Morgunblaðið - 24.05.2005, Síða 21

Morgunblaðið - 24.05.2005, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2005 21 UMRÆÐAN Tandur hf • Hesthálsi 12 • 110 Reykjavík • Sími: 510 1200 • Fax: 510 1201 • tandur.is Höfum í boði mikið úrval af Svansmerktum hreinsiefnum, nú einnig fáanleg með ilmefnum. Innkaupastjórar fyrirtækja og stofnana athugið! Umhverfisvottuð hreinsiefni Norræna umhverfismerkið Svanurinn er vitnisburður um gæðavöru með lágmarks umhverfisáhrifum. Þorsteinn H. Gunnarsson: Nauðsynlegt er að ræða þessi mál með heildaryfirsýn og dýpka umræðuna og ná um þessi málefni sátt og með hags- muni allra að leiðarljósi, bæði núverandi bænda og fyrrver- andi. Dr. Sigríður Halldórsdóttir: Skerum upp herör gegn heim- ilisofbeldi og kortleggjum þennan falda glæp og ræðum vandamálið í hel. Svava Björnsdóttir: Til þess að minnka kynferðisofbeldi þurfa landsmenn að fyr- irbyggja að það gerist. For- varnir gerast með fræðslu al- mennings. Jóhann J. Ólafsson: „Lýðræð- isþróun á Íslandi hefur, þrátt fyrir allt, verið til fyrirmyndar og á að vera það áfram.“ Pétur Steinn Guðmundsson: „Þær hömlur sem settar eru á bílaleigur eru ekki í neinu sam- ræmi við áður gefnar yfirlýs- ingar framkvæmdavaldsins, um að skapa betra umhverfi fyrir bílaleigurnar.“ Guðmundur Hafsteinsson: „Langbesti kosturinn í stöð- unni er að láta TR ganga inn í LHÍ og þar verði höfuðstaður framhalds- og háskólanáms í tónlist í landinu.“ Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar UM þessar mundir er mikið rætt um sölu ríkisins á Símanum. Það fer þess vegna ekki hjá því að menn spyrji sjálfa sig og aðra hver afstaðan sé til beinna eða óbeinna kaupa á hlut í fyrirtækinu og alveg klárt að allir fjárfestar, stórir jafnt sem smáir og jafnvel einnig þeir sem hugsa um hvar spariféð sé best geymt, velta fyrir sér hvort um sé að ræða vænlega ávöxt- unarleið. Ég er reyndar þeirrar skoðunar að hinn almenni spari- fjáreigandi líti ekki síst á orðspor eða „karakter“ fyrirtækja áður en ákvörðun er tekin um fjárfestingu. Hér á eftir ætla ég því að segja frá hvernig ég hef upplifað ýmis sam- skipti, bein og óbein, við þetta fyr- irtæki. Á sama tíma og ég hóf störf sem fulltrúi bæjarfógetans í Kópavogi að loknu laganámi, kom einn af lögregluþjónum embættisins úr launalausu leyfi sem hann hafði notað til þess að annast verktöku við hitaveituframkvæmdir. Verk- efnin fólust í því að grafa hei- mæðaskurði frá aðalæð. Stundum urðu hann og samstarfsmenn hans við gröftinn fyrir því óláni að slíta símalínur. Umræddur verktaki er nákvæmnismaður sem vildi gera rétt og vel, enda beið hans frami innan lögreglunnar. Hann sá til þess að tjónið væri bætt, nema þegar teikningar sýndu að lagn- irnar hefðu átt að vera annars staðar en þær reyndust. Stjórnendur Símans gerðu kröfu um að meira yrði bætt en lög- regluþjóninum þótti rétt og sann- gjarnt og gerðu honum reikning, sem hann neitaði að greiða. Lesandi þessa greinarkorns get- ur örugglega ekki ímyndað sér til hvaða úrræða stjórnendur Símans gripu, en þau voru að heimasíma lögregluþjónsins var lokað. Já, slíkt var gerræðið. Ég gleymi því aldrei hvernig Sigurgeir bæjarfóg- eti tók á málinu og kom vitinu fyr- ir stjórnendur Símans. Á þessum árum voru ekki aug- lýsingar í símaskránni eins og nú tíðkast. Ungur maður hratt í fram- kvæmd þeirri hugmynd sinni að búa til hlífðarkápur utan um síma- skrár. Á kápunum voru auglýs- ingar sem fjármögnuðu uppátækið. En hvað gerðu yfirvöld þessa lands? Að beiðni Símans voru sett- ar reglur sem bönnuðu að kápusíð- ur símaskrárinnar væru huldar og rökin voru að á síðunum væru svo mikilvægar upplýsingar, einkum varðandi almannavarnir, að þær ættu að vera öllum aðgengilegar þegar á þyrfti að halda og án tafar. Ekki veit ég hvers vegna þetta þótti svona nauðsynlegt þá, eða hvaða hagsmuni Síminn þóttist vera að verja, en eftir þetta varð unga manninum ekki kápan úr því klæði sem hann hafði efnt til og til- neyddur hætti hann annars arðsamri fram- kvæmd. Eins og aðrir Ís- lendingar hef ég gam- an af að ferðast til framandi landa. Þá er stundum hringt heim í ýmsum tilgangi. Á sumum símasjálfs- ölum erlendis er skjár þar sem sjá má hverju hefur verið eytt í símtalið. Ég tók eftir því að í upphafi hvers samtals til Íslands snarminnkaði inneignin um leið og svarað var. Þótti mér þetta skrýtið og las í símaskránni allt sem ég fann um gjaldtöku fyrir símtöl, en allt kom fyrir ekki, þar fann ég ekki stafkrók sem gæti skýrt fyr- irbærið. Ég hringdi því á inn- heimtudeild bæjarsímans, en fékk engin svör, starfsmennirnir kunnu engar skýringar á þessari upplifun minni. Ég gafst ekki upp og eftir að ég hafði náð sambandi við mann hátt í metorðastiga fyrirtækisins fékk ég loks skýringuna: Þótt það sæist hvergi í gjaldskrám og al- mennir starfsmenn hefðu ekki hugmynd um það hefur um langt árabil verið innheimt svokallað svargjald sem samsvarar nokkrum skrefum í talningu á lengd símtala. Ég þarf ekki að lýsa því hvað ég hugsaði, það getur lesandinn sjálf- sagt ímyndað sér. Þegar boðið var upp á það sem kallað er númerabirting þáðu hana margir enda þægilegt að sjá á símaskjá úr hvaða síma hringt er. En hafa menn hugsað hvaða þjón- usta er veitt við þetta af hálfu símafyrirtækisins? Jú, í tölvubún- aði er til þess gerð braut opnuð og síðan þarf ekki meira um það að hugsa. En notandinn þarf að borga tiltekna fjárhæð í hverjum mánuði fyrir „þjónustuna“. Nýlega var ég að rekja fram- angreint fyrir manni sem reyndist sömu skoðunar og ég um „þjón- ustufyrirtækið“ Símann. Hann bætti við það síðasttalda og benti mér á að hægt væri að fá lás á dýr símtöl (t.d. í farsíma, til útlanda og í ýmsa þjónustusíma) með einfaldri aðgerð í símstöðinni, og þótt fram- kvæmdin væri aðeins ein og til langs tíma væri innheimt mán- aðargjald fyrir „þjónustuna“. Ég trúði manninum ekki fyrr en ég hafði fengið staðfestingu hjá fyr- irtækinu sjálfu. Eftir að hafa öðlast skilning á því sem að framan hefur verið rak- ið hefur mér líka skilist á hverju stórgróði Símans byggist. Ég er sammála stjórnvöldum um að rétt sé að selja þetta fyrirtæki vegna þess að því getur ekki fylgt ánægja að samsama sig því, ekki einu sinni í eigin hugarheimi. Kaupir þú? – Ekki ég Leó E. Löve fjallar um bein og óbein samskipti sín við Símann ’… þau voru að heima-síma lögregluþjónsins var lokað.‘ Leó Löve Höfundur er lögfræðingur. HVAÐ er að? Erum við orðin dómarar yfir tilfinningum fólks á grundvelli misskilinna ritning- argreina innan Biblíunnar sem örfáar sálir setja fram, okkur þiggjandi almúganum til leiðbein- ingar? Erum við að sökkva okkur ofan í glataðan farveg þeirra þröngsýnu sem leyfa sér að setjast í hásæti þeirra hroka- fullu? Erum við svo firrt að setja megi pennastrik yfir mann- réttindi ákveðins hóps fólks sem er svo hug- rakkt að það leggur í að storka okkur „venjulega fólkinu“ sem giftum okkur í kirkju, eigum börn, skiljum og segjum að þetta sé allt venjulegt á meðan annað fólk má ekki einu sinni gifta sig innan kirkj- unnar? Hve lengi eigum við að taka okkur það vald að dæma unga drengi til útilokunar frá lífinu? Erum það ekki við sem annað hvort dæmum eða þegjum og ekkert segjum, sem berum einnig ábyrgð á því að ungir drengir, í hringiðu ung- lingslegrar sjálfhverfu eru sann- færðir um að líf þeirra sé einskis virði vegna þess að þeir passa ekki inn í normin sem við álítum passa inn í okkar samfélag? Erum það ekki við sem höfum mörg mannslíf á samviskunni vegna þeirrar ör- væntingar sem það veldur að hljóta ekki viðurkenningu, eða það að ótt- ast svo að hljóta ekki viðurkenn- ingu, og sem fremja þann óskap- lega verknað í algerri örvæntingu að svipta sig lífi? Hvers er rétt- urinn? Með þessu er ég ekki að segja að stúlkur og konur lendi ekki í þeirri tilfinningalegu tilvistakreppu sem ungir karlar lenda í. Vinkonum leyfist ákveðin nánd, sem fleytir e.t.v. yfir erfiða hjalla, en fordóm- arnir lenda síðar einnig á þeim. Um leið og ég segi að kirkjan beri ábyrgð, vil ég árétta að við er- um kirkjan. Flestir Íslendingar til- heyra kristinni kirkju og við megn- um mikils ef við svo viljum hafa. Að sjálfsögðu eru kristnir ekki ein- ir um að setja siðferðisstuðulinn í samfélaginu. En það að fullyrða að Biblían fordæmi samkynhneigð vís- ar í það að viðkomandi er ekki al- veg í takt við það sem liggur að baki ritningunni. Biblían er rituð fyrir um 2–3000 árum. Í henni er ekki beinlínis talað um samkyn- hneigð, eins og við þekkjum hana í dag. Skilgreiningin um samkyn- hneigð var ekki til eins og við þekkjum hana. Það að leggjast með karli sem kona væri lýsir ákveðnu valdi yfir þeim sem drottnað er yf- ir. Hér komum við inn á viðtekna hlutverkaskipan kynjanna í hinum semíska menningarheimi, sem raunar virðist oft enn vera við lýði hér hjá okkur á Íslandi í dag. Í þessu samhengi er einnig ritað að ekki skuli leggjast hjá dýrum. Það er ljóslega ekki verið að tala um samkynhneigð! Nægir hér að benda á þá löngu tímabæru leiðréttingu sem komin er fram í nýrri biblíuþýðingu Biblíu 21. aldarinnar, þar sem í stað gömlu þýðingarinnar frá 1981 sem hljómar svo í Fyrra Korintubréfi 6:9–10: Vitið þér ekki, að ranglátir munu ekki Guðs ríki erfa? Villist ekki! Hvorki munu saurlífismenn né skurðgoðadýrk- endur, hórkarlar né kynvillingar, þjófar né ásælnir, drykkjumenn, lastmálir né ræningjar Guðs ríki erfa. Er komin mun ásætt- anlegri tillaga sem hljómar svona: Vitið þér ekki að ranglátir munu ekki erfa Guðs ríki? Villist ekki! Hvorki munu saurlíf- ismenn né skurðgoða- dýrkendur, hórkarlar né þeir sem leita á drengi eða eru í slag- togi við þá, þjófar né ásælnir, drykkjumenn, lastmálir né ræningjar erfa Guðs ríki. Eins og kemur fram í nýju þýðingunni er hér frekar átt við barnaníðinga en sam- kynhneigða. Þetta er kærkomin endur- skoðun, þar sem farið er eftir þeirri merk- ingu sem felst í text- anum. Það eru ekki margir staðir í Biblíunni sem tala um samneyti tveggja manneskja af sama kyni, en eru þeir iðulega teknir úr sam- hengi. Þannig eru þeir settir utan við þann endurleysandi kærleik sem fagnaðarboð Jesú Krists er. Tökum afstöðu með kærleik- anum, eins og Bjarni Karlsson rit- ar um í grein sinni hinn 27. apríl s.l. Kærleikurinn er öllu æðri. Kær- leikur Jesú Krists er það afl sem fleytir okkur áfram og gerir okkur sterk hvert með öðru og hvert fyrir annað. Látum ekki afvegaleiða okk- ur í skrumskælingu á stökum setn- ingum góðrar ritningar sem teknar eru úr samhengi sínu. Þegar við erum í vafa um rétt- mæti eigin viðbragða, skulum við spyrja okkur: Hvað mundi Jesús gera? Hvað mundi Jesús gera? Ása Björk Ólafsdóttir fjallar um boðskap Biblíunnar Ása Björk Ólafsdóttir ’Látum ekki af-vegaleiða okkur í skrumskæl- ingu á stökum setningum góðr- ar ritningar sem teknar eru úr samhengi sínu.‘ Höfundur er guðfræðinemi við HÍ. Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is lím og fúguefni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.