Morgunblaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR SUÐURNES Hvanneyri | Á bilinu 20 til 30% fiskanna sem laxveiðimenn veiða og sleppa veiðast aftur og smábrot veiðist í þriðja sinn. Eykur þetta veiðina í Hofsá og Selá í Vopnafirði um 200 til 300 laxa á ári og telur vísindamaður sem rann- sakað hefur endurveiði laxa í þessum tveimur ám að sleppingarnar geti aukið mjög verð- mæti haustveiðinnar í laxveiðiám. Borgar Páll Bragason er að ljúka BS-prófi eftir fjögurra ára nám á landnýtingarbraut Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri og varði hann í gær ritgerð sína um endurveiði í íslenskum laxveiðiám. Athugaði hann tölur um veiðar og sleppingar í Hofsá í Vopnafirði frá árunum 2002 til 2004 og í Selá í Vopnafirði síðari tvö árin. „Í boði var áfangi sem nefnist ferskvatnsnýting og Sigurður Már Einarsson, fiskifræðingur hjá Vesturlandsdeild Veiði- málastofnunar, kennir. Svo tengist þetta áhugamáli mínu, ég ólst upp við Hofsá og var veiðivörður við ána á síðasta sumri,“ segir Borgar Páll þegar hann er spurður um ástæð- ur þess að hann tók þetta verkefni fyrir í nám- inu. Hann er frá Burstafelli í Vopnafirði og ólst því upp á bökkum einnar bestu laxveiðiár landsins. Borgar var að aðstoða við sauðburð um helgina þegar rætt var við hann. „Þetta gengur ágætlega. Að vísu er veðrið hundleið- inlegt og ekki sér fyrir endann á því. Maður hefur ekki brjóst í sér til að sleppa kindunum út með lömbin og það er því orðið frekar þröngt í húsunum,“ segir Borgar Páll. 20–30% veiðast aftur Í rannsókn sinni athugaði Borgar Páll hlut- fall endurveiðinnar, hversu langur tími líður á milli og hversu langt frá merkingarstað lax- arnir veiðast í annað og þriðja skipti. Veiði- málastofnun hefur áður gert minni rannsókn á endurveiði laxa en Borgar Páll hefur haft mun betri gögn til að vinna úr, bæði vegna þess að merkingarnar hafa staðið lengur og svo hafði hann einstæða aðstöðu til að fylgja merking- unum eftir þegar hann starfaði sjálfur sem veiðivörður við Hofsá síðastliðið sumar. Hins vegar hefur ekki áður verið athugað hér á landi hvert laxarnir hafa farið eftir sleppingu. Niðurstaða hans er sú að 20 til 30% laxanna sem sleppt er veiðast aftur og smábrot síðan í þriðja skipti. Í Selá og Hofsá er sleppt um helmingi veiddra laxa og þýðir það að 200 til 300 laxar veiðast aftur í hvorri á. Fiskarnir veiddust í annað skipti allt frá einum og upp í sextíu dögum eftir að þeim var sleppt. Meðaltalið var þrjár vikur. Þá end- urveiddust laxarnir bæði ofan við uppruna- lega veiðistaðinn og neðan við hann. Aðallega þó ofan við veiðistaðinn. Telur Borgar að nið- urstöður sínar bendi til að laxarnir húrri niður eftir ánni eftir að þeim er sleppt en haldi síðar göngu sinni áfram upp eftir ánni. Borgar Páll telur að niðurstöður rannsókn- arinnar sýni að ef laxi er sleppt fyrri hluta sumars í íslenskar laxveiðiár aukist veiðin síð- ari hluta sumars. „Það getur aukið verðmæti haustveiðinnar töluvert, þegar fjöldinn er orð- inn þetta mikill.“ Segir hann sleppingarnar sérstaklega mik- ilvægar í ám þar sem hrygningarstofninn er ekki nógu stór. Bendir hann á að mikið veiði- álag sé í íslenskum laxveiðiám og þessi aðferð, að veiða og sleppa, geti verið gott tæki til að stjórna veiðum við þannig aðstæður. Einnig sé hún góð viðleitni til að auka stórlaxagengd enda sleppi veiðimenn aðallega stærri löxun- um. Fylgt eftir í sumar Rannsókn Borgar Páls hefur vakið athygli áhugafólks um laxveiði og hann segist hafa fengið nokkrar fyrirspurnir út af henni. Hefur hann áhuga á að kynna hana frekar en ekkert verið ákveðið í því efni. „Ég verð aftur veiðivörður við Hofsá í sum- ar og reikna þá með að halda áfram að skoða endurveiðina til að gera gagnasafnið stærra og marktækara. Það dugar mér í bili,“ segir Borgar Páll en hann hefur ekki ákveðið hvað hann tekur sér fyrir hendur í haust. Á þriðja hundrað laxa endurveiðist á hverju sumri eftir sleppingu í Hofsá og Selá í Vopnafirði Getur aukið mjög verðmæti haustveiðanna Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Ljósmynd/Borgar Páll Veitt og sleppt Veiðieftirlitsmaður merkir lax fyrir sleppingu í Selá í Vopnafirði. Námslok Borgar Páll Bragason varði í gær ritgerð sína um endurveiði á löxum. LANDIÐ Keflavík | „Það fylgir því streita þegar mikið er að gera. En þetta er rosalega gaman og svo léttir þegar törninni er lokið,“ segir Jóna Marín Ólafsdóttir úr Keflavík sem sópaði að sér verðlaunum á útskriftarathöfn vorannar í Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem fram fór síðastliðinn laugardag. Hún varð efst á stúdentsprófi og vann til ótal verðlauna. Að þessu sinni brautskráðust 95 nemendur á vorönn. Þar af voru 43 stúdentar, 5 meistarar, 12 iðnnemar, 9 sjúkraliðar og 5 af starfsbraut. Þá útskrifuðust 9 nem- endur af starfsnámsbrautum, 17 af flugþjónustubraut og tveir skiptinemar. Við athöfnina voru veittar viðurkenningar fyrir góðan námsárangur. Jóna Marín Ólafsdóttir hlaut viðurkenn- ingu Sparisjóðsins í Keflavík fyrir hæstu einkunn á stúd- entsprófi og hún hlaut einnig viðurkenningar ýmissa fyr- irtækja fyrir árangur sinn í íslensku, stærðfræði, líffræði, jarðfræði, eðlis- og efnafræði, ensku og þýsku. „Ég er ágæt á öllum sviðum en langskemmtilegastar eru raungreinarnar, stærðfræði, líffræði og efnafræði,“ segir dúxinn þegar hún er spurð um áhugasviðin. Hún er að fara í útskriftarferð með hópnum til Mexíkó og vinnur síðan í Sparisjóðnum í Keflavík í sumar. Framhaldið er óráðið. „Ég er að hugsa um að taka mér frí frá námi næsta vetur. Nota tímann til að þroska mig aðeins meira og jafnvel að ferðast.“ Hún segist hafa áhuga á að fara í tungumálaskóla og þar kemur margt til greina, spænska, ítalska eða jafnvel tungumál Kínverja, og ferðast síðan í framhaldinu. Hún hyggst síðan hefja háskólanám að ári. Jóna Marín var mikið í félagsmálum í skólanum í vet- ur, var varaformaður nemendafélagsins eftir áramót, þannig að fleira kemst að hjá henni en skólabækurnar. Einnig hefur hún áhuga á ferðalögum og tónlist þótt hún sé ekki lengur í tónlistarnámi. Fleiri nemendur voru verðlaunaðir fyrir góðan árang- ur. Þórdís Garðarsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í samfélagsgreinum. Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson fékk viðurkenningar fyrir góðan árangur í raungreinum og myndlist. Bjarki Már Elíasson fékk gjöf fyrir árangur sinn í efnafræði og Ingibjörg Dröfn Halldórsdóttir fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur á flugþjónustubraut. Þá fékk Brynja Hafsteinsdóttir gjöf fyrir árangur á sjúkraliðabraut og Elín Kjartansdóttir fyrir árangur á flugþjónustubraut. Hulda Oddsdóttir fékk viðurkenningu fyrir árangur í bókfærslu, Sidi Zaki Ramadhan fyrir ensku, Þórdís Garðarsdóttir fyrir fé- lagsfræði, Sigrún Lilja Jóhannesdóttir fyrir góðan ár- angur í tungumálum og Marinó Gunnarsson og Ólafía Bragadóttir fyrir árangur í íþróttum. Nemendur á starfsbraut fengu viðurkenningar fyrir sinn árangur; Ás- mundur Þórhallsson fyrir tölvugreinar, Árni Jakob Ósk- arsson fyrir íþróttir, Berglind Daníelsdóttir fyrir ís- lensku, Konráð Ragnarsson fyrir stærðfræði og Þormar Helgi Ingimarsson fyrir myndlist. Þau Arnar Fells Gunnarsson, Atli Már Gylfason, Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson, Hildur Gunnarsdóttir, Jóna Marín Ólafsdóttir, Runólfur Þór Sanders og Sigrún Lilja Jó- hannesdóttir fengu öll viðurkenningu fyrir störf í þágu nemenda skólans. Einnig fengu skiptinemarnir Mariam Elisabeth Hill og Martino Larocchia gjöf frá skólanum til minningar um veru sína á Íslandi og í skólanum. Við lok athafnarinnar veitti Oddný Harðardóttir skóla- meistari Guðna Kjartanssyni, Gísla Torfasyni og Sum- arrós Sigurðardóttur gullmerki Fjölbrautaskóla Suð- urnesja. Þau hafa öll kennt við skólann í 25 ár, hafa átt farsælan feril og notið vinsælda meðal nemenda og sam- starfsfólks, að því er fram kemur á vef skólans. Gísli lést þennan dag og var haldin kyrrðarstund til minningar um hann í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju síðdegis í gær. Sópaði að sér viðurkenningum við útskrift vorannar í FS Mikill léttir þegar törn- inni er lokið Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Verðlaun Jóna Marín Ólafsdóttir varð efst á stúdents- prófi og sópaði að sér verðlaunum við útskrift hjá FS. Reykjanesbær | Nemendur á námskeiði Myndlistarskóla Reykjaness stöfluðu stólum og borðum á mitt gólf salarkynna skólans í Svarta pakkhúsinu og hengdu sloppa og verkfæri á. Þetta verk, gerningur, varð til vegna þess að rýma þurfti til fyrir sýningu á afrakstri námskeiðs. Vakti gerningur þessi síst minni athygli en málverkin sem hengd voru á veggina. Fjórtán nemendur voru á nám- skeiði á vorönn í Myndlistarskóla Reykjaness. Þuríður Sigurðardótt- ir var leiðbeinandi. Hjördís Árna- dóttir, formaður Félags myndlist- armanna í Reykjanesbæ, sagði að námskeiðið hefði gengið vel en hún tók sjálf þátt í því. Sagði að þetta væri þriðja námskeiðið sem Þur- íður stjórnaði í skólanum og nám- skeiðið nú hefði verið framhald af öðru námskeiði sem Þuríður kenndi. Námskeiðið gekk út á að kynna fyrir þátttakendum stefnur og strauma í myndlist og mismun- andi aðferðir. „Hún sýndi okkur óhefðbundna list og hvernig hægt væri að nota óhefðbundnar aðferð- ir. Síðan voru gerð verkefni í tengslum við það viðfangsefni sem tekið var fyrir hverju sinni,“ sagði Hjördís. „Maður lærir ýmislegt nýtt og nær að þróa sig áfram á svona námskeiði. Hér er engin stöðnun,“ segir Hjördís. Nemendur sýndu verk sín í hús- næði Myndlistarskóla Reykjaness í Svarta pakkhúsinu um helgina. Þeirri sýningu er nú lokið en í Svarta pakkhúsinu er nú opið sum- argallerí félagsins. Þar eru lista- verk og handverk og er galleríið opið alla daga frá kl. 13 til 17. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Sýning Gerningurinn sem byggðist á tiltekt nemendanna vakti einna mestu athyglina á útskriftarsýningu Myndlistarskóla Reykjaness. Gerningur úr hús- gögnum og slopp- um vakti athygli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.