Morgunblaðið - 24.05.2005, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Það er sama mottóið áfram, aldrei að gefast upp.
Svo virðist sem eitt-hvað hafi dregið úrfjölgun á komum
erlendra ferðamanna
hingað til lands það sem af
er árinu, ef miðað er við
bæði tölur um hótelgist-
ingar og tilfinningu þeirra
sem starfa við að þjónusta
erlenda ferðamenn hér á
landi.
Ómögulegt er hins veg-
ar að segja hvort þetta
þýði að ferðamönnum
muni ekki fjölga jafnhratt
á árinu í heild eins og und-
anfarin ár, þar sem hefð-
bundnar leiðir til að meta slíkt,
svo sem fyrirfram bókaðar ferðir
og gistingar, eru ekki lengur góð-
ur mælikvarði þar sem fólk bókar
með sífellt styttri fyrirvara.
Hjá Upplýsingamiðstöð ferða-
manna í Reykjavík finnur starfs-
fólkið greinilega fyrir því að færri
sækja miðstöðina heim það sem af
er þessu ári en á sama tíma í fyrra,
þótt það sé e.t.v. ekki algerlega
samanburðarhæft þar sem mið-
stöðin flutti snemma á síðasta ári,
og hefur auk þess fengið sam-
keppni. Engu að síður segir Drífa
Magnúsdóttir verkefnisstjóri að
fækkun innlita sé á bilinu 12–20%
frá janúar og út apríl miðað við
sama tíma í fyrra, t.d hafi um
11.000 ferðamenn sótt miðstöðina
heim í apríl 2004, en aðeins um
8.800 í sama mánuði í ár. Ástandið
virðist þó heldur hafa tekið að
glæðast í maí þó erfitt sé að bera
það saman fyrr en mánuðurinn er
liðinn.
Gríðarleg aukning 2004
Vegna vandkvæða við talningu
erlendra ferðamanna sem fara um
Flugstöð Leifs Eiríkssonar hafa
ekki fengist neinar tölur yfir er-
lenda ferðamenn sem komið hafa
til landsins það sem af er árinu. Á
síðasta ári varð gríðarleg fjölgun
frá árinu áður, og komu rúmlega
362 þúsund ferðamenn hingað til
lands með flugi og Norrænu, sam-
anborið við um 320 þúsund árið
2003. Þó hafði orðið mikil aukning
milli árana 2002 og 2003.
Ástæðurnar fyrir því að erlend-
um ferðamönnum virðist ekki
fjölga jafnört í ár og í fyrra má
trúlega að miklum hluta rekja til
sterkrar stöðu krónunnar gagn-
vart erlendum myntum. Fólk sem
starfar í ferðaþjónustu segir áber-
andi að þeir sem koma á annað
borð kvarti sáran yfir verðlaginu
hér á landi, og eyði lægri upphæð-
um hér á landi en algengt var fyrir
nokkrum árum.
Hótelbókanir það sem af er
árinu virðast standa að mestu
leyti í stað samanborið við árið
2004. Þó hefur bókunum útlend-
inga fækkað eitthvað, en á móti
kemur að bókunum Íslendinga
hefur fjölgað. Hér er þó aðeins
miðað við tölur frá hótelum, ekki
gistiheimilum, og því vel mögulegt
að aukning hafi orðið hjá gisti-
heimilunum ef erlendir ferða-
menn eyða minna hér á landi en
áður. Einnig er hugsanlegt að er-
lendir gestir dvelji færri nætur
hér á landi en áður, sem passar vel
við þá breyttu hætti sem eru að
verða þar sem fólk fer fleiri en
styttri ferðir, með styttri fyrir-
vara.
Erfitt er að meta hvernig fjöldi
ferðamanna á eftir að þróast þeg-
ar fer að líða á árið, enda má segja
að hefðbundnar leiðir til þess að
meta það séu ónothæfar vegna
breyttra hátta ferðamanna. Erna
Hauksdóttir, framkvæmdastjóri
Samtaka ferðaþjónustunnar, seg-
ir að fyrirvarinn sem hafður sé á
ferðalögum sé sífellt að minnka,
fólk taki skyndiákvarðanir þegar
ódýr flug bjóðast á netinu og bóki
því hótel og aðra þjónustu með
mjög stuttum fyrirvara.
Utanlandsferðum fjölgar
Á sama tíma og fjölgun er-
lendra ferðamanna dregst saman
er gríðarleg aukning í ferðum Ís-
lendinga úr landi, og ljóst að hátt
gengi krónunnar miðað við er-
lenda gjaldmiðla letur erlenda
ferðamenn en hvetur þá íslensku
til þess að koma sér úr landi.
Hjá einni af þeim ferðaskrif-
stofum sem haft var samband við
reiknaðist mönnum til að aukning
á ferðum Íslendinga í skipulagðar
ferðir til útlanda sé um 30% frá
síðasta ári, og þá hafi þó verið
aukning frá árinu 2003. Ef tekið er
mið af því að Íslendingar eins og
aðrir eru ekki síður duglegir að
nota sér tilboð og ódýrt flug sem
býðst með stuttum fyrirvara má
gera ráð fyrir því að það sé ekki
varlega áætlað.
Hjá Icelandair hefur sætafram-
boðið í sumar verið aukið um 20%
frá síðasta sumri, m.a. með því að
bæta við nýjum áfangastað, San
Francisco í Bandaríkjunum.
Aukningin hjá félaginu hefur þó
verið áberandi minnst á flutningi á
erlendum ferðamönnum hingað til
lands, þar sem þó hefur orðið
aukning frá síðasta ári.
Aukning hefur einnig orðið í
flugi á vegum Iceland Express, og
munar þar mikið um að bætt hefur
verið við nýrri flugleið til Hahn-
flugvallar við Frankfurt í Þýska-
landi. Forsvarsmenn fyrirtækis-
ins segja að þar eigi eftir að koma
aukning frá síðasta ári, en erfitt sé
að bera saman milli ára til að sjá
aukningu þar sem flugvélakostur
félagsins hafi tekið breytingum.
Fréttaskýring | Heldur virðist draga úr
fjölgun erlendra ferðamanna
Lítill fyrirvari
á bókunum
Mikil aukning er á ferðum Íslendinga til
útlanda enda er gengið hagstætt
Ferðamenn virðast eyða minna nú en áður.
Skammur fyrirvari hefur
bæði kosti og galla
Bókanir með skömmum fyrir-
vara, sem fara sívaxandi á tímum
nettilboða og lággjaldaflug-
félaga, hafa bæði kosti og galla
fyrir fyrirtæki í ferðaþjónust-
unni. Erfiðara er fyrir þau að
gera áætlanir fram í tímann, en á
móti kemur að hægt er að nota
sér þá sem bóka með skömmum
fyrirvara til þess að fylla í glufur
sem myndast. T.d. eru gjarnan
boðin góð tilboð þegar glufur
myndast í bókunum á milli stórra
hópa.
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
LEIKSKÓLINN Austurborg í Háaleitishverfi fagnaði
30 ára afmæli um helgina. Foreldrar, starfsfólk og
börn hófu hátíðina á skrúðgöngu um hverfið á laugar-
dag við undirleik lúðrasveitar. Göngunni lauk síðan við
leikskólann þar sem hoppkastali og afmæliskaka höfðu
mesta aðdráttaraflið.
Morgunblaðið/ÞÖK
Austurborg fagnaði afmæli