Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 05.11.1951, Blaðsíða 6

Mánudagsblaðið - 05.11.1951, Blaðsíða 6
8 MÁNUDAGSBLAÐIÐ Mánudagur 5. nóvember 1951. ÍEihe! M. Dell: FRAMHALDSSAGA: NICK RATCLIFFE (THE WAY OF AN EAGLE) ,,Þú hefur alltaf þráð mig meira . .. Hann lauk aldrei setriing- '.unni, vegna þess að fingur hennar lögðust yfir varir hans. „Þú mátt ekki segja þetta, elskan. Þú mátt ekki segja það. Það hryggir okkur bæði of mikið. Svona nú, slepptu mér. Þetta hjálpar ekkert. Það er ailt svo von- laust núria.“ Rödd hennar titraði skyndi- lega og hún hætti að tala. „Ef það er alveg árangurs- laust,“ sagði hann. „Þá segðu mér að fara og ég fer.“ Hún reyndi að horfa í augu hans en gat það ekki. „Eg — verð að gera það, Blake,“ livíslaði hún. „Eg bíð eftir því,“ sagði Blake. En hún gat ekki sagt orðin. Hún sneri sér undan honum og sat þögul. Hann beið þolinmóður í dá- lítinn tíma. Því næst sleppti hann henni úr Örmum sér mjög rólega og stóð upp. „Eg fer aftur heim á gisti- húsið“, sagði hann. „Og þar ætla ég að bíða þar til í fvrra- málið eftir svari frú þér. Ef þú biður mig að fara þá fer ég án þess að sjá þig aftur. En ef — ef þú ákveður öðru- vísi“ — hann lækkaði rödd- ina eins og hann gæti ekki treyst henni, „þá sæki ég nú þegar um orlof til þess að segja mig úr hfernum. — Og Daisy — við munum fara saman til nýja heimsins til þess að njóta hamingjunnar, sem við höfum farið á mis við í hinum gamla.“ Hann hvíslaði næstum síð- ustu orðunum, og Daisy fannst hún heyra hjartslátt hans. Þetta varð henni næst- um um of, en hún stóð sig og lét hann fara. Það var þá að lokum kotoið svo — skiinaðurinn, ákveðið val milli góðs og ills. Og í hjarta sínu vissi hún, hvert valið yrði, vissi það jafnvel um leið og hún heyrði dyrnar lokast, vissi það um leið og eyru hennar reyndu að heyra fótatak hans fyrir utan, vissi það jafnframt því sem hún stökk á fætur til þess að sjá manninn sem hafði elskað hana allt lífið og nú hafði loksins náð henni, í síðasta sinn .... , Hún sneri sér hægt við og settist við skrifborðið. Hún kom auga á bréfið, sem enn lá þar óopnað. Hún tók það upp horfði á það nákvæmlega í nokkur augnablik, en reif það síðan í smátætlur. Litlu seinna fór hún inn í sitt eigið herbergi. Hún tók upp úr kommóðuskúffu lítið umslag og hristi innihaldið í hönd sér. Úr umslaginu kom aðeins mynd af hlæjandi barni og smáhárlokkur. Það kom ekki í andlitið þegar hún horfði á þetta. Þetta hafði verið dýrmætasti f jársjóður hennar. Hún þrýsti þeim að titrandi vörum sér en felldi engin tár. Og þegar hún kom aftur inn í setustof- una, þá var hún orðin full- komlega róleg. Hún skaraði I eldinum og lét fjársjóð sinn falla í eld- hafið. um augnablik kom kvalasvipur á andlitið, en hvarf aftur. Hún hafði valið. 39. KAFLI Allan þann dag beið Muriel eirðarlaus eftir því að kæi’ast- inn hennar kæmi. Hún hafði ekki heyrt til hans i næstum viku, og hún hafði ekki skrif- að honum á þeim tíma af þeirri einföldu ástæðu, að hún vissi ekki heimilisfang hans. En hún haf ði búizt við honurn á hverjum degi eins og hann hafði lofað. Það var erfitt að bíðá éftir honum. Ef hún hefði getað skrifað honum, þá hefði hún gert það fyrir löngu og á þanh hátt, að hann hefði hætt við allar ákvarðanir sínar um að heimsækja hana. Því nú var hún loksins búin að ákveða sig. Hið ákveðna tal Dr. Jim hafði sín áhrif, og hún vissi að eina leiðin fyrir sig væri að segja upp trúlof- uriinni hið fyrsta. Henni hafði alltaf geðjazt að Blake Grange. Hún vissi að sér myndi alltaf geðjast að hon- um, vissulega elskaði hún hann ekki, og hún vissi nú með þeirri vissu, sem allar konur þroska fyrr eða síðar, að hann hafði aldrei elskað hana. Hann hafði beðið henn- ar af riddaraskap einum sam- an og hún vissi, að hann myndi ekki fara þess á leit að hún léti hann lausan. En samt kveið hún fyrir að tala við hann,' þó hún væri viss um að hann myndi hvorki breyta' Skápi sínu eða hafa í hótunum eins og Nick hafði gert þetta hræöilega kvöld í Simla. Húri var næstum yfir sig hrædd við að særa tilfinn- ingar hans. Hún neitaði alveg að hugsa um Nick, þótt það reyndist ekki létt að útiloka hann alveg úr huga sínum. Því honum virtist alltaf vera að skjóta upp. En hún gat ekki gert að því að hugsa um það, að ef, og þegar hún væri laus og liðug, þá yrði hún hrædd við Niek. Hún sat einsömul í herbergi sínu og horfði á rigningar- gusurnar, sem buldu á glugg- anum, þegar Olga kom með tvö bréf til hennar. „Bæði frá Brethaven", sagði hún, „en hvorugt frá Nick. Skyldi hann vera í Redlands. Eg vona að hann heimsæki okkur ef hann er þar.“ Muriel sváraði engu. Hún þekkti hondina á bréfunum og hún opnaði Daisyar fyrst. Það tók ekki lengan tíma að lesa það. Það skýrði aðeins frá viðdvöl hennar í Brethav- en, sem væri vegna þess, að stefnumótið hefði farið út um þúfur og minntist lítillega á það að Blake væri um það bil að fara í burtri, og endaði á þá leið, að hún vonaði að Muriel myndi ekki breyta á- kvörðunum sínum til þess að heimsækja hana þar sem hún stæði aðeins við í nokkra daga til þess að pakka niður. Það var ekkert minnzt á, að þær hittust á næstunni, og Muriel lagði frá sér bréfið þungt hugsaridi. Hún liafði ekki minnstu hugmynd um, hver orsökin væri fyrir þverr- andi vináttu þeirra, en hún gat ekki varizt því að skynja hversu langt bilið var orðið á milli þeirra. Hún sneri sér að bréfi Granges og hugsaði jafn- framt, hversvegna hann hefði þurft að skrifa, þegar hann var svona stutt frá henni. Bréfið var stutt og Muriel las það undrandi: Örlögin eða djöfullinn hafa orðið mér ofviða svo ég sé mig neyddan til þess að rjúfa orð mín við þig. Eg hefi enga afsökun, nema þá að ég hef verið tilneyddur. Ef til vill verður þér þetta fyrir beztu, þegar fram í sækir, en ég hefði sfaðið með þér, ef það hefði verið mögulegt. Og jafnvel nú myndi ég ekki yfirgefa þig, ef ég vissi ekki áreiðanlega, að þú værir örugg — að hluturinnn, sem þú óttað- ist mest, er hættur að vera til. Muriel ég hef rofið eiða mína Við þig, og get ekki beðið þig fyrirgefningnar. Eg bið þig aðeins að trúa því, að það var ekki gert eftir eigin vild. Eg var djöfullega neyddur til þess gegn vilja mínum. Eg kom hingað til þess að kveðja þig, en ég fer á morgun án þess að sjá þig nema þú óskir eftir því.' B. Grange." Hún lauk bréfinu og sat graf kyr og starði á opna síðuna. Hún var frjáls, það var fyrsta hugsun hennar — frjáls sjálfri sér að fyrirhafnar- lausu. Skýringin, sem hún hafði óttast var orðin ónauð- synleg. Hún þurfti ekki einu sinni að ganga í gegnum það að hitta hann. Hún andaði léttara. Og þá, fljótt eins og eitruð ör kom önnur hugsun — — kveljandi, óþolandi grunur. Hversvegna hafði hann leyst hana þannig? Hvernig hafði hann verið neyddur? Á hvaða hátt hafði hann verið djöful- lega neyddur? Hún las bréfið enn einu sinni og allt í einu tók hjarta hennar að slá þungum högg- um, svo hún greip eftir lofti. Þetta voru verk Nicks. Hún var eins viss um það eins og ef þessar fáu setningar hefðu sagt lienni það. Nick var aflið sem neytt hafði Grange til þessara aðgjörða. En hvern- ig hann hafði gert það, gat hún ekki ímyndað sér. En, að hann hafði á einhvern illkvitt- inn hátt, komizt upp á miili þeirra efaðist hún ekki um. Og hversvegna? — Hún studdi hendinnni á kinn sér eins og hún væri að missa öndina, þegar hún minntist á 'síðasta samtal sitt og Nicks. Hann hafði merkt sér hana fyrir löngu og hvað sem Dr. Jim kynni að segja, þá hafði hann aldi’ei gefizt upp við að ná hénni. Hann ætlaði að handsama hana að lokxmx. Hún gæti flúið, en hann myndi koma á eftir, óþreytandi og ákveðinnn. Loksins myndi hann steypa sér yfir bráð Gólfteppi — Gólfdreglar / Ný sending komin. Ilöfum fyrirliggjandi falleg gólfteppi og dregla, Axminster A—1. — Sísaldreglar í fjórum breiddum. — Smekklegir litir. GÓLFTEPPAGERÐÍN, Barónsstíg — Skúlagötu. Sími 7360.

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.