Morgunblaðið - 05.04.2005, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 05.04.2005, Blaðsíða 40
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Litli Svalur © DUPUIS HINGAÐ TIL MÍN ER KOMIN ALVÖRU VAMPÍRA GÓÐAN DAGINN HERRA ÞAKKA ÞÉR. GÓÐAN... DAGINN! DAGUR!! ÞÚ ÆTTIR KANNSKI AÐ DRAGA FYRIR GLUGGANN EKKI SVÍKJA MIG, STÓRA GRASKER! GEFÐU MÉR STYRK FRAMMI FYRIR ÓVINUM MÍNUM! FRELSAÐU MIG FRÁ FJENDUM MÍNUM!! SÝNDU ÞIG, HEIMSKA GRASKER!! EF ÞÚ GÆTIR ÓSKAÐ ÞÉR HVERS SEM ER, HVERS MUNDIR ÞÚ ÓSKA ÞÉR? ÉG MUNDI VILJA FÁ STÓRT, SÓLRÍKT ENGI EITTHVAÐ ASNALEGT ENGI!! ÞÚ HEFUR ÞAÐ NÚ ÞEGAR! HVAÐ MEÐ PENINGA? HVAÐ MEÐ VÖLD? ÞÚ GÆTIR FENGIÐ HVAÐ SEM ER!! ÞAÐ ER ERFITT AÐ RÍFAST VIÐ EINHVERN SEM ER SVONA ÁNÆGÐUR HANN ÆTLAR AÐ GEFA OKKUR MERKI ÞEGAR VIÐ GETUM KOMIÐ UPP. EINN ÞUMALPUTTI ÞÝÐIR AÐ ALLT SÉ Í LAGI, TVEIR ÞÝÐA AÐ VIÐ EIGUM AÐ FARA HLJÓÐLEGA OG ÞRÍR ÞÝÐA STOPP ÞUMALLINN ER KOMINN UPP! KOMUM OKKUR. HURÐIN ER OPIN LOKSINS FÁUM VIÐ OPINBERUN Í EITT SKIPTI FYRIR ÖLL. SVO ER SAGT AÐ STÓRAR STELPUR SÉU MEÐ HÁR ANNARS STAÐAR EN Á HÖFÐINU HREINT ÚT SAGT, ÓGEÐSLEGT! SUSS! VIÐ VERÐUM AÐ SJÁ ÞAÐ FLJÓTIR! SYSTIR MÍN ER AÐ KOMA ÚR STURTU HLJÓÐLEGA STRÁKAR! EF HÚN KEMST AÐ ÞESSU ÞÁ DREPUR HÚN MIG ÉG ER FYRSTUR! VÁ! ÉG SÉ HANA... ÉG SÉ Á HENNI FÓ... AAAAAH! HÚN ER AÐ KOMA! ÖÖÖ... ÉG VERÐ AÐ FARA... ÞETTA VAR FRÁBÆRT EN ÉG GLEYMDI AÐ LÆRA HEIMA... BÆ! ÞÚ!! ÉG DREP ÞIG!! ER HANN AÐ SEGJA AÐ ÞETTA SÉ ALLT Í LAGI? ÉG VEIT ÞAÐ EKKI! HANN TALAR OF HRATT! ÞAÐ ERU ALLT OF MARGIR PUTTAR BLESS NJÁLL! ÉG BIÐ AÐ HEILSA! Dagbók Í dag er þriðjudagur 5. apríl, 95. dagur ársins 2005 Víkverji er með nokk-uð skemmtilega teg- und gullfiskaminnis sem gerir hann að afar við- kunnanlegum lífs- förunaut. Hann býr við veðurgleymsku og upp- lifir því veðrið í hvert skipti eins og það sé það fyrsta. Þessa dagana vorar og vetrar og vorar og vetrar til skiptis eins og veðurguðirnir séu með athyglisbrest. Þetta er gósentíð fyrir Vík- verja. Í hvert skipti sem vorar breytist hann í flögrandi gleðifiðrildi sem hoppar um skríkjandi af gleði. Og þegar vetrar breytist hann í lítið barn sem fagnar fegurð hins hvíta teppis sem leggst yf- ir jörðina og gerir allt svo bjart. En skammrifi þessara öru árs- tíðaskipta fylgir þó böggull all- leiðigjarn. Við slíkar hita- og raka- sveiflur leggst Víkverji í flensu og kvef, sjaldnast svæsin, en nóg til að gera tilveru hans grábölvaða. Þetta rekst síðan illa á við glaðværð Vík- verja við árstíðaskiptin. Víkverji er nokkuð öruggur á því að hann þarf stöðugra loftslag og hyggst jafnvel flytja til Ísafjarðar, þar sem vetur, sumar, vor og haust eru enn nokkuð aðskilin fyrirbæri. x x x Víkverji hefur und-anfarið fylgst með umræðunni um Bobby Fischer og full- yrðingar hans um gyðinga og vægast sagt blöskrar honum. En Víkverja blöskrar ekki Fischer og sora- kjafturinn á honum. Víkverji er vanur því að heyra upphrópanir manna í ójafnvægi frá því að hann vann með geðsjúkum. Víkverja blöskrar að fjölmiðlar og fólk úti í bæ sé að gefa þessum öskrum svona mikinn gaum. Útigangsmenn Íslands eru ekki fjölmiðlamatur á hverjum degi þótt þeir segi ýmislegt misjafnt. Enginn talar um að setja þá í fangelsi fyrir meiðyrði eða guðlast. Þrátt fyrir að vera margir bráðgáfaðir eiga þessir menn erfitt. Víkverji vonar innilega að íslenskir fjölmiðlar temji sér vandaðri vinnu- brögð og nærgætni þegar þeir fjalla um menn sem eiga greinilega erfitt á sálinni. Fischer á um sárt að binda eftir átakaríka ævi og glímu við geð- sjúkdóma og hann þarf frið til að hvíl- ast. Getum við gefið honum þann frið? Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is      Hafnarborg | Hádegistónleikar verða haldnir í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, á morgun kl. 12. Það er Antonía Hevesi píanóleik- ari og organisti við Hafnarfjarðarkirkju, sem er listrænn stjórnandi tónleika- raðarinnar og velur hún þá listamenn sem fram koma. Á tónleikunum á morg- un er það Ólafur Kjartan Sigurðarson baríton sem verður gestur hennar. Á efnisskrá eru lögin Piacer d’amor eftir Martini, O del mio dolce ardor eftir Gluck og Lu trademiento, La conocchia og Amore marinaro öll eftir Donizetti. Tónleikarnir standa yfir í um hálfa klukkustund og eru þeir ókeypis. Morgunblaðið/Eyþór Hádegistónar í Hafnarborg MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Hjartað eitt þekkir kvöl sína, og jafnvel í gleði þess getur enginn annar blandað sér. (Orðskv. 14, 15.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.