Mánudagsblaðið - 24.05.1954, Page 4
4
MÁNUDAGSBLAÐIÐ Mánudagurinn, 24. maí 1954
Sparifé barna
Hannibal sparkað í sumar?
MÁNUDAGSBLAÐIÐ
BLAÐ FYRIR ALLA
Ricstjóri og ábyrgðarmaður: Agnar Bogason.
Biaðið kemur út á cnánudögum. — Verð 2 kt. í kusasÖlu.
r Afgreiðsla: Tjarnarg. 39. — Sími ritstj. 3496.
PrentsmiSja ÞjóSviljans h.f.
Framhald af 1. síðu.
veg soðið uppúr.
Innsta ráð flokksins, þess
Ihluta hans, sem er í andstöðu
við Hannibal, situr nú á
löngum fundum og mun á-
kveðið að svifta hann öllum
ráðum og nafnbótum innan
flokksins og blaðstjórnar.
Hvemig þessi hin mikla
bylting skeður skal ósagt, en
aðeins fullyrt að siunir þeir,
sem nú telja sig opinberlega
til vina Hannibals munu beita
Brútusarbrögðum þegar dag-
urinn kemur. Talið er líklegt
að kallaður verði fundur allra
fulltrúa flokksins í sumar og
verður ;þá úr skorið hvort
Hannibal leiðir flokkinn í
gjaldþrot, eða enn verði gerð
tilraun til að bjarga því, sem
enn má bjarga.
Dapr reiði, dagur bræði
Alþýðuflokksins — ef þá
nokkuð verður eftir af hon-
um i hreinsunareldinum.
Röðull í nýjiun
búningi
Framhald af 1. siðu.
Biliy Cottons í Englandi, en
fimm íslenzkir skemmtikraft-
ar starfa þar kvöld hvert,
þau: Sigrúii Jónsdóttir, Al-
freð Clausen, Ragnar Bjarna-
son, Baidur Georgs og Ingi-
björg Þorbergs. I ráði er og
að hafa svokölluð amatör-
kvöld tvisvar í mánuði, sem
Baldur Georgs stjómar og
svo þáttinn: Hvað heitir lagið,
sem Svavar Gests stjórnar.
Um all langt skeið höfum við,
nókkrir ísl. skólamenn, haft
kynni af starfsemi meðal skóla-
barna á Norðurlöndum, sem
menn nefna þar „ökonómiskt upp
eldi“, en við gætum máske kallað
ráðdeildaruppeldi, eða uppeldi í
hagsýni, og er þá átt við það, að
fræða börn um gildi fjármuna og
skynsamlega meðferð þeirra,
glæða hjá þeim sparnaðaranda
og ráðdeildarhug og starfa með
þeim að sparifjársöfnun. Hefir
þar verið að þessu unnið síðustu
70—80 ár, og talið nú eitt hið
mesta þjóðþrifamál, sem hafi haft
og hafa muni víðtæk áhrif, enda
fátt til sparað í boðum og fram-
kvæmd. Bá geta þess hér, að
skólaárið 1951—’52 tóku yfir 80%
sænskra skólabarna þátt í þessu
starfi í 2438 skólum. Söfnuðust
það ár 56 milljónir króna, en alls
var innstæða í þessum sparisjóðs-
bókum skólabarnanna 238 millj.
króna í lok ársins 1952. Svipuð
var þátttakan í Danmörku.
Hér á landi hafa nokkrir skóla-
menn á síðustu áratugum hafið
sparifjársöfnun í skólum sínum.
En öll var sú starfsemi í molum,
þvi að hver baukaði fyrir sig og
án þess að vera studdur af nein-
um þeim, sem ráð höfðu og völd,
og því féll þessi starfsemi alls
staðar niður eftir nokkur ár.
Munu þó allir hafa harmað það,
sem kynnzt höfðu þessu máli og
nokkuð að því unnið, að ekki
tókst að vekja almenna viðleitni
í þessa átt.
.Málið var tekið upp í útvarpi
og blöðum, en fékk litlar undir-
tektir. Sneri Snorri Sigfússon sér
þá til ráðherranna, Björns Ólafs-
sonar, þáverandi menntamálaráð-
herra, og Eysteins Jónssonar, fjár
málaráðherra, og ræddi málið við
þá, en þeir tóku báðir vel í það.
Hóf Björn Ólafsson strax viðræð-
ur við Landsbankann um mál
þetta af skilningi og velvilja, og
samdi Snorri fyrir hann nokkra
greinargerð um þessa starfsemi
erlendis. Jafnframt lét bankinn
mann frá sér, Sem staddur var er-
lendis, kynna sér starfsemi þessa
og athuga starfshætti hennar, og
samdi hann síðan greinargerð um
þetta fyrir bankann.
Snorri segir svo frá:
Oft hafði ég rætt þetta málefni
við fræðslumálastjórann, sem
jafnan hefir verið þvi mjög
hlynntur. Hafði ég einnig, þegar
hér var komið, minnzt á það .við
bankastjóra Búnaðarbankans og
einn af bankastjórum Útvegs-
bankans, sem báðir tóku því vel.
En mestan áhuga á framgangi
þess hefir Jón Árnason banka-
stjóri Landsbankans sýnt. Fyrir
hans forgöngu og atbeina var mál
ið tekið upp á ný, og lögðu banka-
stjórar Landsbankans það til við
bankaráðið, að bankinn hefði for-
göngu um sparifjárstarfsemi með
al skólabama landsins, sem fyrst
og fremst miði að þyí að Ælæða
og styðja sparnaðaranda og ráð-
deild meðal uppvaxandi æsku í'
landinu. Og sem uppörvun og á-
bending um það. hvers væri ósk-
að og hvert stefnt, skyldi bankinn
gefa hverju skólabarni, frá 7 ára
aldri, sparisjóðsbók með 10 króna
innstæðu, og skyldi svo gert ár-
lega fyrst um sinn þeim börnum,
sem við bætast. Þetta samþykkti
bankaráðið á fundi sinum 12. jan.
s. 1. Er sú samþykkt hin mark-
verðasta og stofnuninni til mik-
ils sóma, og ber að vænta þess,
að hún hafi heillavænieg áhrif
í framtíð. Og þess ber þá einnig
að geta, að þegar í upphafi tók
Landsbankinn það fram, að for-
ganga sin í þessu efni sé eingöngu
miðuð við eðli málsins og tilgang,
en alls ekki við það, að væntan-
leg viðskipti séu á nokkurn hátt
miðuð við hann einan. Mun bank-
inn því gera ráðstöfun til þess,
að börnin eignist sparisjóðsbæk-
ur með framlagi hans í, í lán-
stofnun, sem næst er heimili
þeirra og auðveldast er fyrir þau
að skipta við, og er hér átt við
banka, bankaútibú, sparisjóði og
innlánsdeildir kaupfélaga.
Þar sem allmikinn undirbún-
ing þarf til að hefja þessa starf-
Engar líkur eru til þess að
Hannibal hverfi sjálfkrafa úr
áhrifastöðum, flokknum til
heilia, því maðurinn er bæði
einþykkur og þver og metur
sig sjálfan langt úr hófi fram.
Klíka sú er Hannibaiistar
veltu frá völdum telur hann
meginorsök ófaranna í þing-
kosningunum síðustu en rot-
höggið kom í Kópavogskosn-
ingunum, og nú er dies irae
— dies illa — dagur reiði —
dagur bræði — í vændum og
víst talið, að Hannibal á ekki
framtíð í pólitisku himnaríki
Erfiðleikar og úrbætur
Ólafur sagði í blaðiviðtali
að erfiðleikar steðjuðu að
gistihúsarekstri, sem orsök-
uðu að hér væri ekki eins mik-
il fjölbreytni í rekstrinum
bæði í mat og skemmtikröft-
um, og óskandi væri, en hér
væri hinsvegar um tilraun í
rétta átt að ræða, sem hann.
vonaði að gestir mætu.
Um helgar verða fyrst um
sinn dansskemmtanir en
vikulega venjul. greiðasala og
hljómlist eins og fyrr getur
og skemmtiatriði.
semi og finna henni hentugt form
en mjög undir skólunum komig,
hvernig til tekst með áranguf,
var málið borið undir núverandi
menntamálaráðherra, Bjarna
Benediktsson, með ósk um fyrir-
greiðslu, en hann séndi það stjórn
kennarasamtakanna til umsagn-
ar. Tók hún vel í málið, og hefir
menntamálaráðuneytið fallizt á
að ljá þessu máli lið sitt á þann
veg, að mæla með því við skól-
ana og heimila þeim, sem að því
vinna, að nota einhverja stund
af starfstíma sínum, hálfsmánað-
arlega eða svo, í þarfir þess, allt
eftir nánari ákvörðun hvers
skóla.
Það er gleðiefni, að undirtektir
virðast benda til þess nú, að al-
mennur stuðningur náist við
þetta mikilsverða uppeldismál.
Verður þá vonandi léttara að
hefjast handa um framkvæmdir.
Er ætlunin að hefjast fyrst handa
í‘ kaupstaðaskólunum^ipg->• sjá;
-hvernigþeirtaka í málið.og fæfaití
svo út starfsemina ;.,smátt ogrr.;
smátt, En um ýms framkuærncfari < i'
atriði er enn-óráðið. -
Að lokum skal það tekið frarrf,
að þótt þjóðbankinn hafi haft for-
yztuna um að hrinda þessu máli
af stað og leggi þar fram stóran
skerf, mun að sjálfsögðu með
þökkum þegin aðstoð fleiri lán-
stofnana, þegar til framkvæmdá
kemur.
(C.reinargerð frá Snorra Sigfús-
syni. Stytt.)
Augiýsið í í
Mánudagsblaðinu
Yörur á rerksmiðjuverði
fí*
fr
rí*
fí*
K
fí*
ET
fí*
fí*
ff
fí*
fí*
fT
fí*
£*
fí*
fí*
fí*
f<*
f<*
rC
haxnýlur. traualur o/ handhœgur
jafnl fyrir rafmagnt■ gaa- og íioksvétiif
6 ðítra hraðsuðupoltar
ABEINS kr. 250.90
BORÐLAMPAR, í fjöibreyffu úrvafi
LJÓSAKRÓNUR - YEGGLAMPAR
Skermar í miklu úrvali
Málmiðjan h.f,
Bankastræti 7. — Sími 7777 ,