Morgunblaðið - 24.05.2005, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 24.05.2005, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2005 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF KNÚTUR G. Hauksson, annar tveggja forstjóra Samskipa hf., hef- ur verið ráðinn forstjóri Heklu hf. frá næstu mánaðamótum. Tryggvi Jónsson, núverandi forstjóri Heklu, verður frá sama tíma starfandi stjórnarformaður hjá félaginu. Hjör- leifur Jakobsson mun láta af stjórn- arformennsku en sitja áfram í stjórn félagsins. Stjórnarmönnum fjölgar um einn. Knútur segir að sér hafi boðist að ganga inn í eigendahóp Heklu. Hann hafi ákveðið að ganga að því og ætli nú að helga sig rekstri þess félags. „Það hefur verið mjög skemmtilegt hjá Samskipum þau tæpu fimm ár sem ég hef verið þar og breyting- arnar hafa verið gríðarlegar. En fyr- ir mig persónulega þótti mér spenn- andi að fara inn í eigendahóp Heklu,“ segir Knútur og viðurkennir að vera mikill „bíladellukall“. Um brotthvarf sitt frá Samskipum segir hann að það sé allt í góðu gert. „Menn þar hafa skilning á því að maður vilji gera eitthvað annað.“ Eignarhlut sinn í Keri hf. segist Knútur reikna með að selja enda muni hann nú einbeita sér að nýjum verkefnum. Ekki er frágengið hversu stór eignarhlutur Knúts verður í Heklu en Hjörleifur Jakobsson kemur til með að selja honum stóran hlut af sínum hlutabréfum. Ekki er gefið nánar upp um hver skipting eignar- hluta í Heklu er. Það verður upplýst síðar, að sögn Knúts. Minnka sveiflur af sölu bíla Tryggvi Jónsson segir um ástæð- ur mannabreytinganna að verið sé að breyta áherslum í rekstri Heklu og þróa fyrirtækið þannig að það verði minna háð sveiflum í sölu bíla. „Við höfum aukið við starfsemina, m.a. með bílaleigu, með því að bæta við umboðum og fleira. Og til að beina sjónum enn frekar að eflingu og stækkun Heklu var ákveðið að ég færi alfarið í stefnumótunarmálin,“ segir Tryggvi sem verður starfandi stjórnarformaður sem fyrr segir. Hekla gerði samning um flutninga við Samskip fyrr á þessu ári en er auk þess með samninga við Eimskip. Tryggvi segir að ekki séu fyrirhug- aðar breytingar á þeim samningum. Forstjórar Samskipa verða áfram tveir talsins. Ásbjörn Gíslason verð- ur áfram annar þeirra og nýr for- stjóri hjá Samskipum verður kynnt- ur til sögunnar í dag. Knútur G. Hauksson frá Samskipum til Heklu Með bíladellu Skoda er ein bílategundanna sem Hekla hefur umboð fyrir. Eftir Soffíu Haraldsdóttur soffia@mbl.is /  0 + ,+ + 01 2 13 4                  !"#   !$   % "&' (&  )* &# &  )#&  $&' (& % "&'  +,"  -# .    /0,.    /0 !. ,  &#(  1      ! 0 % "&'  2 &'  20 .&  3(&   $45& .6 &&    78,.  /%!  /" 9" /"&'    /"0   :    ;:## &#0   &  < && "  &  =0 00 >/5(,#       !  (    ! ,"' ?:..    $&' 40 % "&'    ;5 5  "#  $%  @A?B /4    ,                   > >   > > > >  > > > > >   ,: &#  :   ,   > > > > > > >  > > > > > > > >   > > > > > > > > > > C DE > C > DE C >DE > C >DE C DE C >DE C > DE C >DE C DE C DE > C DE C >DE > C > DE > > > C DE > > > > > > > > > > C DE 2, "'    '# & ; "( 4 " '# F ) /"                    >      >  > > > >  > > > > >                >         >                   >       >   <    4 *G   ;2 H #&"  !."'               >  >  > > > >  > > > > >  ;2> I  0 0"'&' " ".  ;2> /:"'  "  ",##. 0 :  "( , &  ;2> <,#& :  0 . 0#&& 9"#  ;2>  (, & G#,,&' ;2> <,#& 5&&" 5 "  "( 0 && ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● ÚRVALSVÍSITALA fimmtán veltu- mestu félaga í Kauphöll Íslands lækkaði um 0,35% í gær og endaði í 4.075 stigum. Viðskipti með hluta- bréf námu alls 2,8 milljörðum króna, mest með hlutabréf í Íslandsbanka um 850 milljónir. Mest verðhækkun var á hlutabréfum í Nýherja (1,63%) og Og Vodafone (0,96%). Mest lækk- aði verð bréfa í Granda (-1,23%) og Kaupþingi banka (0,94%). Lækkun á markaði ● NORSKA símafyrirtækið Telenor hefur keypt danska netfyrirtækið Cybercity og sænska fyrirtækið Bredbandsbolaget (BBB). Kaupverð á Cybercity er 1,4 milljarðar danskra króna, jafnvirði liðlega 15 milljarða íslenskra króna, en Telenor greiðir 6 milljarða sænskra króna fyrir BBB, sem svarar til um 53 milljarða ís- lenskra króna. Samtals hefur Tele- nor því fjárfest fyrir um 68 milljarða íslenskra króna á fjarskiptamarkaði í Danmörku og Svíþjóð. Cybercity er þriðja stærsta breið- bandsfyrirtæki Danmerkur með um 8% markaðshlutdeild og um 90 þús- und viðskiptavini. Telenor á fyrir ann- að stærsta farsímafyrirtækið í Dan- mörku, Sonofon, að því er segir í danska miðlinum Børsen. Viðskiptavinir BBB í Svíþjóð eru um 325 þúsund heimili og um 10 þúsund fyrirtæki, að því er segir í hinu norska Dagens Nyheter. Telenor fjárfestir í Danmörku og Svíþjóð ● OMX-kauphallarsamstæðan vill taka þátt í einkavæðingu kauphallar- innar í Varsjá í Póllandi (WSE). Haft er eftir Magnus Boecker, forstjóra OMX, í frétt á pólska fréttavefnum Warsaw Business Journal, að pólski fjármálamarkaðurinn þurfi á því að halda að kjölfestufjárfestir komi að einkavæðingu WSR. Segir hann að OMX myndi vilja koma til greina sem slíkur kjölfestufjárfestir. OMX rekur kauphallirnar í Stokk- hólmi, Kaupmannahöfn, Helsinki, Tallin, Riga og Vilnius. Kauphöllin í Ósló og Kauphöll Íslands eru einu sjálfstæðu kauphallirnar á Norður- löndunum. OMX vill kjölfestu í kauphöllinni í Varsjá BRESK stjórnvöld undirbúa að hrinda í framkvæmd áætlun sem miðar að því að gera fyrstu íbúðar- kaupendum auðveldar með að eign- ast íbúð. Áætlunin gengur út á það að kaupendurnir leggi út fyrir um helmingi íbúðarverðs á hinum al- menna markaði en stjórnvöld og lánastofnun við- komandi sjái um fjármögnun á hinum helm- ingnum, og eigi íbúðina á móti kaupendunum. Kaupendurnir munu engu að síður geta selt íbúðir sínar á frjálsum markaði þegar þeim hentar. Haft er eftir Gordon Brown, fjár- málaráðherra Bretlands, á frétta- vef BBC-fréttastofunnar, að áætl- unin geti orðið til þess að yfir 100 þúsund fleiri fjölskyldur muni geta fest kaup á sínu eigin húsnæði á næstu fimm árum en ella. Dregið hefur úr möguleikum Mjög hefur dregið úr fjölda þeirra sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð á Bretlandi á umliðnum árum. Kem- ur fram í frétt BBC að þeir hafi ver- ið um helmingur kaupenda fyrir tveimur áratugum og rúmur helm- ingur, eða 55%, fyrir einum áratug en 29% á síðasta ári. Brown segir í samtali við BBC að nauðsynlegt sé að auðvelda fyrstu íbúðar-kaupendum að eignast íbúð, en verðhækkanir á fasteignamark- aði hafi dregið mjög úr mögu- leikum þeirra. Þá er haft eftir talsmanni sam- taka húsnæðislánastofnana að það sé ekki vafamál að áætlanir stjórn- valda muni koma sér vel fyrir fyrstu íbúðar-kaupendur, sem eigi erfitt með að fóta sig á markað- inum nú. Fyrstu íbúðar- kaupendum hjálpað í Bretlandi LAUNAVÍSITALAN hækkaði um 0,5% milli mars og apríl samkvæmt mælingu Hagstofu Íslands. Síðast- liðna tólf mánuði hafa laun hækkað um 6,7%. Á sama tíma hækkaði verð- lag um 4,3% og hefur kaupmáttur launa því vaxið um 2,4% á þessu tímabili. Engar vísbendingar um launaskrið Í frétt á vef Alþýðusambands Ís- lands (ASÍ) segir að þrátt fyrir hækkun launavísitölunnar milli mars og apríl sé launaskrið ekki mikið þótt tölur Hagstofunnar bendi til þess. Segir þar að í þessari mælingu Hag- stofunnar gæti ennþá áhrifa af tvennum kjarasamningsbundnum launahækkunum á almennum mark- aði, þ.e. við gildistöku nýrra kjara- samninga í mars og apríl í fyrra, ásamt hækkunum um 3% um síðustu áramót. Þá segir ASÍ að áhrif launahækk- ana í kjölfar samninganna í fyrra fari nú dvín- andi og megi því búast við því að það hægi á launa- hækkunum. „Áhrif nýgerðra samninga á opin- bera markaðnum koma einnig inn af fullum þunga í þessari mælingu, þar sem búið er að semja við flesta aðila. Þegar búið er að taka tillit til kjarasamningsbundinna hækkana, eru engar vísbendingar um almennt launaskrið,“ segir ASÍ. Líkur á launaskriði Við annan tón kveður í Vegvísi greiningardeildar Landsbanka Ís- lands. Þar segir að margt bendi til þess að aðstæður á vinnumarkaði séu að breytast í átt til aukinnar þenslu. Atvinnuleysi hafi farið lækk- andi að undanförnu en í aprílmánuði hafi skráð atvinnuleysi á landinu öllu verið 2,3% en það var 3% í janúar. „Má því gera ráð fyrir að líkur á al- mennu launaskriði hafi aukist veru- lega,“ segir greiningardeild Lands- bankans. Kaupmáttur upp um 2,4% ALLT útlit er fyrir að ekkert verði af kaupum sænsk-finnska fjarskipta- risans TeliaSonera á 27% hlut í tyrk- neska farsímafyrirtækinu Türkcell. Seljandinn, tyrkneska fjárfestingar- félagið Cukurova, hefur hætt við við- skiptin, að því er segir á fréttavef Børsen. Cukurova gerði samkomulag við TeliaSonera um sölu á 27% hlut í Türkcell í marsmánuði síðastliðnum fyrir um 3,1 milljarð Bandaríkjadala, sem svarar til um 200 milljarða ís- lenskra króna. TeliaSonera, sem er stærsta fjarskiptafyrirtæki á Norð- urlöndum, á fyrir 37% hlut í Türkcell og hefði eignarhlutur þess því farið í 64% eftir viðskiptin. Stjórnendur Cukurova hafa sætt mikilli gagnrýni fyrir að ætla að koma Türkcell í hendur útlendinga og minnihlutaeigendur hótuðu lög- sókn. TeliaSonera kaupir ekki í Türkcell 7 'J /KL    D D !;/? M N     D D A A -+N     D D )!N 7 ,      D D @A?N MO 3&,      D D

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.