Morgunblaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2005 15
ERLENT
Klæðskerasniðnar lausnir
Fjármögnun í takt við þínar þarfir
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 540 1500 Fax 540 1505
www.lysing.is
H
in
ri
k
Pé
tu
rs
so
n
l
w
w
w
.m
m
ed
ia
.is
/h
ip
“fia› er metna›ur okkar a› veita ávallt
klæ›skerasni›na rá›gjöf í bland vi›
persónulega fljónustu sem byggir á
sérflekkingu okkar í fjármögnun
atvinnutækja. Vi› sní›um fjármögnun í
takt vi› flarfir hvers og eins, enda vitum
vi› a› hver vi›skiptavinur okkar er
einstakur.“
Arnar Snær Kárason
Rá›gjafi, Fjármögnun atvinnutækja
Tveir fyrir einn til
Prag
9. júní
frá kr. 19.990
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð
á síðustu sætunum til Prag þann
9. júní. Þú bókar 2 flugsæti en
greiðir aðeins fyrir 1. Nú getur
þú kynnst þessari fegurstu borg
Evrópu á einstökum kjörum og
að sjálfsögðu nýtur þú traustrar
þjónustu fararstjóra okkar
í Prag allan tímann.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • Akureyri sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
Síðustu sætin
Gisting frá kr. 3.400
Netverð á mann í tvíbýli á Hotel Quality,
pr. nótt með morgunmat.
Völ um góð 3ja og 4 stjörnu hótel.
Verð kr. 19.990
í viku
Flugsæti með sköttum til Prag,
2 fyrir 1 tilboð, út 9. júní,
heim 16. júní. Netverð á mann.
ÁRSFUNDUR HÁSKÓLA ÍSLANDS
Ársfundur Háskóla Íslands verður haldinn
þriðjudaginn 31. maí 2005 kl. 11 - 12 í Hátíðasal,
Aðalbyggingu Háskólans.
Dagskrá
• Páll Skúlason háskólarektor setur fundinn, fer yfir
starfsemi síðasta árs og fjallar um meginatriði í starfi
Háskólans.
• Ingjaldur Hannibalsson, formaður fjármálanefndar
háskólaráðs, gerir grein fyrir reikningum ársins 2004
og kynnir fjárhag Háskólans.
• Rektor svarar fyrirspurnum.
NAMBARIIN Enkhbayar, fyrrum
forsætisráðherra og frambjóðandi
sósíalista, sigraði í forsetakosn-
ingum sem fram fóru í Mongólíu á
sunnudag. Forsetinn hét því að berj-
ast gegn fátækt og stuðla að pólitísk-
um stöðugleika er hann fagnaði sigri
í gær.
Enkhbayar, sem var frambjóð-
andi Byltingarflokks mongólskrar
alþýðu, hlaut 53,4% atkvæða en
helsti keppinautur hans, Mendsaikh-
an Enkhsaikhan, sem fór fram fyrir
Lýðræðisflokkinn, hlaut 19,7%.
Tveir karlmenn aðrir voru í fram-
boði í forsetakosningunum. Þátttaka
var góð eða 74,9%. Á kjörskrá voru
rúmlega þrettán hundruð þúsund
manns. Kosningarnar þóttu fara vel
fram.
2,7 milljónir búa á
1500 þúsund ferkílómetrum
Í Mongólíu búa um 2,7 milljónir
manna og heldur þriðjungurinn til í
höfuðborginni, Ulan Bator („Rauða
hetjan“ á íslensku). Helmingur
landsmanna er hirðingjar. Þeir eiga
undir högg að sækja og ýmsir halda
því fram að þessi lífsmáti fái ekki
staðist öllu lengur. Atvinnulíf á
landsbyggðinni er afar fábreytt svo
ekki sé sterkar að orði kveðið.
Enkhbayar forseti vísaði til
ástandsins á landsbyggðinni á
fréttamannafundi sem hann boðaði
til þegar niðurstaðan lá fyrir í gær.
Hét hann því að beita sér fyrir efna-
hagslegum framförum í hinum mjög
svo dreifðu byggðum Mongólíu
(landið er gríðarstórt, um fimmtán
hundruð þúsund ferkílómetrar). „Al-
þýðan krefst þess af mér að ég vinni
gegn atvinnuleysi og fátækt og ég
mun þrýsta á ríkisstjórnina um að
hún setji þessi málefni efst á verk-
efnalistann,“ sagði hann.
Mikil gleði ríkti í herbúðum for-
setans nýja, sem er 47 ára gamall.
Enkhbayar lauk námi við framhalds-
skóla númer 23 í Ulan Bator árið
1975. Þá hélt hann til Moskvu þar
sem hann lagði stund á bókmenntir.
Eftir að hafa lokið BA-prófi þar hélt
hann til Englands þar sem hann
nam við Háskólann í Leeds.
Flokkur hans er hinn gamli
kommúnistaflokkur landsins sem nú
kennir sig við lýðræði og sósíalisma.
Kommúnistar voru einráðir í landinu
í rúm 70 ár eða fram til 1990 þegar
veldi kommúnismans hrundi í Mið-
og Austur-Evrópu. Mongólía varð
þá sjálfstætt ríki en hafði fram að
þeim tíma verið eins konar hjáleiga
Sovét-Rússa.
Deilur og flokkadrættir
Enkhbayar tekur við embættinu
af Natsagiin Bagabandi, fyrrum
kommúnista, sem verið hefur forseti
í tvö kjörtímabil og mátti ekki bjóða
sig fram að nýju. Forseti Mongólíu
er talinn sameiningartákn þjóðar-
innar og hefur lítil formleg völd.
Deilur hafa mjög sett mark sitt á
mongólsk stjórnmál síðasta árið eða
svo. Þingkosningar fóru fram í júní í
fyrra en þær skiluðu ekki afgerandi
niðurstöðu. Frá þeim tíma hefur allt
logað í deilum á milli Lýðræðis-
flokksins og sósíalista sem neyddust
til að mynda saman stjórn. Til að
unnt reyndist að mynda starfhæfa
stjórn fór svo að lokum að Tsakhia
Elbegdorj, frjálslyndur fulltrúi Lýð-
ræðisflokksins, var skipaður for-
sætisráðherra en Enkhbayar, sem
verið hafði forsætisráðherra frá
árinu 2000, varð forseti þingsins.
Ýmsir þeir sem sérfróðir teljast
um mongólsk stjórnmál spá því nú
að spennan í samskiptum stóru
flokkanna muni enn aukast eftir sig-
ur Enkhbayars. Kjör hans muni
verða til þess að raska viðkvæmu
valdajafnvægi í landinu. Þá muni
áhrif forsetans í stjórnmálum lands-
manna aukast vegna stöðunnar á
þingi.
Nokkuð hefur borið á því að al-
menningur í Mongólíu hafi fengið
nóg af deilum og valdabrölti stjórn-
málamanna. Þannig hefur komið til
mótmæla við aðsetur stjórnarinnar í
Ulan Bator þar sem pólitísk spilling
hefur verið fordæmd og þess krafist
að lýðræðislegir stjórnarhættir
verði innleiddir í landinu.
Heitir baráttu gegn
fátækt og atvinnuleysi
Reuters
Nambariin Enkhbayar, nýr forseti Mongólíu, glaður í bragði á frétta-
mannafundi í gær. Öruggur sigur hans í fyrstu umferð kom nokkuð á óvart
ekki síst í ljósi þess að flokkur hans tapaði umtalsverðu fylgi í þingkosning-
unum í fyrra og neyddist til að mynda stjórn með höfuðandstæðingunum.
Enkhbayar leggur áherslu á efnahagslegar framfarir í
hinum dreifðu byggðum Mongólíu eftir forsetakosningar
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
’Helmingur lands-manna er hirðingjar.
Þeir eiga undir högg að
sækja og ýmsir halda
því fram að þessi lífs-
máti fái ekki staðist öllu
lengur. ‘
Frambjóðandi sósíalista kjörinn forseti Mongólíu
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn