Morgunblaðið - 04.01.2005, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2005 F 31
HLÍÐASMÁRI - TIL LEIGU
Mjög gott 141 fm húsnæði á 3. hæð (efstu) í
lyftuhúsi á frábærum stað. Húsæðið skiptist
niður í þrjú stór skirfstofurými, eldhús og
snyrtingu.
KIRKJULUNDUR - GBÆ
Stórglæsilegt samtals rúmlega 600 fm
verslunar og/eða skrifstofuhúsnæði. Grunn-
flötur neðri hæðar er 425 fm og efri hæð um
200 fm. Hús í algjörum sérflokki, bjart og
opið. Fullbúið húsnæði - miklir möguleikar
hér. Húsið er allt í útleigu.
MIÐHRAUN
Sérlega gott, samtals 196,3 fm iðnaðar- og
skrifstofuhúsnæði á mjög góðum stað í
hrauninu í Garðabæ. Innkeyrsluhurð og
góður inngagnur. Verð 18,5 millj.
BIRKIHOLT
Glæsileg 2ja herb., 76 fm íbúð á 3. hæð
(efstu) í mjög góðu, 10 íbúða húsi á frábær-
um stað á nesinu. Björt og falleg íbúð. Ör-
stutt í leikskóla og grunnskóla. Verð 13,5
millj.
GLJÚFRASEL
Mjög góð 78,4 fm íbúð með sérinngangi í
þriggja íbúða húsi, suðurgarður. Mjög fín
eign. Verð 11,5 millj.
GARÐATORG
Glæsilegt 51 fm verlsunarhúsnæði á yfir-
byggðu torgi í miðbæ Garðabæjar. Bjart og
gott verslunarhúsnæði. Verð 6 millj.
GARÐATORG
Mjög gott 69,3 fm verslunar- og eða skrif-
stofuhúsnæði á yfirbyggðu torgi í miðbæ
Garðbæjar.
SKEIÐARÁS - GBÆ
Til sölu tvö bil á jarðhæð í nýlegu og góðu
húsi. Annað bilið er 375 fm og hitt er 445
fm. Hvort um sig hefur tvær innk. hurðir.
Hér má gera góð kaup á góðum kjörum.
SKEIFAN
Til sölu (eða leigu) samtals 948,8 fm á neðri
hæð. Frábær staðsetning fyrir miðri Skeif-
unni. Húsnæðið er laust nú þegar. Skiptan-
legt í smærri einingar. Þrír inngangar í hús-
næðið og há innkeyrsluhurð. Mjög öflugt
rafmagn og loftræsting. (Sjá www.garda-
torg.is)
UPPSALAV. - SANDGERÐI
Einbýli, 175 fm á þremur hæðum, hæð,
kjallari og ris. Mögulegt að gera séríbúð
með sérinngangi á jarðahæð. Verð 12,5
millj.
ÞÓRODDARKOT - ÁLFTANES
Mjög gott samtals 200 fm einbýlishús á
mjög góðum stað á nesinu. Vel skipulagt
hús. Fjögur svefnherbergi. Innangegnt í
stóran og góða bílskúr. Verð 31,9 millj.
HRÍSHOLT 3 - GARÐABÆ
Einstaklega glæsilegt, rúmlega 500 fm ein-
býli. Í húsinu er meðal annars fullvaxin
sundlaug með öllum búnaði. Húsið er sér-
lega glæsilegt og er byggt á einhverjum
glæsilegasta útsýnisstað höfðuborgarsvæð-
isins, útsýni frá Keili til Esju. Einstakt tæki-
færi. Verð 70 millj.
TRÖLLATEIGUR - MOSÓ.
Glæsilegt og vel skipulagt, 185,1 fm raðhús
á tveimur hæðum í hjarta Mosfellsbæjar. 4
svefnherb. Skilast fullbúið að utan, grófjöfn-
uð lóð og fokheld að innan. Verð 19,9 millj.
ÁSBÚÐ - GBÆ
Mjög gott endaraðhús samtals 166,3 fm
(148+18,3). Vinsæll og fjölskylduvænn stað-
ur. Örstutt í skóla og íþróttir. Verð 27 millj.
Sérhæðir
ÁLFHÓLSVEGUR
Mjög góð neðri sérhæð í mjög góðu og vel
staðsettu húsi (byggt 1986). Góð 2 svefn-
herbergi, þvottahús og rúmgóð stofa. Út-
gegnt á suður-verönd og garðinn. Verð 17,9
millj.
VIÐ SELJUM FASTEIGNIR
FASTEIGNASALAN Í GARÐABÆ
SELJENDUR FASTEIGNA ATHUGIÐ!
Mikil hreyfing er nú á fasteignamarkaði og okkur vantar allar gerðir íbúðarhúsnæðis á skrá. Ef þú
ert í söluhugleiðingum, þá hafðu samband strax í dag - þú nærð alltaf í okkur, alltaf!
Sími 545 0800
ÓSKUM LANDSMÖNNUM
ÖLLUM GLEÐILEGS NÝS ÁRS OG
FARSÆLADAR Á NÝJU ÁRI
Starfsfólk Garðatorgs, eignamiðlunar ehf.
Mosfellsbær — Fasteignasala Mosfellsbæjar er
nú með í sölu einbýlishús við Arnartanga 83 í
Mosfellsbæ. Húsið er 194,2 ferm. og á einni
hæð með sambyggðum bílskúr og garðskála.
Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi
og forstofuskáp. Úr forstofu er komið inn á
gang með eikarparketi á gólfi, en á gangi er
gestasalerni með dúk á gólfi. Á vinstri hönd
er komið inn í stóra stofu með eikarparketi á
gólfi, en inn af stofu er sjónvarpshol með eik-
arparketi á gólfi og mögulegt að loka því af
og gera þar fjórða svefnherbergið.
Úr stofu er opið inn í borðstofu með eikar-
parketi á gólfi, en á hægri hönd á gangi er
komið inn í hol með eikarparketi á gólfi. Þar
á hægri hönd er baðherbergi, flísalagt í hólf
og gólf og með baðkari og sturtuklefa.
Þar við hlið er þvottahús og úr því er inn-
angengt í 35,6 ferm bílskúr. Við hlið þvotta-
húss er hjónaherbergi með parketi á gólfi.
Þar við hlið eru tvö góð barnaherbergi með
eikarparketi á gólfi, en nýlegir skápar eru í
báðum herbergjum.
Úr borðstofu og holi er gengið inn í eldhús
með borðkrók og dúk á gólfi. Í eldhúsi er
upprunaleg innrétting með sambyggðri
Electrolux-eldavél og ofni ásamt viftu. Flísa-
lagt er á milli efri skápa og borðplötu.
Inn af eldhúsi er lítið búrherbergi og úr
eldhúsi er gengið út í kaldan garðskála með
hellum á gólfi. Í garðstofu er stór og mikill
vínviður, sem gefur góðan ávöxt, en úr stofu
og garðstofu er gengið út í garð í suður.
Ásett verð er 29,7 millj. kr.
Húsið er 194,2 ferm. og á einni hæð með sambyggðum bílskúr og garðskála. Ásett verð er 29,7 millj.
kr., en húsið er til sölu hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar.
Arnartangi 83
Reykjavík — Fast-
eignasalan Húsakaup er
með í sölu 4 herbergja
íbúð í nýuppgerðu þrí-
býlishúsi við Sólvallagötu
70 í Reykjavík. Íbúðin er
á tveimur hæðum og
106,3 ferm. að stærð.
„Þetta er sérlega vel
skipulögð og skemmtileg
íbúð,“ segir Sigrún Þor-
grímsdóttir hjá Húsa-
kaupum. „Íbúðin stendur
á mjög góðum stað í mið-
bænum. Það er stutt í
barnaskóla og alla þjón-
ustu.“
Gengið er inn í sameig-
inlegan stigagang, sem
nýlega er búið að taka í
gegn. M.a. er nátt-
úrusteinn og fura á gólfi
sameignar. Í sameigin-
legum stigagangi eru
tvær íbúðir.
Af stigagangi á 2. hæð
er gengið inn í forstofu á neðri hæð íbúðar
og þaðan inn í gestasnyrtingu og inn í rúm-
gott eldhús með góðum borðkrók og stofu.
Eldhúsinnréttingin er upprunaleg en í góðu
ástandi.
Gegnt forstofunni er gengið upp á efri
hæð, en þar er gangur með þremur svefn-
herbergjum og baðherbergi. Svefnherbergi
eru öll með áföstum fataskápum og eru tvö
af þeim mjög rúmgóð.
Á ganginum og í svefnherbergjunum er
furugólf. Baðherbergið var allt endurnýjað
fyrir tæpum þremur árum, en þar er tengi
fyrir þvottavél. Á jarðhæð er sérgeymsla og
sameiginlegt þvottahús með hinum íbúð-
unum.
Gólfefni eru flísar á böðum en parket á
gólfum annars staðar.
Að utan hefur húsið verið endur nýjað
mikið, en það var málað í sumar og þá var
einnig skipt um niðurföll og þakrennur að
hluta. Í haust var síðan skipt um skolplagnir
undir húsinu. Ásett verð á íbúðina er 19,3
millj. kr.
Sólvallagata 70
Í þessu nýuppgerða þríbýlishúsi við Sólvallagötu 70 eru Húsakaup
með 4ra herbergja íbúð til sölu. Íbúðin er á tveimur hæðum og 106,3
ferm. að stærð. Ásett verð er 19,3 millj. kr.