Morgunblaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ SÝNING svissnesku listakonunnar Elke Krystufek í aðalsal Hafn- arborgar byggist lauslega á Atl- asverki þýska listamannsins Ger- hard Richter sem hefur verið „verk í vinnslu“ (work in progress) síðan ár- ið 1961. Atlas er samansafn af ljós- myndum af umhverfi sem hefur mótað listamanninn og list hans líkt og dagbók. Atlasverk Elke Krystu- fek byggir á þessum sömu hug- myndum nema að hún gengur öllu nær sjálfri sér og áhorfandanum en Richter hefur gert. Tekur fyrir það sem flestallir álíta einkamál. Í raun er öll myndlist Elke Krystufek nokkurskonar dagbók um einkamál. Hún hefur sýnt myndbandsverk af sér og unnusta hafa samfarir, fróað sér við opnun sýningar, pissað fyrir framan gesti við opnun sýningar o.s.fv. Og hvað með það? getur mað- ur svosem sagt. Jú, í þessum aðgerð- um Krystufek felst viss opinberun á manneskju. Krystufek er ekki klám- stjarna eða fatafella, hún er mynd- listarkona sem ögrar sér og áhorf- andanum með klámfengnu og ruddalegu myndmáli. Líkami lista- konunnar er efniviður hennar og tól til að rannsaka kynferði, hlutverk, óra, sjálfsmynd o.s.frv. Nálgun Krystufek minnir á margt sem Marina Abramovich gerði á sjö- unda áratugnum eins og þegar hún seldi sig í Rauða hverfi Amsterdam í stað þess að mæta á opnun eigin sýningar eða þegar hún bauð sýn- ingargestum að skera sig með rak- vélablaði. Í þessum gjörningum Abramovich fólst viss afstaða til lík- ama og anda sem vel má tengja við verk Krystufek. Það að brjóta öll persónuleg, líkamleg eða hug- myndaleg takmörk. Í raun er þetta róttæk sjálfskoðun líkt og í ógleym- anlegri kvikmynd Davids Fincher, Fight club, sem fjallaði um sjálf- skoðun gegn um ofbeldi. Einn og sami maðurinn var annars vegar hinn saklausi Edward Norton sem þráði að finna sjálfan sig og hins vegar var hann líka hinn ruddalegi og flotti Brad Pitt sem fyrirleit alla meðalmennsku. Í Atlasverki Krystu- fek sjáum við þessar tvær mann- eskjur mjög skýrt. Hina sakleys- islegu stúlku sem upphefur stereótýpur og þá ruddalegu sem glennir sig fyrir framan spegil og dáir ofbeldi og klám. Verkið nefnist „I am your mirror“ (Ég er spegill þinn) og er nokkurskonar ferða- dagbók. Myndirnar eru flestar í hefðbundinni heimilisalbúma-stærð, eru leifturskotsmyndir (snap-shots) og inn á milli má finna póstkort. Þær spanna alllangt tímabil, veit reyndar ekki hversu langt, en hún virðist ansi ung á sumum þeirra. Verkið er að mínu mati sláandi á forsendum sjálfskoðunar og að maður noti op- inberun Krystufek til að líta í eigin barm eins og titillinn kallar eftir. Að öðru leyti er þetta bara klám og „exhibisjónismi“ sem eðlilega kann að snerta blygðunarkennd margra og satt að segja ætti sýningin að hafa aldurstakmark af þeim sökum. Róttæk sjálfskoðun Morgunblaðið/Eyþór „Krystufek er ekki klámstjarna eða fatafella, hún er myndlistarkona sem ögrar sér og áhorfandanum með klámfengnu og ruddalegu myndmáli.“ MYNDLIST Listahátíð í Reykjavík Hafnarborg Opið alla daga nema þriðjudaga frá 11- 17. Sýningu lýkur 21. ágúst. Elke Krystufek Jón B.K. Ransu Í BLAÐINU í gær var skrifað um tvo af þeim fjórum leiklestrum sem Borgarleikhúsið og Listaháskólinn stóðu fyrir í tilefni af Listahátíð og með styrk frá Goethestofnuninni á Íslandi. Ekki er ofsögum sagt af frumkvæði þeirra sem gera okkur kleift að heyra lesið það nýjasta nýtt utan úr heimi og mætti gera miklu meira af slíku. Hér verður lítillega fjallað um verk þeirra Theresiu Walser og Maríusar von Mayenburg en báðum leiklestr- unum stjórnaði Guðjón Pedersen. Öfugt við Egil Heiðar sem stjórn- aði hinum tveimur sviðsetti Guðjón sína lestra svo til ekkert heldur sátu leikarar á stólum í einni röð og stóðu upp þegar kom að þeim. Deila má um hvor aðferðin sýni betur texta leikskáldsins, tæran og einstakan eða hvort slíkt er yf- irleitt mögulegt en heilt yfir var prýðilegt að fá að sjá báðar aðferð- irnar. Sá hængur er þó á kynn- ingum sem þessum að leikritin eru stytt og þannig ekki öll sagan sögð. Leikrit Theresiu Walser, Flökku- hórur, er um fólk á samfélagsjaðr- inum; hórur á hóruhúsi, karlahóp á karlakvöldi, sjálfhverft klámsýn- ingapar og eina ást- fangna stúlku. Stúlk- unni þeirri er teflt fram sem andstæðu klámparsins með því að láta hana grípa inn í samræður þeirra, atriðin á hóruhúsinu virðast ekki koma þeim við en einn úr karla- hópnum var svo gift- ur hórumömmunni en það kom fram í samræðum karlanna. Form verksins og bygging er meira í ætt við myndir sem brugðið er upp en hefðbundna framvindu og margt í því spenn- andi, eins og til dæmis hvernig ást- fangna stúlkan er upptekin af trjá- grein og truflar ítrekað samræður klámparsins um hvernig tilfinning það er að vera eitthvað sérstakt í augum annarra og hvort þau upp- lifi sýningar sínar innan frá. Í þessu kristallaðist efni leikritsins; hvenær talar og framkvæmir fólk einlæglega og hvenær ekki og höf- um við ekki öll mjög sterka siðferð- isvitund og tilfinningar þó að unnið sé við vændi og klám eða hóruhús heimsótt? Lifir fólkið í þessum bransa við afneitun eða erum við öll sama marki brennd? Það sem upp úr stendur eftir að hlusta á Flökkuhórur er tilfinning fyrir mennskum kjarna og svo opið form að hægt er að nálgast leikritið á óteljandi vegu þegar hugað er að uppsetningu. Verk Maríusar von Mayenburg er ekki jafnopið og leitandi og Flökkuhórur þó að það bjóði upp á margar leiðir í uppsetningu. Heiti verksins, Eldoradó, gefur til kynna að það geti gerst hvar sem er í ídeal heimi annars staðar en á Vesturlöndum. Rammi verksins er ógn sem sögumaður segir frá en hægt væri að sviðsetja; vestrænir herir ráðast á óskilgreint landsvæði og eyðileggja það og ógna lífi borg- aranna með skriðdrekum og öðrum hervélum og ná þeir meiri völdum eftir því sem líður á verkið. Innri sagan er af hjón- um en í upphafi verks er hamingju þeirra ógnað á ýmsa vegu. Karlinum er sagt upp í vinnunni en hann þorir ekki að segja konunni sinni frá því vegna þess að hún er í sama mund að hætta að vinna sem píanóleikari og upp- götvar að hún eigi von á barni. Annað par kemur við sögu sem ásælist peninga þeirra og velgengni. Þannig gerist verkið á tveimur plönum sem kallast á; persónulegur harmleikur hjónanna og undirokun þeirra gagnvart hinu sívinsæla yrkisefni bókmenntanna um græðgi og valdasýki annars vegar en hins vegar ásælni og valdasýki Vesturlanda gagnvart hinum svokölluðu minna þróaðri ríkjum. Verkið er vel upp byggt og þó að formið sé nokkuð ákveðið er spennandi að sjá að hægt er að leita í ýmsar áttir í uppsetningu. Í umræðum eftir sýninguna þar sem höfundar sátu fyrir svörum sagðist Marius von Mayenburg oft hafa verið spurður hvers vegna hann skrifaði verk með svo skýrum boð- skap og ádeilu en hann spyrði alltaf á móti hvers vegna ekki af því að þetta vildi hann segja. Það er athyglisvert að höfund- arnir fjórir skrifa allir um firringu samtímamannsins og velta fyrir sér saklausum fórnarlömbum atvinnu- leysis, iðnvæðingar, banka- og fjár- málavæðingar, græðgi og valdasýki þar sem virðingin fyrir lífi manns- ins og tilfinningum verður æ minni. Það var hins vegar alveg skýrt eft- ir leiklestrana í Borgarleikhúsinu að hver þessara fjögurra athygl- isverðu höfunda hefur sín sérstöku einkenni og leikur hvert þeirra sér með form og texta á ólíkan hátt. Þýsk samtímaleikritun LEIKLIST Listahátíð í Reykjavík Borgarleikhúsið og Listaháskóli Íslands Flökkuhórur: Höfundur: Theresia Walser. Þýðandi: Bjarni Jónsson. Leikstjóri: Guð- jón Pedersen. Leikarar: Halldóra Geir- harðsdóttir, Jóhannes Haukur Jóhann- esson, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Aðalbjörg Þóra Árnadóttir, Sara H. Marti Guðmundsdóttir, Jóhanna Vigdís Arn- ardóttir, Pétur Einarsson, Þór Tulinius, Gunnar Hansson og Halldór Gylfason. Eldorado: Höfundur: Maríus von Mayen- burg. Þýðandi: María Kristjánsdóttir. Leikstjóri: Guðjón Pedersen. Leikarar: Theodór Júlíusson, Sara Dögg Ásgeirs- dóttir, Björn Ingi Hilmarsson, Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir, Ellert A. Ingi- mundarson og Anna Svava Knútsdóttir. Ljós: Kári Gíslason. Hljóð: Jakob Tryggva- son. Nýja sviðið, 17. og 18. maí 2005 Autobahn Leiklestrar Guðjón Pedersen Hrund Ólafsdóttir ÞÝSKA myndin Der Untergang, sem fjallar um síðustu daga Hitlers, hefur óvænt fengið góða dóma í Ísr- ael. Ungir og aldnir Ísraelar og fólk sem lifði af helförina lofar myndina. Myndin var mjög umdeild þegar hún var fyrst sýnd í Þýskalandi, fyr- ir að sýna Hitler í mannlegu ljósi. Male, 73 ára kona frá Rúmeníu sem lifði helförina af, og eiginmaður hennar Shlom, 84 ára Pólverji, sögð- ust hafa fengið tár í augun, en ekki fundið til viðbjóðs. Viðbrögð Raviv, þrítugs félags- ráðgjafa, voru svipuð. „Þeir áttu skilið það sem kom fyrir þá, en hví- líkur harmleikur,“ sagði hann. Hann er frá Austurríki en öll fjölskylda hans nema amma hans var drepin í útrýmingarbúðunum. Í fjölmiðlum var myndin bæði lof- uð og gagnrýnd. „Ég mæli ekki með þessari mynd við þá sem lifðu helför- ina af, en hún ætti að vera skylda fyrir alla aðra. Hún kennir okkur að jafnvel viðkvæmasta fólk getur orðið að viðbjóðslegum morðingjum,“ sagði Avner Hopstein, kvikmynda- gagnrýnandi Yediot Aharonot. Annar gagnrýndi útlit Hitlers, fannst hann minna á vaxmynda- brúðu. Forráðamenn Lev-kvik- myndahússins í Tel Aviv voru í fyrstu tregir til að sýna myndina og töldu að málefnið væri ef til vill of viðkvæmt fyrir Ísrael. Til að taka ákvörðun héldu þeir prufusýningu fyrir hóp áhorfenda en af þeim sagð- ist 91% telja að sýna ætti myndina. Der Unter- gang fær góða dóma í Ísrael Miðasalan er opin: frá kl 10:00 alla virka daga. Netfang: midasala@borgarleikhus.is Miðasala í síma 568 8000 - og á netinu: www.borgarleikhus.is Stóra sviðið DÍNAMÍT - Birgir Sigurðsson KLAUFAR OG KÓNGSDÆTUR - H.C. Andersen ÞETTA ER ALLT AÐ KOMA - Hallgrímur Helgason/leikgerð Baltasar Kormákur MÝRARLJÓS - Marina Carr Sun. 29/5. Allra síðasta sýning Litla sviðið kl. 20:00 Smíðaverkstæðið kl. 20:00 Valaskjálf Egilsstöðum KODDAMAÐURINN - Martin McDonagh Mi›. 25/5, fim. 26/5 nokkur sæti laus. Síðustu sýningar í vor. Ekki er hægt a› hleypa inn í salinn eftir a› s‡ning er hafin. RAMBÓ 7 - Jón Atli Jónasson EDITH PIAF Á AUSTURLANDI - Söngdagskrá Mið. 1/6 kl. 20:00, fim. 2/6 kl. 20:00. Miðasala á Bókasafni Héraðsbúa. Opið alla virka daga frá kl. 14-19. Sími 471 1546 8. sýn. fim. 26/5 örfá sæti laus, 9. sýn. fös. 3/6 nokkur sæti laus, 10. sýn. lau. 11/6, 11. sýn. sun. 12/6. Fös. 27/5 örfá sæti laus, lau. 28/5 nokkur sæti laus, lau. 4/6 nokkur sæti laus, fim. 9/6, fös. 10/6. Aðeins örfáar sýningar vegna fjölda áskorana. Lau. 28/5 kl. 14:00 nokkur sæti laus, sun. 5/6 kl. 14:00. Síðustu sýningar í vor. Fös. 27/5, lau. 28/5, fös. 3/6. Miðasölusími: 551 1200 Netfang: midasala@leikhusid.is Veffang: www.leikhusid.is. Miðasalan er opin kl. 12:30-18:00 mán. og þri. Aðra daga kl. 12:30-20:00. símapantanir frá kl. 10:00 virka daga Þjóðleikhúsið sími 551 1200 ÞETTA ER ALLT AÐ KOMA ÖRFÁAR SÝNINGAR VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA! Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is Setið um Leníngrad Á fimmtudaginn fá gestir Sinfóníunnar að hlýða á hádramatíska tónlist. Fá tónverk orka jafn sterkt á hlustendur og Adagio Barbers og hefur verkið hlotið þann sess að vera óopinber sorgartónlist Bandaríkjanna. Leníngrad-sinfónían er margbrotin heimild um viðsjárverða tíma og flókna stöðu viðkvæms tónskálds í hringiðu atburðanna. Samuel Barber ::: Adagio fyrir strengi, op. 11 Dímítríj Sjostakovítsj ::: Sinfónía nr. 7 „Leningrad“ Rauð tónleikaröð #7 HÁSKÓLABÍÓI, FIMMTUDAGINN 26. MAÍ KL. 19.30

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.