Morgunblaðið - 24.05.2005, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 24.05.2005, Qupperneq 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Kuldakastið síðustu vik-urnar hefur ekki aðeinsáhrif á mannfólkið held-ur einnig á gróður og dýralíf. Sérfræðingar á þessum sviðum, sem Morgunblaðið ræddi við, segja kuldann seinka vorverk- um náttúrunnar, eins og fuglavarpi og trjávexti, en ekki sé farið að bera á neinni hættu eða skemmd- um. Verði hins vegar ekki lát á kuldakastinu næstu vikurnar geti áhrifin á lífríkið verið önnur og verri. Þannig eru aspir farnar að gulna víða í Eyjafirði, líkt og komið væri haust. Tjarnir víða vatnslitlar Samkvæmt upplýsingum úr Mý- vatnssveit er fuglalíf þar heldur fá- tæklegra en oft áður á sama árs- tíma og varp fugla mun seinna á ferðinni. Jóhann Óli Hilmarsson fuglasérfræðingur segir það líklegt að kuldinn norðanlands hafi meiri áhrif þar á fuglalífið heldur en sunnanlands, þar sem sólin hefur skinið skært og hitinn verið heldur meiri en fyrir norðan. Þó hafi þurr- katíð þau áhrif í Flóanum, þar sem Jóhann Óli þekkir vel til, að tjarnir og vötn séu víða vatnslítil. „Vorhret hafa alltaf áhrif á varp fugla en ég tel að svona eitt kalt vor, eftir góð síðustu sumur, muni ekki hafa dramatísk áhrif. Fuglarn- ir eru orðnir ýmsu vanir hérna á Ís- landi en áhrifin af kuldanum munu sjást betur í sumar,“ segir Jóhann Óli og telur áhrif á varp einna helst verið hjá fálkum og örnum, sem verpi snemma. Hvað fálkann varð- ar geti fjöldi rjúpna vegið á móti áhrifum kuldans. Sauðburður er í fullum gangi í sveitum landsins og veðurfarið hef- ur haft þau áhrif að ekki hefur ver- ið hægt að setja lömbin á úthaga- beit. Jóhannes Sigfússon, sauðfjárbóndi á Gunnarsstöðum í N-Þingeyjarsýslu, segir kuldann hafa þýtt mun meiri vinnu fyrir bændur. Kuldinn seinki öllum gróðri og því þurfi að gefa fénu sem á annað borð er sleppt úr húsi. Ef ekki fari að hlýna á næstunni og beitarhagar að koma upp stefni allt í „leiðindaástand“. Jörð alhvít dögum saman Jóhannes segir jörð hafa verið al- hvíta dögum saman að undanförnu og himinninn hafi verið eins og um hávetur, lágskýjað og vætutíð. Hálfdimmt hafi verið á kvöldin og hrollkalt. Ekki sé að undra þótt mannfólkið sé orðið langþreytt á veðurfarinu og farið að len sumarveðri. Þórólfur garðyrkjustjóri Reykjaví ar, segir að gróðurinn h kominn það vel á veg, þeg kastið byrjaði, að hann mu næturfrost og aðra kuldat Einhver blöð kunni að söln lega hafi bjargað miklu að hafi haldist stöðugur. Hv snögghlýnað né snöggkóln „Auðvitað er slæmt h hefur rignt og gróðurinn e inn þurr. Af þeim völdum grænn gróður fengið að því, þó að það komi ekki st Almennt þolir gróður fros hverju marki, að vísu mism tegundum,“ segir Þórólfu leggur garðeigendum a gróðurinn af og til, einkum ar plöntur, ef ekki fer a Moldin hafi alltaf gott a blotna. Margir ruku til í byrju fjárfestu í sumarblómum. Þórólfs geta þeir hinir söm vandræðum þar sem fles blóm þoli illa fimbulkulda. að hlífa blómunum og kom betra skjól, en öruggast s enn um sinn með að planta blómum í garðinn. „Nú býst ég við að fl búnir að hreinsa til í görðu Vorverkum nátt úrunnar seinka  Kuldakastið hægir á varpi fugla  Trjáblöð fa að gulna  Miklar vinnutarnir við sauðburðinn Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Flest bendir til, að farið séað styttast í formleg rétt-arhöld yfir leiðtogumRauðu khmeranna í Kambódíu, næstum átta árum eftir að farið var að leggja drög að þeim í samvinnu við Sameinuðu þjóðirnar. Almenningur í landinu hefur þó sín- ar efasemdir um, að nokkru sinni verði komið lögum yfir þessa menn, sem báru ábyrgð á dauða fjórðungs þjóðarinnar á aðeins fimm ára valdatímabili. Rauðu khmeranir komust til valda í Kambódíu 1974 en voru hraktir burt 1979 er Víetnamar réð- ust inn í landið. Á þessum tíma þrælkuðu þeir þjóðina og drápu beint eða óbeint upp undir tvær milljónir manna. Tugir eða hundruð þúsunda voru tekin af lífi en aðrir létust úr hungri og sjúkdómum eða örmögnuðust í nauðungarvinnu. Það, sem helst hefur tafið rétt- arhöldin fram að þessu, er kostn- aðurinn við þau. Er hann áætlaður nærri 3,8 milljarðar ísl. kr. og það er fjármagn, sem ekki liggur á lausu í Kambódíu, þessu örsnauða ríki. Nú hins vegar hefur Sameinuðu þjóðunum tekist að tryggja framlög upp á rúmlega 2,8 milljarða kr. og Kambódíustjórn á nú í viðræðum við erlend ríki um að þau leggi fram það, sem upp á vantar. Efasemdir um framgang réttvísinnar Eins og áður segir efast margir um, að leiðtogar ógnarstjórnarinnar fái makleg málagjöld fyrir glæpi sína. Eru ástæðurnar fyrir því margar. Í Kambódíu er mikil, pólitísk spilling; margir fyrrum liðsmenn Khmer- anna eru enn á kreiki, sumir í op- inberri þjónustu, og óttinn við Khmerana liggur enn eins og mara á þjóðarsálinni. Þessar efasemdir komu vel fram í kambódískum útvarpsþætti um þessi mál en þar mátti fólk hringja inn og tjá sig um væntanleg rétt- arhöld. „Í réttarhöldunum verðu að réttum lögum vegna þes þessu landi er mikið af lögu ir, sem fara eftir þeim,“ sag hlustandi. „Þeir valdamiklu lögin en almenningur er all lenda í einhverjum vandræ Annar maður, Pich Kaly sínum tíma var fangi Rauðu anna, kvaðst vona, að rétta færu fram áður en hann yr „Eftir dauða minn gæti ég sálum ættingja minna þá fa aðarfrétt, að réttað hefði ve mönnunum,“ sagði Kalyan Flestir eru enn frjálsir ferða sinna Sumir óttast, að eftirlifand ar Rauðu khmeranna muni sér burt áður en til réttarh kemur. Raunar hafa þrír þe ið í haldi í höfuðborginni, P Penh frá 1999, þeir Ta Mok Sleng, sem var yfirmaður p miðstöðvar khmerastjórna og Kaing Khek Iev, hinn al yfirheyrsluforingi khmeran Helsta arfleifð Rauðra kh Hillir undir réttarhöld yfir Rauðum khmerum Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is Hugsanlegt er að innan árs verði leiðtogar Rauðu khmeranna látnir svara til saka fyrir þjóðarmorðið í Kambódíu á árunum 1974 til 1979. Almenningur í landinu hefur þó sínar efasemdir og óttast að sumir kæri sig ekkert um að farið verði að kafa ofan í fortíðina. NÝTT SKEIÐ Í SJÁVARÚTVEGI? Í samtali við Morgunblaðið sl.sunnudag sagði Ólafur RagnarGrímsson, forseti Íslands, staddur í opinberri heimsókn í Kína m.a. eftir að hafa skoðað frystihús, sem vinnur fisk á vegum íslenzks fyrirtækis: „Mér finnst við vera að sjá hér al- veg nýtt skeið í íslenzkum sjávar- útvegi. Nýtt tímabil, þar sem öll sú mikla reynsla, sem við höfum safn- að á síðustu 50 eða 60 árum í sölu- mennsku, markaðskerfi og vinnslu sjávarafurða er að skila sér á ótrú- legan hátt hér, þar sem tengt er saman fiskur veiddur í Rússlandi, vinnslan fer fram hér og selt á há- gæðamörkuðum í Bandaríkjunum og Evrópu … hér sjáum við þessa ungu sveit vísa okkur veginn til framtíðar og gera það á þann hátt að fæstir á Íslandi þekkja þetta fyr- irtæki … veruleikinn hér er miklu ótrúlegri en nokkrar frásagnir.“ Það er ljóst, að forsetinn hefur hrifizt af uppbyggingu og fram- gangi íslenzkra fyrirtækja í Kína, og er það skiljanlegt, enda ljóst, að umsvif Íslendinga hafa aukizt þar mjög og eiga eftir að aukast enn frá því, sem nú er. Við megum þó aldrei gleyma því, að á þessari uppbyggingu og mikl- um og vaxandi umsvifum er önnur hlið. Hún kom fram í orðum Ellerts Vigfússonar, framkvæmdastjóra Sjóvíkur, í samtali við Morgunblað- ið sl. sunnudag. Hann lýsti stöðu verkafólks í frystihúsinu, sem for- setinn skoðaði, á hreinskilinn hátt. Hann sagði: „Fólkið vinnur tíu tíma á dag, sex daga vikunnar. Launin eru misjöfn eftir stöðum, 120 til 150 dollarar á mánuði. Fólkið býr á staðnum og verksmiðjueigandinn skaffar því húsnæði og fæði, sem ekki er tekið af laununum. Víða í Asíu er lífeyr- issjóður foreldranna börnin þeirra, um annað er ekki að ræða. Þau koma í langflestum tilfellum utan af landi, þar sem fátækt er mikil og mikið atvinnuleysi og eru komin til að vinna og senda peninga heim.“ Síðan segir í frásögn Morgun- blaðsins af samtalinu við fram- kvæmdastjóra Sjóvíkur: „Hann segir, að hver starfskraftur endist tvö til fjögur ár að jafnaði.“ Vélar duga kannski 10 eða 15 eða 20 ár. Mannfólkið í fiskvinnslu í Kína í tvö til fjögur ár. Þetta er at- hyglisverður samanburður á end- ingu. Miðað við gengi gærdagsins nema 120 dollarar nú 7.824 krónum og 150 dollarar 9.780 krónum. Þetta eru mánaðarlaun þessa fólks í ís- lenzkum krónum. Það er auðvitað ljóst, að efna- hagsuppsveiflan í Kína byggist á þessum lágu vinnulaunum. Það er auðvitað ljóst að Kína er að verða framleiðslumiðstöð heimsins vegna þessara lágu launa. Það eru þessi lágu laun, sem valda því, að fólk á Vesturlöndum getur keypt ódýrari vörur en ella. Og að því kemur að launin í Kína hækka og fiskvinnslan verður flutt til annarra landa, þar sem launin verða lægri en þau verða þá orðin í Kína. En það hlýtur að vera mikil spurning, hvort það er rétt hjá for- setanum, að það sé til marks um „nýtt skeið í íslenzkum sjávarút- vegi“ og jafnvel „nýja framtíð“ að hverfa frá vélrænni og tölvuvæddri vinnslu á fiski í frystihúsum hér til vinnslu á fiski í Kína, sem byggir á svo ódýru vinnuafli, sem hér hefur verið lýst. Þetta er hin siðferðilega hlið málsins, sem snýst um mannrétt- indi þessa fólks. Við munum ekki breyta efnahagskerfinu í Kína. Við munum ekki hafa nein áhrif á þessa þróun. Jafnvel þótt forráðamenn ís- lenzkra fyrirtækja vildu taka þátt í að bæta kjör þessa fólks, með hærri launum, hefðu þeir ekkert bolmagn til þess einir og sér og mundu þar með ekki verða samkeppnishæfir á markaðnum mikla. En við megum ekki gleyma þessari hlið málsins og láta eins og hún sé ekki til. Við getum ekki bara fagnað því, að forseti Íslands taki mannréttindi í Kína upp til viðræðu við forseta Kína, en horft framhjá því, að við Íslendingar erum sjálfir að notfæra okkur skort þess fólks á mannrétt- indum, sem er að vinna við vinnslu á fiski á vegum íslenzkra fyrirtækja í Kína, eða hvaða aðra framleiðslu sem er. Hvað felst í því að vinna sex daga vikunnar, tíu tíma á dag, fyrir þessi lágu laun? Er ekki orðið býsna stutt á milli frystihússins og þess, sem einhvern tíma hefur verið kallað vinnuþrælkun? Hvað segir verka- lýðshreyfingin á Íslandi um það? Að minnsta kosti fer ekki á milli mála, að samkeppnisstaða frysti- húsa hér á Íslandi hlýtur að verða mjög erfið á næstu árum frammi fyrir þessari samkeppni frá Kína. En kannski yppta menn öxlum vegna þess, að það verði fyrst og fremst Pólverjar, sem missi vinn- una í frystihúsunum hér. Við hljót- um þó að hafa nokkrar skuldbind- ingar gagnvart því fólki, sem hefur komið hingað til lands og hlaupið undir bagga með grundvallarat- vinnuvegi þjóðar, sem vill ekki lengur vinna við hann nema í tak- mörkuðum mæli. Hins vegar er athyglisvert að ein manneskja í ferð forsetans til Kína gerir sér ljósa grein fyrir þessari hlið á hinni miklu uppbyggingu í Kína. Það er forsetafrúin Dorrit Moussaieff, sem sagði í samtali við Morgunblaðið í gær: „Það er ótrúlegt að sjá hvað Kín- verjar hafa afrekað á stuttum tíma. En þeir hafa gríðarlegan mannafla og mannslíf geta skipt litlu máli hérna. Lífsgæði eru svo bág hér að það er ekki hægt að bera það saman við neitt í Evrópu, hvað þá á Ís- landi. Síðan er bilið milli ríkra og fátækra gríðarlegt. Þess vegna er- um við heppin á Íslandi. Þar er bilið lítið, þótt það hryggi mig að sjá að það hefur stækkað. Það er nokkuð, sem við þurfum að laga, og við höf- um efni á því.“ Þetta er hinn rétti tónn og gott að vita til þess, að á Bessastöðum situr kona, sem gerir sér svo skýra grein fyrir aðstæðum og örlögum fólks.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.