Morgunblaðið - 05.04.2005, Blaðsíða 16
Akureyri | „Það er miklu
betra að fara á sjó en að æða
til útlanda með tilheyrandi
gjaldeyriseyðslu,“ sagði Krist-
ján Grant bílstjóri sem bauð
eiginkonu sinni, Önnu Árna-
dóttur í siglingu um Pollinn
og að sjálfsögðu var rennt fyr-
ir fisk í leiðinni. Anna varð
sextug í gær, mánudag og í
tilefni þess birtust nokkrir
óvæntir gestir í heimsókn og
fengu þeir að fljóta með. „Við
erum komin með vel í soðið,“
sagði Kristján hróðugur og
sýndi ljósmyndara afrakst-
urinn, nokkra þokkalega
þorska.
Morgunblaðið/Kristján
Betra á sjónum en í útlöndum
Afmælisferð
Akureyri | Höfuðborgarsvæðið | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Vorið er að koma og hér í náttúrupara-
dísinni á Djúpavogi er allt að vakna til lífs-
ins og ekki annað hægt en að hrífast með.
Farfuglarnir flykkjast að og ferðamenn
farnir að spóka sig um göturnar. Fugla-
áhugamenn þar fremstir í flokki. Líka
áhugaljósmyndarar frá útlöndum, orðlaus-
ir yfir myndefninu. Liggja úti í móa og
mynda fugla, fjöll og fjörulíf. Hreindýrin
allt um kring. Djúpavogsbúar fögnuðu
vorinu með listakvöldi á Hótel Framtíð
undir yfirskriftinni Listakvöld við Voginn.
Þar lásu rithöfundar úr verkum en heima-
menn sáu um tónlistina og eftir stendur
minning um notalegt kvöld við Voginn.
Um síðustu helgi lauk spurningakeppni
Ungmennafélagsins Neista. Alls voru
þrettán lið með í keppninni sem var jöfn og
spennandi. Starfsmenn Djúpavogshrepps
s sigruðu Vísismenn í úrslitum í Löngu-
búð. Þetta er árleg keppniog vel sótt af
heimamönnum. Björn Hafþór Guðmunds-
son, sveitarstjóri, var spyrill og fór oft og
tíðum á kostum í hlutverkinu.
Um páskana var fyrsta farminum af kol-
munna landað í fiskimjölsverksmiðjunni
eftir að Djúpavogshreppur festi kaup á
þrotabúinu í byrjun árs. Norska skipið
Vendla kom með ríflega 1600 tonn að landi
á páskadagsmorgun. Heimamenn fögnuðu
komu skipsins og Eðvald Ragnarsson,
verksmiðjustjóri, færði skipstjóranum
tertu í tilefni dagsins. Viku seinna landaði
færeyska skipið Sheann 1400 tonnum í
bræðsluna.
Unnið er að stofnun einkahlutafélags
um reksturinn á verksmiðjunni sem hefur
fengið nafnið Fabrikkan. Þetta er ekki
fyrsta fyrirtækið sem starfar undir þessu
nafni á Djúpavogi, á árunum 1920–40
starfrækti Jakob Gunnarsson í Fögruhlíð
skóverksmiðju með þessu nafni. Þar voru
framleiddar svokallaðar „kobbasíur“ sem í
daglegu tali eru kallaðar gúmmískór. Voru
þessir skór vinsælir víða um land og þóttu
bæði ódýrir og ísmeygjanlegir.
Úr
bæjarlífinu
DJÚPIVOGUR
EFTIR SÓLNÝJU PÁLSDÓTTUR
Ferðanefnd Félagshúsbílaeigendahefur gengið frá
skipulagningu ferða kom-
andi sumars, en alls verða
10 skipulagðar ferðir á
vegum þess. Um hvíta-
sunnuhelgina verður far-
ið á Hlaði á Hvalfjarð-
arströnd, þá er á dagskrá
að fara í Þórshöfn, Vík í
Mýrdal, Indriðastaði í
Skorradal, Stóra ferð
sumarsins verður í Borg-
arfjörð, Mýrar og Snæ-
fellsnes, en í þá ferð verð-
ur farið dagana 16. til 19.
júlí, þá verður haldið á
Hafnardaga í Þorláks-
höfn, Iðufell, Þórisstaði í
Svínadal, í haust er svo
tvær ferðir á dagskrá,
annars vegar í Selvog og
hins vegar í Goðaland í
Fljótshlíð.
Félagsmenn eru um
1.300 talsins og fjölgar
stöðugt, en mikil fjölgun
hefur verið í húsbílaeign
á liðnum árum. Ffélagið
var stofnað árið 1983.
Húsbílar
Nú er sól heldurbetur farin aðhækka á lofti,
vorið á næsta leiti og þá
rennur jafnframt upp sá
tími þegar börnin taka
fram reiðhjólin sín. Vin-
konurnar Gerður Kolbrá
Unnarsdóttir og Guðrún
Jóna Þrastardóttir voru
á ferðinni á Akureyri í
gær, búnar að taka reið-
hjólin sín úr geymslunni
eftir veturinn og ætla sér
að vera duglegar að
hjóla. Þær voru báðar
vel útbúnar, með reið-
hjólahjálma, enda sögð-
ust þær aldrei fara út að
hjóla fyrr en búið væri
að setja hjálminn á höf-
uðið.
Morgunblaðið/Kristján
Alltaf með hjálma
Kristján BersiÓlafsson orti afkunnu tilefni:
Eftir býsna mikið makk,
moldviðri og orðahjakk,
fundahöld og froðusnakk,
fréttastjórablaðran
sprakk!
Á gufunni er gangur mála
hraður,
gærdagsins þungi rokinn
burt sem fis,
Markús orðinn ásatrúar-
maður,
á Óðin heitir sér til full-
tingis.
Köttur Péturs Þor-
steinssonar á Kópaskeri
orti:
Eftir frábært asnaspark
útvarpsráðs og hendi
boltann inní eigið mark-
ús með bravúr sendi.
Svo má rifja upp vísu
Georgs Jóns Jónssonar á
Kjörseyri:
Fréttastofan faglega
fer að öllu haglega
Lagar fréttir laglega
og lýgur að mér daglega.
Enn af
fréttastjóra
pebl@mbl.is
Bíldudalur | Vesturbyggð og Icelandic Sea
Minerals, fyrirtækið sem hyggst reisa
kalkþörungaverksmiðju á Bíldudal, hafa
náð samkomulagi um leigu á lóð undir
verksmiðjuna. Samningaviðræður um lóð-
ina hafa staðið undanfarna mánuði og var
samningurinn lagður fyrir bæjarráð Vest-
urbyggðar í síðustu viku. Bæjarráð fagnaði
því að náðst hefðu samningar á milli aðila
og telur ráðið að viðunandi leiguverð hafi
fengist fyrir lóðina og leggur því til við
bæjarstjórn að samningurinn verði sam-
þykktur. Undirbúningur að gerð kalkþör-
ungaverksmiðju er nú í fullum gangi á
Bíldudal. Gerð lóðar og hafnar hafa staðið
yfir í vetur og í vor hefst bygging verk-
smiðjunnar. Áætlað er að vinnsla hefjist á
næsta ári. Frá þessu er grein á vef Bæj-
arins besta.
Samkomulag
um leigu á lóð
Kelduhverfi | Á fundi hreppsnefndar í
Skúlagarði fyrir skömmu mætti Guð-
mundur Magnússon frá Magnavík til að
kynna hvernig staðið verður að háhraða-
tengingu í Kelduhverfi. Komið verður
upp örbylgjusendi á Auðbjargarstaða-
brekku og Ærlækjarseli. Sendarnir
draga 20 km frá aðgangspunkti til not-
enda sem lengst eru frá, þannig að allir
bæir í Kelduhverfi eiga möguleika á að
tengjast. Verður þetta mikil bót fyrir þá
íbúa sem mikið nota Netið, en hæga-
gangur í gagnaflutningum tekur oft mik-
ið á þolinmæðina, segir í frétt á vefnum
kelduhverfi.is.
Kelduneshreppur stendur straum af
stofnkostnaði sem er rúmlega 800 þús.
kr. en mánaðargjald verður 5.000 kr.
m.vsk. fyrir heimili og fyrirtæki greiða
8.000 kr. m.vsk.
Gerður verður sérstakur samningur
við hvern og einn notanda.
Háhraðateng-
ing í sjónmáli
♦♦♦
Dalvíkurbyggð | Bæjarráð Dalvíkur-
byggðar fagnar framkominni tillögu til
þingsályktunar um stofnun framhalds-
skóla við utanverðan Eyjafjörð. Bæjarráð
hvetur til þess að sameiginleg nefnd full-
trúa frá Siglufirði, Ólafsfirði og Dalvíkur-
byggð taki málið til umfjöllunar og komi
því á framfæri í „menntaklasa“ Vaxta-
samnings Eyjafjarðar.
Fagna tillögu
♦♦♦