Morgunblaðið - 29.05.2005, Page 15

Morgunblaðið - 29.05.2005, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MAÍ 2005 B 15 Aðstoðarmaður yfirverkfræðings Aðstoðarmaður yfirverkfræðings óskast til framtíðarstarfa sem fyrst. Starfslýsing • Aðstoða yfirverkfræðing við verkefnabókhald, reikningagerð, uppgjör verkefna, tilboðsgerð og ýmsa verkefnavinnu. • Umsjón með skjala- og gæðastjórnun verk- efna í samstarfi við verkefnisstjóra, gæðastjóra og skjalavörð. • Aðstoða gæðastjóra og starfsmannastjóra vegna gæðastjórnunarkerfis og starfsmannamála. • Umsjón og vinnsla kynningarefnis og kynningarstarfs. • Vinna við frágang verkgagna til útsendingar. • Aðstoða tæknimenn við ýmis konar tölvuúrvinnslu. Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólapróf eða önnur menntun í samræmi við innihald starfslýsingar. • Mjög góð tölvukunnátta í Word, Excel, PowerPoint, Access, Acrobat og Navision Financials. • Mjög góð íslenskukunnátta. • Mjög góð enskukunnátta. • Leiðbeiningar- og stjórnunarhæfileikar. Bókari Reyndur bókari óskast til framtíðarstarfa sem fyrst. Starfslýsing • Umsjón með færslu bókhalds, afstemmingum og launabókhaldi. • Þátttaka í reikningsgerð og öðrum verkefnum á skrifstofu fyrirtækisins. Menntunar- og hæfniskröfur • Góð bókhaldsþekking og reynsla nauðsynleg. • Próf sem viðurkenndur bókari æskilegt. • Mjög góð kunnátta og reynsla í notkun Navision Financials. • Góð kunnátta og reynsla í notkun Excel. Ármúla 4 • 108 Reykjavík • Sími 569 5000 • www.vst.is Laus störf hjá VST Almennar menntunar- og hæfniskröfur hjá VST • Frumkvæði, jákvæðni og metnaður. • Öguð og skipulögð vinnubrögð. • Hæfni í mannlegum samskiptum. • Geta til að vinna undir álagi. • Gott vald á íslensku máli. • Góð almenn tölvukunnátta. Umsóknarferli EINUNGIS er hægt að sækja um starfið á heimasíðu VST, www.vst.is, á staðlað umsóknareyðublað sem þar er að finna. Umsóknarfrestur er til 3. júní. Trúnaði er heitið við meðferð umsókna og verður öllum umsækjendum svarað. Nánari upplýsingar Elín Greta Stefánsdóttir starfsmannastjóri, sími 569 5000, egs@vst.is N æ st Össur hf. Grjóthálsi 5 110 Reykjavík 515 1300 www.ossur.com Össur hf. leitar að húsverði til að sinna almennum húsvarðarstörfum ásamt tilfallandi verkefnum hjá viðhaldsdeild fyrirtækisins. Við leitum að kröftugum, handlögnum einstaklingi með ríka þjónustulund, sem unnið getur sjálfstætt. Umsóknir sendist til Össurar hf. , Grjóthálsi 5, 110 Reykjavík, merkt Össur – húsvörður. Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri í s. 515-1300. Umsóknir þurfa að berast fyrir 7. júní næstkomandi. Hægt er að sækja um starf á heimasíðu okkar – www.ossur.is Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum svarað. Össur hf. - húsvörður Við ráðningar í störf við Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Háskóli Íslands v/Suðurgötu, 101 Reykjavík, s. 525 4000 LÆKNADEILD ÞJÓNUSTUSÉRFRÆÐINGUR Starf þjónustusérfræðings (postgraduate research fellow) innan læknadeildar/læknis- fræðiskorar er laust til umsóknar. Ráðið verður í starfið til tveggja ára, frá 1. september 2005 með möguleika á fram- lengingu um önnur tvö ár. Deildarráð lækna- deildar veitir starfið að fenginni umsögn vís- indanefndar deildarinnar. Umsækjendur skulu hafa lokið MS eða doktorsprófi. Umsókn skal vera samin af umsækjanda og fastráðnum kennara innan læknisfræðiskorar sem um- sækjandi hyggst starfa með. Umsóknafrestur er til 27.júní n.k. Nánari upplýsingar veitir Stefán B. Sigurðsson forseti læknadeildar í síma 525 4880 eða á netfangi stefsig@hi.is. Við ráðningar í störf við háskólann er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Sjá nánar á www.hi.is/page/sorf og www.starfatorg.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.