Morgunblaðið - 22.04.2005, Side 4

Morgunblaðið - 22.04.2005, Side 4
4 B FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ bílar Á rammgerðri girðingu utan um bílakirkjugarð einn í Minnesotaríki í Bandaríkj- unum stendur stórum stöf- um: ÞÚ SKALT TAKA ÚT ÚR ÞÉR FÖLSKU TENNURNAR EF ÞÚ STELST HÉRNA INN UTAN AFGREIÐSLUTÍMA VEGNA ÞESS AÐ HUNDARNIR OKKAR EIGA ERFITT MEÐ AÐ MELTA ÞÆR. Reyndar er skrýtið að tala um kirkjugarða í þessu sambandi því þar liggja engir af holdi og blóði. Kannski er það vegna þess að sumir telja að bílar eins og hús hafi sál og því sé slíkt heiti við hæfi. Í augum sumra Íslendinga eru bílakirkjugarðar eins og svöðusár í landinu; birtingarmynd sóðaskapar og mengunar. Ýmsir forkólfar í op- inberu starfi sem og fólk sem hallt er undir náttúru- og vistvernd hef- ur um árabil lagt hönd á plóg við að uppræta söfn gamalla bíla sem legið hafa á túnum og óræktum hérlend- is. Nú er svo komið að varla sjást afskráðir bílar í sveitunum og þykir mörgum sómi að. Gömul farartæki sem þjónað hafa sínu hlutverki eru tætt í sundur og síðan pressuð í klumpa sem ýmist eru urðaðir eða endurunnir. En svo eru aðrir á önd- verðum meiði og finna þessum hreinsunaraðgerðum flest til for- áttu. Í þeirra augum eru bílakirkju- garðar sem helgir staðir, þar sem fortíðarþráin nær tökum á fólki og gamlar minningar vitja þeirra sem skoða þar farartæki í alls konar ástandi. Stöku listmálarar hafa jafnvel séð fegurð í gömlum bíl- flökum og málað myndir sem hengdar eru upp í fínum stofum. Það sem einum þykir mikil sjón- mengun er öðrum athyglisverður eða fallegur gripur jafnvel þótt hrörlegur sé. Áhugafólk um gamla bíla telur að ýmis farartæki sem horfið hafa í hreinsunarátökum hérlendum, hafi verið sögulegar minjar sem hefði átt að varðveita á sama hátt og aðra smíðisgripi. Til eru dæmi um að af- lóga bílar hafi verið dregnir upp úr mýrum og móum hérlendis, gerðir upp af vösku fólki og vakið aðdáun fyrir vandað verk. Þá benda bíla- áhugamenn á þau rök að á meðan hægt er að hirða varahluti úr af- skráðum bílum sparast um leið dýr- mætur gjaldeyrir vegna þess að þá þarf hvorki að kaupa varahluti að utan né að kaupa nýjan bíl ef vara- hluturinn er ófáanlegur. Svo fer talsverð orka í að smíða nýja vara- hluti í bíla, smíðin krefst þess stundum að gengið er á ýmis efni sem til eru í takmörkuðu magni í náttúrunni auk þess sem mengun af slíkri smíði er alltaf einhver. Það er því gild spurning hvort farið hafi verið of geyst í umræddum hreins- unarherferðum hérlendis. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir af bílakirkjugörðum hérlendis og í landi bílsins; Bandaríkjunum. Eini munurinn á bílakirkjugörðum Ís- lands og Bandaríkjanna er að í síð- arnefnda landinu eru þeir miklu stærri; jafnvel svo að kúnnarnir fá afhenta loftmynd af stærstu görð- unum ef þeir ætla að leita þar að varahlut. Auk þess gæta sumra þeirra stórir og svangir hundar sem hafa hlotið sess í rokkljóðum þar- lendum fyrir eðlislæga grimmd sína þrátt fyrir að eiga erfitt með að bryðja falskar tennur. Ragnar S. Ragnarsson. Haugur af „framliðnum“ bílum í Iowa. 1955 árgerð Buick farinn að blómstra. Eitt sinn 1957 árgerð Bel Air. Mercury ’57 í bílakirkjugarði í Eyjafirði. Bílakirkjugarðar – svöðusár eða helgir staðir ’60 Ford Galaxy í bílakirkjugarði í Eyjafirði. ÍSLANDSMEISTARAMÓT í snjó- krossi verður haldið á laugardag. Keppnin fer fram í Fjarðarheiði ofan við Efri-Staf, Seyðisfjarðarmegin í heiðinni. Keppnisröðin í snjókrossi byrjaði í vetur með Reykjavíkurmóti og haldin hafa verið nokkur mót sem liður í Ís- landsmeistaramótinu. Mótið nú er alþjóðlegt og er m.a. von á fjórum rússneskum keppendum. Þeir komu ásamt fylgdarliði og búnaði með Herkúlesflutningavél til Egilsstaða í morgun. Kristján Magnússon, talsmaður mótshaldara, segist eiga von á fantagóðu móti. Fimm Austfirðingar keppa á mótinu, þeir Fannar Magn- ússon, Trausti Ásgeirsson og Hörður Kristjánsson í sportflokki, Sæþór Sigursteinsson í unglinga- flokki, og Steinþór Stefánsson í meistaraflokki. „Við eigum von á að okkar menn verði sterkir á mótinu“ segir Krist- ján. „Fannar er kominn langleiðina með Íslandsmeistarann og er í harðri baráttu við einn í sínum flokki. Steinþór og Sæþór eru einnig mjög sterkir og við eigum von á góðum árangri. Við ætlum til dæmis að leggja Rússana í rúst.“ Kristján segir allt á kafi í snjó á mótssvæðinu, þrátt fyrir vorhlýindi og brautin sé tilbúin og mjög erfið. „Við áætlum að stökkin verði svo rosalega stór að sennilega verður að banna flugumferð hérna megin á landinu á meðan keppnin stendur yf- ir.“ Mótið er haldið í minningu Árna Þórs Bjarnasonar sem lést í vinnu- slysi í Kárahnjúkavirkjun í fyrra. Hann varð Íslandsmeistari og öfl- ugur í snjókrossstarfsemi á Austur- landi. Æfingar hefjast kl. 11 á laug- ardagsmorguninn og keppnin fer fram á milli kl. 14 og 17. Gestir eru hvattir til að fjölmenna á keppnina, en aðgangseyrir er 1.000 kr. Allt klárt fyrir Ís- landsmeistaramótið í snjókrossi Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Stökkin svo rosaleg að banna þyrfti flugumferð yfir Austurlandi Íslandsmeistaramótið í snjókrossi fer fram á Fjarðarheiði á morgun. Keppt er í þremur flokkum og má búast við harðri baráttu á erfiðum brautum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.