Morgunblaðið - 24.01.2005, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 24.01.2005, Blaðsíða 7
HM Í HANDKNATTLEIK MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. JANÚAR 2005 B 7 Guðjón var á heildina litið ekkiánægður með leik íslenska liðs- ins en hrósaði því fyrir frábæran endasprett og að hafa ekki lagt árar í bát þó svo staðan hafi verið ansi slæm í upphafi síðari hálf- leiks. „Mér fannst leikur Íslendinga sem slíkur mikil vonbrigði. Fyrri hálfleikurinn var lengst af mjög lé- legur bæði í vörn og sókn. 3:3 vörnin gekk engan veginn upp og til að byrja með var 6:0 vörnin ekki að gera sig. Þá var sóknarleikurinn í 45 mínútur lélegur. Spilið var hægt og oftar en ekki var fyrirsjáanlegt hvað menn ætluðu að gera. Dagur var því miður mjög slakur. Ég hafði mikla trú á að hann kæmi upp í þessu móti, og vonandi gerir hann það, en í þess- um leik náði hann sér engan veginn á strik,“ segir Guðjón. Innkoma Arnórs breytti miklu Guðjón segir að innkoma Arnórs Atlasonar í leikstjórnandastöðuna í stað Dags í seinni hálfleik hafi breytt miklu. „Arnór kom mjög sterkur inn. Það var mikið líf í kringum hann og hann fær stóran plús fyrir frammistöðu sína. Arnór var mjög áræðinn. Hann fór af krafti maður á móti manni og hann reyndi að gera eitthvað ólíkt því sem Dagur gerði. Ég var líka mjög ánægður með Markús Mána. Hann var óragur og ákveðinn í öllum sínum aðgerðum. Þarna voru tveir ungir strákar sem mættu með stórt hjarta til leiks og það var virkilega gaman að sjá til þeirra.“ Varst þú ekki búinn að missa von- ina þegar staðan var orðin 29:20 í seinni hálfleik? ,,Ég verð að viðurkenna að ég var búinn að afskrifa okkar menn þegar þeir voru komnir níu mörkum undir. Það var ekkert í spilunum sem benti til að eitthvað væri að breytast. Ég er nánast viss um að ef Tékkar hefðu náð tíu marka forskoti þá hefði það gert út um leikinn. Ég get ekki ann- að en tekið ofan fyrir íslenska liðinu. Strákarnir sýndu síðustu 20 mínút- urnar hvað í þeim býr og ég gef þeim stóran plús fyrir að gefast ekki upp. Ég var hissa á hversu dauft íslenska liðið var lengi framan af leik. Það var lítil stemmning og einhver doði í lið- inu en þeir tóku sig sem betur fer saman í andlitinu og vonandi halda þeir áfram eins og þeir enduðu þenn- an leik.“ Hvað var að þínu mati sem sneri leiknum á band Íslendinga? „Það voru nokkrir hlutir sem gerðu það að verkum að við kom- umst inn í leikinn að nýju. Vignir Svavarsson náði að binda vörnina saman og Birkir Ívar átti góða inn- komu í markið. Hann varði strax tvö til þrjú skot en það sem ég held að hafi kveikt í liðinu voru tvö hraða- upphlaup með skömmu millibili og annað þeirra skoraði Guðjón Valur eftir frábæra sendingu Óla Stefáns af löngu færi. Þetta hleypti miklu lífi í liðið en það er samt erfitt að út- skýra hvað raunverulega varð til þess að við náðum að saxa á forskot Tékkanna jafnt og þétt. Strákarnir öðluðust allt í einu trú á sjálfa sig og í það minnsta þá greinilega duttu þeir í þann gírinn að ætla ekki að láta Tékkana rassskella sig. Á sama tíma og íslenska liðinu óx ásmegin ætluðu Tékkarnir greinilega að reyna að halda fengnum hlut. Sóknarleikur þeirra sigldi í hálfgert ráðþrot gegn 5:1 vörninni og þó svo að hún hafi ekki verið neitt sérlega góð að mínu mati þá áttu Tékkarnir erfitt gegn henni. Nú svo held ég að það hafi orðið okkur mjög til tekna að Tékk- arnir töldu sig einfaldlega vera búna að sigra og það kann aldrei góðri lukku að stýra.“ Hvaða þýðingu hafa þessi úrslit upp á framhald íslenska liðsins í keppninni? ,,Þetta stig sem það sótti hlýtur að verða gott veganesti og gefur leik- mönnum örugglega gott sjálfstraust. Strákarnir sjá það núna að hlutirnir geta gengið upp þegar þeir leggja sig 100% í verkefnið. Þeir geta ekki leyft sér að spila svona illa í 45 mín- útur á móti Slóvenunum og það hljóta þeir að vera meðvitaðir um. Á móti sterkara liði en Tékkum hefði verð búið að flengja okkur með svona spilamennsku.“ Guðjón, Markús og Ólafur bestir Hverjir fannst þeir standa upp úr í íslenska liðinu? ,,Mér fannst þrír leikmenn standa hvað mest upp úr. Guðjón Valur var rosalega drjúgur á þeim kafla sem við vorum að saxa á forskotið. Hann var óhræddur að koma út fyrir og skjóta á markið. Markús Máni skil- aði frábærum leik. Þetta var hans fyrsti alvöruleikur og hann sýndi hversu megnugur hann er. Ólafur stóð fyrir sínu. Menn höfðu áhyggjur af honum þar sem hann hafði ekki leikið vel fyrir keppnina. Óli veit hins vegar hvenær hann á að stíga upp og hann gerði það í þessum leik. Hann gat alla vega ekki gert meira enda voru Tékkar með hann í strangri gæslu. Eins og ég hef áður sagt þá kom Arnór mjög öflugur inn í leik- inn. Markvarslan var ágæt en við þurfum samt betri markvörslu að mínu mati. Mér fannst Vignir Svav- arsson standa sig vel þegar hann kom inn í vörnina. Hann náði að þétta vörnina saman en ég mér finnst þó skína í gegn að íslenska lið- ið vanti foringja í vörnina sem stjórnar varnarleiknum með harðri hendi.“ Frídagur er á heimsmeistara- mótinu í dag en á morgun mæta Ís- lendingar liði Slóvena. Spurður út í þá rimmu segir Guðjón; ,,Þetta verð- ur örugglega hörkuleikur. Ef eitt- hvað er þá eru Slóvenar með sterk- ara lið en Tékkar. Ég hef sagt að með góðum leik þá getum við unnið riðilinn en strákarnir verða þá að skila heilsteyptari leik en þeir gerðu gegn Tékkum.“ Vilt þú að Arnór taki við stöðu Dags og hefji leikinn gegn Slóven- um? ,,Ég veit að Dagur er valkostur númer eitt hjá Viggó og ég held að hann láti Dag byrja inná gegn Slóv- enum. Ég sjálfur hef trú á að Dagur eigi eftir að skila góðum leikjum á mótinu en Arnór sýndi það og sann- aði að það er engin ástæða til að bíða fram í seinni hálfleik með að hleypa honum inná. Hann er tilbúinn í þenn- an slag og ef Dagur heldur upptekn- um hætti þá get ég vel séð fyrir mér að Arnór verði kominn inná eftir korter.“ „Ég var ánægður með hvernig Viggó brást við. Hann var óhræddur við að gera breytingar og það er ein- mitt sem Viggó hefur aldrei verið hræddur við. Ég hefði auðvitað viljað sjá Arnór koma fyrr inná en Viggó var iðinn við að breyta varnarleikn- um þegar hann sá að hann gekk ekki upp og það er styrkur þjálfara að breyta þegar hlutirnir eru ekki að ganga upp.“ Morgunblaðið/RAX Arnór Atlason lék stórt hlutverk þegar hann kom inná sem leikstjórnandi og fiskaði vítakastið, sem Ólafur skoraði jöfnunarmarkið úr. Hér sækir hann að marki Tékka. Guðjón Árnason metur íslenska landsliðið í leik á heimsmeistaramótinu Leikurinn vonbrigði en mikill sigur að ná jafntefli EINS og leikurinn þróaðist þá get ég ekki annað sagt en úrslitin séu mikill sigur fyrir íslenska liðið. Strákarnir unnu þetta stig með því að snúa gjörtöpuðum leik upp í jafntefli og þessi frábæri enda- sprettur á örugglega eftir að gefa liðinu gott sjálfstraust í leikinn gegn Slóvenum,“ sagði Guðjón Árnason, HM-spekingur Morg- unblaðsins, eftir jafntefli Íslendinga gegn Tékkum, 34:34, í fyrsta leik liðsins á HM í Túnis í gær. Eftir Guðmund Hilmarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.