Morgunblaðið - 24.05.2005, Qupperneq 16
Verið umhverfisvæn
og finnið 3 svansmerki
umhverfismerki Norð-
urlanda sem leynast í
Morgunblaðinu og á
mbl.is dagana 23. maí-3. júní.
Sendu okkur blaðsíðunúmerin úr
Morgunblaðinu eða síðuheitið af mbl.is
ásamt nafni og símanúmeri á netfangið
broturdegi@ruv.is eða bara beint frá mbl.is.
1. __________________
2. __________________
3. __________________
Dregið verður úr innsendum lausnum daglega í
þættinum Brot úr degi á Rás 2. Heppnir þátttakend-
ur geta unnið USB minnislykil.
Föstudaginn 3. júní verður dregið úr öllum innsend-
um lausnum í beinni á Rás 2 um stórglæsilega og
umhverfisvæna Fujitsu Siemens tölvu frá Tæknival.
Umhverfisstofnun, Morgunblaðið og Rás 2 með um-
hverfið á hreinu.
Austur-Húnavatnssýsla | Þótt kalt sé í lofti væsir
ekki um ærnar og lömbin á Sölvabakka í Austur-
Húnavatnssýslu. Þó að erfitt sé að vinna að sauð-
burði í slíkum kulda og roki barma bændur sér
ekki mikið á meðan þurrt er. Verra er þar sem
bleyta fylgir kuldanum. Fénu á Sölvabakka er gef-
ið úti við fjárhúsin. Ærnar eru vel dúðaðar en lífs-
baráttan er harðari hjá litlu lömbunum.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Kalt á litlu lömbunum
Veðráttan
Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Fiskur er auðvitað aðalmálið í sjávar-
þorpi eins og Grundarfirði og þar snýst
lífið oft að stórum hluta í kringum fiskinn.
Lífæðin er höfnin þar sem menn hittast
gjarna í kaffisopa í vigtarskúrnum hjá
hafnarverðinum á morgnana og taka púls-
inn á bæjarmálunum. Hafnarstjórinn hef-
ur verið kampakátur frá áramótum og
reyndar æ kátari með hverjum mánuði
sem líður því hver mánuður hefur verið
metmánuður í afla. Í framhaldi af auknum
umsvifum á höfninni verða menn í hafnar-
stjórn bjartsýnir og hyggja á frekari um-
svif, sækja þeir nú mjög stíft að auka með
fyllingu við landrýmið við höfnina til þess
að geta reist svokallað frystihótel og jafn-
framt að gera höfnina að tollhöfn.
Franska er hins vegar tungumál sem
allajafna er ekki mikið talað í Grundar-
firði en heyrðist hér víða um vikutíma
skeið í byrjun maí. En þá var hópur
franskra skólabarna frá bænum Paimpol í
Frakklandi í heimsókn og dvaldist meðal
jafnaldara sinna hér. Vinarbæjartengsl
hafa skapast milli Grundarfjarðar og
Paimpoil og liður í því að efla þau tengsl
voru samskipti nemenda níunda bekkjar í
Grunnskólanum við hina frönsku jafn-
aldra sína. Frá síðastliðnu hausti hafa
bekkirnir verið í tölvusamskiptum og
verkefnavinnu undir stjórn kennara sinna
en síðan hittust þau augliti til auglitis í
byrjun maí og dvöldu Frakkarnir á heim-
ilum hinna grundfirsku félaga sinna. Þeg-
ar líður að mánaðamótum maí–júní halda
nemendur 9. bekkjar úr Grundarfirði til
Frakklands og hitta þar félaga sína aftur
og fá þá að kynnast frönskum heimilum.
Fjölbrautaskóli Snæfellinga lýkur nú
senn sínu fyrsta starfsári. Það er sam-
dóma álit allra jafnt þeirra sem búa á
Snæfellsnesi sem og þeirra sem þar
starfa að tilkoma skólans hafi verið mikið
framfaraspor. Skólinn er í fararbroddi í
nýjum kennsluháttum á framhaldsskóla-
stigi og til hans litið af öðrum framhalds-
skólum sem fylgjast vilja með hvernig til
tekst.
Úr
bæjarlífinu
GRUNDARFJÖRÐUR
Eftir Gunnar Kristjánsson fréttaritara
Börnin í leikskólanum Undralandiá Flúðum héldu sinn árlegaþemadag á laugardaginn og
sýndu hvað þau höfðu að hafst í leikskól-
anum í vetur. Sást þar fjölbreytni og
hugmyndaríki barnanna.
Yfirskrift þemasýningar vetrarins var
að þessu sinni: „Ég og umhverfi mitt“. Á
myndinni gefur að líta vinkonurnar
Ragnheiði Björk, Þórdísi Jónu og
Brynju Sólveigu, allar sex ára, að líta á
nokkra gripi sýningarinnar. Þær setjast
á æðra skólastig í haust, í fyrsta bekk
Flúðaskóla.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
„Ég og umhverfi mitt“
Steingrímur í Nesiorti vísu við komuheim frá veiðum
þar sem veiði var treg, en
vísan var ranglega eignuð
öðrum hér nýverið. Stein-
grímur dró urriðatitt upp
úr vasa sínum, rétti Sig-
ríði konu sinni og mælti:
Eigðu þetta, yndið mitt
ánni gekk ég nærri;
það er skömm að þessum titt,
þú hefur séð þá stærri.
Egill Jónasson var með
Steingrími að veiðum og
þegar hann kom heim um
kvöldið hafði hann fengið
bröndu allnokkuð stærri
en þá sem Steingrímur
fékk um morguninn. Rétti
hann Sigfríði konu sinni
og mælti:
Una skaltu þér við þitt
það mun réttast vera,
ennþá býð ég betri titt
en bændur almennt gera.
Friðrik Steingrímsson í
Mývatnssveit snýr út úr
gömlu kvæði:
Ísland, Ísland, eg vil syngja
Evróvisjón tónabreim,
það er erfitt því að kyngja
að þurfa að fara stiglaus heim.
Af veiðum
pebl@mbl.is
Staðarsveit | „Krakkarnir komu vel fram
og voru kurteisir. Við erum stolt af því að
hafa fengið þá í heimsókn,“ segir Jónína
Þorgrímsdóttir, ferðaþjónustubóndi í Ytri-
Tungu í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Hún
hafði nóg að gera eins og fleira ferðaþjón-
ustufólk í sveitinni því hátt í 300 manna
hópur tíundubekkinga úr nokkrum skólum
dvaldi þar í síðustu viku eftir að sam-
ræmdu prófunum lauk.
Fjórir hópar tíundubekkinga komu í
Staðarsveit og dvöldu í Ytri-Tungu, á
Görðum og í Lýsuhólsskóla. Þeir voru frá
félagsmiðstöðinni Árseli og Hamarsskóla
úr Reykjavík, Digranesskóla í Kópavogi og
Glerárskóla á Akureyri. Jónína segir að
nokkuð þröngt hafi verið um krakkana en
allt hafi gengið vel.
„Við vorum uggandi um að þetta yrði
erfitt, sérstaklega Akureyringarnir, vegna
frétta sem maður hefur heyrt þaðan. En
það komu eintómir englar,“ sagði Jónína
sem sagðist ekki geta orða bundist vegna
þess hversu allir hefðu verið tillitssamir í
garð starfsfólks og annarra gesta, kurteis-
ir, glaðir og skemmtilegir.
„Það komu ein-
tómir englar“
Súðavík | Sveitarstjórn Súðavíkurhrepps
hefur ákveðið að hækka laun fyrir setu í
sveitarstjórn og nefndum á vegum sveitar-
félagsins. Greiðslur tvöfaldast í mörgum
tilvikum. Sameiginleg tillaga sveitarstjórn-
armanna um endurskoðun á nefndarlaun-
um var lögð fyrir fund sveitarstjórnar síð-
astliðinn föstudag og samþykkt. Til
hliðsjónar var yfirlit um nefndarlaun í
nokkrum öðrum sveitarfélögunum.
Samkvæmt samþykktinni fær oddviti í
föst laun 30 þúsund kr. á mánuði og 15 þús-
und fyrir hvern setinn fund. Fulltrúar í
sveitarstjórn fá 10 þúsund kr. fyrir hvern
fund í stað liðlega 4.800 kr. áður. Formenn
nefnda fá 7.500 fyrir hvern fund í stað lið-
lega 3.600 kr. Laun fyrir setu í nefndum
hækka úr liðlega 2.400 kr. í 5 þúsund.
Tillagan var samþykkt með atkvæðum
fulltrúa meirihlutans, einn fulltrúi sat hjá
og Sigurdís Samúelsdóttir greiddi atkvæði
á móti. Hún lét bóka að hún væri sammála
því að nefndarlaun væru skammarlega lág
og þau þyrfti að hækka en vildi að breyt-
ingin tæki ekki gildi fyrr en um áramót svo
gera mætti ráð fyrir hækkuninni í fjár-
hagsáætlun.
Laun fulltrúa
í nefndum
tvöfaldast
♦♦♦