Mánudagsblaðið - 25.09.1950, Qupperneq 4
MÁNUDAGSBLAÐIÐ
Mánudagur 25. september 1950.
M Á N UDAGSBLAÐIÐ
BLAD FYRIR ALLA
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Agnar Bogason
Biaðið kemur út á mánudögum. — Verð kr. 1,50 í lausa-
sölu, en árgangurinn, 52 blöS, 48 krónur
Afgreiðsla: Tjamargötu 39.
Sími ritstjóra: 3496.
PrentsC Sja Þjóðviljans hJ.
Enn um vegtoll Sandsbóndans
Kjósæringum hefur þótt
mikið við þurfa að bera blak
af hinni fáheyrðu framkomu
bóndans á Sandi, er hann tók
upp á því að krefjast vega-
tolls af öllum bílum, sem um
jörð hans óku. Þeir hafa sent
hvorki meira né minna e#
fimm ritsnillinga fram á víg-
völlinn til að lofa og prísa
þetta framferði. Tveir þeirra
fara á stúfana í Tímanum,
tveir í Mánudagsblaðinu og
einn í Vísi. Ekki kannast ég
við neitt af þessu fólki nema
Sólmund Einarsson frá
Elekkudal, sem var kunningi
minn í gamla daga. Sóhnundui
er bezti karl, en hann er meé
þeim ósköpum fæddur, aí
hann, er einhver for-
Ihertasti lókalpatríót á þessu
.landi. Honum finnst allt bezt
5 Kjósinni og að það sé hrein
goðgá að leyfa sér að gagn-
xýna eitt eða neitt í þeirri fyr-
ármyndarsveit. Kjósin og
Kjósæringar eru í augum Sól-
mundar hámark allrar full-
komnunar, sem unnt er að ná
á þessum hnetti.
Ekki fæ ég séð, að öll þessi
skrif haggi miklu af því, sem
ég sagði um þetta mál á dög-
'unum. Hið eina, sem verjend-
Tir Sandsbóndans hengja hatt
sinn á, er það, að þessi vegar-
kafli, sem tollaður var, sé
■einkaeign, en ekki sýslu- eða
hreppsvegur, eins og mér
hafði verið tjáð af bílstjóra
<einum, sem er kunnugur á
'þessum slóðum. Þetta breytir
•engu um það, að þetta athæfi
Sandsbóndans er árciðanlega
•ólöglegt. Eg hef spurt lög-
fræðing um þetta efni, og full
yrðir hann, að bóndinn hafi
að vísu rétt til að loka þess-
um vegi fyrir umferð, en hins
•vegar sé honum algerlega ó-
iheimilt að kref jast vegatolls
:af ferðafólki, sem um veginn
fer. Fyrir slíkri heimild sé
<ekki stafkrókur 1 íslenzkum
ilögum. Það mundi líka hafa
*einkennilegar afleiðingar, ef
svo væri. Víða á landinu er
f alsverð umferð um einkavegi,
eigandanum algerlega óvið-
komandi, en fram til þessa
ihafa eigendur slíkra vega ekki
gert sig svo auðvirðilega n«
lotið svo lágt af fégræðgi, að
þeir hafi farið að heimta vega
toll af þeim sökum, enda væri
þeim það algerlega óheimilt.
Ef Sandsbóndinn vildi koma
fram sem siðuðum manni
sæmdi, gat hann gert eitt af
tvennu, lokað veginum fyrir
umferð eða þá að leyfa frjálsa
umferð um hann. Ef hann
taldi veginn liggja undir
skemmdum vegna umferðar,
sem mun þó vera hreinasta
vitleysa, var sjálfsagt fyrir
hann að loka honum. Hitt var
óumræðilega lítilmótlegt að
fara að plokka fé af fátæku
alþýðufólki úr Reykjavík, sem
var að lyfta sér upp einn dag
með því að fara í berjamó. Eg
held fast við það, að þessi
framkoma sé bóndanum til
skammar, og ég er ekki far-
inn að hitta einn einasta
mann, hvorki Reykvíking né
sveitamann, sem ekki er mér
sammála um þetta. Þessir
fimm skriffinnar eru einu
mennirnir, sem ég veit um,
sem finnst svona framkoma
og nirfilsháttur óaðfinnanleg
og ágæt í alla staði.
Það væri annars fróðlegt
að athuga það dálítið nánar,
hverjar afleiðingar það
mundi hafa, ef heirnilt væri að
leggja vegatoll á alla einka-
vegi. Stígurinn af götunni
heim að húsinu mínu í Reykja
vík er einkavegur. Setjum nú
svo, að ég vildi fara að dæmi
Sandsbóndans marglofaða og
fá skaðabætur fyrir slitið, sem
verður á stígnum vegna um-
ferðar. Ef einhver kæmi í
heimsókn í húsið til mín eða
leigjendanna, mundi. ég stilla
mér upp í hliðinu og heimta
tíu króna vegatolí af hverjum
gesti, sem vildi fá að ganga
stíginn heim að húsinu. Ef
Sólmundur og sálufélagar
hans vildu koma í heimsókn
í húsið, yrði þetta aumingja
fólk að punga út með tíkall i
hvert skipti, er það heimsækti
kunningja sína. Auðvitað
mundi Sólmundur borga þetta
fé með glöðu geði og finnast
það sanngjarnar skaðabætur
fyrir slitið á gangstígnum.
Hann er svo hrifinn af vega-
Ágætir hijómieikar ung-
frú Guðrúnar Á. Símonar
íGamla Bíó12.sept. 1950
Þegar ungfrú Símonar söng
hér fyrir tveimur árum, þá
var hún á góðum vegi að
verða fyrsta flokks óperu-
söngkona: Nú hefur ungfrú-
in lært og þjálfað rödd sína
í s.l. tvö ár, og hefur hún
auðheyrilega ekki legið á
liði sínu, því um mjög
mikla framför er að ræða.
Röddin hefur þroskazt, og
músikalskt syngur nú ung-
frúin eins og skrifað stend-
ur, með nákvæmri um-
hygggju að túlka lög og
aríur sem næst því, sem
tónhöfundarnir myndu hafa
hugsað sér. Gluck, Monte-
verdi og Durante söng ung-
frúin ágætlega, óræk sönn-
un þess, að kennarar henn-
ar hafa viljað láta ungfrúna
læra málsnilld hinna gömlu
tónfræðinga . og þannig
smám sama að breiða yfir
hina íslenzku villtu náttúru-
tóna, sem allt íslenzkt söng-
fólk á í svo ríkum mæli. Ung-
frú Símonar er fyrst og
fremst á þeirri línu að verða
óperusöngkona, og yrði hún
nú þegar sett á bekk með
hinum þýzku og ítölsku
„hádramatísku“ söngkon-
um, þar sem hún yrði látin
syngja hlutverk í „Fidelio“
Leonore, eða Carmen, sem
oft hádramatískar söngkon-
ur syngja. Og einmitt aría
Santussu úr Cav. Rusticana,
sem ungfrúin söng svo
snilldarlega, sýndi, að á leik-
sviðinu á hún heima. Og þeg
ar tímar líða mimu Wagn-
ers hlutverkin eins og Sieg-
linde og Briinnhilde verða
hennar beztu hlutverk. Eg
óska ungfrú Simonar til
hamingju meö þann ágæta
árangur, sem hún nú hefur
náð, og ég efast ekki um,
að röggsemi, dugnaður og'
Framhald á 8. síðu.
tolli vinar síns á Sandi, að
hann mundi ekki hafa margt
á móti því, þótt aðrir tækju
upp á því sama. Hann er svo
skeleggur talsmaður fyrir frið
helgi einkaivega, að honum
yrði auðvitað ljúft að greiða
slíkt gjald. Það hljóta líka að
gilda sömu reglur um þetta í
Reykjavík og Kjósinni, ekki
satt, Sólmundur? En í alvöru
talað, er það sorglegt tímanna
tákn, að hér á landi skuli finn-
ast fólk, þótt fátt sé, sem
tekur að sér að verja slíkan
viðbjóðslegan nánasarhátt,
sem Sandsbóndinn hefur sýnt.
Að vísu fletta verjendurnir
fyrst og fremst ofan af sínu
eigin lágkúrulega innræti með
þessum skrifum, en engu að
siður er það grátlegt, að til
skuli vera slíkir íslendingar.
Ajax.
Hákiudagsblaðið
fæst á eftirtöldum stöðum
Bókaverzlunum:
Bókabúð Austurbæjar
Sigfús Eymundsson
Isafoldar
Lárusar Blöndal
Bókabúð Laugarness
Bókastöð Eimreiðarinnar
Bókabúð Laugav. 15
Braga Brynjólfssonar
Bækur og ritföng
Greiðasölustöðum:
Fjólu
Florida
West End
Tóbaksbúðinni Kolasundi
Gosa
óðinsgötu 5
Vöggnr
Hressingarskálinn
Stjarnan (Laugaveg 86)
Skeifan
Isbúðin, Bankastræti
Bjargi
Veitingast. Vesturgötu 53.
Verziunum:
Verzi. Helgafell, Bergstaðastr.
Skálholt
Axelsbúð, Barmahlíð 8
Söluturni Austurbæjar
Sigfús Guðfinnsson, Nönnug. 5
Árni Kristjánsson, Langh.v.
Rangá, Skipasundi
Drífandi, (Samtúni 12)
Leikfangag., Laugaveg 45
Drífandi, Kaplaskjólsv.
Nesbúð
Þorsteinsbúð
Verzlunin Ás
Júlíusar Evert, Lækjargötu
Hverfisgötu 71
Árna Pálssonar, Miklubr.
Krónan, Mávahlíð
Fossvogsbúðin
Kópavogsbúðin
Langholt h.f.