Morgunblaðið - 24.05.2005, Síða 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
VIÐSKIPTAVINIR ADSL-
þjónustu Símans munu í haust
geta valið úr hundruðum kvik-
mynda og þátta til að kaupa heima
í stofu þegar Síminn hleypir af
stokkunum myndbandaleigu í
sjónvarpi.
Áhorfendur munu eiga ákveðna
inneign sem þeir geta notað til að
kaupa sér efni og klárist inneignin
geta þeir bætt við hana. Áhorf-
endur kaupa þó efnið ekki til eign-
ar heldur er um tímabundinn að-
gang að ræða og fá þeir sendan
reikning fyrir notkun mánaðar-
lega.
Þjónustan verður hluti af sjón-
varpsútsendingum Símans í gegn-
um ADSL, sem hófust í nóvember
í fyrra í tíu bæjarfélögum úti á
landi og hefjast á höfuðborg-
arsvæðinu á næstu vikum, að sögn
Þórs Jes Þórissonar, fram-
kvæmdastjóra hjá Símanum. Til
þess að ná útsendingunum og geta
keypt sér kvikmynd eða sjón-
varpsþátt þarf mótald og afrugl-
ara, en hann geta allir viðskipta-
vinir ADSL-þjónustu Símans
fengið sér að kostnaðarlausu.
Stefnt er að því að fjölga sjón-
varpsrásunum upp í 60 fljótlega
þannig að þær verði jafnmargar
og á breiðbandinu í dag.
Svipað verð og á
myndbandaleigum
Þá verður sérstök stöð, Enski
boltinn, einnig aðgengileg í gegn-
um sjónvarpsútsendingar Símans,
en þar verða beinar útsendingar
frá leikjum í ensku knattspyrn-
unni á fjórum rásum. Greitt verð-
ur sérstaklega fyrir knatt-
spyrnurásina.
Verð á kvikmyndum og þáttum
sem áhorfendur geta valið úr hef-
ur ekki endanlega verið ákveðið
en Þór reiknar með að það verði
svipað og á myndbandaleigum.
Stefnt er að því að nýta möguleika
gagnvirks sjónvarps enn frekar og
segir Þór m.a. horft til þátttöku
áhorfenda heima í stofu, t.d í
spurningaleikjum eða raunveru-
leikaþáttum.
Með tilkomu sjónvarpsútsend-
inganna nýtir Síminn nú símalínur
undir talsíma, net og sjónvarps-
útsendingar og segir Þór stefnt að
því að auka samþættingu milli
þessara þriggja þátta. Þannig
megi t.d. hugsa sér að hægt verði
að senda textaskilaboð í sjónvarp-
inu til vina og félaga sem eru að
horfa á sama sjónvarpsefni, fá
upplýsingar um númer þess sem
hringir í talsímann á sjónvarps-
skjánum og í framtíðinni koma
upp svokölluðum „vídeósíma“, þar
sem hægt verður að sjá þann sem
talað er við á meðan símtalið
stendur yfir.
Síminn býður upp á
bíómyndir heim í stofu
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
Hægt að | 10
TVÖ ný leiktæki eru komin í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinn í Laugardal, gestum garðsins á
öllum aldri til skemmtunar. Um er að ræða
annars vegar svokallaðan Ærslabelg, uppblás-
inn skopparabelg sem börn geta hoppað á.
Hins vegar verður í dag tekið formlega í notk-
un nýtt 26 metra hátt parísarhjól, sem alls tek-
ur um 120 manns í sæti.
Einar Karlsson, markaðsstjóri Fjölskyldu- og
húsdýragarðsins, segir Ærslabelginn þegar
hafa gert mikla lukku meðal barnanna. „Par-
ísarhjólið, sem sett var upp um helgina, hefur
einnig vakið mikla athygli og fólk hefur verið
að skoða það,“ segir Einar, en starfsmenn
garðsins tóku örlítið forskot á sæluna í gær
þegar verðlaun voru afhent fyrir þátttöku í
átakinu Hjólað í vinnuna. „Þá buðum við þeim
sem unnu til verðlauna í Hjólað í vinnuna,
ásamt þeim Ellert B. Schram, formanni ÍSÍ, og
Ingvari Sverrissyni, stjórnarformanni Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðsins, í ferð.“ Einar seg-
ist ekki í vafa um að parísarhjólið geri góða
lukku í sumar. „Miðaverðinu verður líka stillt í
hóf. Það mun aðeins kosta stakan miða í hjólið,
en hann kostar 170 kr.,“ segir Einar og bætir
við að starfsemi garðsins hafi þróast mikið
undanfarin fimm ár. „Það má segja að garð-
urinn hafi tekið nýja og skemmtilega stefnu
fyrir fimm árum og nú er mikil þróun að eiga
sér stað hér.“
Morgunblaðið/Eyþór
Tuttugu og sex metra hátt parísarhjól
KÁRAHNJÚKASTÍFLA tekur sífellt á sig meiri og skýrari mynd. Alls
115.000 rúmmetrar hafa bæst við á síðustu dögum og þar með eru yfir 40%
fyllingarefnis komin í stífluna. Starfsmönnum Impregilo hefur tekist að
ljúka við að steypa svonefndan távegg stíflunnar, en í hann fóru um 50.000
rúmmetrar af steypu. Það magn myndi duga til að steypa um 400 einbýlis-
hús, segir á vef Kárahnjúkavirkjunar, en veggurinn er 120 metra langur,
um 40 metra hár og 20 metra breiður.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Táveggurinn tilbúinn
UM 20–30% veiddra laxa sem sleppt
er aftur í árnar eru veidd að nýju og
lítið brot þeirra er veitt í þriðja sinn,
að því er fram kemur í lokaritgerð
Borgars Páls Bragasonar frá Land-
búnaðarháskólanum á Hvanneyri
um endurveiði í íslenskum laxveiði-
ám.
Samkvæmt athugunum Borgars
Páls hafa sleppingar aukið veiði um
2–300 laxa á ári í Hofsá og Selá í
Vopnafirði. Í rannsókn sinni athug-
aði hann hlutfall endurveiðinnar,
hversu langur tími líður á milli og
hversu langt frá merkingarstað lax-
arnir veiðast í annað og þriðja skipt-
ið. Fiskarnir veiddust í annað skiptið
frá einum upp í sextíu dögum eftir að
þeim var sleppt, aðallega ofan við
upprunalegan veiðistað.|18
Um 20–30%
laxa veiðast
aftur eftir
sleppingar
BLÁA lónið fékk hraklega út-
reið í forsíðugrein ferðablaðs
The Sunday Times nú um
helgina. Er lónið tekið fyrir
ásamt sex öðrum „heitum“
áfangastöðum í dag, sem þykja
ekki standast væntingar.
Aðspurður segir Grímur Sæ-
mundsen, framkvæmdastjóri
Bláa lónsins, um atvinnuróg að
ræða sem eigi ekkert skylt við
sanngjarna gagnrýni. Í grein-
inni dregur höfundur heilnæmt
gildi lónsins í efa og gefur auk
þess í skyn að gestir lónsins
mígi í vatnið. Segir Grímur
ljóst að menn muni setja sig í
samband við forsvarsmenn The
Sunday Times og krefjast þess
að missagnir og rangfærslur
greinarhöfundar verði leiðrétt-
ar með jafn áberandi hætti. | 6
Bláa lónið
gagnrýnt
harkalega