Morgunblaðið - 24.01.2005, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 24.01.2005, Qupperneq 5
HM Í HANDKNATTLEIK MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. JANÚAR 2005 B 5 Við vorum með unninn leik í hönd-unum og glopruðum honum nið- ur á einstaklega klaufalegan hátt, menn virtust telja að þeir væri komnir með örugg tvö stig. Ég verð hins vegar að hæla íslenska lið- inu sem sýndi gríðarlegan baráttu- hug þar sem það gafst aldrei upp. Þetta stig sem við töpuðum getur reynst okkur dýrt þegar upp verður staðið,“ sagði Trtik og átti greinilega þá ósk heitasta þar sem hann sat á blaðamannafundinum eftir leikinn að geta farið sem fyrst til þess að lesa leikmönnum sínum pistilinn. Trtik var ólíkt glaðbeittari á blaða- mannafundi á EM í Slóveníu í fyrra eftir jafntefli við Íslendinga, 30:30. Þá tryggði jafnteflið honum sæti í milliriðlum á kostnað Íslendinga. „Ég hef enga aðra skýringu á þessum síðustu mínútum leiksins en þá að leikmenn mínir virtust orðnir þreyttir enda komum við ekki til Túnis fyrr en í gær [laugardadag], degi á eftir öðrum liðum. Það voru örugglega mistök hjá okkur að leika tvo leiki við Þjóðverja svo skömmu fyrir mótið, þann síðari á fimmtudag. Síðan tókum við þá ákvörðun að fara ekki frá Þýskalandi fyrr en á laug- ardag. Þá flugum við til Parísar og þaðan til Túnis. Þetta ferðalag að- eins sólarhring fyrir fyrsta leik voru mistök og sennilega áttu þau stærsta þáttinn í að svona fór hjá okkur að þessu sinni,“ sagði Ratislav Trtik, landsliðsþjálfari Tékka. Markús lét verulega að sér kveðaí sínum fyrsta leik á stórmóti, skoraði sex mörk úr sjö skottilraun- um. „Við lékum alveg skelfilega vörn lengst af leiknum og við vissum að ef við næðum að laga hana þá gætum við átt allskostar við Tékkana. Viggó barði það inn í hausinn á okkur í hálf- leik að úrslitin væru ekki ráðin þótt staðan væri slæm. Viggó og fyrirlið- inn [Dagur Sigurðsson] stöppuðu í okkur stálinu stanslaust allt leikhléið og það skilaði sér um síðir. Það gaf okkur aukna trú þótt það hafi reynd- ar ekki sést á leik okkar fyrsta stundarfjórðunginn í síðari hálfleik, “sagði Markús sem mun sennilega seint gleyma sínum fyrsta leik á heimsmeistaramóti. „Tékkarnir slökuðu á, töldu sig vera vissa um sigur og við létum þá svo sannarlega finna fyrir því, tókum þá hreinlega í bólinu. Þessi síðasti stundarfjórð- ungur var gríðarlega mikilvægur fyrir okkur, gefur okkur vonandi aukið sjálfstraust fyrir næstu leiki. Það hefði verið skelfilegt að byrja heimsmeistaramótið á því að vera rasskelltir. Í stað þess náðum við að brjóta niður andstæðinga okkar. Úr því sem komið var getum við verið mjög sáttir við úrslitin að ná jafntefli þótt að sjálfsögðu höfum við ætlað okkur að vinna þegar gengið var til leiks. Næsta skref er að takast á við Slóvenana og þá verðum við að nýta okkur þann byr sem við fengum í seglin á síðasta stundarfjórðungnum í þessum leik,“ sagði Markús Máni Michaelsson Maute. Morgunblaðið/RAX Ólafur Stefánsson í kröppum dansi er hann sækir að marki Tékka, sem taka hann engum vettlingatökum. Morgunblaðið/RAX Ólafur og samherjar fagna í leikslok. Markús Máni Michaelsson Maute lét mikið að sér kveða í fyrsta HM-leik sínum „Misst- um aldrei trúna“ „Þótt frammistaða okkar hafi ekki verið góð lengst af leiknum þá höfðum við alltaf trú á því að við gætum gert betur, við misstum aldrei vonina þótt staðan hafi ekki verið gæfuleg,“ sagði Markús Máni Michaelsson Maute þegar hann gekk af leikvelli í íþróttahöllinni í El Menzha. Hann skoraði 1.700 mark Íslands á heimsmeistaramóti. + +! *   $ ,+  -                          ! "#"     ! "#" ! "#"        " !  " !  $ "     % %            $ "    $ "   &  '( ! )  *# +,) ! )  ! -#  .    !  "/ .    ! (# " #0 '(  #  "/ 1  ! 2 ! '(  # 34534 36537 47577 88568 77574 37573 78577 74579 73579 7:577 78576 6;57: 7357: 76577 6:56; 7656< 79563 6:57: *              = "                          Þjálfari Tékka niður- brotinn „VIÐ köstuðum sigrinum frá okkur á hreint ævintýralegan hátt, ég bara trúi því ekki að þetta hafi gerst,“ sagði Ratislav Trtik, landsliðsþjálfari Tékka eftir leikinn við Íslendinga í gær. Trtik var gjörsamlega niðurbrot- inn, skyldi engan undra, og mátti hann vart mæla. Ívar Benediktsson skrifar frá Túnis

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.