Morgunblaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2005 9
FRÉTTIR
Laugavegi 63
sími 551 2040Silkitré og silkiblóm
Mikið úrval
af fallegum útikerjum
Póstsendum
Laugavegi 4, sími 551 4473
Sumardress
Verð kr. 4.500
Sundfatnaður í úrvali
Þri. 25/5: Spínatlasagne m.
brokkolí og tófúsalati m. tveimur
salötum og hýðishrísgrjónum.
Mið. 25/5: Ratatoule m.
pastasalati, tveimur salötum og
hýðishrísgrjónum.
Fim. 26/5: Hnetusteik m.
sinnepssósu, epalasalati og tveimur
salötum og hýðishrísgrjónum.
Fös. 27/5: Grískur pottréttur og
fetasósa m. tveimur salötum og
hýðishrísgrjónum.
Helgin 28.-29/5: Mexikósk helgi.
Bankastræti 9, sími 511 1135
www.paulshark.is - paulshark.it
Full búð
af nýjum vörum
www.feminin.is
Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16.
Gallafatnaður og
leðurjakkar frá
Str. 38-56
s i m p l y
Flott
sumarlína
Fallegir litir
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18, lau. kl. 10—16
Bólero peysur
3 litir • stærðir 36-56
Bæjarlind 6
sími 554 7030
SUMAR 2005
20%
afsláttur
af jökkum, buxum
og peysum
24.-28. maí
Nánar á netsíðu:
www.svanni.is
SENDUM LISTA ÚT Á LAND
SÍMI 567 3718
KULDI síðustu daga hefur gert
mörgum veiðimanninum erfitt fyrir,
ekki síst norðanlands. Sumir bænd-
ur við Laxá í Aðaldal leyfa ætt-
ingjum og vinum að reyna við urrið-
ann í ánni á vorin.
Þegar rætt var við þá Atla Vigfús-
son á Laxamýri og Benedikt Krist-
jánsson á Hólmavaði, sögðu þeir að
loksins væri komin einhver hláka,
eftir margar frostanætur í röð og
snjókomu. Engu að síður hafa veiði-
menn eitthvað verið að berja vatnið.
Um síðustu helgi náðu veiðimenn
á Hólmavaði 15 fiskum, bæði bleikju
og urriða. Veiddu þeir í snjókomu og
frosti, og fraus í lykkjunum.
Lítið hefur verið reynt að veiða
við Laxamýri í kuldanum en Atli
sagði urriðann hafa verið kominn vel
af stað fyrir kuldatíðina.
Lukkulegir veiðimenn
Félagar sem veiddu í Köldukvísl á
hálendinu sunnanlands í síðustu viku
voru mjög lukkulegir. Veiddu fimm
bleikjur og býsna vænar, tvær voru
fjögur pund og þrjár fimm og hálft.
Veiddu þeir vatnið andstreymis og
tóku bleikjurnar Peacock og latex-
púpur.
Sjóbirtingurinn virðist genginn til
hafs úr Varmá og Þorleifslæk en ein
og ein stór bleikja hefur verið að
veiðast við svokallaða Stíflu, og að
sögn veiðimanna sjást margar stór-
ar dóla sér þar um. Þá hafa menn
verið að setja í ágætis staðbundna
urriða.
Á sunnudaginn kemur, 29. maí,
býður Stangaveiðifélag Hafnar-
fjarðar til veiða í Kleifarvatni. Fé-
lagar í SVH verða á svæðinu og taka
á móti gestum.
Kleifarvatn er stærsta vatnið á
Reykjanesskaga og þriðja stærsta
vatnið á Suðurlandi, 9,1 km², og eitt
af dýpstu vötnum landsins, 97 m.
Það hefur lítið aðrennsli en ekkert
frárennsli á yfirborðinu. Bleikjuseiði
úr Hlíðarvatni í Selvogi voru sett í
vatnið á sjötta áratugnum og þau
hafa dafnað vel, þannig að veiði er
oft ágæt.
Einu skilyrðin fyrir veiði á sunnu-
dag eru að veiðifólk tilkynni sig og
komi síðan að veiði lokinni með þann
afla sem fæst til myndatöku og
skráningar. Veitt verða verðlaun
fyrir stærsta veidda fiskinn.
STANGVEIÐI
Silungsveiði í snjókomu
Ljósmynd/Birgir Örn Arnarson
Helgi Guðbrandsson með vænar bleikjur við Köldukvísl.
veidar@mbl.is
MJÓLKURSAMLAGIÐ Mjólka
hefur boðist til þess að kaupa um-
frammjólk af bændum, sem fram-
leidd er innan greiðslumarks, á
hærra verði en afurðastöðvar greiða
almennt. Afurðastöðvarverðið er
33,13 kr. á lítra en Mjólka býðst til að
kaupa á 44,17 kr. á mjólkurlítrann.
Ólafur M. Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Mjólku, segir að ef
miðað sé við að magn umframmjólk-
ur verði um 4,5 milljónir lítra gætu
tekjur mjólkurbænda aukist um
a.m.k. 50 milljónir kr. ef aðeins er
miðað við afurðastöðvarverðið. Hann
segir réttinn til þess að kaupa mjólk
með þessum hætti, vinna hana og
selja svo á innanlandsmarkaði vera
ótvíræðan.
Sigurgeir Þorgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Bændasamtaka Ís-
lands (BÍ), segist ekki sjá neitt at-
hugavert við það að Mjólka kaupi
mjólk af bændum sem sé framleidd
innan greiðslumarks á sama hátt og
önnur mjólkursamlög starfi, ef
bændur vilji taka upp þau viðskipti.
Öðru máli gegni varðandi kaup á
mjólk sem er framleidd umfram
greiðslumark.
Ólafur telur óeðlilegt að mjólkur-
iðnaðurinn geti haft frjálsar hendur
með það hvað þeir greiði fyrir um-
frammjólk. Hann telur markaðinn
eiga að ráða verðmynduninni.
Hann segir það vera í hróplegu
ósamræmi að Bændasamtök Íslands
standi í vegi fyrir virkri samkeppni á
afurðum bænda, sem muni leiða til
hærra verðs á þeirra afurðum, á
sama tíma og þeir leiti til ríkisins eft-
ir fjárstuðningi upp á fleiri milljarða
króna.
Hafa fengið jákvæð viðbrögð
Hann kveðst hafa fengið afar já-
kvæð viðbrögð frá bændum og segist
vera kominn með nokkra aðila sem
vilja skoða þessi viðskipti nánar.
„Við höfum ekki gefið út endanlega
það greiðslufyrirkomulag sem við
munum hafa fyrir mjólk. Við munum
gera það upp úr mánaðamótunum.“
Mjólka, sem starfar utan greiðslu-
markakerfis landbúnaðarins, hefur
að sögn Ólafs aðgang að hráefni í
gegnum vinnslu fyrirtækisins ásamt
því að það hefur tryggt að nokkrir
bændur ætli að leggja inn mjólk.
Um er að ræða fjóra aðila sem
ætla sér að hefja framleiðslu á mjólk
utan greiðslumarkakerfisins. Auk
þess hafa nokkrir aðilar, sem starfa
innan kerfisins, óskað eftir viðskipt-
um við Mjólku.
Hyggst greiða
hærra verð fyrir
umframmjólk
Eftir Jón Pétur Jónsson
jonpetur@mbl.is
ER NEFIÐ STÍFLAÐ?
Fæst í apótekum
og lyfjaverslunum
STERIMAR
Skemmir ekki slímhimnu
er náttúrulegur
nefúði sem losar stíflur
og léttir öndun.
Fyrir 0-99 ára.
Fréttir á SMS
Fréttasíminn
904 1100