Morgunblaðið - 24.01.2005, Blaðsíða 1
2005 MÁNUDAGUR 24. JANÚAR BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
TRYGGVI GUÐMUNDSSON TIL FH – LÁNAÐUR TIL STOKE / B15
JÓN Arnór Stefánsson, landsliðsmaður í
körfuknattleik, skoraði 16 stig fyrir lið sitt,
Dynamo St.Petersburg, þegar liðið tapaði fyr-
ir Uniks Kazan, 88:84, á heimavelli í rúss-
nesku 1. deildinni í körfuknattleik um
helgina.
Jón Arnór lék í 29 mínútur og auk þess að
skora 16 stig tók hann fimm fráköst og átti
fjórar stoðsendingar. Hann setti niður þrjú af
sjö 2 stiga skotum sínum, tvö af fjórum 3
stiga skotunum og skoraði úr öllum fjórum
vítaköstunum sem hann tók.
Jón Arnór og félagar eru í sjötta sæti deild-
arinnar. Þeir hafa unnið átta leiki en tapað
sjö. Uniks er í þriðja sæti, með tólf sigra og
fjögur töp.
Jón Arnór með
16 stig í tapleik
Dynamo
Já, ég stúderaði hann vel fyrirleikinn, sá að hann var stökkv-
ari, hleypur alltaf út á móti í víta-
köstum. Vippur eru með því besta
sem ég geri, þannig að þetta var
veisla,“ sagði Ólafur sem vippaði
fimm sinnum yfir Galía í vítaköstum.
Hikaðir þú ekkert við að vippa yfir
markvörðinn í síðasta vítakastinu
þegar þú jafnaðir leikinn, 34:34?
„Nei, alls ekki. Ef hann hefði platað
mig þá hefði þetta ekki heppnast hjá
mér að skora. Það eina sem hefði
getað gerst var að þá hefði þetta ekki
litið nógu vel út hjá mér því Galía
hefði varið. Þá væri ég bara á leið
heim með næstu vél, ekkert flóknara
en það,“ sagði Ólafur með sinni stó-
ísku ró þótt vissulega hafi mótað fyr-
ir brosi hjá þessum handknattleiks-
snillingi sem tókst oft og tíðum að
sýna allar sínar bestu hliðar.
Óendanlegur
baráttuhugur og vilji
„Þetta var allt í lagi. Maður hefði
auðvitað viljað fá bæði stigin en úr
því sem komið var þá verðum við að
sætta okkur við eitt stig,“ sagði Guð-
jón Valur Sigurðsson, sem var geysi-
lega öflugur á lokakaflanum þegar
gerði þrjú mörk úr hraðaupphlaup-
um á stuttum tíma.
„Vörnin hjá okkur var mjög slök í
fyrri hálfleik, en Roland hélt okkur
inni í leiknum með fínni markvörslu.
Ég veit eiginlega ekki hvernig mað-
ur skilgreinir þetta allt – þetta var
svo kaflaskipt. Við náðum stigi og
verðum að sætta okkur við það. Ég
veit ekki hvort það var eitthvert
stress í gangi hjá okkur. Auðvitað
eru margir ungir strákar að leika í
fyrsta sinn á stórmóti, en það breytir
því ekki að við reynsluboltarnir hefð-
um átt að geta leikið eins og menn.
Styrkur okkar í lokin felst í því að
við erum samstilltir sem lið og leik-
um saman sem slíkt. Tékkar eru með
gríðarlega sterkt lið, við sáum það á
leikjunum gegn Svíum og Dönum
rétt fyrir mót. Kannski hefðum við
getað náð betri úrslitum ef við hefð-
um verið rólegri þegar illa gekk og
komið þannig í veg fyrir að Tékkar
næðu þetta miklum mun.
Þrátt fyrir að leika illa í fyrri hálf-
leiknum þá leið okkur, þannig séð,
mjög vel í hálfleiknum. Baráttuhug-
urinn og viljinn er óendanlegur í
þessu liði eins og sást vel í lokin þeg-
ar öll sund virtust lokuð. Baráttan er
alltaf til staðar og við hengjum ekki
haus þó illa gangi og erum ekkert að
væla neitt inni í klefa í hálfleik.
Við förum auðvitað í alla leiki til að
vinna og standa saman sem lið og
það gerðum við í lokin í kvöld. Við
verðum bara að byrja aðeins fyrr í
næsta leik,“ sagði Guðjón Valur.
„Tékkar léku fína vörn og við lögð-
um upp með að reyna að komast á
bak við fremri varnarmennina en
það vantaði ef til vill dálítið hjá okkur
hreyfingu á bolta. Ég og Markús
Máni sóttum ef til vill aðeins of langt
inn í þessa eyðu sem myndaðist hjá
þeim en í síðari hálfleik urðu þeir að-
eins ágengari og eftir að Arnór kom
inn gekk þetta fínt. Hann náði að
hlaupa manninn sinn af sér og Alex-
ander líka þegar hann kom inn aftur.
Þetta vantaði hjá okkur framan af.
En fyrst og fremst var þetta auðvit-
að vörnin hjá okkur. Um leið og við
náum að standa hana þá koma mörk-
in úr hraðaupphlaupunum.“
Ólafur Stefánsson lék markverði Tékklands grátt í jafnteflisleiknum á HM í Túnis, 34:34
„Vippur eru með því
besta sem ég geri“
ÓLAFUR Stefánsson lék Martin
Galia, markvörð Tékka og að
margra mati besta markvörð
heims, hvað eftir annað grátt í
vítaköstum í leiknum í gær, jafn-
vel svo grátt að mörgum þótti
nóg um.
Morgunblaðið/RAX
Ólafur Stefánsson skorar eitt af sjö mörkum sínum úr vítaköstum í leiknum gegn Tékkum.