Morgunblaðið - 24.05.2005, Page 6

Morgunblaðið - 24.05.2005, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Úrval-Úts‡n Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100 Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600 Selfossi: 482 1666 www.urvalutsyn.is Central Hotel Örfá herbergi í boði á Central Hotel. Vel staðsett og gott 3ja stjörnu hótel í Plaka- hverfinu við rætur Akrapolis. Hótelið var endurnýjað fyrir Ólympíuleikana 2004. 49.920* kr. Ver› á mann í tvíbýli: * Innifalið: Beint flug, skattar, gisting með morgunverði í 4 nætur og íslensk fararstjórn. Ekki innifalið: Ferðir til og frá flugvelli erlendis, 1.900 kr. fram og til baka. Verð m.v. að bókað sé á netinu. Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis bætist við 2.000 kr. bókunar- og þjónustugjald á mann. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U RV 2 84 76 05 /2 00 5 Aþena 26. maí • 4 nætur Flugsæti: 29.620 kr. með sköttum Allra síðustu sætin - bókaðu strax Á LAUGARDAG voru útskrifaðir stúdentar úr Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. Meðal þeirra voru nemendur úr svokölluðum HG- hópi, en þeir ljúka framhalds- skólanáminu á þremur árum í stað fjögurra. HG stendur fyrir Hópur-Hraði-Gæði og er ætlaður fyrir sterka nemendur. Af 89 stúdentum útskrifuðust 28 úr HG- hópnum og meðal þeirra var dúx- inn í ár, Brynjólfur Víðir Ólafs- son. Þrátt fyrir að klára á þremur árum lauk hann stúdentsprófi með 9,52 sem verður að teljast glæsilegur árangur. Blaðakonu finnst liggja beint við að spyrja Brynjólf hvort hann hafi þá átt sér eitthvert líf þessi þrjú ár. „Jájá, á reyndar kannski til að hanga meira í tölvunni en góðu hófi gegnir. Svo skreppur maður út í fótbolta til mótvægis við það. Ég fór út í þetta þriggja ára nám án þess að vita nákvæmlega hvað ég var að fara út í. En svo var þetta ekki jafnerfitt og ég hafði reiknað með. Maður þurfti bara að passa að fylgjast vel með í tímum og reyna að jafna niður álaginu í stað þess að ætla að læra allt námsefnið daginn fyrir próf. Þar fyrir utan hef ég nú ekki þró- að neina sérstaka námstækni. Lagði bara áherslu á að fylgjast með jafnharðan þegar farið var yfir efnið.“ En hvernig kemur til að Brynj- ólfur valdi að ganga til liðs við HG-hópinn? „Úff, í rauninni leist mér vel á að ná að klára sem fyrst.“ Þá ligg- ur beint við að spyrja hvað Brynj- ólfi finnist um styttingu fram- haldsskólanámsins. Hann segist aðeins hafa pælt í því og finnist mikilvægt að hver og einn hafi val um það sem henti honum. Ef nám- ið verði stytt niður í þrjú ár fyrir alla sé hætta á að námsframboðið minnki sem og gæði kennslunnar. „Mér leist ekki alveg á Flensborg, var meira að leita að skóla sem byði upp á fjölbrautakerfi. Annars vegar kom þetta nám til greina eða þá alþjóðlega IB-námið í Menntaskólanum við Hamrahlíð. En ég endaði á að fara í FG, það er auðvitað styttra að fara úr Hafnarfirði þar sem ég bý og mér fannst ég geta fengið meiri sér- hæfingu út úr því námi.“ Ætlar að skoða heiminn Þar sem blaðakona er stúdent af fyrrnefndri IB-braut spyr hún hvort Brynjólfur hafi ekki einnig þá reynslu að innan í svona sér- smíðuðu litlu prógrammi verði til þéttur hópur. „Jú, það má líklega segja að maður hafi fengið það besta úr hvoru tveggja í HG- náminu; fjölbrauta- og bekkja- kerfinu. Á fyrstu önninni okkar var farið með hópinn í þriggja daga ferð til Akureyrar þar sem við kynntumst öll vel og um vorið tókum við þátt í nemendaskiptum og héldum til Noregs í viku.“ En hver eru framtíðaráform þessa efnilega unga manns? „Mig langar að fara utan og skoða heiminn. Nú er ég auðvitað kominn með eins árs forskot á jafnaldrana og ætla ekkert að vera að flýta mér. Enn hef ég ekk- ert neglt niður, það kemur í ljós í haust. Í sumar og fram á haustið verð ég bara að vinna. Meðal ann- ars verð ég ásamt nokkrum út- skriftarfélögum í byggingarvinnu úti á landi.“ Hvað varðar námið í FG segir Brynjólfur að líklega hafi eðl- isfræðin hjá honum Fúsa staðið upp úr. „Hann kom inn sem af- leysingakennari úr Versló en kenndi okkur tvo áfanga. Honum tókst að gæða námið lífi, ef svo má að orði komast, og sá til þess að fólk nennti að mæta í tíma. Leyfði okkur að panta pítsur eða koma með kökur endrum og eins. En svo var námsefnið bara skemmtilegt.“ Spurður hvort hann hyggi á frekara nám í eðl- isfræði segir Brynjólfur að hann stefni líklega á eitthvað verk- fræði- eða tölvunarfræðitengt. „Ég hef aðeins velt fyrir mér að stefna að því að hanna rússíbana í framtíðinni. Væri skemmtilegt að geta sameinað þá ástríðu og vinn- una. Við bróðir minn vorum ein- mitt að pæla í því að það er ágætis svæði hinum megin við fjörðinn frá Sævangi í Hafnarfirði þar sem við eigum heima. Þar mætti skella upp eins og einum skemmtigarði. Að vísu er þar golfvöllur núna en við vippum honum bara í burtu. Mér finnst bara ekkert skemmti- legt í golfi. Skemmtigarðar eru hins vegar í miklu uppáhaldi,“ segir námshesturinn hressi. Brynjólfur Víðir Ólafsson dúxaði í Fjölbraut í Garðabæ Útskrif- aðist á þremur árum með 9,52 Morgunblaðið/jim Smart Brynjólfur Víðir hefur áhuga á að hanna rússíbana í framtíðinni. Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur aps@mbl.is ELDUR skíðlogaði í bifreið sem lagt var í bifreiðastæði við Sléttu- veg í Reykjavík snemma í gær- morgun og gátu lögreglu- og slökkviliðsmenn lítið gert til að bjarga bílnum. Að sögn lögreglu eru eldsupptök í rannsókn. Ekki er því ljóst hvort um íkveikju var að ræða. Ljósmynd/Íris Dögg Asare Bíll gjöreyðilagðist í bruna „MÉR fellur ekki ásýnd flokksins eins og hún er orðin,“ segir Cecil Har- aldsson, forseti bæjarstjórnar á Seyð- isfirði, en hann sagði sig úr Samfylk- ingunni á laugardag eftir að úrslitin í formannskjöri flokksins lágu fyrir. Að öðru leyti vill hann sem minnst segja um ástæðu úrsagnarinnar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, ný- kjörinn formaður flokksins, segist líta á þetta sem persónulegt mál Cecils. Hver verði að ákveða sjálfur með hverjum hann telji sig eigi besta sam- leið. Spurð hvort hún óttist að fleiri segi sig úr flokknum vegna úrslitanna í formannskjörinu segir hún: „Ég get ekki útilokað að einhverjir einstak- lingar sætti sig ekki við niðurstöðuna. En það verður þá svo að vera. Ég vona að þeir átti sig á því að flokk- urinn er sá sami.“ Ekki áhrif á störf í bæjarstjórn Cecil var oddviti T- lista, Tinda, fé- lags jafnaðar-, vinstrimanna og óháðra á Seyðisfirði, í síðustu sveit- arstjórnarkosningum. Hann segir í samtali við Morgunblaðið að úrsögnin muni ekki hafa áhrif á störf hans í bæjarstjórninni enda sé T-listinn ekki tengdur neinum stjórnmálaflokki, hvorki Samfylkingunni né öðrum. „T- listinn er eldri en allir stjórnarand- stöðuflokkar, eins og þeir líta út í dag,“ segir hann. Sjálfur segist hann hafa gengið í Alþýðuflokkinn fyrir nær fimm ára- tugum. Í gegnum þá félagsaðild gekk hann í Samfylkinguna. Hann var í átt- unda sæti á framboðslista Samfylk- ingarinnar í Norðausturkjördæmi fyrir síðustu þingkosningar. Ingvar Sverrisson, framkvæmda- stjóri Samfylkingarinnar, segist ekki vita til þess að fleiri hafi sagt sig úr flokknum eftir landsfundinn um helgina. „Ég hef aðeins heyrt um þessa einu úrsögn og það frá þér,“ sagði hann við blaðamann í gær. Skrifstofa flokksins var lokuð í gær. Ingvar segist hafa gefið starfs- mönnum frí vegna anna í kringum landsfundinn. Skrifstofan verður opn- uð í dag. Ingvar segir að þá muni koma betur í ljós hvort fleiri hafi sagt sig úr flokknum. Ákvörðun Cecils Haraldssonar, for- seta bæjarstjórnar Seyðisfjarðar Flokkurinn er sá sami, segir Ingibjörg Sólrún Cecil Haraldsson Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Sagði sig úr Samfylkingunni að kjöri loknu SLÖKKVILIÐ höfuðborgar- svæðisins var kallað að fjölbýlis- húsi við Háaleitisbraut klukkan 16:36 í gær eftir að eldur kom þar upp í þvottavél í sameign í kjall- ara. Greiðlega gekk að slökkva eld- inn og olli hann litlum skemmd- um. Töluverður reykur barst hins vegar af eldinum upp stigaganga hússins. Eldur í þvottahúsi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.