Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 11.03.1957, Side 4

Mánudagsblaðið - 11.03.1957, Side 4
I manudagsblaðið Mánudagur 11. marz 195T Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Agnar Bogason. Blaðið kemur út á mánudögum. - Verð 2 kr. í lausasölu. Afgreiðsla: Tjarnarg. 39. - Sími ritstj. 3496. PrentsmiöJa ÞJéSviijans h,l. ■nniiiiinHiiiHmiBHiiiiiiin Þ É R ei{ alltaf leiS um Laupveginn Clausembúð Sjómannadagskabarettinn Sýningar verða í dag, sunnudag, kl. 3, 5, 7 og 11.16 Aðgöngumiðasala að þessum sýningum hefst kl. 11 f.h. tU 10 e.h. Mwnið: Sýningar kabarettsins standa aðeins yfir í 10 dga. Miðapantanir í sím al384. Sjómannadagskabarettinn n«HmiiiiiiiiuinHiimiHiiiniimHHHm Jónas Jón&son, írá Hriilu: Vísindahús og kvikipdahús Stjórn Háskólans er nokkuð stórhuga um þessar mundir. Hún sækir um leyfi til að byrja 1 vor að byggja tvö stórhýsi hér í bæn- um. Annað á að verða náttúru- gripasafnj en hitt kvikmynda- höll. Annað húsið helgað vísind- um og meginrannsóknum á eðli og náttúru landsins. Hitt á að vera venjulegt gróðafyrirtæki fyrir háskólann, meðal annars til að ávaxta sjóði stofnunarinnar á öruggari hátt heldur en geyma innstæður í skápum bankanna. Samt er of mikill stórhugur í því fólginn að vilja byggja þessi stórhýsi samtímis, og það í held- ur erfiðu árferði eftir því sem kallað er. Mörgum manni er neit- að um fjárfestingarleyfi þó að nauðsyn sé talin allmikil. Sú var tíðin að háskólinn var ekki stór- tækur um byggingarmálin. Frá 1911 til 1927 datt engum af for- ráðamönnum háskólans eða Jandsins í alvöru í hug að þessi stofnun gæti byggt sér heimili. Helzta vonin á þeim árum var að auðmaður vestanhafs kynni að gefa fjármuni í háskólabyggingu, en ekki varð úr því. Sú nýung gerðist 1930 að stjórnin flutti flumvarp um háskólabyggingu og úrræði til að fá lóð undir háskólahverfi. Þetta frv. var sam þykkt 1932. Ári síðar urðu holl- vinir háskólans svo ráðsnjallir að benda á f járstofna til að stand- ast útgjöld við háskólahús og kom frv. þess efnis gegnum hall- ærisþing' 1933. Fyrir happdrætt- isféð frá þeim tíma eru reistar allar hinar nýju byggingar há- skólans. Á síðustu árum hefur alþingi framlengt happdrættis- lögin með því fororði að fyrir þæ rsex milljónir sem síðan eru komnar í þann sjóð, verði reist náttúrugripasafn skammt frá leikfimishúsi háskóalsn. Þrír snjallir vísindamenn eru á starfs- launum hjá hinu húslausa safni, sem geymir mjög verulegan hluta safngripanna í kössum í kjöllurum á ýmsum stöðum í bænum. Er aðbúð þessa merki- lega safns hin hörmulegasta. Starfsmenn safnsins heita á hverju ári fastlega á öll viðeig- andi yfirvöld að nota ofurlítinn hluta af sjóði safnsins til að gera húsið fokhelt og búa til skyndi- geymslu í kjallaranum til að varðveita vísindakassana þar til hægt yrði að gera allt húsið not- hæft. En við háskólann eru til menn, sem unna fésýslu engu minna en vísindum. Þeir hafa vegna háskólans grætt allveru- lega á því að leigja Tjarnarbíó og hafa þar blómlega fésýslu starfsemi til að útvega háskól- anum peninga til að mæta ó- væntum útgjöldum. Þessi starf- semi hefur blómgazt vel en bú- menn háskólans vilja nú eigna- ast stórt bíóhús til að afla enn meiri tekna. Vafalaust kemur að því síðar að háskólinn reisi bíó- hús, en ef svo færi að bíóstarf- semin yrði látin sitja fyrir húsi vísindanna, þá væri virðing slofnunarinnar í töluverðri hættu. Gjaldþegna landsins mundi gruna að stjórn háskólans væri óviss um stefnuna. Alþingi og þjóðin hafa sýnt skólanum mikið dálæti eftir að vakin var alda um aðhlynningu þessarar stofnunar. En hið nokkuð óvænta traust þjóðfélagsins í bygging- armálum háskólans leggur for- takslausa skyldu á forráðamenn mans að efna þegar í stað gefin heit við náttúrugripasafnið og byrja strax í vor að nota sjóð þann sem þjóðin hefur sparað saman á síðustu árum í þessu skyni. Tjarnarbíó getur enn um stund fullnægt sínu hlutverki og má aldrei keppa um hinn æðsta sess við náttúruvísindin. Tii uíhuifunur fyrir hiistjóra BANASLYS á 7/10 OR SEKUNDU Ilryllileg lýsing síðustu augnablikanna „Jón Jónsson, Laugavegi 500 ók á steinvegg í gærkvöld og beið þegar bana“ — Svipaðar fréttir berast okkur hér á íslandi allt of oft, en erlendis eru þær dag- legt brauð. Þar ei-u stór, gömul tré með- fram þjóðvegum og oft rekast bif. reiðar á þau á ofsahi'aða og John Smith, ökumaðurinn, bíður sam- stundis bana. Þetta er sorglega algengur dauðdagi, en jafnframt sá. sem til þessa hefur verið lít- ið vitað um. Nokkur síðustu ár hafa menn eins og John O. Moore, formað- ur nefndar þeirrar, sem rann- sakar bifreiða-, bifhjóla- og önn- ur slys á líkum faratsekjum, á- * P samt dr. J. H. Mathewson við j háskólann í Kaliforníu, „köku“- j keyrt hundruð bíla í reynslu- og j i athugunarskyni, rannsakað þús- j undir skýrslna um árekstra og slysfarir frá gervöllum Banda- ríkjunum, heimsótt og rannsak- að nákvæmlega slysstaðina og ökutækin, sem þúsundir hafa látizt í. Beztu öryggissérfræðing- ar frá elztu bifreiðaverksmiðjum hafa haft samvinnu við þá. Frægir læknar hafa ritað ítar- legar greinargerðir um líkskurði á þeim, sem beðið hafa bana í slíkum slysum. Megintilgangurinn með slíkum rannsóknum hefur verið að draga úr banaslysum, gera bif- reiðir öruggari og betur undir árekstra búnar. Árangurinn hef- ur verið; till. um öryggisbelti, nýja gerð af stýrisútbúnaði, breytingar á dyraútbúnaði og stoppuð mælaborð. En rann- sóknir þessar hafa líka leitt ann- að í ljós: hina hryllilegu mynd af því sem skeður — stálinu og Framhald á 7. síðu. I Nauðungaruppboð g | sem auglýst var í 6., 8. og 9 tbl. Lögbirtinga- jj 5 blaðsins 1957 á v.s. íslendingi R.E. 73, þingl. eign ■ Kiistjáns Guðlaugssonar o.fl. fer fram eftir kröfu | Fiskveiðasjóðs íslands í skipinu sjálfu á Reykja- : víkurhöfn, föstudaginn 15. marz 1957 kl. 10.30 s árdegis. Borgarfógetinn í Reykjavík HELGAFELL Nú eru 700 BÆKUR á útsölunni í Listamannaskálanum og einn þriðji þeirra á 5.00 til 10.00 kr, Fjöldi afbragðs bóka, skáldsögur, ljóð, fræðibækur á 10.00 tíl 50.00 krónur. Brval bóka fyrir unglinga, þar á meðal myndsk reyttar útgáfur af Njálu og Grett- issögu á 25 krónur. 87 happdrættisvinifc- ingar voru dregnir út fyrsta dajginn, samtals kr. 8.700.00. Daglega koma nýjar bækur Opið alla daga klukkan 11-4 HELGAFELL

x

Mánudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.