Morgunblaðið - 05.04.2005, Side 39

Morgunblaðið - 05.04.2005, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 39 FRÉTTIR ÍSAFJARÐARBÆR og Ec Hug- búnaður ehf. skrifuðu undir samn- inga á Ísafirði 1. apríl þess efnis að Ec Hugbúnaður ehf. taki að sér þró- un og smíði umfangsmikilla vef- lausna fyrir bæjarfélagið. Um er að ræða nýtt þjónustu-, ferða- og stjórnsýsluveftorg knúið með vef- umsjónarkerfinu ecWeb. Ec Hugbúnaður mun sjá um þarfagreiningu vegna smíði vef- torgsins, alla útlitshönnun ásamt verkefnisstjórn í samvinnu við Ísa- fjarðarbæ. Hugmyndin er að í fyrsta áfanga fari upp nýr heild- arvefur Ísafjarðarbæjar en í fram- haldinu verði settir upp vefir fyrir allar undirstofnanir, skóla og leik- skóla. Á sama tíma skrifaði Ec Hug- búnaður ehf. undir viðskiptasamn- ing við Netheima ehf. á Ísafirði sem munu taka að sér alla þjónustu við veflausnir Ísafjarðarbæjar. Áhersla verður lögð á að gera starfsemi bæjarins sýnilega í nýju veftorgi og miðla þannig upplýsing- um beint út á vefinn úr innri kerfum bæjarfélagsins. Til þess verða not- aðar staðlaðar vefþjónustur í ec- Web. Þetta leiðir til þess að gögn munu flæða sjálfkrafa úr bókhalds- og skjalastjórnunarkerfum út á vef- inn og inn á lokuð trúnaðarsvæði þegar hentar. Þá verður rík áhersla lögð á að allar umsóknir um þjónustu og at- hugasemdir geti borist beint í gegn- um form á vefnum og fari með skil- virkum hætti í innri kerfi bæjarins til meðhöndlunar og afgreiðslu. Með þessu er þjónusta aukin og bæj- arbúum gert mögulegt að taka skil- virkari þátt en áður í beinum um- ræðum um málefni bæjarins. Með nýju veftorgi Ísafjarðar er áformað að setja upp veflæga gagnagátt fyr- ir einstaklinga en sérhæfðar vef- þjónustur í ecWeb verða þá nýttar til að sækja gögn sjálfkrafa í innri kerfi bæjarins sem snerta hvern íbúa. Þessi gögn verða birt í sér- stökum „einkasíðum“ eða svokölluð- um „mínum síðum“ bæjarbúa þar sem þeir geta stillt eigið útlit og við- mót og nálgast upplýsingar um greiðslustöðu og annað sem víkur að þeirri þjónustu sem bærinn veitir hverjum íbúa persónulega. Þessar síður verða lokaðar og háðar rétt- indum. Í nýjum vef frá Ec Hugbúnaði verður einnig unnið að því að tengja innri skjala- og þekkingarkerfi bæj- arins við vefinn en með því á að veita starfsmönnum og einstakling- um í trúnaðarstörfum betri aðgang að upplýsingum sem varða rekstur bæjarins. Ljósmynd/Hálfdán Bjarki Hálfdánarson Frá handsali samninga: Magnús Hávarðarson frá Netheimum ehf., Jón Örn Guðbjartsson, markaðsstjóri Ec Hug- búnaðar, og Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Ísafjarðarbær og Ec Hug- búnaður semja um veflausnir VILHJÁLMUR Ari Arason fjallar um miðeyrnabólgu í íslenskum börnum í grein sem birtist sl. laug- ardag. Með greininni átti að fylgja súlu- rit sem sýnir tíðni röraísetninga hjá íslenskum börnum í samanburði við önnur lönd. Súluritið birtist hér um leið og beðist er afsökunar á mistökunum. LEIÐRÉTT „Rörabörnin“ á Íslandi FERÐAMÁLARÁÐ Evrópu (ETC) hefur undanfarin ár unnið að frekari þróun svonefndrar Evr- ópugáttar, sem starfrækt hefur verið á vefslóðinni www.visiteu- rope.com, en henni var upphaflega ætlað að markaðssetja Evrópu sem áfangastað fyrir bandaríska ferðamenn. Gert er ráð fyrir að uppfærð gátt verði tilbúin til notkunar í haust, en hinni nýju gátt verður einnig beint til neytenda í Asíu. Þannig geta milljónir neytenda nálgast gáttir allra þrjátíu og þriggja landa í Evrópu í gegnum eina vefgátt, þar á meðal gátt Ís- lands. Í grein Magnúsar Oddssonar, ferðamálastjóra á vefsíðu Ferða- málaráðs, segir að ljóst sé að Ís- lendingar verði að taka ákvörðun um hvort þróa skuli gátt Íslands þannig að neytendur geti fundið þar „heildarlausn“ sem bjóði m.a. upp á bókanir og fleira. Evrópugáttin opnast brátt ÞAÐ VAR margt um manninn í Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum þegar Höttur sigraði Val í körfunni sl. sunnudagskvöld. Sjaldan hafa jafnmörg skópör staðið yfirgefin af eigendum sínum um stundarsakir á þessu gólfi og víst lentu einhverjir í því að pör höfðu aðskilist og lent tvist og bast í skóhafinu. Rúmlega hálft þúsund manna var í íþrótta- húsinu að hvetja Hött, sem stóð undir væntingum og burstaði Val. Svo mikil var gleðin að Hattarar skutu upp flugeldum að leik lokn- um utan við íþróttahúsið. Enda ekki að furða, þar sem þetta er í fyrsta skipti sem lið af Austurlandi kemst upp í úrvalsdeild í körfuknattleik. Tiplað í skóhafinu Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir DREGIÐ hefur verið úr sendum svörum í leik www.seeglasgow- .com sem auglýstur var í Morg- unblaðinu 18. mars sl. Vinningur var helgarfrí fyrir tvo í Glasgow. Vinningshafi er: Sveinbjörg Ei- ríksdóttir, Frostafold 14, Reykja- vík. Vinningshafi í Glasgow-leik FRJÁLSHYGGJUFÉLAGIÐ hefur sent frá sér ályktun þar sem það mótmælir harðlega hugmyndum um breyt- ingar á fjar- skiptalögum þar sem lagt er til að ekki megi nota nafn- laus síma- númer og að fjarskiptafyr- irtækjum verði skylt að halda skrá um notendur tiltekinna auðkenna, símanúmera, IP-talna og notenda- nafna. Í ályktun félagsins kemur fram að það telur þessa breytingu fela í sér harkalegt brot á friðhelgi einkalífsins. „Frelsisskerðingin er réttlætt með rannsóknarhags- munum. Slíkir hagsmunir mega aldrei vera teknir fram yfir lág- marksréttindi fólks til friðhelgi einkalífs,“ segir í ályktuninni. Felur í sér brot á friðhelgi einkalífsins FUNDUR verður haldinn næstkom- andi laugardag um vernd og nýtingu Arnarvatnsheiðar. Fer hann fram í félagsheimilinu Ásbyrgi við Laugar- bakka í Miðfirði og hefst klukkan 13. Fundurinn hefst með því að deili- skipulag verður kynnt. Síðan fjallar Árni Bragason, forstöðumaður nátt- úruverndarsviðs Umhverfisstofnun- ar, um friðlýsingarflokka og náttúru- verndaráætlun, Þorsteinn Sæmundsson, forstöðumaður Nátt- úrustofu Norðurlands vestra, ræðir um möguleika á fuglaskoðun á svæð- inu og Sigrún Valbergsdóttir, leik- stjóri og gönguleiðsögumaður, ræðir um Arnarvatnsheiði sem ónumið land og fjársjóð fyrir útivistarfólk. Eftir kaffihlé segir Hafsteinn Helgason, verkfræðingur hjá Línu- hönnun, frá valkostum og umhverfis- áhrifum hálendisvega, Arnbjörn Jó- hannsson ferðaskipuleggjandi segir frá reynslu af göngu- og hestaferð- um um Arnarvatnsheiði, Bjarni Jónsson, frá Norðurlandsdeild Veiðimálastofnunar, segir frá mögu- leikum í silungsveiði og útivist og Helgi Hjörvar alþingismaður er síð- astur fyrirlesara og ræðir um þings- ályktunartillögu um verndun Arnar- vatnsheiðar. Í lokin verða síðan almennar umræður. Áhugasamir eru beðnir að skrá sig á netfangið gudrun@anv.is og er ráðstefnugjald 1.000 krónur. Málþing um vernd og nýtingu Arnarvatnsheiðar SKIPULAGSSTJÓRI Skotlands, Jim Mackinnon verður staddur á Ís- landi í byrjun apríl og mun halda erindi á vegum Skipulagsstofnunar fimmtudaginn 7. apríl kl. 15.30–17, á Grand Hóteli, Sigtúni 3, Reykja- vík. Jim Mackinnon lauk prófi í landafræði frá Strathclydeháskóla í Glasgow árið 1974 og prófi í skipu- lagsfræðum frá sama skóla árið 1977. Jim hefur verið yfirmaður skipulags- og byggingarskrifstofu skosku heimastjórnarinnar (Scott- ish Executive) frá árinu 2000. Hann mun í erindi sínu fjalla um hlutverk skipulagsskrifstofunnar í skipu- lagskerfinu í Skotlandi og um landsskipulagsstefnu fyrir Skot- land. Skipulagsskrifstofa Skotlands sér um framkvæmd skosku skipu- lagslaganna og veitir ráðgjöf og leiðbeiningar um skipulagsmál. Skrifstofan fer yfir og samþykkir aðalskipulagsáætlanir sveitarfélag- anna og eru leyfisveitingar í stórum og mikilvægum skipulags- málum einnig í höndum skrifstof- unnar, segir í fréttatilkynningu. Skipulagsstjóri Skotlands í heimsókn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.