Morgunblaðið - 05.04.2005, Page 24

Morgunblaðið - 05.04.2005, Page 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN NÝLEGA birtust í fjölmiðlum tölur varðandi áhættu Íslendinga á að greinast með lungnakrabbamein vegna óbeinna reykinga. Þar var áætlað að líkurnar væru 1 af 50.000. Í fljótu bragði gæti þetta virst lítil áhætta, en miðað við að þetta séu árlegar líkur væri um að ræða 6 manns á ári þar sem hér búa um 300.000 manns. Í framhaldi af þessari umræðu verður hér fjallað um mat á því hve margir veikist og deyi árlega af þessum sökum. Fyrst skal bent á yfirgripsmikla samantekt um tengsl beinna og óbeinna reykinga og lungna- krabbameins í riti Alþjóðlegu rannsóknarstofnunarinnar í krabbameinsfræðum (IARC) og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar- innar (WHO) frá árinu 2004. Þar kemur fram að enginn vafi leikur lengur á því að óbeinar reykingar valda raunverulegri og umtals- verðri aukningu á krabbameins- áhættu. Einnig hefur verið sýnt fram á þessi tengsl með líf- fræðilegum rann- sóknum, en krabba- meinsvaldandi efni úr tóbaksreyk mælast í þvagi fólks sem ekki reykir ef það verður fyrir óbeinum reyk- ingum. Með aðferðum far- aldsfræðinnar er hægt að reikna út það hlut- fall lungnakrabba- meins sem rekja má hér á landi til óbeinna reykinga (population attributable risk per- cent). Þrjár forsendur liggja til grundvallar útreikningunum. Í fyrsta lagi þarf að þekkja áhættu- aukninguna, en hún er áætluð vera 30% vegna reykinga á heimilum og 20% á vinnustöðum. Í öðru lagi þarf mat á því hversu stór hluti þeirra landsmanna sem reykja ekki sjálfir verður fyrir óbeinum reykingum, en talsverð óvissa er um þá forsendu. Í þriðja lagi þarf tölur um það hversu margir veikj- ast hér árlega af lungnakrabba- meini, en samkvæmt upplýsingum frá Krabbameinsskránni eru það að meðaltali 115 manns. Ef við reiknum með að 15% fullorðinna verði fyrir óbeinum reykingum á heimilum sínum og 10% á vinnu- stöðum fæst sú niðurstaða að 4,3% árlegs nýgengis (4,9 einstaklingar) skýrist af reykingum á heimilum og 2% árlegs nýgengis (2,3 ein- staklingar) skýrist af reykingum á vinnustöðum. Miðað við þá for- sendu fá því rúmlega 7 manns ár- lega lungnakrabbamein vegna óbeinna reykinga á Íslandi. Vegna óvissu um það hversu stór hluti þjóðarinnar verður fyrir reykingum annarra er fremur ólík- legt að niðurstaðan hér að ofan sé nákvæm. Vel getur verið að hlut- fall reykinga á heimilum og vinnu- stöðum sé orðið lægra en 15% og 10%. En myndunartími lungna- krabbameins er um 15–20 ár og því eru það reykingavenjur liðinna áratuga sem skýra núverandi ný- gengi reykingatengdra krabba- meina. Þar sem reykingar á heim- ilum og vinnustöðum voru mun algengari fyrir nokkrum áratugum þyrfti í útreikningum að miða við talsvert hærra hlutfall en það sem við á nú. Hið sama gildir ef reynt er að yfirfæra tölur frá öðrum löndum á Ísland, að mest óvissa er um það hversu sambærileg löndin eru með tilliti til þess hve stórt hlutfall þjóðarinnar verður fyrir óbeinum reykingum. En með þeim fyrirvara er samt athyglisvert að skoða ný- legar breskar tölur varðandi heild- arfjölda einstaklinga sem deyja vegna óbeinna reykinga af völdum hjarta- og æðasjúkdóma og lungnakrabbameins. Þessar tölur birtust 2. mars síðastliðinn í grein í læknaritinu British Medical Journal, en þar var áætlað að 11.300 manns deyi árlega í Bret- landi vegna reykinga annarra. Þetta svarar til þess, miðað við mannfjölda á Íslandi, að 56 Íslend- ingar látist á ári vegna reykinga annarra, þar af 16 manns á aldr- inum 20–64 ára. Þótt útreikningar sem þessir geti aldrei orðið nákvæmir gefa þeir nokkuð góðar vísbendingar og ekki þarf að fara í grafgötur með það að á hverju ári deyja ennþá margir Íslendingar vegna reykinga annarra. Jafnframt er það vitað, að eftir því sem dregur úr reykingum dregur jafnt og þétt úr sjúkdóm- um og dauðsföllum vegna reyks frá öðrum. Loks er það alkunna að mikill fjöldi fólks, sérstaklega ung- menna, sækir reglulega veitinga- hús og skemmtistaði eða stundar þar vinnu og kemur þaðan út reyk- mettaður. Þessir staðir hljóta í dag að vera helsta uppspretta sjúk- dóma og dauðsfalla af völdum reykinga hjá þeim sem hafa valið að reykja ekki, en um 80% ein- staklinga á aldrinum 18–69 ára eru í þeim hópi. Hversu margir Íslendingar deyja árlega vegna reykinga annarra? Laufey Tryggvadóttir fjallar um óbeinar reykingar ’…ekki þarf að fara ígrafgötur með það að á hverju ári deyja ennþá margir Íslendingar vegna reykinga ann- arra.‘ Laufey Tryggvadóttir Höfundur er framkvæmdastjóri Krabbameinsskrár Krabbameins- félags Íslands. NÚ UM stundir er mikið talað um styttingu náms til stúdentsprófs. Á heimasíðu minni er töluvert efni tengt þeirri ákvörðun. Nú hafa menn horft í aðrar áttir og það niður á grunnskólann. Menn sjá þar sóknarfæri þar sem grunn- skólinn hefur verið lengdur um tvö ár. Í bókhaldi er þessi staðhæfing rétt, en í fræðinni röng. Þegar togað er í stystu end- anna, þ.e. 7 1⁄2 mánaða skólanna og gert ráð fyrir að allir skólar landsins nái yfir 180 nemendadaga næst 72 vikna aukning. En þessi aukning er gerð á tíu árum svo í stað lengjunnar erum við með tíu rúnstykki. Í þessari grein ætla ég ekki að upptelja viðbætur en vísa í samanburð á aðalnámskrá grunn- skólans árið 2001 og 1991. Þá sjá menn væntanlega að viðbætur s.s. námsefni og námsgreinar þekja meir en 7,2 vikna lengingu á ári. Því skal í upphafi varað við þeirri kenningu að hægt sé að bæta nýt- inguna á grunnskólanum eða m.ö.o. auka hraðann á menntabandinu um 20%.(1) Fjölþarfa- eða kennitöluskóli Í Netlu, vefriti rannsóknarstofn- unar KHÍ, skrifar Hreinn Þorkels- son skemmtilega grein. Eins og nafnið ber með sér skilgreinir Hreinn fjölþarfakennslu, kennslu miðað við þarfir einstaklingsins, þ.e. einstaklingsmiðað nám, en kenni- tölukennsla er miðuð við að allir á sama ári séu í sama bekk og sams- konar námi. En bíðum við. Er hægt að hræra saman eftirfarandi uppskrift: 50% aukning á einstaklingsmið- uðu námi 30% viðbót vegna skóla án að- greiningar 20% samþjappað grunnskólanám Nei! Útkoman er ekki 100% grunnskóli. Með sanngirni væri hægt að tala um 60% grunnskóla. Ef það er rétt er verið að gjaldfella grunnskólann um 40%. Hvað á að gera við krógann? Hugmyndin um styttinguna kom fram 2001. Fjölmargir voru til kall- aðir og skýrslur hlóðust upp. Smátt og smátt gerðu menn sér grein fyrir því að þetta var flóknara en að stytta pils. Þeir sem minnstu yfirsýn höfðu (sbr. orð Þorg.Gunn) töldu að allar þessar styttingar væru nú þegar innbyggðar í núverandi kerfi. Og ég er víst einn af þessum afdalabúum. En þá tók Einbjörn að toga í Tvíbjörn. Ef þetta er ekki hægt á framhalds- skólastigi hvað þá með grunnskólastigið? Ég var staddur á rauðu ljósi og frétta- tíminn í útvarpinu. Þar kom einn sérfræðing- urinn og tjáði lands- mönnum að lausnin væri fundin. Hún væri í samþjöppun náms á miðstigi grunnskólans. Þetta var í fyrsta skipti sem ég heyrði þessa lausn og svo var með allmarga, sérlega kennara á mið- stigi. Ég ók næstum upp á umferð- areyju. Um miðjan mars 2005 voru þeir stjórnmálamenn sem tjáðu sig um námskrá grunnskólans í fyr- irspurnatíma á Alþingi sammála um að sóknarfærin væru í grunnskól- anum.(2) Svo langt gekk þetta að mennta- málaráðherra hrósaði þingmönnum fyrir að sjá ljósið og boða fagnaðar- erindið. Fyrir mér er þetta líkt og þegar skrattinn fór að skapa. Úr því varð hárlaus skepna sem Lykla-Pétur aumkaði sig yfir og gaf feld. Þannig varð til köttur (Þjóðsögur Jóns Árnasonar). Menn töldu að með lengingu grunnskólans mætti auka fjöl- breytni og valmöguleika námsins. Svo er ekki. Ef viðmiðunar- stundatöflur (3) grunnskóla eru skoðaðar á að kenna í efstu bekkj- unum 37 kest. Á viku. Flestir skólar skipta þessum stundum í kjarna og val. Í kjarnanámi í dag eru flestir skólar með 29 kest. í kjarna og þar með ekki nema 8 valkvæðar kennslustundir. Yfirleitt er helming- urinn svokallað bundið val, þ.e. bundið við grunnnám í bóknáms- greinum. (4) Ef á að þjappa í grunn- skólanum er ljóst að vægi bóknáms mun enn aukast en verk- og list- greinar sitja á hakanum. Vonandi telst ég hafa reist nokkr- ar stoðir (eða spjót) gegn boðun fagnaðarerindisins. Hitt er svo fróðleg yfirlýsing að efnislega sagði menntamálaráðherr- ann (aðspurð af JG) að breytingin kosti ekki neitt. (2) Hvað gera Danir þá? Óþarfi er fyrir þjóð mína (lesist sem embættismenn m.m.rn.) að finna upp hjólið. Þróunin þar er á þann veg að æ fleiri nemendur fara í svokallaðan 10. klasse eftir grunn- skólanám. Danir telja nefnilega með gamla laginu og efsti bekkur grunn- skólans er sá níundi. Þeir bera fyrir sig þá röksemd að margir telja sig ekki hafa þroska og vilja styrkja sig og hæfileika sína. Þá nefna þeir einnig að slík festa dragi úr brottfalli og nemendur öðlist meiri stefnufestu. Svo sé þessi 10. bekkur sú brúarfesta sem tengi skólastigin. Að svo mæltu er ljóst að ég vara (stjórnmála)menn við þeirri hug- mynd að hægt sé með tiltölulega ein- földum (og kostnaðarlausum) hætti að krukka í viðkvæman íslenska grunnskólann. Hann er jafn við- kvæmur og íslenski gróðurinn. ---------- (1) Netla Veftímarit um uppeldi og menntun : Hreinn Þorkelsson Hvort viljum við fjölþarfa- eða kennitöluskóla? (14.mars 05) (2) Alþingistíðindi 16.mars: Fyr- irspurn um námskrá (BGS) (3) Aðalnámskrá grunnskóla (m.m.rn. 2003) (4) Ingólfur Ármannsson: Könnun á valgreinum grunnskóla (2003) Er hægt að auka hrað- ann á skólafæribandinu? Gísli Baldvinsson fjallar um breytingar á námi til stúdentsprófs ’Þeir bera fyrir sig þáröksemd að margir telja sig ekki hafa þroska og vilja styrkja sig og hæfi- leika sína.‘ Gísli Baldvinsson Höfundur er námsráðgjafi. KAUPMAÐURINN: Góðan dag, get ég aðstoðað? Kúnninn: Ég ætla að fá einn sígarettupakka, eina kók og eina pylsu með öllu. Kaupmaðurinn (skömmu síðar): Gjörðu svo vel, það verða 860 krónur. Kúnninn: Hér er kortið. Kaupmaðurinn: Áttu ekki lög- mæta peninga, ég get ekki hugsað mér að vera innheimtumaður fyrir gráðuga milli- liði? Kúnninn: Er þetta ekki lögmætt? Kaupmaðurinn: Lögmætir peningar eru áritaðir af Seðla- banka Íslands. Kúnninn: Það taka allir kort, ég er ekki með neitt annað. Kaupmaðurinn: Hvað viltu gera? Kúnninn: Þetta er þitt vandamál. Kaupmaðurinn: Má ég spyrja þig einnar spurningar? Kúnninn: Já. Kaupmaðurinn: Ef þú værir staddur í rauða hverfinu í Hamborg, myndir þú þá álykta að allar konur væru hórur? Ég er ekki hóra fyrir bankakerfið. Í land- inu er peninga- hagkerfi og það veistu vel. Kúnninn (áttar sig): Ég biðst af- sökunar. Ég skal fara í næsta hraðbanka og sækja peninga. Kaupmaðurinn: Þakka þér fyrir, ég skal treysta þér. Greiðslukort eru kolólögleg Viðskipti eiga ekki að fara fram eins og lýst var í tragedíunni hér á undan og þau þurfa ekki að gera það EF aðeins stjórnvöld taka á málunum. Viðskipti með greiðslu- kortum hvort heldur þau heita debet eða kredit eru kolólögleg í núverandi mynd. Þarna eru á ferðinni stærstu, mestu og alvar- legustu brot á samkeppnislögum sem hægt er að hugsa sér. Sam- keppnislögum er m.a. ætlað að koma í veg fyrir skaðlegt samráð og samstarf aðila á markaði og efla og byggja upp markaðs- umhverfi þar sem heiðarleg sam- keppni ríkir. Viðskipti með greiðslukortum byggist hins vegar á miðstýrðu sósíölsku kerfi þar sem allar færslur renna í einn farveg um Reiknistofu bankanna og er stjórnað af öllum bönkunum sameig- inlega, með ólögmætu samráði og samstarfi. Auk þess fer þessi starfsemi fram í sam- starfi og samráði með tveimur erlendum auðhringum þ.e. Visa International og Mast- erCard. Ekki er að efa að báðir þessir aðilar þiggja síðan drjúga þóknun fyrir „störf“ sín hér á landi þ.e. þóknun af flestum við- skiptum Íslendinga yfir borðið. „Ekki veitir af að styrkja Sám frænda í stríðs- rekstri hans og lýð- ræðisbaráttu um heim allan.“ Að planta miðstýrðu sósíölsku fyrirbæri inni í miðju markaðs- hagkerfi er álíka fá- ránlegt og að stað- setja sjálfan skrattann í himnaríki. Það verður að brjóta upp mið- stýringuna, samstarfið og samráð- ið innan bankakerfisins og greiðslukortafyrirtækjanna og koma þessu kerfi í eðlilegt og heiðarlegt markaðsumhverfi sem byggist á samkeppnislögum þar sem samkeppni ríkir milli aðila. Slíkt verður ekki gert nema við- skiptaráðuneyti og samkeppnisyf- irvöld geri viðeigandi ráðstafanir og stöðvi lögbrotin. Rauða hverfið í Hamborg Sigurður Lárusson fjallar um kreditkort og notkun þeirra Sigurður Lárusson ’Að planta mið-stýrðu sósíölsku fyrirbæri inni í miðju markaðs- hagkerfi er álíka fáránlegt og að staðsetja sjálfan skrattann í himnaríki.‘ Höfundur er kaupmaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.