Morgunblaðið - 24.05.2005, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2005 27
MINNINGAR
aðalmanneskjan sem stjórnaði öllu.
Hún stóð uppi á sviði og kynnti alla
ættingjana sem voru á staðnum og
hún var stolt af sínum uppruna enda
komin af Valkyrjuætt, þar sem kon-
urnar eru ekki aðeins fallegar heldur
geisla af orku, gáfum og gleði.
Elsku frænka, nú kveð ég þig með
trega, þakka þér fyrir samveru-
stundirnar sem alltaf voru svo gef-
andi.
Sendi sonum hennar innilegar
samúðarkveðjur.
Áslaug Hauksdóttir.
Elsku Edda, þú kraftmikla vera,
alltaf var sérstakt að hitta þig. Þú
varst svo næm og gast séð svo margt
sem aðrir geta ekki séð.
Við söknum þín, Edda, en ég veit
að þú verður alltaf með okkur.
Innilegar samúðarkveðjur til sona
hennar og aðstandenda.
Þín frænka,
Viktoría Sigtryggsdóttir.
Kæra frænka, ég trúi því ekki að
þú sért farin frá okkur svona fljótt.
Seinast þegar ég sá þig geislaðir þú
eins og aldrei fyrr, og þú virtist svo
hamingjusöm og full af eftirvænt-
ingu. Það voru ófá skiptin sem við
hvolfdum bollum og spáðum eins og
er siður í ættinni. Þegar ég kynntist
þér, sem var fyrst fyrir nokkrum ár-
um, laðaðist ég að því hvað þú varst
orkumikil, næm og gefandi mann-
eskja. Við áttum margt sameiginlegt
eins og nuddið og andleg málefni
enda var alltaf nóg að spjalla um.
Eitt af síðustu skiptunum sem ég
hitti þig var uppi í nuddskóla og þá
man ég að þú sagðir að þú ættir aldr-
ei sama orkusteininn lengi því þú
værir alltaf að gefa þá einhverjum
sem þér fannst vanta tiltekna orku.
Þetta lýsir þér eins og þú varst, um-
hyggjusöm og gjöful.
Kæra frænka, ég kveð þig með
sárum söknuði og ég veit að þú ert
komin á öruggan stað. Það er margt
sem lífið kennir okkur og að þú
skyldir fara svona fljótt kennir okk-
ur að meta það sem við höfum meðan
við höfum það, að lífið er gjöf hér og
nú.
Égvotta sonum og aðstandendum
Eddu samúð mína.
Þín frænka,
Antonía Sigtryggsdóttir.
„Sorgin gleymir engum,“ segir
máltækið. Hún vitjar okkar fyrr eða
síðar, oft í fylgd dauðans eftir
hörmuleg slys. Sr. Hallgrímur Pét-
ursson sagði um dauðann að „frá því
fyrst þú fæðist fylgir hann jafnan
þér og um í leyndum læðist, land, sjó,
hvað þú fer“.
Fjölskyldur frá Akureyri og
Reykjanesbæ eru nú í sorg sem taka
mun sinn tíma.
Bílslys varð í Öxnadal, „þar sem
háir hólar hálfan dalinn fylla,“ eins
og Jónas Hallgrímsson, „listaskáldið
góða,“ lýsir staðháttum. Hann var
heimamaður á Hrauni í Öxnadal til 9
ára aldurs er hann varð föður sviptur
eins og hann orðar það:
Ungur var eg forðum, –
fór eg einn saman
föður sviptur,
er mér fremst unni.
Þannig liðu
langir dagar, ...
Sagt hefur verið að „sár græði
sár“. Edda Sólrún Einarsdóttir, 49
ára, lætur eftir sig tvo uppkomna
syni. Hún hafði nýlokið námi sem
nuddari. Ég minnist þess að hún
sótti tíma í siðfræði heilbrigðisþjón-
ustu árið 2001 og stóð sig með mikilli
prýði. Hún var dugmikil, framsækin
kona, sem var ákveðin í að ná mark-
miðum sínum í lífinu.
Halldóra Árnadóttir frá Akureyri,
62ja ára, lætur eftir sig eiginmann,
Snorra Guðmundsson, sem hefur
legið þungt haldinn eftir slysið og
eiga þau fjóra uppkomna syni.
Ég vil votta fjölskyldunum báðum
innilega samúð og nota þetta tæki-
færi til að þakka góð samskipti við
rannsóknarlögregluna á Akureyri
vegna slyssins. Það er á engan hallað
þótt ég nefni sérstaklega Daníel
Snorrason, lögreglufulltrúa. Ég vil
einnig þakka viðbrögð ástvina, sem
brugðust rétt við, náðu ástvinum
saman og sneru heim úr sumarbú-
staðnum á hvítasunnu til að sinna
þeim.
Það er dýrmætt fyrirheit sem
fylgir hvítasunnunni, sem verður
aldrei frá okkur tekið: Ég mun gefa
yður annan huggara. Stundum koma
þeir tímar að við eigum einskis ann-
ars úrkosti en að treysta því fyrir-
heiti. Og það mun rætast, nú sem
ávallt, þegar líkn verður lögð með
þraut.
Kom, huggari, mig hugga þú,
kom, hönd, og bind um sárin,
kom, dögg, og svala sálu nú,
kom, sól, og þerra tárin, ...
(Vald. Briem.)
Ólafur Oddur Jónsson.
Í dag kveðjum við kæra vinkonu,
Eddu Sólrúnu Einarsdóttur, hinstu
kveðju. Orð fá ekki lýst þeim harmi
sem að okkur er kveðinn. Við trúum
því varla, að henni hafi ekki verið
ætlað lengra líf. Einmitt þegar allt
virtist vera farið að ganga henni í
haginn.
Við kynntumst Eddu fyrst þegar
við fluttum á efri hæð í Smáratúni
um 1980, en hún og Viðar bjuggu þá
á neðri hæðinni með Davíð eldri son
sinn, sem er fæddur 1979, en Þórir,
yngri sonur þeirra, er fæddur 1983.
Það tókust fljótlega góð kynni með
okkur og strákunum okkar, sem
varð seinna meir mikil vinátta. Síðar
urðum við aftur nágrannar í nokkur
ár í Hátúninu.
Edda var góð kona, sem vildi allt
fyrir alla gera. Örlát á tíma sinn og
vináttu, enda átti hún marga vini.
Heimilið var henni til sóma, alltaf
hreint og fínt og til fyrirmyndar. Það
var gott að koma til hennar og
ósjaldan kíkt í kaffi og jafnvel spáð í
bollann á eftir eða spil.
Margar góðar minningar koma
upp í hugann t.d. saumaklúbburinn
sem við stelpurnar stofnuðum og
kölluðum ÞERÓS, en það eru upp-
hafsstafir okkar, þ.e. Þórdís, Edda,
Rannveig, Ólafía og Sigríður. Við
brölluðum margt skemmtilegt, fór-
um t.d. í eftirminnilega vikuferð til
London 1986 og nokkrar helgarferð-
ir til Reykjavíkur o.fl. Minnisstæð er
líka ferð mín, Eddu og Helgu til
Reykjavíkur að fá okkur tattú, allar
komnar á fimmtugsaldurinn. Feng-
um þessa frábæru hugdettu og vor-
um fljótar að framkvæma hana. Síð-
ustu jól bankaði Edda uppá hjá
okkur í hádeginu á aðfangadag til að
afhenda í eigin persónu jólakortið
frá sér. Við drifum hana inn í hádeg-
ismat, grjónagraut og lifrarpylsu, og
nutum samverunnar og ræddum um
að rækta betur vináttuna. Síðast
hitti ég Eddu á Bergásballi helgina
áður en hún lést. Það voru miklir
fagnaðarfundir og við dönsuðum
saman nokkrar vinkonur og
skemmtum okkur konunglega. Ein-
hverjum kann að þykja þetta létt-
vægt, en í dag eru þetta dýrmætar
minningar.
Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð
hjartans þakkir fyrir liðna tíð
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiðir sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Vottum Davíð og fjölskyldu, Þóri
og unnustu og öðrum aðstandendum
okkar dýpstu samúð og biðjum góð-
an Guð að blessa ykkur og styrkja í
sorginni. Minningin um elskulega
vinkonu mun lifa í hjörtum okkar um
ókomna tíð.
Ólafía, Hallgrímur og synir.
Þú komst eins og lítið, blessað blóm
á bjartasta lífsins vori.
Fuglarnir sungu með sætum róm,
við svifum svo létt í spori.
Þú gafst okkur dýpstan unaðsóm
á ástinni og lífsins þori.
Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð
hjartans þakkir fyrir liðna tíð
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiðir sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Um leið og við vottum börnum
Eddu, fjölskyldu hennar og öðrum
ástvinum innilega samúð okkar, biðj-
um við Guð um að styrkja þau og
varðveita í sorg þeirra.
Inga, Ólafía, Elsa, Eva Dís, Ást-
geir, Júlía og Marija.
Fleiri minningargreinar
um Eddu Sólrúnu Einars-
dóttur bíða birtingar og munu birt-
ast í blaðinu næstu daga. Höfundar
eru: Þóra Jónsdóttir; Starfsfólk
Bláa lónsins; Margeir Elentínusson;
Þórdís María Guðjónsdóttir; Sam-
nemendur í Nuddskóla Íslands;
Finnbogi Gunnlaugsson; Anna Að-
alsteinsdóttir.
Pantanir í síma 562 0200
Á fallegum og notalegum
stað á 5. hæð Perlunnar.
Aðeins 1.250 kr. á mann.
Perlan
ERFIDRYKKJUR
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Sverrir
Einarsson
Bryndís
Valbjarnardóttir
Oddur
Bragason
Guðmundur
Þór Gíslason
Helluhrauni 10, 220 Hf.,
sími 565 2566,
www.englasteinar.is
Englasteinar
Fallegir legsteinar
á góðu verði
Ástkær faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
GUÐMUNDUR GUÐLEIFSSON
frá Langstöðum í Flóa,
síðast til heimilis á
Lyngheiði 15, Selfossi,
andaðist á Sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi,
að kvöldi laugardagsins 21. maí.
Jarðarför auglýst síðar.
Fyrir hönd vandamanna,
Sonja og Ingibjörg Guðmundsdætur.
Ástkær móðir, tengdamóðir, amma og langam-
ma,
KRISTÍN ELÍASDÓTTIR
frá Oddhóli,
Rangárvöllum,
áður til heimilis á Norðurbrún 1,
Reykjavík,
lést á Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili, að
morgni sunnudagsins 22. maí.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 30. maí kl. 13.00.
Elías Sv. Sveinbjörnsson, Edda V. Guðmundsdóttir,
Einar Sveinbjörnsson,
Kristín St. Sveinbjörnsdóttir, Kristján Bjarnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
MARÍA ÁGÚSTA BENEDIKZ,
Sóltúni 2,
áður Hrefnugötu 2,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni föstudaginn
20. maí.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 27. maí kl. 13.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast
hennar, er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins, sími 543 3724.
Ágúst H. Bjarnason, Sigrún Ragnarsdóttir,
Þórarinn Benedikz,
Ingibjörg María Þórarinsdóttir,
Helga Björg Ágústsdóttir,
María Björg Ágústsdóttir,
Ragnar Þórarinn Ágústsson, Jóhanna Þórsdóttir,
Hekla Dögg Ragnarsdóttir,
Logi Þór Baldursson.
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
STEINGERÐUR HÓLMGEIRSDÓTTIR,
Víðilundi 20,
Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri föstu-
daginn 20. maí.
Útförin fer fram frá Glerárkirkju föstudaginn
27. maí klukkan 10.30.
Guðlaugur Jakobsson,
Þorgerður J. Guðlaugsdóttir, Halldór Jónsson,
Valgerður K. Guðlaugsdóttir, Kristján Davíðsson
og ömmubörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTJANA STEINGRÍMSDÓTTIR,
Asparfelli 4,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtu-
daginn 19. maí.
Útförin verður auglýst síðar.
Kristinn Björnsson, Jenný Lind Grétudóttir,
Vilborg Grétarsdóttir, George D. Fawondu,
barnabörn og barnabarnabörn.