Morgunblaðið - 05.04.2005, Page 47

Morgunblaðið - 05.04.2005, Page 47
BANDARÍSKA hljómsveitin Isis kemur til landsins og heldur tónleika í tónleikasal Tónlistarþróun- armiðstöðvarinnar, Hellinum, Hólmaslóð 2. Tónleikarnir eru í til- efni sex ára afmælis harðkjarnave- fjarins dordingull.com. Kimono og Drep hita upp fyrir sveitina og hefj- ast tónleikarnir kl. 20. Isis er frá Boston í Massachus- setts-ríki. Sveitin sendi frá sér fyrstu skífu sína, Celestial, árið 2000, en þá var tónlist hennar lýst sem „elektrónískri metal-leðju“ í anda Neurosis og Godflesh. Nýjasta platan, Panopticon, sú sjötta í röðinni kom út í fyrra. Fékk hún mikið lof hjá gagnrýnendum og kom við sögu á fjölda lista yfir bestu plötur ársins. Þykir platan vera tölu- vert stökk í stíl hjá sveitinni. Tónlist- in þykir meira „svífandi“ og jafnvel melódísk á köflum. Kunnugir telja sumir að nú sé frekar hægt að líkja Isis við Godspeed You Black Emperor en Neurosis. Meðlimir Isis eru Jeff Caxide bassaleikari, Aaron Turner, gít- arleikari og söngvari, Aaron Harris trommuleikari, Michael Gallager gítarleikari og Bryant Meyer hljóm- borðsleikari, gítarleikari og söngv- ari. Tónlist | Dordingull.com fagnar 6 ára afmæli í apríl Isis til Íslands Hljómsveitin Isis þykir með mest spennandi rokkböndum nú um mundir. Nýr og betriHverfisgötu ☎ 551 9000 553 2075 - BARA LÚXUS ☎  J.H.H. kvikmyndir.com  SV mbl Will Smith er Sýnd kl. 8 og 10.30  S.V. Mbl. Sýnd kl. 6 m. íslensku tali 400 kr. í bíó!*  Kvikmyndir.is. HÆTTULEGASTA GAMANMYND ÁRSINS I R E E S E W I T H E R S P O O N Stjarnan úr Legally Blonde og Sweet Home Alabama í yndislegri mynd. VANITY THE SUMPTUOUS NEW FILM FROM MIRA NAIR Sýnd kl. 8 og 10.30  S.V. MBL.  K&F X-FM Sýnd kl. 8 og 10.30 B.i. 16 Eileen Atkins, Jim Broadbent, Gabriel Byrne, Romola Garai, Bob Hoskins, Rhys Ifans, James Purefoy, Jonathan Rhys Meyers  FRAMHALDIÐ AF GET SHORTY Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 14 ára.  ÓÖH DV    SK DV JET LI MORGAN FREEMAN BOB HOSKINS A FILM BY LOIS LETERRIER Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.10 B.I 16 ÁRA HÖRKU SPENNUMYND FRÁ SÖMU OG GERÐU LÉON OG LA FEMME NIKITA Hann var alinn upp sem skepna og þjálfaður til að berjast. Nú þarf hann að berjast fyrir lífi sínu! HÖRKU SPENNUMYND FRÁ SÖMU OG GERÐU LÉON OG LA FEMME NIKITA Hann var alinn upp sem skepna og þjálfaður til að berjast. Nú þarf hann að berjast fyrir lífi sínu! Sýnd kl. 6 m. íslensku taliSýnd kl. 8 og 10.10 400 kr. í bíó!* * Gildir á allar sýningarmerktar með rauðu JET LI MORGAN FREEMAN BOB HOSKINS A FILM BY LOIS LETERRIER Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 14 ára. Sýnd kl. 6 með íslensku tali  S.V. MBL ÓÖH DV  K&F X-FM  Ó.H.T Rás 2      MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 47 Hverjir skipa sveitina? Arnar - trommur Orri - gítar Steingrímur - bassi Jón Þór - gítar (öfug aldursröð). Hver er heimspekin á bak við hljómsveitina? Hugsunin á bak við hljómsveitina var að búa til póstmóderníska hljómsveit með það mark- mið að skapa og spila tónlist okkur sjálfum til dægrastyttingar, skemmtunar og unaðar. Ann- ars erum við ekkert sérlega heimspekileg hljómsveit. Ef við verðum að svara þessari spurningu á heimspekilegan hátt segjum við bara: „Við erum, þess vegna spilum við.“ Hvenær var hún stofnuð og hvernig atvikaðist það? Þetta byrjaði með fikti haustið 2001. Hljóm- sveitin hefur starfað óslitið síðan, en þó með hléum. Hvaða tónlistarmenn eru hetjur ykkar? Addi: Botnleðja og Simone Pace. Jón Þór: Damon Albarn og Kolbeinn Hugi Höskuldsson. Steingrímur: Nobuo Uematsu, L’Arc en ciel, Guitar Wolf. Orri: Addi, Jón Þór og Steingrímur. Hvað finnst ykkur um íslenska tónlist í dag? Í stuttu máli er hún æðisleg. Það er slatti af ungum böndum sem við höfum kynnst og eru að gera hreint út sagt magnaða hluti. Þessar sömu ungu hljómsveitir gera líka framtíðarsýn ís- lensks tónlistarlífs mjög bjarta. Getum nefnt sem dæmi Mammút, Lödu Sport, Big Kahuna, Bob, Coral, Benny Crespo’s Gang, Ókind, Maln- eirophrenia, Astara, Future Future, Stafrænt Megabæt, Dodda og Þóri (erum því miður örugglega að gleyma einhverjum). Þetta eru allt ungar hljómsveitir sem eru þegar mjög góðar og verður gaman að fylgjast með í framtíðinni. Er auðvelt að fá að spila á tónleikum? Þegar maður er kominn inn í senuna og far- inn að læra inn á hvernig tónleikahald gengur fyrir sig þá er frekar auðvelt að fá „gigg“. Það er náttúrlega alltaf svolítil vinna sem maður þarf að leggja á sig þegar maður skipuleggur sjálfur tónleika en það er oftast bara gaman af henni. Er auðvelt að gefa út? Útgáfan sjálf er bara smá pappírsvinna. Erf- iðasti hlutinn er líklegast að fjármagna upptök- urnar, masteringuna, fjölföldunina og alla toll- ana og skattana sem lagðir eru á. Segið eitthvað um lögin sem þið eruð með á Rokk.is. Við erum með þrjú lög á rokk.is. Eina tón- leikaupptöku, eina bílskúrsupptöku og eitt B- lag sem við tókum upp þegar við tókum upp plötuna okkar „Betty Takes a Ride“, sem kom út í fyrrasumar, en komst ekki á sjálfa plötuna. Við erum líka með fleiri tónleikaupptökur og demó á vefsíðunni okkar, theisidors.com. Hver er mesti gleðigosinn í sveitinni? Hann kemur fyrir í einu laginu okkar sem heitir „Klakar og krabbar“. Hann er samt frek- ar póstmódernískur. Hvað er á döfinni hjá ykkur? Við ætlum að beita öllum tiltækum brögðum til að komast í þáttinn hans Gísla Marteins. Arnar, Orri, Steingrímur og Jón Þór segjast vera póstmódernískir. FORSVARSMENN BBC hafa við- urkennt að þeir séu „afar vand- ræðalegir“ yfir því að hafa beðið um viðtal við Bob Marley – 24 árum eftir dauða þessarar goðsagnar reggítónlistarinnar. Marley lést úr krabbameini árið 1981, 36 ára að aldri. Ástæða viðtalsbeiðninnar var gerð heimildamyndar um þekkt- asta lag Marleys, „No Woman No Cry“. Starfsmaður stöðvarinnar sendi tölvupóst til Bob Marley- stofnunarinnar og þar kom fram að í tengslum við viðtalið þyrfti goð- sögnin að „eyða einum eða tveimur dögum með okkur“. Einnig sagði að þátturinn, sem ætti að vera klukkutíma löng heimildarmynd í svipuðum anda og stöðin hefði áður gert um Queen-lagið „Bohemian Rhapsody“, „myndi bara ganga upp með þátttöku Bobs Marleys sjálfs“. Í yfirlýsingu BBC segir að stofn- unin hafi verið beðin afsökunar og að starfsmenn hennar hafi tekið glappaskotinu „af afskaplegri góð- vild“. Þá segir: „Við erum aug- ljóslega mjög vandræðaleg yfir að hafa ekki gert okkur grein fyrir því að í bréfinu til Marley-stofnunar- innar var gert ráð fyrir að hann væri enn meðal vor. Þessi mistök urðu vegna þess að við sendum út mikinn fjölda fyr- irspurna og starfsmönnum sást yfir þessi setning í stöðluðu bréfi.“ BBC gerir vandræðaleg mistök Bað um viðtal við Bob Marley Reggímeistarinn liðni hefði eflaust hlegið sig máttlausan yfir glappa- skotum BBC. FYRSTA Hljómsveit Fólksins er Isidor, en Morgunblaðið velur Hljómsveit Fólksins á tveggja vikna fresti. Tilgangurinn er að kynna og styðja við grasrótina í íslenskri tón- list, en sífellt er að verða auðveldara að taka upp tónlist og fjölgar þeim mjög sem það stunda. Um leið er ákveðin hætta á að hæfi- leikaríkir tónlistarmenn týnist í fjöldanum. Isidor Hljómsveit Fólksins Hljómsveit Fólksins er í samstarfi við Rás 2 og Rokk.is, en hægt er að nálgast lengri út- gáfu af viðtalinu á Fólkinu á mbl.is. Þar eru einnig tenglar á þrjú lög sveitarinnar sem geymd eru á Rokk.is. Lag með Isidor verður spilað í dag í þætti Ólafs Páls Gunnarssonar á Rás 2, Popplandi, sem er á dagskrá kl. 12.45– 16.00 virka daga. Morgunblaðið/Þorkell

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.