Morgunblaðið - 24.05.2005, Page 32
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
KÆRI,
JÓLASVEINN...
ÉG ER BÚINN AÐ VERA
ROSALEGA ÞÆGUR Í ALLT
ÁR... OG....
ÞAÐ ER SVO
ERFITT AÐ
SKÁLDA HLUTI
MENGAÐ SNJÓKORN
HOBBES, ERTU NOKKUÐ
TIL Í AÐ GERA MÉR
GREIÐA?
ERTU TIL Í AÐ MÆTA
NIÐUR Í SKÓLA OG ÉTA
MUMMA?!
VILTU AÐ
ÉG ÉTI
HANN? TÍGRISDÝR
ERU ALLTAF
AÐ ÉTA FÓLK
EN HVAÐ EF KONURNAR Í
MÖTUNEYTINU LEYFA MÉR
EKKI AÐ NOTA OFNINN
ÉG ÆTLA AÐ
FARA Í GOLF MEÐ
BRYNJÓLFI
HEPPNA
VILJIÐ ÞIÐ EKKI
BÍÐA ÞANGAÐ TIL
ÞAÐ KEMUR VOR.
ÞAÐ ER BÚIÐ AÐ
SNJÓA Í ALLA
NÓTT
ÞAÐ ER ALLT Í LAGI!
VIÐ TÖKUM BARA
MEÐ OKKUR
SKÓFLUR
ÉG ER AÐ BRÁÐNA!
ÉG ER AÐ BRÁÐNA!
ÞAÐ ER NÆSTUM ÓMÖGULEGT AÐ FINNA
LAUSAN LEIGUBÍL ÞEGAR ÞAÐ RIGNIR Í OZ
ÞÚ VERÐUR AÐ SKILJA
AÐ FORELDRAR MÍNIR
MUNDU ALDREI LEYFA
MÉR AÐ
BÚA MEÐ
KÆRUSTUNNI
MINNI
ÞAU HLJÓTA
AÐ KOMAST
AÐ ÞVÍ FYRR
EÐA SÍÐAR
ÉG HELD BARA ENNÞÁ GÖMLU
ÍBÚÐINNI MINN OG NOTA ÝMSAR
AFSAKANIR FYRIR ÞVÍ AÐ VERA
ALDREI HEIMA TIL ÞESS AÐ ÞAU
KOMI ALDREI Í HEIMSÓKN
SAMÍR,
ER EKKI
AUÐVELDARA
AÐ SEGJA ÞEIM
SANNLEIKANN?
ÞAU MUNDU
HALDA AÐ ÉG
BÆRI ENGA
VIRÐINGU
FYRIR ÞEIM!
EKKI
MIKIÐ AF
GLÆPUM
NÝLEGA...
JAMESON
BORGAR EKKI
MIKIÐ FYRIR
MYNDIR AF
ÞESSU
KALLA Á ALLA BÍLA!
ÞRJÚ NÚMER SJÖ
Í GANGI!
ÉG
TALAÐI OF
SNEMMA
Dagbók
Í dag er þriðjudagur 24. maí, 144. dagur ársins 2005
Víkverji er harðurstuðningsmaður
Arsenal. Hann fagnaði
því vel og lengi þegar
enski bikarinn fór á
loft á Þúsaldarvell-
inum í Cardiff síðast-
liðinn laugardag enda
þótt sigurinn í leikn-
um væri óverðskuld-
aður. Manchester
United var mun betri
aðilinn. Lék Arsenal
eiginlega sundur og
saman. Víkverji hefur
séð flesta leiki Arsenal
í vetur og gott ef þetta
var ekki sá slakasti.
En það er gömul saga og ný að
menn verða að nýta færin sín ef þeir
ætla að vinna knattspyrnuleiki.
United þurfti að súpa seyðið af því.
Þeir Fergusynir óðu í færum en var
fyrirmunað að koma knettinum í
netið. Ef Jens Lehmann markvörður
Arsenal – sem þarna fékk uppreisn
æru eftir skrykkjótt gengi á leiktíð-
inni – sá ekki við þeim var Fredrik
litli Ljungberg frá Hálmstöðum
mættur á línuna eða Ruud van Nist-
elrooy vafðist hreinlega fótur um
öxl. Sá er heillum horfinn.
Í raun má segja að þessi leikur
hafi endurspeglað tímabilið hjá
Manchester United. Ungstirnin æð-
islegu, Wayne Rooney
og Ronaldo, gerðu gys
að vörn Arsenal allan
tímann en samt var
ekkert mark gert.
x x x
United skoraði að-eins 58 mörk í úr-
valsdeildinni í vetur
sem er versti árangur
félagsins í fjórtán ár.
Það er raunar áber-
andi hvað mörkum
hefur fækkað síðan
David Beckham hvarf
á braut. Leiktíðirnar
átta sem hann gegndi
lykilhlutverki á Old Trafford voru
skoruð að meðaltali 80 mörk í leikj-
um úrvalsdeildarinnar. Meðalskor
United síðustu tvö árin er 61 mark.
Tilviljun?
En allt um það. Sigur er sigur
hvernig sem að honum er staðið.
Einkum þegar andstæðingurinn
heitir Manchester United. Það er
bara einn galli á gjöf Njarðar hvað
Víkverja snertir. Hann ætlaði að fá
smið í verkefni á heimili sínu í vik-
unni en eftir helgina er hlaupin
snurða á þráðinn. Smiðurinn er
nefnilega dyggur United-maður.
„Ég læt ekki sjá mig fyrr en þið skil-
ið bikarnum,“ sagði hann hvekktur.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Kleifarvatn | Á sunnudaginn mátti sjá fjölda fólks á öllum aldri á gangi við
Kleifarvatn skimandi í allar áttir, aðallega þó niður fyrir sig eins og í leit að
einhverju. Ástæðan var leikur sem Edda-útgáfa efndi til í tilefni af útkomu
Kleifarvatns, metsölubókar Arnaldar Indriðasonar, í kilju. Leikurinn fólst í
því að búið var að koma 50 eintökum af nýju kiljunni fyrir við vatnið og fólki
boðið að koma og leita. Þeir sem fundu bók máttu eiga hana.
Bræðurnir Adam Orri, Páll Grétar og Axel Ingi Jónssynir voru meðal
þeirra sem tóku þátt leiknum og fóru glaðir heim með fundinn og hver veit
nema þetta séu þau Erlendur, Sigurður Óli og Elínborg framtíðarinnar!
Fundur í Kleifarvatni
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Jesús sagði þeim: „Ég er brauð lífsins. Þann mun ekki hungra, sem til
mín kemur, og þann aldrei þyrsta, sem á mig trúir.“ (Jóh. 6, 35.)