Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 28.05.1956, Blaðsíða 1

Mánudagsblaðið - 28.05.1956, Blaðsíða 1
9. árgangur Mánudagur 28. maí 1956 28. tölubtaJ BIqjSfyrir alla 11 Forstjórí „Olíunnar1 nær ser i bllræksni — loksins * Cadilac - Continental sinnir þörfunt hans ii ii í svipinn ,T , TT . . . hygla sitiandanum þokkalega Haukur Hvannberg-, forstjon Oliusolunnar var í suru skapi - , ,, og lyftast eða lækka ef tir raf- - þangað til fynr rumlega 10 dogiim. Undanfanð hefur únum loftventli; þ4 er og strákgarmurinn orðið að notast við allskonar minnrháttar, loftgot víða tílbúin að dæla farartæki eins og t. d. Chevrolet 1955 og Buick 1956, en 4 eigandann öllum tegundum eins og allir vita, eru slíkir alþýðuvagnar lítt boðlegir jafn virðulegum manni og Haukur er — enda voru raunir hans margar og illar. Bjálkakofi a la Hollywood Húsgarmurinn hans, þriggja hæða bjálkakofi að kalla, á- samt bílskúr (fyrir tvo) og gyllingum, koparlögn, gull- VÍrum og elðhúsgræjum, sem sagt er að þurfi vélstjórapróf til að stjórna, hafði fengið ádrepu í blöðunum — að ó- gleymdri kleopatrískri sund- laug á efri hæð, sem fávísir blaðamenn kölluðu bað — og var sagt m. a. að hér væri um óhóf að ræða, jafnvel Hollywoodkenndan íburð. Allar þessar ómaklegu á- rásir höfðu skapað Hauki á- hyggjur stórar, kvef og alls- kyns óáran í holdi og sál. Til þess að bæta gráu ofan á svart var svo bílskrattinn hans mesti gallagripur — árs gamall og skrautlaus að mestu; vakti enga aðdáun í bæ marglitaðra Forda og ann arra óæðri tegunda. Bílræksnið En nýlega birti heldur til í gráu lífi hins áhyggjufulla peningamanns. Sólríkan dag skaut í land ljóslitum, silfui’- Er það satt, að Undirtyllur dr. Kristins hafi sparkað ís- leadinguin úr beztu stöðunum á Kefiavíkurveilli — tál að koma sínum inönnum að eftir kosniugar? smelltum Continental Cadilac sem rann brosandi í garð Hauks — þessi bílgarmur, sem kostar ca. $5000 •— (U/á Chevrolet) var dálítil rauna- bót, þótt að vísu væri það ekki nóg til þess að bregða alskæru ljósi yfir mótlæti Hauks. Cad- ilacinn er ekki eins erfiður og aðrir minniháttar vagnar; — rúðui* eru rafknúnar, sjálf- virk tæki í einu og öllu, sætin ' rétt fyrir kdsningar; töldu lofts — blönduðum ilmvatni. Dreglar eru á gólfi og ótelj- andi minniháttar þægindi, er kemur athaf namönnum vel að hafa. (Gufubað og sjálfvirk nuddstöð ásamt bar var af- þakkað; þótti eiganda það um of stertimannslegt) en ólygn- ir segja að eitt hólfið geymi ískaldan kóka-kóla. En þessari bíltegund fylgdu enn harmar. Pólitískum for- kólfum flokksins var dauðilla við bráðlæti Hauks, er hann setti bílinn á göturnar svona Ajjax skrifar um: FRAMBJOÐENDUR BorgarfjarS- arsýsla Samkvæmt síðustu kosninga- tölum ætti kosningin í Borgar- fjarðarsýslu nú að verða mjög spennandi. Sjálfstæðisflokkurinn fékk þá 885 atkvæði, en Alþýðu- flokkurinn og Framsóknarflokk- urinn samanlagt 907. Flestir telja þó, að Pétur Ottesen sé öruggur um að ná kosningu, en þetta er í fyrsta skipti í 40 ár, sem nokk- ur spenningur er ríkjandi í sam- bandi við kosningu í Borgarfjarð- arsýslu. Almennt er álitið, að meirihluti Péturs verði 50—100 atkvæði. Pétur Ottesen hefur nú setið lengur á Alþingi en nokkur ann- ar núlifandi þingmaður eða síð- an 1916. Ef til vill er enginn þing'- maður eins mikils virtur og Pétur og það með réttu. Hann er ágæt- lega greindur, traustur dreng- skaparmaður, tryggur vinur vina sinna, alþýðlegur og yfirlætislaus í háttum, fróður, skemmtilegur og fullur af glensi í kunningja- hópi, höfðingi heim að sækja. Vinsældir Péturs í Borgarfjarð- arsýslu ná langt út fyrir rætur Sjálfstæðismanna, margir beztu vinir hans og nánustu frændur eru meðal pólitískra andstæðinga hans. Hann fær alltaf allflest at- kvæði lítt pólitískra kjósenda í Borgarfirði, og þau atkvæði eru mörg. Það verður erfitt, eða rétt- ara sagt ógerlegt fyrir Sjálfstæð- isflokkinn að finna frambjóðanda í Borgarfirði, er geti skipað sæti Péturs. Kjördæmið getur orðið í mikilli hættu í framtíðinni, ef samvinna Framsóknarflokksins og Alþýðuflokksins helzt áfram. Benedikt Gröndal verður aðal- andstæðingur Péturs. Hann mun geta haldið saman Alþýðuflokks- fylginu á Akranesi, Hannibals- menn eru sagðir fáir þar. Eflaust fær hann einnig megnið af Fram- sóknaratkvæðunum, en þó er trú legt, að eitthvað af mönnum yzt á hægra armi Framsóknar kjósi nú Pétur eða þá landslista Fram- sóknar. Miklar líkur eru til þess, að Gröndal verði uppbótarþing- maður. Benedikt Gröndal hefur marga kosti, er vel sinnugur, víða heima og eljumaður. Hann er oístækislaus, rólyndur og sam vinnuþýður. Eflaust yrði hann dugandi þingmaður. ■Jón Helgason ritstjóri býður sig' nú fram fyrir Þjóðvörn. Síð- ast fékk flokkurinn 66 atkvæði í kjördæminu. Vígstaða Þjóðvarn- ar í Borgarfjarðarsýslu er mjög erfið nú vegna hörkunnar í barátt unni milli Péturs og Gröndals. kjosendur lita vanþakklatum augnim á svona farartæki, mitt í öllu fátæktarkveininu. Skapara Hauks, Vilhjálmi Þór, þótti nú eggið fara að kenna hænunni þegar „stráksi" var kominn á spá- nýjan vagn en hann sjálfur þurfi að aka í ársgömlum lit- lausum Cadilac — kvað hann Hauk furðu djarfan er hann vildi halda til jafns við höfð- ingja í skarti og gripum og kynni hann sér ekki hóf. Þá var félaga Vilhjálms, Birni Ólafssyni, litið um tild- ur Hauks. en hann skjöplast um á tveggja ára gömlum, svörtum Cadilac og þykist lítt ríðandi til langferða. Það er gott að vita til þess að olíuforstjórinn sé vel ríð- andi þessa dagana og væntan- lega lætur hann bæjarbúa sjá bifreið sína oft og vel á göt- um höfuðborgarinnar. Það eru einmitt svona smá- upplýsingar, sem kjósendur þurfa að hafa um „stóru kall- ana“ sem kippa í brúðurnar í stjórnmálaleikflokki Fram- sóknar. Hér er „hinn dýr- mæti“ gjaldeyrir þjoðarmnar á f jórum hjólum. Hér má sjá hvernig peningarnir fara, sem ekki fást til byggingavam- ingsins — krómið eitt á bif- reið Hauks yrði í peninguni gott tillag í íbúð, „græjumar“ — loftræstingin og bíllinn í heild slaga hátt upp i þokka- legt hús, þar sem margir gætu búið — „íbúðarhús“ bif- reiðarinnar væri þokkalegt •húsaskjól 4 manna f jölskyldu og „rafgeisla“-knúinn dyra- umbúnaður bílskúrsins myndi eflaust, ef breytt i pen- inga, greiða byrjunarkosnað nýbýlabóndans. Vonandi líður olíuforstjór- anum vel, þegar hann svífur úr „sundlauginni" matast í vélknúna eldhúsinu, opnar geislavirku dyrnar og líður í dúnmjúka sæti Continental Cadilac-sins í vinnuna. Bóndi. (Aðsent, stytt) Sjjaldan W Æm-mm mm mmmm W.m æm W Ar* Sumir telja, að flokkurinn bæti ekki við sig atkvæðum frá því síðast, aðrir að hann fái um 100 atkvæði. Sennilega fær Jón flest atkvæði í átthögum sín,um á Hvalfjarðarströnd. Helzti maður Þjóðvarnar á þeim slóðum er Sveinbjörn Beinteinsson rímna- skáld á Draghálsi. Jón Helgason er af alkunnum ættum í Borgar- firði, og eru þeir Pétur Ottesen og hann systrasynir. Er flest það ættfólk prýðilega gáfað mann- kostafólk, en sumt af því er ekki laust við sérvizku. Jón ber mörg einkenni ættar sinnar, er greind- ur maður, ágætlega ritfær, en töluverð þvermóðska og eintrján- ingsháttur er til í honum. Ingi R. Helgason lögfræðingur fer nú fram fyrir kommúnista í stað Haralds Jóhannessonai*. Báð- ir þessir ungu menn eru harðir réttlínukommúnistar, en þó ólíkir um margt. í Haraldi er -til mikið af elskulegri naivitet, en Ingi er sízt af öllu naiv, hann er klókur maður og veraldarvanur. Hann er um allt praktískari maður en Haraldur, minna gefinn fyrir teoríu, en meira fyrir athafnir. Hann fær eitthvað kringum 200 atkvæði. BarSastrand- arsýsla Hún er nú eitt þeirra kjör- dæma, þar sem úrslitin verða hvað mest spennandi. Við síðustu Framhald á 2. síðu Sjjaidan launar kálf- ur ofeldið Svo er aó sjá sem dr. Finni fuglafræðing Guð- mundssyni sé inargt annað vei gefið en að rannsaka náttúru og háttu liinna vængjuðu vina vorra. Nýlega tiikynntu blöðin og birtu myndir af hinum íturvaxna doktor þar sem hann er að leggja í ferð upp á öræfi — í lielikopter vélum ásamt öðrum útbún- aði — til þess að rannsaka líf fuglanna í óbyggðum. Undir myndiimi stóð að helikoptervéiarnar ásamt ýmsurn nauðsyniegiuu tækjimi hefðu verið fengn- ar að láni frá bandaríslui varnai*sveitunum í Kefla- vík. Það má fyliilega gera ráð fyrir, að heryfirvöldin hafi lánað tæki sín endur- gjaldsiaust, enda þeirra von og vísa. Þakklætisvotturinn var þó vart í samræmi við vel- gerðir hersins. Næsta dag birti blað Frjálsþýðinga mynd af einum frambjóð- enda sinna — eiginkonu dr. Finns, sem dr. Finnur hafði sent í franiboð fyrir flokkimi sem valið hefur hermun og tilgangi hans verstu ókvæðisorðin. Hér sannast öllu hetur gamli íslenzki málsháttur- inn: „Sjaldan launar kálf- ur ofeldið“.

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.