Morgunblaðið - 04.01.2005, Side 37

Morgunblaðið - 04.01.2005, Side 37
ATNVNNUHÚNSNÆÐI SÉRBÝLI HÆÐIR 4RA-6 HERB. Skipholt - m. bílskúr Björt og mikið endurnýjuð 105 fm endaíbúð á 3. hæð. Íbúð- inni fylgir 8,3 fm séríbúðarherb. og sér- geymsla í kj. og 22 fm bílskúr. Íbúðin skiptist í stórt hol, eldhús m. nýjum vönduðum tækj- um, uppgerðum innrétt. og góðri borðað- stöðu, bjarta stofu, 3 rúmgóð herb. og nýlega endurnýjað flísalagt baðherb. Vestursvalir. Gler og gluggar nýir að hluta. Parket og mósaikflísar á gólfum. Verð 18,7 millj. Espigerði 109 fm 4ra herb. íb. á 4. hæð ásamt 7,0 fm geymslu í kj. í þessu eftirsótta lyftuhúsi. Rúmgóðar og bjartar samliggj. stof- ur með útgengi á tvennar svalir, eldhús með eldri innréttingu og borðaðstöðu, 2 svefnher- bergi, fataherb. innaf hjónaherb., þvottaher- bergi og flísalagt baðherb. Verð 19,9 millj. Naustabryggja Stórglæsileg 114 fm 4ra herb. útsýnisíbúð á 3. hæð í glæsilegu lyftuhúsi niður við sjó í Bryggjuhverfinu. Rúm- góð stofa m. útg. á flísal. svalir, 2 flísal. bað- herb., 3 herb., öll með skápum og eldhús m. vönd. innrétt. úr kirsuberjaviði. Gegnheilt parket og flísar á gólfum. Sérgeymsla í kj. og sameign til fyrirmyndar. Frábær staðsetn. við smábátahöfn. Falleg útsýni út á sundin. Áhv. húsbr. 9,1 millj. Verð 22,5 millj. 3JA HERB. Sólheimar 85 fm íbúð á 5. hæð í góðu lyftuhúsi. Opið eldhús, stofa, 2 herb., bæði með skápum og flísal. baðherb. Stórkostlegt útsýni, svalir eftir endil. stofunni. Sérgeymsla í kj. og önnur á hæðinni. Verð 15,7 millj 2JA HERB. Víkurás Falleg 35 fm stúdíóíbúð á 3. hæð ásamt 4,0 fm geymslu í kjallara. Austursvalir með útsýni yfir Rauðavatn. Snyrtileg sam- eign. Verð 7,5 millj. Grettisgata - sérinng. Falleg og nánast algjörlega endurnýjuð 42 fm íbúð á jarðhæð með sérinngangi. Nýleg gólfefni, innréttingar, tæki og lagnir. Laus strax. Verð 8,7 millj. Miklabraut Vel skipulögð og nokkuð endurn. 64 fm íbúð á 2. hæð með 5,1 fm geymslu í kj. Eldhús m. góðri borðaðst. og uppg. innrétt., rúmg. stofa og herb. m. skáp- um. Nýtt gler og gluggar, þrefalt að hluta. Verð 10,9 millj. Seljavegur Góð 3ja herb. risíbúð í þrí- býli í vesturbænum. Eldhús m. nýlegri inn- rétt. og borðaðst., stofa og 2 herb., bæði með skápum. Nýtt rafmagn og tafla fyrir húsið. Verð 11,0 millj. Brunabmat 8,4 millj. Mávahlíð Mjög falleg og mikið endur- nýjuð 94 fm íbúð á 2. hæð í mjög fallegu litlu fjölbýli í Hlíðunum. Íbúðin, sem er mjög vel skipulögð, skiptist m.a. í 2 stór herbergi, stórt eldhús, stóra stofu og bað- herbergi með glugga. Ný gólfefni á öllu, nýtt eldhús og nýtt baðherbergi. Húsið er í góðu ásigkomulagi að utan og lóð falleg og ræktuð. Verð 17,9 millj. Hverfisgata Mjög falleg og nánast al- gjörlega endurnýjuð 115 fm 4ra herb. íbúð á 3. hæð. Glæsilegt eldhús m. nýrri inn- réttingu, rúmgóð og björt stofa auk borð- stofu, endurnýjað baðherb., 2 herb. Svalir. Nýtt eikarparket og flísar á gólfum. Íbúð sem vert er að skoða .Verð 18,5 millj. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2005 F 37 mbl.is/fasteignir/fastis EIÐISTORG - SELTJARNAR- NESI - LAUS Vorum að fá í sölu fallega 5-6 herb. 152 fm útsýnisíbúð á tveimur hæðum (penthouse) í góðu lyftuhúsi. Stofa með sólskála í suð- austur í framhaldi af sólskálanum eru sval- ir. Góður stigi á efri hæð. Hjónaherbergi, svalir í vestur og glæsilegt útsýni. 3 góð herbergi. Tvö baðherbergi. Góð geymsla. Verið er að yfirfara þak hússins og mála, greiðist af seljanda. Stutt í alla þjónustu s.s. verslun heilsugæslu og sund. LAUS STRAX. Vegna mikillar sölu undanfarið óskum við eftir þinni íbúð í sölu strax. Hringdu núna. Komum og metum eignina þína þér að kostnaðarlausu. Sími 588 5060. Starfsfólk Fasteignasölu Íslands óskar viðskipatavinum sínum svo og landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs og heillaríks á komandi ári. Bestu þakkir fyrir ánægjulegt samstarf á árunum sem eru liðin. Megi samstarf okkar verða áfram ánægjulegt og árangursríkt. FLÉTTURIMI - LAUS Vorum að fá í einkasölu fallega 4ra-5 herb. „PENTHOUSE“-íbúð á 3. hæð ásamt stæði í bílskýli. Eldhús með fallegri mahó- ní-innréttingu. Stofa með svölum í suður. Hjónaherbergi með mahóní-skápum. 2 barnaherbergi með skápum. Baðherbergi með baðkari, mahóní-innréttingu og glugga. Þvottaherbergi. Náttúrusteinn, flís- ar og gegnheilt parket. Í kjallara er sér- geymsla. Stæði í bílskýli. Góð bílastæði. LAUS FLJÓTLEGA. BEIN SALA. SKIPTI ATHUGANDI Á ÓDÝRARI EIGN. Opið mán.- fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-17. LANDSBYGGÐIN PARHÚS - GÓÐ KAUP Erum með í sölu 120 fm parhús ásamt 24 fm bílskúr við miðbæ Keflavíkur. Mikið endurn. m.a. eldúsið og flest allar lagnir. Verðtilboð. All- ar nánari uppl. á skrifstofu. 2ja HERBERGJA LAUGAVEGUR Vorum að fá í sölu fallega og mikið endurnýjaða 2ja herbergja íbúð í góðu steinhúsi ofarlega á Lauga- veginum. Íbúðin snýr að mestu frá Laugavegi. Parket á gólfum. Bílastæði. UGLUHÓLAR - LAUS Vorum að fá í einkasölu fallega og rúm- góða 2ja herb. íbúð á jarðhæð í litlu fjöl- býli, sem var tekið í gegn að utan og mál- að sl. sumar. Björt stofa í suður með stórri sérverönd. Parket. Góð staðsetning. LAUS STRAX 4ra-6 HERBERGJA LAUGAVEGUR - 2 ÍBÚÐIR - LAUS Vorum að fá í sölu nýlega endur- nýjaðar íbúðir með sérinngangi í góðu fjöl- býli efst á Laugaveginum. Eldhús með ný- legri ljósri viðarinnréttingu. Sérbílastæði Skúlagötumegin. Þetta er eign sem býður upp á marga möguleika, leigja aðra eða báðar út, eða nota hluta sem vinnuað- stöðu. Laus fljótt. HÆÐIR BREKKULAND-MOSÓ Vorum að fá í sölu efri sérhæð í tvíbýlishúsi. Skjól- góður gróinn garður umhverfis húsið með góðum sólpalli. Fjögur svefnherbergi. Sér- inng. Þakið er nýlega endurnýjað. Nýlegar hitalagnir í íbúðinni. EINBÝLIS-, PAR-, RAÐHÚS FLÓKAGATA Vorum að fá í einkasölu 272 fm parhús á þessum vinsæla stað, sem er kj. og 2 hæðir ásamt 38 fm bílskúr. Eign- in skiptist m.a. í stofu, borðstofu, sólstofu, 4 svefnherb., eldhús., baðherb., gest- asnyrtingu. Geymsla í kjallara sem mætti nýta sem litla íbúð eða viðbótarherb. Fal- lega gróinn garður með verönd í suður. Teikn. og nánari uppl. á skrifstofu. ATVINNUHÚSNÆÐI ÓSEYRARBRAUT - HAFNARF. Vorum að fá í einkasölu rúmlega 2000 fm atvinnuhúsnæði. Húsnæðið er nýtt í dag fyrir fiskvinnslu. Nánari uppl. gefur Haukur Geir á skrifstofu FÍ. EIRHÖFÐI Vorum að fá í sölu 1150 fm atvinnuhúsnæði á 3 hæðum, mjög vel staðsett á góðri lóð. Húsið býður upp á marga möguleika; sali með innkeyrsludyr- um, skrifstofur og óinnréttað rými. Glæsi- legt útsýni. Mjög góð aðkoma og fjöldi bílastæða. Nánari uppl. veitir Haukur Geir. VATNAGARÐAR - LEIGA Til leigu á þessum góða stað 352 fm húsnæði, 175 fm á jarðhæð með innkeyrsludyrum, 175 fm á 1. hæð. Laust fljótl. Uppl. á skrifst. MIÐSVÆÐIS Til leigu um 200 fm skrif- stofuhæð í góðu steinhúsi miðsvæðis í Reykjavík. Laust strax. Nánari uppl. á skrifst. TIL LEIGU Um 275 fm skrifstofuhúsn. á 3. hæð við Skúlatún. LAUST STRAX. SKÚLATÚN - SALA Til sölu 3 skrif- stofuhæðir í sama húsi, 151 fm, 275 fm og 275 fm eða samtals um 700 fm. Tvær hæð- anna eru í leigu. Uppl. gefur Haukur Geir. SUMARBÚSTAÐIR GRÍMSNES - NÝTT Vorum að fá í sölu nýjan og glæsilegan sumarbústað á stóru og fallegu eignarlandi rétt norðan við Kerið. Sumarb., sem er um 60 fm bjálka- hús ásamt 30 fm risi, er fullbúinn og til af- hendingar strax. GRÍMSNES - NÝTT Vorum að fá í sölu nýjan um 70 fm sumarbústað ásamt 12 fm gestahúsi. Stór stofa, 3 svefnherb, eldhús og bað. Góð verönd. Ath.: Tilbúinn til innréttinga eða fullbúinn. Nánari uppl á skrifst. FÍ. Panton-stóllinn Hönnuður: Verner Panton 1960 Það er ekki ofsögum sagt að skandinavísk hönnun, og þá einna helst sú danska, hafi verið heitasta heitt undanfarin ár. Í hópi þeirra sem vilja teljast gildandi fagurkerar þegar kemur að hönnun og húsbúnaði hafa sköpunarverk Arne Jacobsen, Hans J. Wegner, Poul Kjærholm, svo aðeins fá- einir séu nefndir, verið ómiss- andi. Fyrir bragðið er margt borðstofuborðið umkringt Maurum eða Sjöum, og víða eru setustofur búnar Uxum, Eggjum, Svönum og fleiri dýr- gripum sem allir teljast vörð- ur í hönnunarsögu síðustu ald- ar. Þeir stólar sem hér voru upp taldir eru fjarri því líkir innbyrðis, en samt tengir þá einhver skandinav- ísk skynsemi og öryggi í efnisvali: góðkunningjar okkar, leður, viður, taubólstrun og stálfætur. Afskaplega öruggt og ábyggilegt, allt saman. Sem er gott, ekki satt? Ja, einum samlanda áð- urnefndra hönnunarrisa fannst það nú aldeilis ekki, heldur fyrirleit hann fyrirsjáanleg húsgögn úr hefðbundnum efnivið. Fyrir bragðið er nafn hans sjaldan nefnt í sömu andrá og Arne Jacob- sen & Co, enda sótti hann ekki innblástur í mód- ernismann heldur í popplist, sýrublandaða sixtís- stemmningu og hina nýjungagjörnu ‘mod’-hreyf- ingu sem tröllreið dægurmenningu Bítlaáranna. Nafn hönnuðarins er Verner Panton, og þekktasta framlag hans til hönnunarsögunnar er stórmerkilegur stóll sem ber einfaldlega nafn skaparans; Panton-stóllinn. Þó Panton, fæddur á Fjóni 1926, sé réttnefnd- ur ‘enfant terrible’ meðal danskra hönnuða var hann alls ekki einhver reiður villingur upp á kant við aðra starfsbræður og samtímamenn. Þvert á móti lærði hann handtökin og grundvallaratriðin hjá ljósahönnuðinum Pøul Henningsen í Kon- unglega listaháskólanum í Kaupmannahöfn og að útskrift lokinni vann hann fyrir Jacobsen, meistarann sjálfan; sagðist meira að segja hafa lært meira af honum en nokkrum öðr- um. Þá var hann einnig náinn vinur Hans Wegner. Munurinn á honum og þeim var bara sá að á meðan þeir kusu að vinna með náttúruleg efni, tekkið þar af í sérstöku uppáhaldi, lá allur áhugi Panton í því að gera tilraunir með plast, trefjagler, svampgúmmí og önnur gerviefni sem þá voru ný af nálinni. Til að mynda hannaði hann uppblásin húsgögn úr gegnsæju gúmmíefni árið 1960 sem vaktu nokkra athygli, en þó ekki eins mikla og sjálfur Panton-stóllinn sem var kynntur til sögunnar sama ár. Ekki aðeins var Panton-stóllinn úr nýstár- legu efni og nýstárlegur í laginu, heldur var hann fyrsta mublan sem var búin til úr einu stykki af plasti. Engin samsplæsing, engin sam- skeyti – bara ein stór slumma af plasti teygð og sveigð í nútímalegt og þokkafullt form sem er 82 sm á hæð, 50 sm á breidd og 60 sm á dýpt. Þá er hann praktískur í meðförum, því stólunum má stafla í bunka ef því er að skipta. Reyndar tók það nokkur ár að blanda plastefnið á þá lund að framleiðsla væri gerleg. Það var loks árið 1967, þegar Panton og fé- lagar hjá húsgagnaframleiðandanum hjá Vitra duttu niður á plastefnið pólýprópýlen, að stóllinn fór í fjöldaframleiðslu og ekki þarf að fjölyrða um viðtökurnar, hann sló samstundis í gegn á heimsvísu og varð ein af táknmyndum tímabils- ins, ekki síst af því að hann var aðeins fram- leiddur í skærum litum með glansandi áferð, full- komlega í takt við tíðarandann. Og stóllinn gaf tóninn; skyndilega varð framleiðsla á húsgögn- um úr plasti lenska bæði fyrir skrifstofur og heimili. Stóllinn hefur verið í stöðugri framleiðslu allar götur síðan. Verner Panton naut þess til jafns við hina dönsku hönnuðina þegar skandinavíska hönnunin varð aftur vinsæl rétt fyrir aldamótin síðustu. Honum var boðið að setja upp sýningu undir heitinu „Verner Panton: Ljós og litir“ í Trapholdt-safninu í Kolding í Danmörku og átti að opna hana 17. september 1998. Sýningin var opnuð á tilsettum tíma, en hönnuðurinn náði ekki að vera viðstaddur; hann lést tólf dögum áður, 72 ára að aldri. Sígild hönnun Meistaraverk óþekktarormsins Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.