Morgunblaðið - 22.04.2005, Side 2

Morgunblaðið - 22.04.2005, Side 2
Loftmynd af svæðinu þar sem Brimborg hefur keypt lóð á Dalvegi. B reyta þarf aðal- og deiliskipu- lagi áður en leyfi verður veitt, verði það þá veitt. Fyr- irspurn Brimborgar var fyrst lögð fram 19. október sl. haust, en var endurnýjuð 1. febrúar sl. og loks 5. apríl. Skipulagsnefnd hefur á öllum fundunum tekið jákvætt í beiðni Brimborgar. Það hafa margir íbúar í nágrenni svæðisins hins vegar ekki gert og því til staðfestingar hafa þeir sent bréf til Kópavogsbæjar dagsett 8. mars sl. og fundað um mál- ið, m.a. með formanni skipulags- nefndar bæjarins. Við Dalveg 22 hefur verið sótt um leyfi til þess að byggja sjálfsaf- greiðslustöð fyrir eldsneyti á vegum Atlantsolíu á vesturhluta lóðarinnar og lauk kynningu fyrir lóðarhöfum 7. desember sl. Athugasemdir bárust frá Skeljungi en ekki frá íbúum þó þess hefði mátt vænta í samræmi við kvörtun þeirra vegna Dalvegar 32, sem er í næsta nágrenni. Brimborg hefur þegar keypt lóð- ina og sækir nú um breytingar á henni. Egill Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Brimborgar, segir að fyrirhugað hafi verið að byggja yfir sölu og starfsemi Citroën við Dalveg ásamt þjónustu við þá bílategund. Sala á Citroën-bílum hafi vaxið svo gríðarlega að ekki sé neitt pláss fyrir þá starfsemi í aðalstöðvum Brim- borgar við Bíldshöfða í Reykjavík. Sala á Citroën-bílum fer nú fram í bakhúsi á lóðinni við mikil þrengsli. „Áætlað er að selja um 500 bíla á þessu ári en salan var engin fyrir að- eins 5 árum. Við Dalveg er einnig hugmynd að vera með hraðþjónustu fyrir bíla, það sem við köllum MAX1- bílavaktin, en þar eru framkvæmdir ákveðnir þjónustuþættir fyrir bíla, s.s. olíuskipti, rafgeymaskipti, hjól- barðar, bremsur, þurrkublöð, perur, rúðuvökvi og demparar. Þarna eru engar tímapantanir, menn geta kom- ið fyrirvaralaust og það er fast verð á allri þessari þjónustu. Við erum með eina slíka stöð hér á Bíldshöfðanum og aðra á Akureyri. Við höfum ekki fengið nein svör varðandi beiðni okkar um að byggja þarna. Við þurfum að ganga gegnum ákveðið skipulagsferli og ég tel í raun að þetta gangi á eðlilegum hraða. Ég bjóst alltaf við að þetta tæki ákveðinn tíma en það tók Reykjavíkurborg um eitt ár að ganga frá stækkun lóðar- innar hér. Við erum því ýmsu vanir hér hvað varðar skipulagsmál. Ég get hins vegar ekki sagt að mótmæli íbúanna hafi komið á óvart, ég bjóst alltaf við einhverjum mót- bárum. Ég hef hins vegar ekki séð að byggingaáformum Atlantsolíu hafi verið mótmælt þótt þeir séu á svip- uðum slóðum og við. Sú þjónusta snýst þó einnig um bíla,“ segir Egill Jóhannsson. Skipulagsnefnd vill afla upplýsinga um þróun umferðar Gunnsteinn Sigurðsson, skóla- stjóri og formaður skipulagsnefndar Kópavogsbæjar, segir að það sé verið að vinna úttekt á umferðarmann- virkjum og umferðaræðum á svæð- inu milli Dalvegar og Reykja- nesbrautar. Sú vinna eigi m.a. að færa menn nær upplýsingum um þróun umferðar á þessu svæði til töluverðrar framtíðar. Á meðan sé ekki hægt að gefa Brimborg ákveðið svar við óskum um að fá að byggja á svæðinu. „Skipulagsnefnd samþykkti að halda fund með íbúum á nærliggjandi svæði áður en bréfið barst svo frá þeim þar sem bæjarfulltrúar voru krafðir svara, ýmist með jái eða neii, og mótmælt var þeim breytingum sem fyrirhugaðar eru á lóðinni. Eftir það var boðaður fundur að frum- kvæði íbúanna í hverfinu sem ég mætti á. Þeir kusu svo sérstakan stýrihóp til að hafa orð fyrir íbúunum og túlka þeirra skoðanir. Eitt áhyggjuefni íbúanna er vegna þeirrar tillögu sem fram er komin frá Brimborg, og hins vegar pirringur yfir þeirri umferð sem þegar fer um Dalveginn. Það liggur líka fyrir skipulags- nefnd beiðni um byggingu á sjálfs- afgreiðslubensínstöð á þessum reit, en engar kvartanir hafa borist frá íbúum nærliggjandi svæðis vegna hennar. Það á eftir að byggja hluta af Dalveginum og þar eiga eftir að rísa ný hús, m.a. á svokölluðum Húsa- smiðjureit, og þarna eru líka gömul og úr sér gengin hús sem ekkert bíð- ur annað en að vera rifin til að rýma fyrir nýrri og stærri húsum. Þau muna breyta heildarmyndinni. Auk þessa er gert ráð fyrir að Lindarveg- urinn austan Reykjanesbrautar tengist Mjóddinni, og það þarf að at- huga hvaða áhrif það hefur á umferð- armannvirki og byggingar sem rísa þarna í framtíðinni, m.a. að Dalvegi 32,“ segir Gunnsteinn Sigurðsson. Brimborg vill flytja hluta starfseminnar í Kópavog Pirringur vegna umferðar Teikning af svæðinu. Íbúar hafa mótmælt áformum Brimborgar en ekki Atlantsolíu. Skipulagsnefnd Kópavogsbæjar hefur í þrígang fjallað um beiðni bílaumboðsins Brimborgar um hvort leyfi fáist til að byggja atvinnuhúsnæði fyrir starfsemi Brimborgar á lóðinni á Dalvegi 32 þar sem gróðrarstöðin Birkihlíð er með starfsemi. Geir A. Guðsteinsson kannaði hvar málið er statt. 2 B FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ bílar Japan/U.S.A. STÝRISENDAR, SPINDILKÚLUR OG FÓÐRINGAR í jeppa í miklu úrvali Vagnhöfða 7 110 Reykjavík Sími: 517 5000 RXT er risapallbíll þar sem ökumaður situr jafnhátt og bílstjóri 18 hjóla trukks. Inter- national kom þó fæstum á óvart með þessum bíl því árið áður hafði fyrirtækið sýnt á sömu bíla- sýningu CXT-hugmyndapallbílinn sem er ennþá stærri og byggður á sama undirvagn og öskubíl- ar og steypubílar af International-gerð. CXT er nú kominn í framleiðslu og viðtök- urnar fóru fram úr björtustu vonum International-manna. Fyrirtækið bjóst við að selja einungis um 50 stykki af CXT en raunin varð sú að búið er að taka niður 200 pantanir sem verða til afhendingar í september nk. International væntir þess nú að selja á milli 500 og 1.000 CXT á árinu 2005. Grunnverð CXT er 93.000 dollarar, eða um 5,6 milljónir ÍSK, en með öllum búnaði er verðið komið upp í 115.000 dollara, rétt yfir 7 milljónir ÍSK. Góðar viðtökur CXT komu yfirmönnum International, sem renndu blint í sjóinn með þennan bíl, algjörlega í opna skjöldu. Þeir höfðu búist við því að afstaða manna til bílsins yrði sú að þarna væri á ferðinni stór atvinnubíll en raunin hafi orðið sú að CXT sé mun frekar nokkurs konar stöðutákn. Það eyðilagði síðan ekki fyrir sölunni að stjörnur á borð við leikarann Ashton Kutcher og körfuboltasnillinginn Jalen Rose keyptu slíka bíla og þáttarstjórnandinn Jay Leno brá sér í reynsluakstur. Eingöngu með dísilvélum Eins og vænta má er biðlisti eftir CXT sem er allt að fjórir mánuðir. Af þeim sökum ákvað Int- ernational að kynna strax RXT-pallbílinn á Chi- cago-sýningunni, eða mun fyrr en áætlað var. RXT, sem kemur á markað í haust, er byggður á sömu grind og notuð er í sendi- og dráttarbíla International. CXT og RXT eru báðir 6,55 cm á lengd eða aðeins um 5 cm lengri en Ford F-350 Crew Cab. Búist er við að verð á RXT í Banda- ríkjunum verði á bilinu 70–90.000 dollarar. Pallbílar International fást eingöngu með dís- ilvélum. Eigin þyngd RXT er um 5,3 tonn, eða um tveimur tonnum léttari en stóri bróðir, CXT. Hann getur borið um fimm tonn á pallinum á meðan CXT getur borið um sex tonn. Drátt- argeta RXT er síðan frá 9–12 tonn í samanburði við 17–22 tonn CXT. International sýndi líka tvo hugmyndabíla, risapallbíla, á bílasýningunni. Annar þeirra er MXT sem er um 10 cm lengri en Ford Excursion og Hummer H2. Hinn heitir ProjectXT og er með tveimur sól- lúgum og vindkljúf að aftan. Risapallbílar frá Inter- national CXT fékk betri viðtökur en við var búist. International sýndi líka hugmyndabílinn MXT. Kynningu á RXT var hraðað.Bandaríski vörubílaframleiðandinn Inter- national Truck sýndi óvenjulegan pallbíl af stærri gerðinni á bílasýningunni í Chicago nýlega. Sá heitir RXT og í samanburði við hann er Hummer H2 dvergvaxinn. EINN af vorboðunum er þegar Happdrætti DAS til- kynnir bílavinninga í happdrætti sínu. Í fyrra varð happdrættið 50 ára og þá var í vinning 50 ára gam- all Chevrolet Bel Air og auk þess 700.000 kr. í skjalatösku í skottinu. Núna ætlar DAS að gera jafn- vel enn betur því boðnir verða tíu splunkunýir Ford Mustang, sem vakið hafa mikla athygli frá því bíllinn kom á markað fyrr á þessu ári. Um er að ræða V6- gerð bílsins sem hver um sig kostar um þrjár millj- ónir króna. Fimm Mustangar verða sem sagt að- alvinningur happdrættisins í júní og aðrir fimm í nóv- ember í haust. Að sögn Sigurðar Ágústs Sigurðssonar, forstjóra Happdrættis DAS, kom í ljós að Brimborg gat ekki útvegað bílana til landsins, þar sem bið er eftir þeim frá framleiðanda. Forsvarsmenn happdrættisins íhug- uðu þá að flytja bílana sjálfir inn en þá kom í ljós að ábyrgð framleiðanda myndi falla niður. Happdrættið leitaði þá til IB-bíla á Selfossi og buðust þeir til að flytja þá til landsins ásamt ábyrgð í 40.000 km. Bú- ið er að flytja tvo bíla hingað og tryggja átta til við- bótar. Bílarnir verða til sýnis í Smáralind um helgina. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Sigurður Ágúst Sigurðsson, forstjóri Happdrættis DAS, við Mustang-bílana. Morgunblaðið/Sverrir Þessi Bel Air 1954 var aðalvinningur Happdrættis DAS í fyrra. Tíu Mustangar í vinning hjá DAS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.