Morgunblaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Schröder tekur áhættu Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, þykir hafa teflt djarft með því að flýta kosningum til þýska þingsins eftir ósigur jafnaðarmanna í Nordrhein-Westfalen á sunnudag. Stjórn Schröders félli ef kosið væri nú, ef marka má síðustu skoðana- kannanir. Gert er ráð fyrir að kosn- ingarnar fari fram fyrir 18. septem- ber. Nýr forseti í Mongólíu Frambjóðandi sósíalista, Namb- ariin Enkhbayar, sigraði í forseta- kosningum í Mongólíu á sunnudag. Enkhbayar, sem er fyrrverandi for- sætisráðherra, hét því að berjast gegn fátækt þegar hann fagnaði sigrinum í gær. Aspir teknar að gulna Kuldatíð að undanförnu hefur valdið því að aspir eru víða teknar að gulna norðanlands líkt og að hausti. Ekki er hætta á skemmdum á ösp- um af völdum kuldans en hins vegar er hætta á sveppasjúkdómi í lerki- trjám síðar í sumar, að sögn fram- kvæmdastjóra Skógræktarfélags Eyfirðinga. Myndbandaleiga í sjónvarpi Notendur ADSL-þjónustu Sím- ans munu í haust geta valið úr hundruðum kvikmynda og þátta í gegnum myndbandaleigu sem Sím- inn hyggst hleypa af stokkunum í sjónvarpi. Þjónustan verður hluti af sjónvarpsútsendingum Símans í gegnum ADSL sem hefjast á höfuð- borgarsvæðinu á næstu vikum. Lónið gagnrýnt Bláa lónið fékk hraklega útreið í forsíðugrein ferðablaðs The Sunday Times um helgina. Í greininni dreg- ur höfundur heilnæmt gildi lónsins í efa og gefur í skyn að gestir mígi í vatnið. Y f i r l i t Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                 ! " #          $         %&' ( )***                        FRÁBÆR BÓK M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN „Frábær bók, raunar besta bók sem ég hef lesið um langa hríð.“ – Mario Vargas Llosa STRÍÐSMENN SALAMIS EFTIR JAVIER CERCAS FRAMKVÆMDANEFND um einkavæðingu sendi fyrir helgi bjóðendum í hlut ríkisins í Síman- um bréf þar sem óskað er eftir að þeir tilgreini um möguleg eignatengsl eða tengsl við samkeppnis- aðila, skv. verklagsreglum nefndarinnar. Frestur til að skila inn svörum rann út á hádegi í gær. Stefán J. Friðriksson, starfsmaður fram- kvæmdanefndar um einkavæðingu, vildi í gær ekki tilgreina hvort einhverjir uppfylltu ekki skilyrði nefndarinnar, það yrði tilkynnt samhliða hvort allir stæðust reglurnar. Stefán sagði að svör hefðu ekki borist frá öllum aðilum og ákveðið hefði verið að veita svigrúm í einhverjum tilvikum þar eð ekki náðist í alla hlutaðeigandi aðila. Fjórtán tilboð bár- ust í hlut ríkisins í Símanum frá 37 fjárfestum, inn- lendum og erlendum. Bréf frá einkavæðingar- nefnd voru send öllum aðilum. „Við getum ekkert tjáð okkur um þetta á þessu stigi. Það verður tilkynnt samhliða hvort allir standist reglurnar. Þetta er á ábyrgð þeirra sem gefa upplýsingarnar,“ sagði Stefán. Hann sagði unnið að því að reyna að tilkynna um endanlega bjóðendur í Símann eins fljótt og kostur væri, en endanleg tilboð verða opnuð í júlí. Hann áréttar að ekki hafi verið skilyrði í óbind- andi tilboðunum sem nú liggja fyrir að fjárfesting- arhópar væru fullmótaðir, fjárfestar hafi frest til þess fram að skiladegi í bindandi tilboðum í Sím- ann sem er í júlí. Vel geti gerst að hópar sem hafi sent inn óbind- andi tilboð breyti því, tengist öðrum fjárfestum eða nýr aðili sem ekki var inni í óbindandi tilboðinu bætist í hópinn. Komi upp tilvik þar sem eignatengsl núverandi bjóðenda samræmast ekki reglum nefndarinnar er því möguleiki á að aðilar breyti sínu skipulagi, segi sig úr stjórnum fyrirtækja eða geri aðrar ráðstaf- anir, að sögn Stefáns. Heimilt að hafna tilboðum sem draga úr virkri samkeppni Samkvæmt verklagsreglum einkavæðingar- nefndar um útboð og sölu ríkisfyrirtækja er heim- ilt að setja hámark á hlutafjárkaup hvers aðila, eða fjárhagslega tengdra aðila, til að dreifa eignarhaldi að fyrirtækjum sem seld eru samkvæmt almennu hlutafjárútboði. Heimilt er að hafna tilboði frá að- ilum ef sala til þeirra er líkleg til að draga úr virkri samkeppni á þeim markaði sem fyrirtækið starfar á og ef sala samræmist ekki settum markmiðum þannig að líklegt sé að atvinnugreinin bíði skaða af. Einkavæðingarnefnd óskar eftir að möguleg eignatengsl verði tilgreind Bjóðendur munu eiga þess kost að breyta eigin skipulagi Eftir Kristján Geir Pétursson kristjan@mbl.is FRAMKVÆMDIR eru hafnar við breikkun gatnamóta Kringlumýrar- brautar og Miklubrautar. Að sögn Jónasar Snæbjörnssonar, umdæmisstjóra hjá Vegagerðinni, má gera ráð fyrir einhverjum töfum á umferð meðan á framkvæmdum stendur en reynt verður að tak- marka þær eins og frekast er kostur. Þrengingar verða ýmist á Miklu- braut eða Kringlumýrarbraut en ekki báðum brautum samtímis, að hans sögn. Stefnt er að verklokum fyrir lok ágústmánaðar. Á Kringlumýrarbraut ná breyt- ingarnar frá Listabraut í suðri til Háaleitisbrautar í norðri og á Miklu- braut frá göngubrúnni til móts við Kringluna í austri að Lönguhlíð í vestri. Eftir breytingar verða þrjár akreinar fyrir alla beina umferðar- strauma og tvær akreinar fyrir alla vinstribeygjustrauma um gatnamót- in. Þá verða umferðareyjur endur- gerðar og umferðarljós og gang- brautarljós færð til. Að sögn Jónasar verður byrjað á að breikka Miklubraut og Kringlu- mýrarbraut út í fjærhliðarnar en síðan unnið við breytingar á umferð- areyjum. Með því móti verður hægt að beina umferðarstraumi á nýju ak- reinarnar þegar vinna við umferð- areyjar hefst. Verktaki á staðnum er Heimir og Þorgeir ehf. sem átti lægsta tilboð í verkið, tæpar 230 milljónir króna. Kostnaðaráætlun vegna breikkunar hljóðaði upp á 210 milljónir króna. Ístak bauð rúmar 252 milljónir í verkið og Klæðning ehf. 250 millj- ónir. Morgunblaðið/Júlíus Framkvæmdir hafnar við breikkun ÞAÐ styttist í að fyrstu íbúðarhúsin á Eskifirði verði hituð upp með hita- veituvatni úr nýrri bor- holu í botni Eskifjarðar. Um 100 hús verða tengd í júní og er stefnt að því að afgangurinn af bænum, að meðtöldum fyrirtækjum, fái teng- ingu á árinu, um 300 hús. Fram til þessa hafa húsin í bænum verið rafmagns- hituð og því markar hita- veitan mikil tímamót að sögn Gunnars Jónssonar, forstöðumanns fjármála- og stjórnsýslusviðs Fjarðabyggðar. Nettókostnaður við verkefnið nemur á bilinu 250–280 milljónum króna. Styttist í hitaveituna hjá íbúum Eskifjarðar Morgunblaðið/Helgi Garðarsson UMTALSVERÐ fjölgun hefur verið í ferðum og bókunum á ferðum Ís- lendinga til útlanda það sem af er árinu miðað við sama tíma í fyrra en heldur virðist draga úr fjölgun á komum erlendra ferðamanna hing- að til lands eftir metár í fyrra. Hjá einni af þeim ferðaskrif- stofum sem haft var samband við í gær kom fram að ferðum Íslend- inga til sólarlanda, og í aðrar skipu- legar ferðir, hafi fjölgað um 30% frá síðasta ári. Þar að auki eru skýrar vísbendingar um að ein- staklingar nýti sér í auknum mæli netið til þess að bóka án milligöngu ferðaskrifstofa, og noti sér þá gjarnan ódýr fargjöld erlendra lág- gjaldaflugfélaga til að fljúga áfram frá London eða Kaupmannahöfn. Sætaframboð Icelandair hefur verið aukið um 20% frá því síðasta sumar, en inn í það er reiknuð sú aukning sem verður vegna nýs áfangastaðar, San Francisco í Bandaríkjunum. Hjá Iceland Ex- press hefur framboðið einnig verið aukið frá síðasta ári, og á laugar- dag flaug félagið í fyrsta skipti til Hahn-flugvallar við Frankfurt í Þýskalandi. Utanlands- ferðum Íslendinga fjölgar  Lítill fyrirvari | 8 Í dag Fréttaskýring 8 Bréf 24 Úr verinu 12 Viðhorf 24 Viðskipti 13 Minningar 25/29 Erlent 14/15 Skák 30 Akureyri 17 Dagbók 32/34 Austurland 17 Víkverji 32 Suðurnes 18 Velvakandi 33 Landið 18 Staður og stund 34 Daglegt líf 19 Menning 35/37 Listir 20 Ljósvakamiðlar 42 Umræðan 21/25 Veður 43 Forystugrein 22 Staksteinar 43 * * *

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.