Morgunblaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Geggjaðasta og frumlegasta
grínmynd ársins er komin í
bíó.Byggð á einni vinsælustu bók
alheimsins eftir Douglas Adams.
Algjör bíósmellur bæði í
USA og á Bretlandi.
l j í ll i í
l i
MBL.IS
DV
Crash kl. 5.50 - 8.10 - 10.30 b.i. 16
The Jacket kl.5.45 - 8 - 10.10 b.i. 16
The Motorcycle Diaries kl. 5.30 - 10.20
The Hitchhikers guide... kl.5.45 - 8 - 10.15
Napoleon Dynamite kl. 8.05
Vera Drake kl. 8
Maria Full og Grace kl. 6 - 10 b.i. 14
Ó.H.T Rás 2
H.L. MBL
Ó.H.T Rás 2
S.V. MBL
Ó.H.T Rás 2
Kvikmynd eftir
Óskarsverðlaunahafann,
Paul Haggis (“Million Dollar Baby”).
Sláandi og ögrandi mynd sem hefur fengið einvala dóma.
Kvikmynd eftir
Óskarsverðlaunahafan ,
Paul Hag is (“Million Dollar Baby”).
Sláandi og ögrandi mynd sem hefur fengið einvala dóma.
ROGER EBERT
ROLLING STONE
Í hraða lífsins kemur að því að
við rekumst á hvert annað
Í hraða lífsins kemur að því að
við rekumst á hvert annað
lí i í
i
Kvikmynd eftir Óskarsverðlaunahafann, Paul
Haggis (“Million Dollar Baby”). Sláandi og
ögrandi mynd sem hefur fengið einvala dóma.
ROGER EBERT
ROLLING STONE
Stuttmyndahátíðin ReykjavíkShorts & Docs verður haldindagana 25. til 29. maí. Á há-
tíðinni verða sýndar 14 nýjar ís-
lenskar myndir en það ku vera met
í sögu hátíðarinnar. Þeirra á meðal
eru Róska – saga og hugsjónir ’68-
kynslóðarinnar, Töframaðurinn,
mynd eftir Reyni Lyngdal um lista-
manninn Matthew Barney og verð-
launamyndin Slavek the Shit sem
var frumsýnd í Cannes á dögunum.
Auk íslensku myndanna verður
sýnt úrval alþjóðlegra mynda sem
hafa vakið verðskuldaða athygli
víða um heim en ekki ratað í bíóhús
hér á landi. Að auki verður úrval
norrænna stutt- og heim-
ildamynda sem þóttu skara fram úr
á Nordisk Panorama-hátíðinni.
Hjálmtýr Heiðdal er fram-kvæmdastjóri Shorts & Docs.
„Hátíðin í ár verður stutt, ein-
ungis fimm dagar, en þessa daga
verður sýnd þrjátíu og ein kvik-
mynd í Tjarnarbíói og í Hellusundi
6. Þetta verða náttúrulega mest
stuttmyndir en þarna eru líka
margar heimildamyndir.
og opnunarmyndin verður ein-
mitt mjög merkileg 80 mínútna
heimildamynd um listakonuna
Rósku. Þarna verður líka sýnd
mynd um sýningu listamannsins
Matthews Barneys sem var haldin í
fyrra; heimildamynd um Guðberg
Bergsson sem hefur reyndar verið
sýnd einu sinni áður og svo verður
að minnast á mynd sem kallast 300
harmonikur og fjallar um harm-
onikumót á Ísafirði, mjög sérstök
mynd sem Spessi ljósmyndari
gerði, og síðan er fleiri merkilegar
myndir að finna á dagskránni.“
Hjálmtýr segir að þessi hátíðendurspegli mikinn vöxt í
heimilda- og stuttmyndagerð.
„Allt frá stofnun Kvikmynda- og
stuttmyndasjóðsins hefur gróskan
verið gríðarleg og gæðin eru orðin
mjög mikil. Hátíðin er samt sem áð-
ur mjög smá á heimsmælikvarða og
sniðin að íslenskum aðstæðum og
að því fjármagni sem við höfum úr
að moða. Að sama skapi er hún
sjálfstæð og það finnst okkur mik-
ilvægt. Viðtökurnar hafa verið
mjög góðar og við höfum mest
fengið 2.300 manns sem er mjög
gott miðað við að við getum ekki
auglýst mikið.“
Auk hátíðarinnar sjálfrar verður
Nýherji með tæknikynningu á nýrri
stafrænni háskerpu, HDV eða High
Definition Video. Þessi tækni hefur
verið mjög vinsæl á meðal kvik-
myndagerðarmanna á þessu sviði
en hún er um leið góð og ódýr.
Eins og áður sagði hefst hátíðin á
morgun og stendur til sunnudags.
Almennt miðaverð er 500 krónur
en einnig er hægt að kaupa passa á
allar myndirnar fyrir 2.000 krónur.
„Shorts & Docs“
hefst á morgun
’Allt frá stofnun Kvik-mynda- og stuttmynda-
sjóðsins hefur gróskan
verið gríðarleg og gæðin
eru orðin mjög mikil.‘
AF LISTUM
Höskuldur Ólafsson
Hjálmtýr Heiðdal, framkvæmda-
stjóri Shorts & Docks.
hoskuldur@mbl.is
Opnunarmynd hátíðarinnar er um listakonuna Rósku.
Shorts & Docs, 25.–29. maí í
Tjarnarbíói og Hellusundi 6
www.shordocs.info.
KYLIE Minogue ætlar að gift-
ast kærastanum sínum Olivier
Martinez. Franski leikarinn er
sagður hafa beðið Kylie í síðustu
viku þegar hún kom úr aðgerð,
þar sem fjarlægður var illkynja
hnúður úr brjósti hennar.
Kylie mun hafa orðið himinlif-
andi og sagt „já“ undir eins.
Segir sagan að þau muni gifta
sig um leið og Kylie er búin að
ná sér að fullu. Kylie greindist
með brjóstakrabbamein í síð-
ustu viku og var látin fara í að-
gerð undir eins.
Frændi Oliviers, Stephane
Martinez, sagði í gær að áfallið
við að uppgötva að Kylie væri
með brjóstakrabbamein hefði
fært þau nær hvort öðru og leik-
aranum hefði orðið ljóst hvað
hún væri honum mikilvæg.
Kærastinn
bað Kylie
eftir að-
gerðina
Veikindin urðu til þess að
Olivier gerði sér betur grein
fyrir en áður hversu mikilvæg
Kylie væri honum.
UNNUR Birna Vilhjálmsdóttir, ungfrú Reykjavík,
bar sigur úr býtum í keppninni um titilinn ungfrú Ís-
land á Broadway á föstudagskvöldið.
Unnur, sem er 21 árs, er dóttir Unnar Steinsson,
sem hlaut sama titil árið 1983, og Vilhjálms Skúlason-
ar. Í öðru sæti lenti Ingunn Sigurpálsdóttir úr Garða-
bæ og í því þriðja Margrét Elísa Harðardóttir úr
Reykjavík.
Fegurðarsamkeppni Íslands fór fram á föstudaginn
Unnur Birna fagnaði sigri
Þórunn Gunnarsdóttir, Hafdís Jónsdóttir, Björn
Leifsson og Bryndís Ólafsdóttir skemmtu sér vel.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Nýkjörin Ungfrú Ísland 2005 í faðmi fjölskyldunnar; Pétur Sigurðsson,
kærasti hennar, Unnur Steinsson móðir, Vilhjálmur Skúli Vilhjálmsson
bróðir, Unnur Birna sjálf og Steinn Vilhjálmsson bróðir.
Hafdís Mjöll Lárusdóttir, Ísabella Lárusdóttir, Erla
Ösp Lárusdóttir og Guðmunda Magnúsdóttir.