vign- issonar, Kertin brenna niður eftir ungverska rithöfundinn Sándor Márai var sennilega upp- götvun ársins, Lífið er annarsstaðar eftir Kundera er ánægjuleg viðbót við aðrar þýð- ingar Friðriks Rafnssonar á verkum höfund- arins, Hæðir Machu Picchu eftir Neruda í þýð- ingu Guðrúnar H. Tulinius er mikill fengur og einstaklega fallega útgefin ljóðabók en bestar þeirra þýðinga sem ég hef lesið eru þó Dauð- inn í Feneyjum eftir Mann og Mobý Dick eftir Melville. Eins og einhver asni á ég enn eftir að lesa Slepptu mér aldrei eftir Kazuo Ishiguro, en ég hlakka mikið til. Fjöldinn allur af fræðiritum og ævisögum kom út á árinu. Kjarvalsbók er auðvitað stór- virki og sömuleiðis þriggja binda verk Guð- rúnar Kvaran, Höskuldar Þráinssonar og Kristjáns Árnasonar um íslenska tungu. Á þessu sviði bókaútgáfunnar er haldið úti nokkrum bókaflokkum sem eru gríðarlega mikilvægir. Þar ber fyrst að nefna Lærdóms- rit Bókmenntafélagsins sem eru gefin út af miklum fræðilegum og þýðingarlegum metn- aði. Sýnisbækur íslenskrar alþýðumenningar hafa líka komið út með glæsibrag í tíu ár og eru nú orðnar ellefu. Og einnig mætti nefna nýjan bókaflokk Bókmenntafræðistofnunar Háskóla Íslands sem samanstendur af þýdd- um grundvallarverkum á fræðasviði stofn- unarinnar. Ævisögur voru mikið í umræðunni eins og oft áður en engin þeirra vakti sér- stakan áhuga. Þetta var ekki ár mikilla barnabóka en þó má nefna snotrar bækur eins og Gott kvöld eftir Áslaugu Jónsdóttur, Mamma er best eftir Björk Bjarkadóttur og Jólasveinasögu eftir Bergljótu Arnalds. Að lokum verður að nefna vel heppnaða bókmenntahátíð sem fram fór í september. Margir áhugaverðir höfundar komu til lands- ins og lásu upp fyrir troðfullum húsum. Paul Auster var stjarna hátíðarinnar og það ekki að ástæðulausu, hann er stjarna og satt að segja frábær höfundur. Minna bar á Margaret Atwood en þar fór merkilegur höfundur. Bret- inn James Meek og Rússinn Andrej Kúrkov vöktu og athygli en með sínum hættinum hvor. Allir þessir höfundar hafa verið þýddir á ís- lensku, reyndar allir hjá Bjarti, þrír þeir síð- astnefndu komu út í þýðingum á þessu ári, Penelópukviða eftir Atwood, Í nafni kærleik- ans eftir Meek og Dauðinn og mörgæsin eftir Kúrkov, allt góðar bækur. Miðað við góðar undirtektir höfunda og gesta þessarar hátíðar sem átti tuttugu ára af- mæli á árinu sem er að líða hlýtur sú spurning að vakna hvort ekki sé kominn grundvöllur fyrir því að halda hana á hverju ári.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.