Morgunblaðið - 24.01.2005, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 24.01.2005, Qupperneq 10
KNATTSPYRNA 10 B MÁNUDAGUR 24. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ ÞÝSK dagblöð skýrðu frá því í gær að Bayern München, stærsta knattspyrnufélag Þýskalands, hefði boðið Borussia Dortmund fjárhagsaðstoð. Í Bild birtust myndir af forráðamönnum félaganna að heilsast á hóteli í Düsseldorf. Forráðamenn þeirra vildu ekki ræða málin, nema hvað Karl- Heinz Rummenigge hjá Bayern sagði að félag sitt hefði hjálpað Dortmund á áttunda áratugnum og það kæmi til greina að gera það aftur. „Bayern á heiður skilinn fyrir að koma okkur til aðstoðar,“ sagði Reinhard Rauball, forseti Dortmund, við Bild. Dortmund, sem varð þýskur meistari 2002 og Evrópumeistari 1997, glímir nú við stærsta skulda- hala í sögu þýskrar knattspyrnu og hefur boðað miklar aðgerðir til niðurskurðar. Samkvæmt Bild hefur verið rætt um að Bayern veiti Dortmund vaxtalaust lán eða láni félaginu leikmenn, og þar eru nefndir til sögunnar þeir Vahid Hashemian og Samuel Kuffour. Fær Dortmund hjálp frá Bayern? ARSENAL endurheimti annað sætið í ensku úrvalsdeildinni með 1:0 sigri gegn Newcastle en Dennis Berg- kamp skoraði eina mark leiksins. Ensku meistararnir eru samt sem áður 10 stigum á eftir Chelsea sem er í efsta sæti. Þetta var fjórða markið sem Bergkamp skorar í vet- ur. Shay Given markvörður New- castle átti stórleik á Highbury og bjargaði sínum mönnum frá enn stærra tapi. Arsena Wenger og Graeme Sou- ness lentu í harkalegum orðaskiptum eftir að Lee Bowyer fékk gult spjald fyrir að brjóta á Patrick Vieira. En gengi Newcastle hefur átt erfitt uppdráttar að undanförnu. Newcastle var nálægt því að ná einu stigi er stundarfjórðungur var eftir af leiknum en þá sendi Alan Shearer knöttinn á Lee Bowyer sem þrumaði að marki en Almunia markvörður Arsenal bjarg- aði glæsilega. Vieira varaði leikmenn Chelsea við því að baráttunni um meistaratitilinn væri ekki lokið. „Við munum gera þeim erfitt um vik, auðvitað er staða þeirra sterk, en það er allt mögulegt enn sem komið er. Við trúum á það sem við erum að gera og munum halda áfram að berjast. Þessi leikur sýndi að við erum ekki dauðir úr öll- um æðum,“ sagði Vieira. Thierry Henry segist ekki hafa áhyggjur af því að hafa ekki skorað í fimmta leiknum í röð. „Það er nóg að skora eitt mark og ég hef ekki áhyggjur af því hvort ég skori eða ekki – á meðan við erum að vinna leiki,“ sagði Henry. Vieira: „Við höfum enn ekki gefið upp vonina í baráttunni um titilinn“ Patrick Vieira FÓLK  JOSE Mourinho knattspyrnu- stjóri Chelsea segist ekki hafa áhuga á að hafa David Beckham í sínu liði né aðrar stjórstjörnur í liði Real Madrid. ,,Það eina sem þú þarft er sterkur hópur leikmanna en ekki Hollywoodstjörnur. Mínar efa- semdir tengjast ekki hæfileikum þeirra heldur treysti ég ekki þessari stjörnumynd,“ segir Mourinho.  STEVE Bruce knattspyrnustjóri Birmingham er á höttunum eftir tveimur varnarmönnum Newcastle, Oliver Bernard og Andy O’Brien ef marka má fréttir í The Mail í gær.  NIGEL Quashie, skoski miðju- maðurinn sem Southampton keypti á 140 milljónir króna frá Ports- mouth í síðustu viku, verður frá æf- ingum og keppni næstu vikur og jafnvel mánuði. Quashie, sem átti að spila sinn fyrsta leik fyrir South- ampton gegn Liverpool á laugar- daginn, meiddist á hné á æfingu fyr- ir leikinn og er talið að meðslin séu alvarleg.  SAMI Hyypia varnarmaðurinn sterki hjá Liverpool getur ekki spil- að með sínum mönnum þegar þeir etja kappi við Watford í síðari leik liðanna í undanúrslitum ensku deildabikarkeppninnar í knatt- spyrnu á morgun. Hyypia varð að fara af leikvelli vegna meiðsla í mjöðm þegar Liverpool tapaði fyrir Southampton í fyrradag.  SVISSNESKI landsliðsmaðurinn Bernt Haas hefur yfirgefið herbúðir enska úrvalsdeildarliðsins WBA og mun hann leika með franska liðinu Bastia. Haas gerði sex mánaða samning við félagið. Hann er 26 ára gamall og lék 36 leiki á síðustu leik- tíð er WBA tryggði sér sæti í efstu deild á ný. Bryan Robson sagði við leikmanninn að hann gæti ekki lofað honum sæti í leikmannahóp liðsins.  ENSKI landsliðsmaðurinn Jerm- ain Defoe segir að hann hafi ekki áhuga á því að yfirgefa herbúðir enska úrvalsdeildarliðsins Totten- ham. Hann er 23 ára gamall og hef- ur verið orðaður við flest stórlið Evrópu undanfarin misseri og er Chelsea eitt þeirra liða sem nefnd hafa verið til sögunnar. „Ég ætla mér að ná árangri með Tottenham. Það spyrja mig allir hvert ég sé að fara þar sem búið er að opna fyrir kaup og sölu á leikmönnum. En svarið er einfalt, ég er ekki að fara eitt né neitt,“ segir Defoe við Daily Mirror. „Ég ætla að láta verkin tala úti á vellinum enda er það það eina sem ég get gert,“ bætti hann við.  UGO Ehiogu varnarmaður Middl- esbrough gæti orðið frá keppni vegna meiðsla í allt að sex vikur, en hann er meiddur á hné og verður í gipsi næstu vikurnar. Ehiogu er 32 ára gamall. Hann hefur átt í vand- ræðum vegna hnémeiðsla og nú er svo komið að hann getur ekki æft með liðinu. Manchester United hefur ekkitapað í ensku úrvalsdeildinni í síðustu 13 leikjum en liðið hefur þrátt fyrir það ekki náð að minnka forskot Chelsea. „Chelsea leikur gríðarlega vel og mér sýnist að leikmenn liðsins muni ekki gera nein mistök. En við ætlum að halda okkar striki og árangur okk- ar að undanförnu mun hjálpa til í öðr- um keppnum,“ sagði Ferguson en fyrri leik liðsins gegn Chelsea lauk með markalausu jafntefli. Hann hrósaði Cristiano Ronaldo eftir leikinn gegn Villa og sagði að portúgalski landsliðsmaðurinn hefði aldrei leikið betur með Manchester United. Hann skoraði fyrsta mark leiksins og var gríðarlega ógnandi frá upp- hafi til enda. „Hann mun skora 10 mörk í vetur og hann hefði átt að skora 2–3 mörk í þessum leik. Það er gott að hafa leikmann í sínum röðum sem getur breytt leikjum okkur í hag.“ Darren Fletcher meiddist í leikn- um og verður ekki með gegn Chelsea og fyrirliðinn Roy Keane tekur út leikbann. Rio Ferdinand lék með Man. Utd. að nýju eftir að hafa verið frá vegna meiðsla síðustu þrjá leiki.  Baráttan um fjórða sæti ensku úr- valsdeildarinnar verður spennandi enda gefur það sæti rétt til þess að leika í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Alan Curbishley knattspyrnustjóri Charlton segir að leikmenn Everton muni ekki hafa það sem til þurfi það sem eftir lifir deildarkeppninnar en Everton tapaði á heimavelli 1:0 gegn Hermanni Hreiðarssyni og félögum. Matt Holland skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik en Charlton er nú í 5. sæti ásamt Liverpool og Middlesbrough, sjö stigum á eftir Everton sem er í því fjórða. „Ég er viss um að aukin spenna hefur hlaupið í leikmenn Everton eft- ir að þeir vissu að Liverpool tapaði gegn Southampton. Þeir vissu að þeir gátu aukið bilið í 10 stig með sigri gegn okkur. En ég tel að þeir muni ekki höndla það álag sem fylgir því að vera í fjórða sæti deildarinn- ar,“ segir Curbishley. David Moyes knattspyrnustjóri Everton blæs á ummæli Curbishley og segir sitt lið vera í góðri stöðu og muni halda áfram að koma á óvart. Everton hefur tapað sex leikjum á leiktíðinni en í öllum þessum leikjum hafa andstæðingarnir verið frá London. Aðstæður á Goodison Park voru skelfilegar og segir Moyse að leggja þurfi nýtt gras á völlinn á næstu vikum – ástandið sé skelfilegt.  Iain Dowie knattspyrnustjóri Crystal Palace segir að félagið muni ekki falla úr úrvalsdeildinni án þess að berjast fyrir lífi sínu fyrst. Hann var stoltur eftir 3:0 sigur liðsins gegn Tottenham á laugardag en fyrr um daginn hafði Southampton lagað stöðu sína í botnbaráttunni með því að leggja Liverpool að velli. Leikmenn Palace skoruðu mörkin á síðasta stundarfjórðungi leiksins og Andrew Johnson skoraði 14. mark sitt á leiktíðinni. En þetta var aðeins 5. sigur liðsins í vetur í úrvalsdeild- inni. „Við vissum hvernig hafði farið í Southampton og ég er afar stoltur af leikmönnum liðsins sem sýndu að þeir gefast aldrei upp. Það þarf að draga þessa stráka á hárinu, öskrandi, niður í 1. deild. Þeir ætla sér ekki að falla,“ sagði Dowie. Wayne Routledge vængmaður Palace var í kastljósinu þar sem hann hefur neitað að skrifa undir samning við félagið og á dögunum bauð Tott- enham um 180 millj. kr. í leikmann- inn en því boði var hafnað. „Routledge er atvinnumaður, leggur sig fram á æfingum og mætir á æfingar þegar hann á frí. Hann hef- ur rétt til þess að gera það sem hann telur rétt, en hann er ekki að svíkja Crystal Palace, hann er enn einn af okkur,“ sagði Dowie en stuðnings- menn Palace sýndu það í verki á leiknum að þeir eru ekki ánægðir með að Routledge vilji ekki semja við félagið á ný. Martin Jol knattspyrnustjóri Tott- enham sagði sína menn hafa leikið langt undir getu en þetta var þriðji leikur liðsins í röð án sigurs. „Ef menn ætla sér eitthvað í þess- ari deild þá verðum við að vinna leiki á borð við þennan. Við vorum langt frá okkar besta,“ sagði Jol.  Lokamínútur leiks Norwich gegn Middlesbrough voru ótrúlegar enda voru gestirnir frá Middlesbrough 4:2 yfir er ein mínúta var eftir af leikn- um. Það ótrúlega gerðist, heimamenn voru 4:1 undir er 10 mínútur voru eft- ir af leiknum en vörn Middlesbrough hrundi eins og spilaborg á lokamín- útum leiksins. „Ég get í raun ekki útskýrt það sem gerðist, ég get ekki haft það eftir sem ég sagði við strákana eftir leik- inn í búningsherberginu. Þeir skildu það sem ég meinti en það var allt liðið sem brást í varnarleiknum á síðustu mínútum leiksins. Við vorum eins og smástrákar á þessum tíma, hriplekir og það var hrikalegt að horfa upp á þetta,“ sagði Steve McClaren knatt- spyrnustjóri Middlesbrough eftir leikinn. Boro hefur enn ekki unnið leik á árinu en næsta laugardag leik- ur liðið í 4. umferð ensku bikar- keppninnar gegn Manchester Unit- ed. „Það gefst ekki betra tækifæri til þess að svara fyrir sig. Leikurinn gegn Manchester United er prófraun fyrir andlegan styrk liðsins,“ sagði McClaren. „Ég hef tekið þátt í slíkum leik sem leikmaður en aldrei sem knatt- spyrnustjóri,“ sagði Nigel Worthing- ton stjóri Norwich. „Ég var þá leik- maður Sheffield Wednesday, við vorum 3:1 yfir gegn Chelsea, en leik- urinn endaði 4:4 eftir framlengingu. Ég efaðist vissulega um að okkur tækist að jafna í stöðunni 3:1 en leik- menn liðsins höfðu meira fram að færa en ég bjóst við og þeir eiga að fá allt hrósið.  Það má segja að laugardagurinn hafi verið dagur botnliða deildarinn- ar en WBA sigraði Manchester City, 2:0. Þetta var aðeins annar sigur liðs- ins í vetur og sá fyrsti sem Bryan Robson vinnur sem knattspyrnu- stjóri liðsins. WBA er sem fyrr á botni deildarinnar, með 16 stig en Norwich er með 17 stig og South- ampton er 18 stig. Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchest- er United, segir að Chelsea-liðið sé óstöðvandi „Chelsea-liðið mun ekki gera nein mistök“ ALEX Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United segir að bar- áttunni um meistaratitilinn sé nánast lokið – Chelsea muni ekki missa niður það forskot sem liðið hefur þessa stundina. En Fergu- son ætlar sínu liði að ná árangri á öðrum vígstöðvum og koma þar með í veg fyrir að Chelsea vinni fleiri titla en enska meistaratitilinn. Skotinn var afar ánægður með 3:1 sigur liðsins gegn Aston Villa á laugardag en á miðvikudag tekur Manchester United á móti Chelsea í síðari undanúrslitaleik liðanna í ensku deildabikarkeppn- inni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.