Morgunblaðið - 22.04.2005, Qupperneq 10
10 B FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Vél: Fjórir strokkar, 16
ventlar, 1.498 rúmsenti-
metrar.
Afl: 95 hestöfl við 5.200
snúninga.
Tog: 140 Nm frá 3.500-
4.000 snúningum.
Hröðun: 12,6 sekúndur úr
kyrrstöðu í 100 km.
Hámarkshraði: 175 km/
klst.
Gírkassi: Fimm gíra hand-
skiptur.
Lengd: 3.838 mm.
Breidd: 1.764 mm.
Hæð: 1.593 mm.
Eigin þyngd: 1.225 kg.
Farangursrými: 435-
1.370 lítrar.
Hemlar: Diskar að framan
og aftan.
Verð: 2.462.000 kr.
Umboð: Askja hf.
Mercedes-Benz
A150 Elegance
M
ercedes-Benz A hefur verið
umtalaður bíll frá því hann
kom fyrst á markað 1997.
Fyrir það fyrsta hafði þessi
frægi, þýski bílaframleiðandi ekki áð-
ur sett fram bíl af þessari stærð á síð-
ari tímum sem ætlað var að höfða til
meiri fjölda en áður. Margir töldu að
Mercedes-Benz væri með þessu að
taka niður fyrir sig en fyrirtækið
svaraði fyrir sig með alveg nýju kons-
epti og byggingarlagi og sýndi fram á
að ekki stæði til að bæta enn einum
framhjóladrifnum hlaðbaki á markað-
inn. Fyrir utan byggingarlagið á bíln-
um, sem minnti mest á það sem átti
mörgum árum síðar eftir að verða við-
loðandi nýjan flokk lítilla fjölnotabíla,
vakti ekki síst athygli tvöfalt gólfið,
samlokugólfið, sem hýsti m.a. hluta af
gírkassa bílsins og gegndi auk þess
hlutverki öryggishólfs því ef þessi litli
bíll lenti í árekstri að framan gekk
vélin undir gólfið en ekki inn í farang-
ursrýmið. En þetta leiddi líka til þess
að bíllinn var óvenjulega hár og stutt-
ur.
Önnur kynslóð og sömu gen
Það var því martröð líkast fyrir
Mercedes-Benz þegar sænski bíla-
blaðamaðurinn Robert Collins velti
bílnum í svokölluðu elgsprófi árið
1998. Mercedes-Benz varð að hætta
framleiðslu um stundarsakir og kalla
inn bíla og útbúa þá með ESP-stöð-
ugleikastýringu, og varð A-bíllinn
þannig sá fyrsti í sínum stærðarflokki
til að fá slíkan búnað. Eflaust hefur
þetta einnig flýtt fyrir því að ESP-
búnaður dreifðist fyrr út í fleiri bíla en
ella.
Nú er komin önnur kynslóð A-
Benzins og þótt genin séu þau sömu,
stuttur en hár bíll með fjölnotabíla-
lagi, hafa verið gerðar markverðar
breytingar á bílnum, þótt sumir hefðu
hugsanlega búist við enn meiri útlits-
breytingu.
Ný vélalína
Bíllinn var prófaður í gerðinni A150
Elegance, sem þýðir að hann er með
1,5 lítra, 95 hestafla vél. Með kyn-
slóðaskiptunum er jafnframt skipt út
vélum. Áður var A-bíllinn boðinn með
1,4 lítra, 1,6 lítra, 1,9 lítra og 2,1 lítra
bensínvélum og 1,6 og 1,7 lítra dísil-
vélum. Nú fæst hann með 1,5, 1,7 og 2
lítra bensínvélum ásamt einni 2 lítra
túrbínuvél, 193 hestafla, og 1,6 lítra,
1,8 lítra og 2 lítra dísilvélum.
Það sem fyrst er tekið eftir eru
breytingar á framenda bílsins, sem er
orðinn sportlegri en áður, en að öðru
leyti er bíllinn afar líkur sjálfum sér
frá fyrstu gerð hvað útlit áhrærir.
Hann er samt stærri og breiðari, og
munar þar hvorki meira né minna en
23 cm á lengdina, 4,5 cm á breidd og
tæpum 2 cm á hæð. A-bíllinn er samt
ekki nema 3,84 m á lengd og því í svip-
uðum lengdarflokki og Audi A2,
Citroen C3, Honda Jazz, Mitsubishi
Colt og Opel Corsa, en talsvert minni
en bílar í C-flokki, eins og BMW 1,
Audi A3 og VW Golf.
En þetta virðist lítið koma niður á
innanrýminu, sem er svipað í A-bíln-
um og t.d. VW Golf. Þar munar mestu
um þá aðferð að hafa tvöfalt gólf í
bílnum sem gerir að verkum að hægt
er að hafa gólfið í honum slétt sem
eykur pláss fyrir aftursætisfarþega.
Sömuleiðis vekur athygli hve hátt far-
þegar sitja í A-bílnum. Það ásamt
stórum rúðum og lágum hliðarflötum
eykur útsýni úr bílnum svo um
munar. Það er líka þægilegt að um-
gangast bílinn þar sem sætastaðan er
svo há.
Að innan er allt í anda Mercedes-
Benz. Frágangur góður og efnisval
vandað. Það er samt enginn lúxus yfir
hlutunum; en þó er í bílum fjölrofa-
stýri, loftkæling og loftkælt
hanskahólf, spólvörn og ESP, akst-
urstölva og fleira og í Elegance-út-
færslunni bætast við krómlistar á
stuðurum, önnur áferð á klæðningu í
innréttingu, leðurklætt stýri, 15" ál-
felgur og fleira.
Aftursætin eru niðurfellanleg, 60/
40, og auðvelt að flytja í honum stærri
hluti ef þörf krefur.
Vélin kemur á óvart
1,5 lítra vélin kom undirrituðum,
sem hafði ekki búist við neinu sér-
stöku, á óvart. Vélin er að vísu ekki að
afreka mikið á lágum snúningi en rót-
vinnur og er í essinu sínu í kringum
4.000 snúningana. Hröðunin er alveg
viðunandi og bíllinn jafnvel örlítið út í
það að vera sportlegur í töktum. Veg-
gripið er óaðfinnanlegt, og raunar
vandséð hvort þörf sé fyrir ESP-kerf-
ið, því þrátt fyrir fruntalegan akstur á
köflum var búnaðurinn ekki mikið að
hafa afskipti af akstri prófara. Annar
stór plús fyrir A-bílinn er hljóðein-
angrunin sem er líklega ein sú full-
komnasta í svo litlum bíl. Það sem
setja má út á annars fína handskipt-
inguna, sem er bæði ratvís og liðug, er
að stundum fannst fyrir þörf á sjötta
gírnum. En það gerist þó ekki innan-
bæjar en þegar komið er út á þjóð-
vegina er full þörf á sjötta gírnum.
A 150 er að sönnu lítill bíll en hann
er stór að innan og gæti alveg hentað
sem fjölskyldubíll eins og hver annar
bíll í lítið eitt stærri C-flokki. Og verð-
ið er vissulega hærra en á bílum af
svipaðri stærð. En þetta er nú einu
sinni Benz. 2.180.000 kr. kostar A150 í
Classic-útfærslu en 2.462.000 kr. í
Elegance. Þetta eru reyndar engin
ósköp og ef út í það er farið, ekki
nema 270.000 kr. meira en VW Golf
1.6 Comfortline.
Stærri og rúmbetri A-Benz
Litla 1,5 l vélin í A-bílnum kemur á óvart fyrir góða vinnslu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ennþá er sama grundvallarlagið á A-bílnum en hann hefur stækkað.
Há sætastaða vegna hins tvöfalda gólfs gefur mikið útsýni úr bílnum.
Allt snoturt í innanrýminu. Efnisval og frágangur er góður.
gugu@mbl.is
REYNSLUAKSTUR
Mercedes-Benz A150
Guðjón Guðmunsson
! !"#
$! %
& '( ! !)
***
+