Morgunblaðið - 29.05.2005, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 29.05.2005, Qupperneq 18
18 B SUNNUDAGUR 29. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Nótaskipstjóri Vanur nótaskipstjóri óskast til starfa á nótaskip, sem fer til veiða í sunnanverðri Afríku. Nánari upplýsingar gefur Guðjón hjá Sæblómi ehf., sími 540 6388. Kirkjubæjarskóli Grunnskólakennarar Við leitum að áhugasömum kennurum í almenna bekkjarkennslu næsta skólaár, m.a. umsjón á miðstigi og unglingastigi. Ýmsar kennslugreinar koma til greina. Upplýsingar veitir Stella Á. Kristjánsdóttir, skólastjóri, í síma 487 4633 og 865 7440, netfang kbskoli@ismennt.is . Nýiskólinn ínorðlingaholti Í ágúst 2005 hefur göngu sína nýr skóli í Norðlingaholti í Reykjavík. Gert er ráð fyrir því að skólinn verði fullbúinn heild- stæður grunnskóli fyrir 300 – 400 nem- endur í 1. – 10. bekk. Fyrsta starfsár skólans verða nemendur í 1. – 6. bekk í skólanum og verður hann starfræktur, til að byrja með, í skálum, sem reistir verða í útjaðri væntanlegrar skólalóðar við Árvað. Frekari upplýsingar um skólann er að finna á vefslóðinni http://www.nordlingaskoli.is Stefna skólans hefur ekki verið sett fram enda er mikilvægt að hún sé unnin í sameiningu af þeim sem standa að skólanum, starfsfólki, nemendum, foreldrum og fræðsluyfirvöldum. Sú vinna bíður haustsins en þó er ljóst að í starfi hins nýja skóla verður lögð sér- stök áhersla á vellíðan nemenda, einstaklingsmiðaða starfshætti, samvinnunám, námsval, skóla án að- greiningar, samkennslu árganga og mikla samvinnu starfsfólks. Gert er ráð fyrir því að skólinn verði í nánum tengslum við samfélagið sem hann er hluti af, m.a. með öflugu samstarfi við foreldra. Starf skólans mun grundvallast á því lífsviðhorfi að hverjum einstaklingi skuli búin námsskilyrði svo hann megi, á eigin forsendum, þroskast og dafna og út- skrifast úr grunnskóla sem sjálfstæður, sterkur og ekki síst lífsglaður einstaklingur. Auglýst er eftir starfsfólki sem er reiðubúið til að taka þátt í því mótunarstarfi sem fyrstu starfsár skólans munu einkennast af: • Kennurum, meðal kennslu- greina eru almenn kennsla, íþróttir, leiklist, tónmennt og heimilisfræði. • Stuðningsfulltrúum • Skólaliðum • Skólaritara • Umsjónarmanni • Þroskaþjálfa Umsóknarfrestur er til 13. júní næstkomandi og laun samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Upplýsingar um störfin er hægt að nálgast hjá skólastjóra, Sif Vígþórs- dóttur, í síma 664-8445 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið: sif@skolahjalp.is Umsóknir sendist merktar: Norðlingaskóli Fríkirkjuvegi 1 101 Reykjavík Laus störf Sjá ennfremur: www.kopavogur.is og www.job.is KÓPAVOGSBÆR FRÁ SALASKÓLA Við leitum eftir metnaðarfullum, áhuga- sömum kennurum með frumkvæði sem eru tilbúnir til að taka þátt í þróunar- og nýbreytnistarfi skólans. Okkur vantar: • umsjónarkennara á yngsta stig • umsjónarmann dægradvalar • líffræðikennara • sérkennara Salaskóli er ungur skóli í Kópavogi og þar er skólastarf í stöðugri þróun og mótun. Skólaárið 2005-2006 verða nemendur tæp- lega 500 í 1. - 10. bekk. Skólinn er vel búinn mannafla og búnaði og starfsaðstaða er góð. Starf Salaskóla byggir á traustri hug- myndafræði þar sem rauði þráðurinn er að koma til móts við ólíkar þarfir nemenda. Skólinn býður starfsfólki sínu upp á góðar og hvetjandi vinnuaðstæður. Laun samkvæmt kjarasamningi KÍ og Launa- nefndar sveitarfélaga. Umsóknarfrestur um stöðurnar er til 7. júní nk. Við hvetjum karla jafnt sem konur um að sækja um. Frekari upplýsingar gefa Hafsteinn Karlsson, skólastjóri og Hrefna Björk Karlsdóttir að- stoðarskólastjóri í síma 570 4600. Einnig má finna upplýsingar um skólastarfið á heimasíðu skólans Hafnarfjarðarbær Laust starf á umhverfis- og tæknisviði Umhverfis- og tæknisvið óskar að ráða ritara til afleysinga á tímabilinu 1. júlí 2005 til 1. september 2006. Um er að ræða fullt starf. Helstu verkefni ritara, auk almennra ritarastarfa, eru m.a. skráning í verkefnabókhald sviðsins og umsjón með gögnum, útsending fundarboða og bréfaskriftir vegna afgreiðslu mála, umsjón með skipulagsauglýsingum og fleira því tengt. Góð tölvukunnátta nauðsynleg. Æskileg er reynsla af sambærilegum störfum og lipurð í mannlegum samskiptum. Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Hafnarfjarðar og Launanefndar sveitarfélaga. Upplýsingar um starfið veita Bjarki Jóhannesson sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs og Tina Holm ritari á umhverfis- og tæknisviði. Umsóknum skal skila til umhverfis- og tæknisviðs Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6, eigi síðar en mánudaginn 13. júní 2005. Í samræmi við jafnréttisáætlun bæjarins eru karlar hvattir til að sækja um jafnt sem konur. VELKOMIN TIL HAFNARFJARÐAR! Hafðu samband og fáðu frekari upplýsingar um Hafnarfjörð og margvíslega starfsemi á vegum sveitar- félagsins hjá þjónustuveri bæjarins í síma 585 5500 og á heimasíðunni www.hafnarfjordur.is Búðardalur/Reykhólar Hjúkrunarfræðingar óskast Hvernig væri að njóta sumarsins í fögru um- hverfi í sumar? 1-2 hjúkrunarfræðingar óskast til afleysinga á Heilsugæslustöðina Búðardal/ Reykhólum í sumar. Æskilegt er að vinna geti hafist sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi og fram í september. Upplýsingar veitir Ingibjörg Kristjánsdóttir, hjúkrunarforstjóri, sími 892 1768, netfang ingibjorg@hgbudardal.is .

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.