Mánudagsblaðið - 27.10.1958, Síða 4
4
MÁNUDAGSBLAÐIÐ
Mánudagur 27. október 1958.
Bl&óJyrir aila
Ritstjórl og ábyrgðarmaSur: Agnar Bogason.
Blaðið kemur út á mánudögum. — Verð 3 kr. í lausasölu.
AlgreiSsla: Tjamarg. 39 — Siml ritstj. 13498.
Prentsmiðja ÞjóSviljans h.f
L—
íónas Jónsson/írá Hriflu'.
Refsivist og iiiaimEiætiiF.
Litlaliraun9 Kjall-
arinn9 Vinnulieimlli afvega-
leiddra ungnienna
A fyrri hluta 19. aldar lét
danska stjórnin hýða minni hátt-
ar afbrotamenn á íslandi en sendi
stórglæpamenn í dönsk fangeisi.
Þegar Steinninn var reistur við
Skólavörðustíg var sú fram-
kvæmd þáttur í viðreisn lands
ins. Hýðingar féllu niður og í
Steininum var dæmdum íslend-
ingum refsað undir viðunandi eft
irliti. Um 1930 hafði Steinninn
verið mjög vanræktur af stjórn
landsins. í klefunum var timbur-
gólf mjög úr sér gengið og ó-
þétt. Undir hverjum klefa var
forardý, margra ára samsafn af
mannlegum úrgangi. Gluggar
voru litlir og búðir fanganna
sólarvana. Ur þessu var þá bætt
um stund svo að við mátti una.
Jafnframt var Litlahraun reist
sem vinnufangelsi. Þar munu
stundum hafa verið allt að 40
vistmenn. Dugandi og velmennt-
ir gæzlumenn voru við bæði
fangelsin, Dæmdum mönnum
þótti betra að vera í vinnuhæl-
inu. Herbergi vistmanna þar voru
björt og útsýn víð. Þeir unnu
mikið undir beru lofti að vega-
gerð, fyrirhleðslu Markárfljóts
og holræsagerð á Eyrarbakka til
að verja kauptúnið ágangi úr
Flóanum. Um stund var járn-
smiðja og bílaviðgerð í hælinu
og síðar steinsteypuverksmiðja.
Sum ár fengu allt að 40 sunn-
lenzkir bændur steina frá Litla-
hrauni til húsagerðar. Stórbú
var á Litlahrauni. Margar kýr í
fjósi og víðlendir karöfluakrar í
sandinum. Litlahraun sparaði
höfuðstaðarbúum stórfé framan
af árum, því að hælið var frá
upphafi glögylt fangelsi fyrir kald
ræna feður sem svikust um að
greiða meðlag vegna óskilgetinna
barna. Ufn áraskeið streymdu
peningar í bæjarsjóð Reykjavík-
ur frá lélegum feðrum, sem vildu
heldur borga bænum heldur en
fara austur..
Síðar var tekinn upp sá siður
að geyma ölvaða Reykvíkinga i
kjallaranum undir lögreglustöð-
inni. Er sástaður ríkinu til háð-
ungar.
Tveir kunnir flokksleiðtogar,
Hermann Jónasson og Bjarni
Benediktsson hafa um langt skeið
stýrt réttarfarsmálum landsins,
skilið við þau í fordæmalausri
vanrækslu. Á Litlahrauni hafa
vistmenn tekið stjórn hælisins í
sínar hendur og nota stóra nagla
til að opna dyr og hirslur. Fangar
geta gengið út og inn úr klefum
sínum að vild. Hegningarskrá
landsins er ófullkomin, Fangar
eru náðaðir án skipulags. Þeim
hættulegustu sleppt fyrr en dóm-
ar segja til.
Þetta ranglæti kveikir að von-
um uppreisnarhug í öðrum föng-
um. Framleiðsla Litlahrauns er
lögð niður nema að því leyti sem
fangar vilja fremur vera úti en
inni.
Upplausn fjármálanna eykur
lögbrot í landinu. Brotamenn
vita, að þeir geta lifað og leikið
sér því að vanmáttur ríkisvalds-
ins er áþreifanleg staðreynd.
Ef breyta skal þessu ófremdar-
ástandi þurfa Framsóknarmenn
og Sjálfstæðismenn að skilja að
á báðum þessum flokkum hvílir
jöfn og þung ábyrgð fyrir herfi-
lega vanrækslu. Á þeim hvílir
skyldan að bæta úr vanstjórn
sinna vinnumanna. Hér verður
vikið að nokkrum sjálfsögðum
úrræðum.
1. Setja duglega og vel hæfa
menn til yfirstjórnar i báðum
fangelsunum.
2. Skipa fámenna nefnd hæfra
manna til að hafa yfirumsjón
með rekstri fangelsanna og líðan
vistmanna.
3. Byggja nýja og velskipulagða
lögreglustöð í Reykjavík.
4. Byggja vel útbúna geymslu-
stöð fyrir ölvað fólk sem tekið
er úr umferð í bænum.
5. Byggja nýtt og vandað rík-
isfangelsi í nýbyggð Reykjavík-
ur, þar sem unt væri að láta fang
ana vinna að fjölbreyttum mennt
andi og mannbætandi störfum.
6. Byggja á jarðhitastað, helzt
austanfjalls tvö vinnuheimili.
Annað fyrir pilta og hitt fyrir
stúlkur, sem komin eru á glap-
stigu en eru ekki brotamenn.
Þessi æskuheimili ættu að vera
einangruð eins og fangabúðir
með raforkuþrungnum girðing-
um. Innan veggja í þessum heim-
ilum ætti að sefa, spekja, friða,
manna og mennta vistfólk, en það
ætti ekki þaðan að fara fyrr en
kunnáttumenn vottuðu að ung-
mennin væru hæf til að gánga
út í mannlífsstrauminn. Ef brota
hneigðin er enn drottnandi verð-
ur að framlengja hælisvistina.
Þjóðfélag sem veitir 800 millj-
ónir króna í atvinnubætur getur
lagt á sig þau útgjöld sem með
þarf til að koma refsivsit og mann
bótum íslendinga á heilbrigðan
og heiðarlegan grundvöll.
Bíiskúr
óskasf fi! feigu
Uppl. í síma:
17500 cg 34153 e, kf. 5
VircsœSnsfu bifreiðarnar eru
framlesddar af
Allar upplýsingar veitir FORD-umboðið
Enskur Ford Consul.
Laugavegi 168—170.
Enskur Ford Anglia.