Morgunblaðið - 05.04.2005, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 05.04.2005, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN MIKIL tilfærsla viðskipta og fjármuna á sér nú stað frá Íbúðar- lánasjóði til banka og lífeyrissjóða, eftir að þeir síðarnefndu buðu lægri vaxtakjör á hús- næðislánum. Þeim sem leitast hafa við að bæta lánakjör sín er engu síður ennþá harðlega refsað fyrir sjálfsbjargarviðleitni að þessu leyti með álagningu stimp- ilgjaldsins á við- skiptin. Fjöldi lána- samninga skiptir nú þúsundum og tugþús- undir einstaklinga koma við sögu. Fram hefur komið opinberlega eindreginn vilji forsætisráðherra og fjármálaráðherra til að afnema stimpilgjaldið þegar næst er lag til skattalækkana. Þetta eru glúrnir menn, þessir tveir ráðherrar. Búmenn góðir. En himinn og haf skilja græðgi og hóflegan hagnað. Uppgreiðslur lána Íbúðarlánasjóðs á síð- asta ári voru nokkuð á níunda tug milljarða króna. Þar af lang- stærstur hluti kominn yfir til banka og líf- eyrissjóða með endur- fjármögnun og útgáfu nýrra veðskuldabréfa. Stimpilgjöld af fjár- hæðinni: 1.245 millj- ónir króna. Ekki ama- legar árstekjur af engu. Aukinn kostn- aður ríkisjóðs vegna þessara umfangsmiklu og auknu viðskipta óskyldra aðila að öllum líkindum ekki ein einasta króna. Búast má við tvöföldun þessara sömu tekna á þessu ári. Það sorglega við þetta arðbæra dæmi fyrir ríkissjóð er það að þessar miklu tekjur eru auðvitað að stórum hluta innheimtar hjá ungu fólki, barnafólki og hjá fjöl- skyldum sem illa standa fjárhags- lega og eru því eðli máls sam- kvæmt fyrst í röðinni í viðleitni til þess að bjarga fjárhag fjölskyld- unnar. Ef gluggað er í talnaefni þessu tengt þá kemur eftirfarandi í ljós: Árið 2003 eru tekjur ríkissjóðs af öllum stimpilgjöldum 3.883 millj- ónir króna. Árið 2004 eru tekj- urnar 6.505 milljónir króna. Hækk- un um 68%. Í janúar sl. eru stimpilgjalda- tekjur 731 milljón króna, sam- anborið við 308 milljónir króna í janúar 2004. Hækkun um 137%!! Það væri fróðlegt að vita hverjar tekjurnar eru í febrúar og það sem af er mars. Því auðvitað er enn ekkert lát á þessum uppgripa tekjum ríkissjóðs – beint úr hendi fjölskyldna og heimila þessa lands á meðan helst þessi rífandi gangur í viðskiptum með endurfjármögnun og í viðskiptum á fasteignamark- aði. Spurt er: Er ekki kominn tími til að ríkisstjórnin sjái að sér í þessu máli? Hætti að vísa til fram- tíðarlagsins en hlusti fremur á kjósendur í nútíðinni og hreinlega hætti strax þessari okurstarfsemi? Að minnsta kosti stöðvuð strax innheimta stimpilgjalds þegar um er að ræða endurfjármögnun og útgáfu skuldabréfa til öflunar íbúð- arhúsnæðis? Með einfaldri breytingu á lögum um stimpilgjald mætti veita und- anþágu hvað þetta varðar. Veittar undanþágur frá greiðslu stimp- ilgjalds, í lögunum frá 1978, eru hvort eð er einungis í ellefu liðum núna, ef ég hef talið rétt. Hvers vegna ekki að bæta þeim tólfta við? Áhrifin af þessari litlu og ein- földu aðgerð á búreikninga þjóð- arinnar eru þau ein að tekjur rík- issjóðs verða ekki u.þ.b. 8 milljarðar króna af stimpilgjaldinu árið 2005 eins og nú stefnir í (þ.e. ríflega tvöfalt hærri en árið 2003) heldur eitthvað nær fimm millj- örðum króna. Er það ekki kappnóg fyrir góða búmenn? Og kappnóg fyrir kjósendur með síðasta orð um ráðsmenn á eigin búi? Þegar nær dregur kosningum mætti svo gjarnan afnema lögin um stimpilgjald í heild sinni af söngskrá þjóðarinnar, eins og til- lögur liggja fyrir um á Alþingi. Er innheimta stimpilgjalda orðin okurstarfsemi? Jónas Gunnar Einarsson fjallar um innheimtu stimpilgjalda Jónas Gunnar Einarsson ’Þegar nær dregurkosningum mætti svo gjarnan afnema lögin um stimpilgjald í heild sinni af söngskrá þjóð- arinnar, eins og tillögur liggja fyrir um á Al- þingi.‘ Höfundur er rithöfundur. FYRIR nokkru var rætt við yf- irmann á Landspítalanum um erf- iðleika við að fá bílastæði við spít- alann. Þetta þekkja allir sem komið hafa á spítalann á bíl og er augljóst óhagræði fyrir sjúklinga sem eiga erfitt um gang. Í máli yfirmannsins kom fram að þetta stæði nú allt til bóta eftir færslu Hringbrautar því þá væri hægt að byggja enn þá fleiri bílastæði en nú eru! En er það eina lausnin sem kemur til greina? Undanfarin ár hafa tveir stærstu vinnustaðir landsins, Háskóli Íslands og Landspítalinn, verið í aðhaldi hjá eiganda sínum, ríkinu eins og alþjóð er kunnugt. Vegna þessa geta þeir ekki haldið í við aukna eftirspurn eftir þjón- ustu frá sjúklingum og nemendum. Stjórn- endur þeirra hafa reynt að grípa í taum- ana með aðhalds- aðgerðum og hefur aukin gjaldataka á sjúklinga og skólagjöld á nemendur komið til álita. Ég ætla ekki að fjalla um þessi fjárhagsvandræði sem slík. Mig langar hinsvegar til að varpa fram þeirri spurningu hvort það sé eðlilegt að svona stofnanir reki ókeypis bílastæði fyrir starfsfólk og þá sem njóta þjónustu þeirra? Er það ekki hlut- verk þeirra fyrst og fremst að veita þá þjónustu sem þeim er fal- ið, menntun og heilbrigðisþjón- ustu? Eru frí bílastæði hluti af þeirri þjónustu? Kostnaður við bílastæði Gerð bílastæða, rekstur þeirra og landið sem fer undir stæðin kosta peninga. Í miðborginni þar sem þessar stofnanir eru er land sérstaklega dýrt. Samtökin sem lögðust gegn færslu Hringbrautar hafa metið verðmæti landsins sem fara á undir brautina á um 6 millj- arða. Ég hef engar tölur um verð- gildi landsins undir bílastæðunum en víst er að það er ekki ókeypis. Bílastæði við þessar stofnanir eru í eðli sínu takmörkuð gæði. Ef eft- irspurninni er ekki stýrt er hætt við að framboðið dugi aldrei til nema með því að leggja meginhluta byggingarlandsins undir bílastæði eða að byggja þurfi dýr bílastæða- hús. Jafnvel eftir slíkt átak er enn óleystur sá vandi að starfsfólk sem mætir fyrst á morgnana leggur í stæðin næst húsunum en sjúkling- ar og fatlaðir verða að gera sér að góðu stæði langt í burtu. Er þá skynsamlegt fyrir stofnanirnar að auka framboðið og leggja enn meiri kostnað í bílastæði af takmörkuðu fjármagni sínu? Er ekki skyn- samlegra að taka upp stýringu á þessum takmörkuðu gæðum og láta þá sem nota stæðin greiða fyrir þau og ná þannig jafn- vægi milli framboðs og eft- irspurnar? Gjaldtaka og aðrar aðgerðir Ef vel ætti að vera ætti gjald- taka fyrir bílastæði að standa undir gerð, rekstri, viðhaldi og kostnaði við landið undir stæðunum. Þá bæru stofnanirnar engan kostnað af rekstri bílastæðanna af tak- mörkuðu fjármagni sem ríkið skammtar þeim. Einnig ætti að grípa til annarra ráðstafana til að draga úr eftirspurn s.s. með skipu- lagningu almenningssamgangna og göngu- og hjólastíga. Einnig ætti að vera fjárhagslegur hvati fyrir starfsmenn eins og hlunnindi greidd sem afsláttarkjör á reið- hjólum og afsláttur á fargjöldum með strætó. Slíkar hlunninda- greiðslur mundu nýtast öllu starfs- fólki en ekki mest þeim sem best hafa kjörin eins og hlunninda- greiðslur með einkabílum starfs- manna í dag. Fyrirkomulag gjaldtöku Fyrirkomulag gjaldtöku getur verið ýmiskonar. Starfsmenn og nemendur gætu greitt mán- aðargjald inn á ákveðin stæði. Upphæð gjaldsins gæti verið á bilinu 2–5.000 kr. Gestir og sjúk- lingar gætu greitt tímagjald eins og tíðkast í bílastæðahúsum. Einn- ig mætti hafa kerfi með gjaldfrí stæði með tímamörkum á stöðu svipað og menn þekkja frá Dan- mörku þar sem notaðar eru tíma- skífur. Húsverðir þyrftu að hafa vald til að skrifa út sektir á bíla sem brytu gegn stöðureglum. Bílar, sem ekki hafa mánaðarkort eða tímaskífur, eru komnir fram yfir í tíma, standa á gangstéttum eða utan bílastæða yrðu sektaðir umsvifalaust. Í gjaldfríum stæðum mundu skussarnir greiða fyrir rekstur stæðanna með sektum. Gjaldtaka er sanngjörn Það að sífellt þurfi að leggja meira land undir bílastæði í sam- félaginu er ekki náttúrulögmál. Það eru til aðrar betri lausnir sem allir græða á. Með því að hafa sann- gjarna gjaldtöku á bílastæðum er tryggt að: 1. Framboð á stæðum er nægj- anlegt þar sem þörf er á og fyrir þá sem á þurfa að halda. 2. Komið í veg fyrir að stærstur hluti landnotkunar verði fyrir bílastæði. 3. Skapaður möguleiki á aðlað- andi umhverfi með bættum útivistarmöguleikum og styttri vegalengdum milli staða. 4. Þeir borgi sem kostnaðinum valda. Gjaldfrí bílastæði? Árni Davíðsson fjallar um gjaldtöku fyrir bílastæði ’Ef vel ætti að vera ættigjaldtaka fyrir bílastæði að standa undir gerð, rekstri, viðhaldi og kostnaði við landið und- ir stæðunum.‘ Árni Davíðsson Höfundur er líffræðingur. ÉG ER ein þeirra fjölmörgu sem finnst gott að fá mér léttvíns- glas öðru hvoru, jafn- vel á virkum degi. Þetta finnst mér eðli- legt þó að ég viti að neysla áfengis er best í hófi. Ég tengi þó ekki léttvín við neitt slæmt. Ég set léttvín í sam- hengi við góðan mat, ljúfa tónlist, bækur, af- slöppun og rómantík. Þó virðist þetta hegð- unarmynstur mitt ekki vera öllum að skapi. Sumir af eldri kynslóð- inni reka upp stór augu þegar ég bíð þeim upp á rauðvín á þriðjudagskvöldi, roðna svolítið og lauma að mér það er ekki einu sinni helgi. Þessi hugs- unarháttur virðist ráða ríkjum þegar kemur að áfengisstefnu hins opinbera. Þar er öll neysla áfengis álitin slæm. Þetta er viðhorf sem við getum ekki verið sammála. Við get- um ekki verið sammála því að heild- armagn seldra áfengislítra á ári sé einhver mælikvarði á áfengisvanda- mál. Frá því að sala á bjór var gefin frjáls árið 1989 hefur neyslumynstur Íslendinga á áfengi batnað. Neysla áfengis hefur færst frá sterkum drykkjum yfir í léttvín og bjór. Áður fyrr ráku menn upp stór augu ef opnuð var vínflaska með mat, en í dag er léttvín mörgum nauðsynlegur þáttur að njóta með góðri máltíð. Rannsóknir hafa einnig sýnt aukna hófdrykkju hér á landi. Hið aukna frjálsræði með komu bjórsins hefur fært okkur heilbrigðari áfeng- ismenningu. Það er aðalatriðið. Gleymum því ekki að á Íslandi var mikil andstaða við að aflétta því frá- leita banni á sínum tíma. Gjarnan gleymist þegar rætt er um áfengisdrykkju að neysla léttvíns og bjórs í hóflegu magni getur haft góð áhrif á heilsufar. Hófleg vín- drykkja getur m.a. dregið úr öldr- unareinkennum, bætt lungna- starfsemi, bætt æðakerfi aldraðra og styrkt bein. Hófleg neysla dregur einnig úr líkum á hjartasjúkdómum, magasári, krabbameini og blóð- tappa. Þessi þankagangur hefur leitt til þess að forvarnir snúast að- allega um að telja ungt fólk á að drekka alls ekki því áfengið er svo mikið böl. Sjaldan er gerð minnsta tilraun til að gera greinarmun á heilbrigðri og óheil- brigðri áfengisneyslu. Ungu fólki er því ekki kennt hvernig ber að meðhöndla áfengi á eðli- legan hátt. Foreldrar veigra sér jafnframt við að kenna unglingum að fara með áfengi með því væru þeir að ýta undir neyslu. Þetta viðhorf er skaðlegt. Til að fólk fari hóflega með vín er lausnin ekki að tak- marka aðgang að áfeng- inu, heldur að ýta undir heilbrigðar neysluvenj- ur. Það er ekkert snið- ugt að drekka áfengi ef aðilar vita ekki hvernig skal neyta þess í hófi. Lausnin er ekki að takmarka að- gang að áfengi, hafa vöruverð sem hæst eða benda einungis á skaðsemi áfengisdrykkju. Heldur þarf að efla fræðslu og stuðla þannig að bættu neyslumunstri. Eins og Ronald Reagan komst að orði. Ríkisvaldið er til þess að vernda okkur hvert fyrir öðru, ekki fyrir okkur sjálfum. Óhófleg áfengisneysla hefur skað- að marga, hér sem annars staðar. Þau höft sem sett eru á sölu þess eru hins vegar ekki að draga úr þessum vandamálum heldur að gera þau verri. Á Íslandi er algengt að ungt fólk kaupi sér léttvín og bjór eftir áfengisprósentu – því hærri, því betra. Þessi hegðun er einhver besta sönnun þess að áfengisstefnan á Ís- landi er á villigötum. Það er kominn tími til að léttvín og bjór verði seld í matvörubúðum og áfengisgjaldið verði lækkað. Við hvetjum þingmenn til að setja þetta mál á dagskrá. Það er kominn tími til að gera breytingar. www.engavitleysu.is Leyfum léttvíns- sölu í matvöru- verslunum Helga Kristín Auðunsdóttir hvetur til frjálsræðis í áfengismálum Helga Kristín Auðunsdóttir ’Það er kominntími til að léttvín og bjór verði seld í mat- vörubúðum og áfengisgjaldið verði lækkað.‘ Höfundur er formaður félags um bætta vínmenningu. VOR 2005 Sölustaðir: sjá www.bergis.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.